Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986. 21 Ráðstefna á vegum stúdentaráðs í tilefni 75 ára afmælis Háskóla íslands gengst stúdentaráð Há- skóla íslands fyrir ráðstefnu sem ber yfirskriftina „Háskóli íslands í nútíð og framtíð. Breyttir kennslu- hættir - betri háskóli.“ Ráðstefnan verður haldin á morgun, laugardaginn 11. október, í Odda, stofu 101, og hefst hún klukkan 14.00. Rektor Háskóla íslands, Sig- mundur Guðbjarnason, setur ráðstefnuna. Erindi flytja, prófess- or Sigurður Líndal: Nám og kennsla fyrr og nú, Porsteinn Vil- hjálmsson dósent: Menntun, menning, metnaður, Lára M. Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags íslands: Þróun Háskólans og tengsl hans við at- vinnulífið, Halldór Guðjónsson, kennslustjóri Háskóla íslands: Há- skólar hér og þar, Þorbjörn Broddason dósent: Tæknivætt skólastarf, Ulfar Bergþórsson stúd- ent: Hugleiðing um kennsluhætti og Jón Torfi Jónasson dósent: Kennsluhættir, starfshættir? Ráðstefnunni stýrir Eyjólfur Sveinsson, formaður stúdentaráðs Háskóla fslands. í ráðstefnuhléi verða kaffiveitingar og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. mynd: „Háskóli fslands í nútíð og framtíð, breyttir kennsluhættir - betri Háskóli" er yfirskrift ráð- stefnunnar sem verður i Odda á morgun. 0 C E C c e c 111 c c c II ■ 1 ■ s 8 1 M 1 II En samt er hann sjálfur hrædd- astur allra og einmana. Herra Hú er mikill „hræðari" Um síðustu helgi var frumsýnt hjá Leikfélagi Akureyrar leikri- tið Herra Hú eftir Finnann Hannu Mákelá. Leikritið fjallar á varfærinn og skemmtilegan hátt um óttann og segir frá litlum og skrítnum svörtum karli sem hefur fengið það hlutverk í arf frá forfeðrum sínum að hræða börn. Það er hann sem lætur marra í hurðum og gólfum og ýlfra i gluggum og hann er örugglega undir rúminu. Þrátt fyrir það að Herra Hú sé mikill „hræðari" og jafnvel göldróttur er hann samt sjálfur hræddastur allra og einmana. Vesalings herra Hú eignast þó vináttu tveggja barna og bjórsins sem hefur gert sér stíflu í tjörn í nágrenninu. Leikritið opnar heim þar sem frelsi, sönn vinátta og jákvæð leikslok eru möguleg. Leikarar eru Skúli Gautason, Inga Hildur Haraldsdóttir og Einar Jón Briem. Leikstjóri er Þórunn Sigurðardóttir. „VIÐ ERUM ENNÞÁ STRENGJABRÚÐUR“ segir dr. Jón Óttar Ragnarsson, stöðvarsljórinn á Stöð 2, í Vikuviðtalinu. DAGUR Á BYLGJUNNI. Vikan skáskýtur sér á milli dagskráratriða _____________á Bylgjunni,__________ Rauður dagur í Búdapest. Þýskaland: Vínlandið góða. Sakamálasagan: Slys eftir Agöthu Christie. Pehrson og Stella, sænskur kvikmyndatökumaður segir frá vinnu á íslandi. Handavinna. Krossgátur. Myndasögur. Það er fjölbreytt efni í hverri einustu VIKU. * ER BLAÐIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.