Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Blaðsíða 8
30' FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986. Mynd- bönd Umsjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson J. Staðan í efstu sætum DV-listans er að mestu óbreytt frá í síðustu viku. Beint í fimmta sætið fer grín- mynd með galgopanum Tom Hanks í aðalhlutverki. Önnur CBS mynd er í sjöunda sæti. Þetta er spennu- mynd Frakkans Luc Besson sem fjallað er um á síðunni. I níunda sætinu er einnig nýútkomin mynd, Frigth nigth. Hún ku vera ansi magnaður hryllingur. Á þáttalist- anum sest spánýr ástralskur myndaflokkur í efsta sætið. Micha- el York og Sigfrid Thornton eru þar í helstu hlutverkum. I Bandaríkjunum fer óskarsverð- launamyndin Jörð í Afríku úr áttunda sæti í það fyrsta. Hana ætti að vera óþarfi að kynna. Róm- antísk náttúrulífsmynd a la Hollywood. Það kann Kaninn að meta. -ÞJV ★★★ í ljúfum leik DV-LISTINN __________MYNDIR_____________ 1. (1) Teen Wolf 2. (2) Black Moon Rising 3. (4) Quicksilver 4j (6) Runaway Train 5. (-) The Man With One Red Shoe 6. (3) Gotcha 7. ( -) Subway 8. (5) Moving Violation 9. (-) Fright Night 10. (7) D.A.R.Y.L___________ __________ÞÆTTIR_____________ 1. (-) The Far Country 2. (1) If Tomorrow Comes 3. ( 2) The Twilight Zone 3-4 4. (4) Pétur mikli 5. (3) Harem 6. ( 5) Police in Action 7. ( 6) The Twilight Zone 1-2 8. (9) Kane and Able 9. (7) Blood and Orchids 10. (10) Umsátrið *__________BRETLAND__________ 1. (8) Out of Africa 2. (21) Gang Ho 3. (1 ) Murphy’s Romance 4. (2) Spies Like Us 5. ( 3) Iron Eagle 6. (22) Young Sherlock Holmes 7. (4) The Jewel of the Nile 8. ( 5) Back to the Future 9. (7) The Jagged Edge 10. (12) Quicksilver SUBWAY Útgefandi: CBS/Steinar Framleiðendur: Luc Besson, Francois Ruggieri Handrit: Luc Besson o.fl. Leikstjóri: Luc Besson Aðalhlutverk: Christopher Lambert, Isa- belle Adjani Bönnuð yngri en 12 ára Subway er önnur mynd Frakkans Luc Besson og ein af skemmtile- gustu myndum síðasta árs. í aðalhlutverki er Christopher Lam- bert sem fyrst vakti athygli í hlutverki Tarsans apabróður og lék nú síðast í Highlander við góð- an orðstír. í Subway leikur Lambert smá- krimmann Fred. Ung kona býður honum í afmælið sitt. I þakklætis- skyni sprengir hann upp peninga- skáp heimilisins. Maður stúlkunn- ar er valdamikill og lætur menn sína elta Fred uppi. Hann er hins vegar ekkert á því að láta feng sinn af hendi og flýr undan þeim niður i undirgöng lestarstöðvanna. I undirgöngunum gerist síðan meiri- hluti myndarinnar. Þar er Besson á heimavelli með myndatöku- manninn Carlo Varini í broddi fylkingar. í stuttu máli sagt er myndatakan í Subway hreint út sagt frábær. En það er ekki bara myndatakan sem gerir myndina eftirtektar- verða. Besson snýr út úr hinni hefðbundnu formúlu spennumynda á afar skemmtilegan hátt. Eftir rismikla byrjun lætur hann aðal- eltingaleikinn að mestu lönd og leið. Fred snýr sér að öðrum hlut- um, eins og að reyna að ná ásUim stúlkunnar sem hann stal frá og stofna hljómsveit! Þannig er Sub- way uppfull af húmor og uppákom- um sem í raun eiga ekkert skylt við mynd sem þessa. Það er aðeins einn galli á þessari myndbandaútgáfu. Myndin er „döbbuð“ með ensku tali. En annað var víst ekki tekið í mál hjá ensku- mælandi þjóðum. Við sem sáum upprunalegu útgáfuna hér heima söknum hins vegar frönskunnar. Franskan gaf myndinni nefnilega dálítið ferskt yfirbragð. Þrátt fyrir það er Subway ánægjuleg sending. Þetta er mynd sem tvímælalaust er hægt að mæla með.