Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1986, Side 4
22
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986.
Frímerkjasýning „Reykjavík 86“
safn, spjaldbréfasafn og átthaga-
safn úr Hafnarfirði. Loks verða
sýnd póstkort með myndum frá
Reykjavík á ýmsum tímum.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis en sýningargestum gefst
kostur á að kaupa póstkort með
myndum af ýmsum póststimplum
frá Reykjavík. Er upplagið tölusett
og takmarkað. Gilda kortin sem
happdrættismiði. Er vinningurinn
frímerkjasafn sem sýnt verður í
ramma nr. 1 á sýningunni og heitir
Reykjavík 200 ára.
Sunnudaginn 12. október verður
skiptimarkaður í félagsheimili Fé-
lags frímerkjasafnara í Síðumúla
17 og verður hann haldinn kl.
13-16. Eru allir velkomnir á mark-
aðinn, jafnt félagsbundnir sem
ófélagsbundnir frímerkj asafnarar.
Sýningin er opin til kl. 21.00 í
kvöld, kl. 13-20 á morgun, laugar-
dag, og á sunnudaginn verður hún
opin frá kl. 13-19.
Pyrstu tónleikar Kaitimermúsíkklúbbsiiis
Sunnudaginn 12. óktóber verða
fyrstu tónleikar hjá Kammermús-
íkklúbbnum á starfsárinu
1986-1987. Verða þeir í Bústaða-
kirkju kl. 20.30. A efnisskrá eru
eftirtalin verk:
Dúó fyrir klarínettu og fagott í
C-dúr, WoO 27.1 og Dúó fyrir klarí-
nettu og fagott í B-dúr, WoO 27.3
eftir Ludwig van Beethoven. Flytj-
endur Einar Jóhannesson og
Hafsteinn Guðmundsson.
Serenata fyrir 8 blásturshljóðfæri
í C-moll, K. 388, eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Flytjendur, Daði
Kolbeinsson óbó, Einar Jóhannes-
son og Óskar Ingólfsson klarínetta,
Joseph Ognibene og Emil Frið-
finnsson horn, Hafsteinn Guð-
mundsson og Björn Árnason
fagott.
Eftir hlé verður fluttur kvintett
fyrir strengjahljóðfæri í C-moll, K.
406, eftir Wolfgang Amadeus Moz-
art. Flytjendur Szymon Kuran og
Kathleen Bearden fiðla, Guðný
Guðmundsdóttir og Elizabet Dean
lágfiðla og Arnþór Jónsson knef-
iðla.
Félag frímerkjasafnara heldur
frímerkjasýninguna „Reykjavík
86“ dagana 9.-12. október í húsa-
kynnum Landssambands íslenskra
frímerkjasafnara að Síðumúla 17 í
Reykjavík á 2. hæð í vesturenda.
Á sýningunni verður reynt að
hafa sem mesta fjölbreytni í söfn-
um. Verða meðal annars sýnd
tegundasöfn sem sýna fugla, dýr,
skip, bíla o.s.frv. Þá verður lítil
samkeppnisdeild og þar sýnd flug-
Í5LSND:)
120 5
íslensk grafík ’86
Um síðustu helgi var opnuð á Kjarvalsstöðum sýningin Islensk grafík ’86. Félai
ið íslensk grafík er nú 17 ára. Er þetta 7. félagssýningin og sú fyrsta sem haldin i
á Kjarvalsstöðum. Á þeim þrem árum sem liðin eru frá síðustu sýningu hafa mari
ir nýir félagar bæst í hópinn og eru félagar nú 41 en af þeim búa 34 i Reykjav
og nágrenni en 3 erlendis.
Þrjátíu meðlimir taka þátt í sýningu þessari og er það tímanna tákn hve litanotl
un hefur aukist á undanförnum árum og borið nýjan ferskleika inn í grafíklistina.
leiklestur
í tilefni leiðtogafundarins
í tilefni leiðtogafundar Reagans og Gorbatsjovs ætlar Leikfélag Reykjavíkur í
bjóða upp á sviðsettan leiklestur á nýju bandarísku leikriti um friðarviðræður stó
veldanna. Leikritið heitir Gönguferð í skóginum (A walk in the woods) og er eft
Lee Blessing sem er með athyglisverðari yngri höfundum þar í landi.
Leikritið gerist í Genf í Sviss í tengslum við afvopnunarviðræðurnar og fjall:
um tvo menn sem eru í forsvari fyrir stórveldin tvö, Bandaríkin og Sovétríki
Þessir samningamenn fara gjarnan í gönguferðir út í skóg til þess að ræða heimsmá
in og möguleika á friði.
