Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1986, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1986. 7 Fréttir Svona litur hann út Steingrímur Njálsson fyrir allra augum Þrátt fyrir andstöðu yfirvalda birtir DV í dag mynd af kynferðisglæpa- manninum Steingrími Njálssyni er nú afþlánar dóm á Litla-Hrauni fyrir ítrekaða ölvun við akstur. Á borði ríkissaksóknara liggur hins vegar kæra frá foreldrum 13 ára blað- burðardrengs er Steingrímur svívirti með óhugnanlegum hætti síðastliðið vor. Lögmaður foreldranna hefur mælst til þess að Steingrímur verði látinn gangast undir afkynjunarað- gerð vegna kynferðislegs óeðlis síns en hann hefur við yfirheyrslur viður- kennt 12 nauðganir á ungum drengjum og hefur vafalítið fleiri á samviskunni. Steingrímur Njálsson er 44 ára með lögheimili á Siglufirði þar sem hann er fæddur. Hann hefúr þó hald- ið sig mikið á höfuðborgarsvæðinu og búið í leiguíbúðum víða í Reykja- vík. Það var einmitt inn í eina slíka sem hann lokkaði blaðburðardreng- inn síðastliðið vor með afleiðingum er lesa mátti um í viðtali við for- eldra drengsins hér í DV á þriðju- daginn. Þótt myndin, sem hér birtist, sé aðeins rúmlega ársgömul gefur hún ekki fullnægjandi vitneskju um útlit Steingríms Njálssonar í dag. Þegar Steingrímur var handtekinn í vor eftir að hafa svalað hvötum sínum á saklausum blaðburðardreng var hann til dæmis með permanent í hári og stór gleraugu. Steingrímur er rauðbirkinn, meðalmaður á hæð og samsvarar sér vel. I samtölum, er DV hefúr átt við lögreglumenn, hefur komið fram að bamanauðgarar gæta þess vel að breyta reglulega um útlit. Þeir lita hár sitt, setja upp gleraugu, þegar það hentar, og grenna sig jafnvel og fita á víxl. Eðli þeirra er að dyljast. -EIR Steingrímur Njálsson, dæmdur kynferðisglæpamaður. Verður beiðni um afkynjumraðgerð sinnt? Ríkissaksóknari: Af- kynj- unar- aðgerð slegið a frest Að öllum líkindum verður bið á því að ríkissaksóknari taki ákvörð- un um hvort orðið verði við beiðni Svölu Thorlacius hæstaréttarlög- mann um að Steingrímur Njálsson verði gert að gangast undir afkynj- unaraðgerð. „Ég býst við að mál Steingríms verði endursent til RLR til frekari rannsóknar," sagði Hallvaður Ein- varðsson ríkissaksóknari i samtali við DV. Ekki vildi Hallvarður tjá sig frekar um ástæður þessa. -EIR Nauðgaði sofandi bami - lögfræðingur bauð peninga ef kæra yrði dregin til baka „Við vorum að horfa á sjónvarp á aðfangadagskvöld þegar drengurinn okkar brotnaði allt í einu saman og fór að hágráta. Þá fyrst fengum við að heyra sannleikann," sögðu foreldr- ar 8 ára drengs sem er eitt af fjölda- mörgum fómarlömbum kynferðis- glæpamanna. í samtali við DV lýsti móðir drengsins þeirri skoðun sinni að hún væri hjartanlega sammála Svölu Thorlacius hæstaréttarlög- manni að slíka menn ætti að vana: „Þetta er ekki náttúra í þessum mönn- um, heldur ónáttúra." Atburður sá, er hér er greint frá, átti sér stað haustið 1979 og foreldrar dengsins skýra svo frá: „Strákurinn kom heim úr skóla og lagði sig inni í herberginu sínu í grandaleysi. Veit hann ekki fyrr en 56 ára gamall maður, er bjó i sama húsi og við, var allt í einu kominn upp í rúmið, dauðadrukkinn með buxumar niður um sig. Vegna þess hversu lang- ur tími leið frá því að þetta gerðist og drengurinn leysti frá skjóðunni hefur aldrei verið úr því skorið hvort um eiginlega nauðgun var að ræða. Eina sem drengurinn okkar sagði var að maðurinn hefði lagst ofan á sig.