- Fred hugsar ráð sitt i lestarstöðinni. ★★ Uppreisnin í skólanum TAPS Útgefandi: CBS/Steinar. Framleiðendur: Stanley R. Jaffe, Howard B.Jaffe. Handrit: Darry Ponicsan, Robert Mark Kamen. Leikstjórn: Harold Becker. Aðalhlutverk: George C. Scott, Timothy Hutton. Bönnuð yngri en 16 ára. Taps gerist í herskóla. George C. Scott leikur hershöfðingja ' sem stjornar skolanum með aðstoð liðs- foringjaefnis, sem Timothy Hutton leikur. Það stendur til að rifa skól- ann en hershöfðinginn og nemend- ur hans leggjast mjög gegn því. Þegar hershöfðinginn svo fellur frá vopnast nemendurnir. Þeir slá eign sinni á skólann og krefjast þess að honum verði ekki lokað. Þessi mynd tekur ekki málstað þeirra sem áhorfandinn heldur með. Hún endar beinlínis illa. Það kemur í ljos að nemendurnir voru að verja rangar hugmyndir. Þeir trúðu blint á það sem þeim var kennt í skólanum og það kostaði marga þeirra lífið. Myndina mætti því skoða sem ádeilu á heilaþvott heráins. Að því leyti er hún ólik svipuðum myndum sem fjalla á einn. eða annan hátt um her- mennsku. Af aðalleikurunum þá kemur Timothy Hutton mest við sögu. Myndin var gerð 1981, ekki löngu eftir að hann hlaut óskarsverðlaun fyrir Ordinary people. Hutton er sannfærandi í hlutverki liðsfor- ingjaefnisins og sýnir eftirminni- lega uppgjöf persónunnar í lokin. Þess má og geta að einn nemand- ann leikur Sean nokkur Penn. Hann og Hutton léku síðar saman í annarri mynd, Fálkanum og snjó- manninum, sem frægt er orðið. ★★ ______________ Stórbrnni THE TOWERING INFERNO Útgefandi: Warner/Tefli Framleióandl: Irwin Allen Handrit: Stirling Silliphant Leikstjóri: John Guillermin Aðalhlutverk: Paul Newman, Steve McQueen o.fl. Bönnuó yngri en 16 ára Stórslysamyndir voru geysi- vinsælar hér í eina tíð. I þessum myndum voru séttar upp slíkar krísur að áhorfendur tóku andköf af skelfingu. í Towering inferno lendir hópur þekktra leikara í eldsvoða í stór- hýsi. Paul Newman leikur arki- tektinn Doug Roberts sem hannaði höllina. Sonur verktakans, sem sá um að reisa kumbaldann, sveikst hins vegar um að ganga almenni- lega frá raflögnum. Þess vegna kviknar í öllu saman, einmitt þegar vígsla kastalans stendur sem hæst. Gestirnir lenda í stórhættu. Sumir þeirra deyja en flestir aðalleika- ranna sleppa lifandi. Slík eru forréttindi stjarnanna. Towering inferno er alveg dæmi- gerð stórslysamynd. Margar per- sónur eru kynntar til sögunnar og áhorfendur fylgjast spenntir með hvernig þeim gengur að bjarga sér úr vandræðunum. Engin af stór- stjörnunum sýnir þó neinn stjörnu- leik. Newman er hálfutangátta í hlutverki arkitektsins en hefur alltaf bláu augun til góða. Steve McQueen er ösköp blátt áfram sem slökkvistjórinn. Hann bjargar öllu og æðrast aldrei. Hvað annað? Myndin var útnefnd til óskars- verðlauna 1974 en virkar nú dálítið gamaldags. Þrátt fyrir árin tólf verður hún samt að teljast þokka- legasta afþreying. Tæknivinnan er til dæmis merkilega góð og hefur elst betur en margir leikaranna. ppftTFC^^ Gula hættan PROTECTOR Útgefandi: Golden Harvest/Háskólabió Framleiðandi: David Chan Handrit og leikstjórn: James Clickenhaus Aóalhlutverk: Jackie Chan Bönnuð yngri en 16 ára Protector, eða Verndarinn, er ekta hasarmynd af ódýrari gerð- inni, slagsmál, skotbardagar og ástarleikir. Aðalsöguhetjan, New Yorklöggan Billi Wong, er send til Hong Kong við annan mann til að uppræta smyglara. Eins og nafnið gefur til kynna er Wong þessi aust- urlenskur að uppruna og kann þar af leiðandi ýmsislegt fyrir sér í karate. Ekki veitir heldur af. Þeir kumpánar fá heldur slæmar mót- tökur hjá glæpamönnunum. Þá kemur sér vel að Wong kann að verja hendur sínar betur en nokkur annar á þessum slóðum. Miðað við aðrar súperhetjur, eins og Stallone, Bronson, Eastwood og fleiri, þá stenst Wong þessi engan samanburð. Hann er eins konar sambland af Bruce Lee og Bronson. Berst jafn vel og þeir báðir en leik- ur enn verr en sá síðarnefndi. Þá er mikið sagt. Að auki er hann gersamlega ófær um að mæla á enska tungu og ætti alls ekki að reyna það. Ofan á þetta bætist svo að handritið er hvorki fugl né fisk- ur og samleikarar hetjunnar leika lítið betur en hann. Hins vegar má segja myndinni til hróss að mörg bargdagaatriðin eru krassandi. Það er út af fyrir sig næg ástæða fyrir þá sem hafa gaman af svona hasar til að taka myndina á leigu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.