Það eru leikararnir Gísli Halldórsson og Þorsteinn Gunnarsson sem fara mi
hlutverk Rússans Botvinniks og Bandaríkjamannsins Honeyman. Þýðinguna ger
Sverrir Hólmarsson og leikstjóri er Stefán Baldursson.
Leikritið verður aðeins flutt tvisvar, á laugardag og sunnudag, kl. 15.00 bác
dagana. Verði aðgöngumiða er mjög stillt í hóf. Kosta þeir 300 kr.
Messur
Keflavíkurkirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Beðið fyr-
ir friði. Munið skólabílinn. Sóknar-
prestur.
Fíladelfía, Hátúni 2
Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn
guðsþjónusta kl. 20. Kjell Samuels-
son frá Svíþjóð talar og syngur.
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sunnudaginn 12.
október 1986.
Við biðjum sérstaklega fyrir friði
í messunum. Kirkjurnar eru opn-
ar á fundartíma leiðtoga stórveld-
anna.
Árbæjarprestakall
Bamasamkoma í Foldaskóla í Graf-
arvogshveríí laugardaginn 11. okt.
kl. 11. árdegr °unnudagur: Bama-
samkoma í satnaðarheimili Árbæjar-
sóknar kl. 10.30 árdegis. Guðsþjón-
usta í safnaðarheimili Árba ’ "' ókn-
ar kl. 14. Organleikari Jón iviyrdal.
Guðbjört Kwien syngur einsöng í
messunni. Hlutavelta og flóamark-
aður Kvenfélags Árbæjarsóknar
eftir messu kl. 15. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Áskirkja
Bamaguðsþjónusta kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Árni Bergur
Sigurbjömsson.
Breiðholtsprestakall
Bamasamkoma í Breiðholtsskóla kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14 í Breiðholts-
; skóla. Sr. Láms Halldórsson.
Bústaðakirkja
Barnasamkoma kl. 11. Guðrún Ebba
Ólafsdóttir og Elín Anna Antons-
dóttir. Messa kl. 14. Organisti Guðni
Þ. Guðmundsson. Kvenfélagsfundur
mánudagskvöld. Æskulýðsfélags-
fundur þriðjudagskvöld. Félagsstarf
aldraðra miðvikudagseftirmiðdag.
Sr. Ólafur Skúlason.
Digranesprestakall
Barnasamkoma í safnaðarheimilinu
við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan kl. 11.
Laugardagur: Bamasamkoma kl.
10.30. Egill og Ólafía. Sunnudagur:
Kl. 11. Messa. Beðið fyrir friði og
góðum árangri leiðtogafundarins í
Reykjavík. Ræðuefni helgað þessu.
Elín Sigurvinsdóttir syngur „Friðar-
ins Guð“ eftir Áma Thorsteinsson.
Sr. Þórir Stephensen. Messa kl. 14.
Sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn
syngur við báðar messurnar. Organ-
isti Birgir Ás Guðmundsson.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Sighvatur
Karlsson.
Fella- og Hólakirkja
Bamaguðsþjónusta - Kirkjuskóli kl.
11. Ragnheiður Sverrisdóttir. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Jón Bjarman
messar. Organisti Guðný Margrét
Magnúsdóttir. Sr. Hreinn Hjartar-
son.
Grensáskirkja
Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14.
Organisti Ámi Arinbjamarson.
Kvöldmessa með altarisgöngu kl.
20.30. „Ný tónlist“. Þorvaldur Hall-
dórsson stjómar söng og UFMH
tekur þátt í messunni. Sr. Halldór
S. Gröndal.
Hallgrímskirkja
Bamasamkoma og messa kl. 11.
Fermd verða: Hrafn Árnason,
Granaskjóli 40, og Katrín María
Káradóttir, Barónsstíg 57. Altaris-
ganga. Sr. Karl Sigurbjömsson.
Þriðjudagur 14. okt.: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30.
Landspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Jón Bjarm-
an.
Kirkja heyrnarlausra
Messa í Hallgrímskirkju kl. 14. Sr.
Miyako Þórðarson.
Háteigskirkja
Messa kl. 10. Bamaguðsþjónusta kl.
11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl.
14. Sr. Arngrímur Jónsson.
Kársnesprestakall
Bamasamkoma í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 11 árdegis. Messa í Kópa-
vogskirkju-kl. 14. Fermdur verður:
Ólafur Árni Sveinsson. Aðalfundur
safnaðarins verður haldinn í kirkj-
unni að messu lokinni. Sr. Árni
Pálsson.
Langholtskirkja
Óskastund barnanna kl. 11. Söngur,
sögur, leikur. Þórhallur Heimisson
og Jón Stefánsson sjá um stundina.
Guðsþjónusta kl. 14. Prestur sr. Sig-
urður Haukur Guðjónsson. Organ-
isti Jón Stefánsson. Sóknarnefndin.