“ Svo virðist sem umræddur maður hafi komist inn í íbúðina þar sem drengurinn svaf með því að fara í gegnum sameiginlegt þvottahús. Eftir þennan atburð tóku foreldramir eftir miklum breytingum á syni sínum. Hann varð óömggur, átti bágt með að tjá sig og fór að ganga erfiðlega í skóla. „Við kærðum manninn en vitum ekki frekar um afdrif þessa máls. Lög- fræðingur ódæðismannins hafði hins vegar sambcmd við okkur og bauð peningagreiðslu ef við drægjum kær- una til baka. Því neituðum við alfarið. Svona mönnum á að refsa og helst vana,“ sögðu foreldrarnir. -EIR Komdu með málin til okkar og við gerum tiiboð þér að kostnaðarlausu. NÝJAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR Á SÉRLEGA GÓÐU VERÐI Viðja býður nú nýja gerð eldhúsinnréttinga, sem settar eru saman úr einingum eftir óskum viðskiptavinanna sjálfra Martröð 9 ára drengs: „Talaði blíðlega við mig eins og pabbl“ „Hann talaði blíðlega við mig eins og pabbi, gaf mér peninga og bað mig svo að koma með sér inn á klósett." Þannig fómst 9 ára dreng í austur- bænum í Reykjavík orð er hann loks trúði móður sinni fyrir áreitni fúllorð- ins manns við sig í einum af leiktækja- sölum höfuðborgarinnar. í samtali við DV sagði móðir drengs- ins: „Þetta gerðist um vor en drengur- inn sagði mér ekki frá þessu fyrr en um haustið. í millitíðinni fór hann í sveit og þegar hann kom aftur heim fór ég að taka eftir að ekki var allt með felldu. Drengurinn fékk martraðir um nætur og þorði ekki í skólann. Hann sagði mér að maðurinn hefði lókkað sig inn á klósett leiktækjasal- arins, sest þar á salemið, þrýst sér að sér og þuklað hátt og lágt. Á eftir bauðst maðurinn til að aka drengnum heim og ók með hann langan hring. Á meðan fitlaði hann stöðugt við buxna- klauf á buxum drengsins. Þetta hefúr haft óhugnanleg áhrif á drenginn minn. Ég þekki hann varla fyrir sama bamið.“ Maður sá er hér um ræðir var dæmd- ur í sakadómi fyrir þetta athæfi 1983. Hann hlaut 45 daga varðhald. -EIR Trésmiðjan Viðja hóf nýlega framleiðslu á vönduðum og sterkum eldhúsinnrétt- ingum sem eru afrakstur áralangrar þró- unar og reynslu starfsmanna fyrirtækis- ins. Þær byggjast á einingakerfi sem gerir kaupendunum kleift að ráða stærð, fyrirkomulagi og útliti innan ákveðinna marka. Hægt er að fá innréttingarnar í beyki, eik eða hvítu með sléttum hurðum. Auk þess eru hvítu innréttingarnar fáanlegar með fræsuðum hurðum (sjá mynd). Eldhúsinnréttingarnar frá Viðju eru auð- veldar í uppsetningu og hafa nánast óendanlega uppröðunar- og innréttinga möguleika ásamt miklu úrvali af grindum og körfum í skápa og skúffum á léttum brautum. Innréttingarnar einkennast af góðri nú- tímalegri hönnun og sígildu útliti sem stenst tímans tönn. Hurðabreiddir: 30 cm - 40 cm - 50 cm - 60 cm 20% útborgun 12 mánaða greiðslukjör. Trésmiðjan viðja Smiðjuvegi 2 Kópavogi sími 44444 þar sem góðu kaupin gerast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.