Laugarneskirkj a
Laugardagur 11. okt. Guðsþjón-
usta í Hátúni 10B kl. 11. Sunnudag-
ur 12. okt. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúss-
prestur predikar. Kirkjukaffi.
Mánudagur 13. okt. Æskulýðsfé-
lagið kl. 18. Þriðjudagur 14. okt.:
Bænaguðsþjónusta kl. 18. Tónlist frá
kl. 17.50. Miðvikudagur 15. okt.:
Síðdegiskaffi kl. 14.30. Jóhann Páls-
son sýnir myndir. Sóknarprestur.
Neskirkja
Miðvikudagur: Fyrirbænamessa kl.
18.20. Sr. Frank M. Halldórsson.
Fimmtudagur: Opið hús fyrir aldr-
aðra kl. 13-17. Biblíulestur kl. 20. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Seljasókn
Fyrstu barnaguðsþjónustur vetrar-
ins verða í Seljaskóla og Öldusels-
skóla kl. 10.30. Almenn guðsþjónusta
í Ölduselsskóla kl. 14 (ath. breyttan.
messutíma). Þriðjudagur 13. okt.:
Fundur í æskulýðsfélaginu í Tinda-
seli 3 kl. 20. Aðstoðarprestur.
Seltj arnarneskirkj a
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Börnin fá
barnaefni afhent. Nýir söngvar
kynntir. Framhaldssagan byrjar.
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Sig-
hvatur Jónasson. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Kaffisopi á
eftir. Mánudagskvöld: Opið hús
fyrir unglinga kl. 20.30. Allir ungl-
ingar 13-15 ára velkomnir. Verum
með. Sóknarprestur.
Kirkja óháða safnaðarins
Kirkjudagur Óháða safnaðarins er
sunnudaginn 12. okt. Guðsþjónusta
verður í kirkju safnaðarins kl. 14.
Sr. Emil Björnsson, fyrrv. safnaðar-
prestur, predikar. Sr. Ragnar Fjalar
Lámsson, sóknarprestur í Hall-
grímspréstakalli þjónar fyrir altari.
Irma ðskarsdóttir flautuleikari leik-
ur einleik. Heiðmar Jónsson organ-
isti stjórnar kirkjukór safnaðarins.
Kaffiveitingar verða eftir messu í
umsjón kvenfélags safnaðarins. Sér-
stök barnasamkoma verður í kirkj-
unni eftir að börnin hafa gætt sér á
gosi og góðgæti.
Fríkirkjan í Hafnarfírði
Bamasamkoma kl. 11. Sr. Einar Eyj-
ólfsson.
Ýmislegt
Kvenfélag Bústaðasóknar
heldur fund mánudaginn 13. okt. kl. 20.30
í safnaðarheimilinu. Á fundinum verður
fjölbreytt ostakynning. Mætið vel og
stundvíslega.
Átthagafélag Strandamanna
heldur spilakvöld í Domus Medica laugar-
daginn 11. október kl. 20.30. Félagsmenn
íjölmennið.
Hundur í óskilum á Dýraspít-
alanum
Á Dýraspítalanum er í óskilum stór svart-
ur hundur með hvítt á bringu. Hann fannst
á Ártúnshöfða 6. október sl. Upplýsingar
í síma 76620.
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
Félagsvist verður laugardaginn 11. októb-
er kl. 14 e.h. í félagsheimilinu Skeifunni
17, 3. hæð. Allir velkomnir.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístundahóps-
ins Hana nú í Kópavogi verður á morgun,
laugardaginn 11. október. Lagt af stað kl.
10 frá Digranesvegi 12. Við göngum hvern-
ig sem viðrar en styttum gönguna í
haustvindum og rigningu. Nýlagað mola-
kaffi. Markmið göngunnar er samvera,
súrefni og hreyfing.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
Súnnudaginn 12. október verður haldinn
kirkjudagur safnaðarins. Eftir messu
verður kaífisala í Kirkjubæ. Þeir sem vildu
gefa kökur komi þeim í Kirkjubæ milli
kl. 10 og 12 á sunnudag.
Tónleikar á landsbyggðinni
Nú um helgina munu harmóníkuleikar-
amir Hrólfur Vagnsson og Ursula Schmid
halda tónleika víðs vegar um landið eða
nánar tiltekið á Selfossi, Akureyri, Húsa-
vík, Isafirði og Bolungarvík. Þau Hrólfur
og Ursula stunda bæði nám við Hoch-
schule fur Musik und Theatre í Hannover
í Vestur-Þýskalandi. Efnisskrá tónlei-
kanna verður fjölbreytt og leika þau m.a.
verk eftir Bach, Scarlatti, Lizt, Albeniz,
Lundkvist og Zolotarjow.