Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1986, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 1986.
61
Sérstæð sakamál
þætti leitt til þess að vita að konan
hans skyldi halda svona mikið fram
hjá honum. Þetta væri þó staðreynd
því allir vissu það.
Auðvitað var þetta hreinn upp-
spuni. Hann hafði hins vegar þau
áhrif á Taylor að hann hélt rakleiðis
heim til þess að koma lagi á hlutina.
Refsileiðangurinn byrjaði því ekki
vel. Taylor þeytti upp hurðinni og
æddi inn. Þar steig hann á kóngu-
lóna sem varð fyrir honum í forstof-
unni. Hann tók nú dauða gæludýrið
og kastaði því á eftir konu sinni og
dóttur. Hann ætlaði að kenna þeim...
Skipti um skoðun
Svo skipti hann allt í einu um skoð-
un. Hann krafðist þeirra peninga
sem þær hefðu. Þá fékk hann og síð-
an hélt hann í burtu en lýsti þó yfir
því að hann skyldi koma lagi á hlut-
ina þegar hann kæmi heim.
Kathleen og Karen biðu hans nú
hræddar. Hræðsla þeirra var meiri
en hún hefði verið undir venjulegum
kringumstæðum því Karen hafði fyr-
ir nokkru kynnst ungum manni,
Kevin Woolgar, og var nú ólétt.
Kevin og hún voru hins vegar búin
að ákveða að ganga í hjónaband.
Mæðgurnar vissu aftur á móti að
George Taylor myndi missa stjórn á
skapi sínu þegar hann fengi þessa
fregn.
Klukkustundirnar liðu og mæðg-
urnar biðu í ofvæni.
Kathleen gefst upp
Kathleen hélt hins vegar ekki út
biðina. Hún var fyrir löngu búin að
fá nóg og nú hafði hún ekki kjark
lengur til þess að horfast í augu við
vandamálin.
Hún gekk fram í baðherbergi og
tók inn handfylli af pillum. Þá hafði
hún læst sig þar inni. Sjálfsmorð var
eina leiðin, fannst henni. Pillurnar
voru þó ekki nógu sterkar til þess
að vinna á henni.
Þess vegna var Kathleen Taylor
enn með fullri meðvitund þegar mað-
ur hennar kom loks heim. Móðir og
dóttir tóku í hendur hvor annarrar
er George Taylor ruddist inn í stof-
una. Hann var vel drukkinn og hélt
á bjórflösku í hendinni. Hann réðst
strax á þær og ætlaði fyrst að berja
konu sína. Hún datt í gólfið og fór
að hljóða.
Svo sneri George Taylor sér að
Karen. Hún var hins vegar svo ung
og lipur að henni tókst að losna úr
fangbrögðum föður síns. Svo flýði
hún út úr húsinu.
Móðirin hljóðar
Hún var hins vegar ekki komin
langt þegar hún heyrði skelfingaróp-
in í móður sinni. Hún ákvað því að
snúa við til að hjálpa henni.
Þá fyrst áttaði hún sig á því að hún
var með hníf í vasanum en hún var
í gallabuxum. Þegar hún kom inn í
íbúðina heyrði hún vein í móður
sinni einhvers staðar inni í myrku
herbergi.
Allt í einu var hún hins vegar sleg-
in niður. Faðir hennar hafði beðið
George Taylor.
eftir henni. Hann hafði verið í felum
á bak við útihurðina og nú kastaði
hann sér á hana, greip um hálsinn á
henni og lyfti bjórflöskunni til höggs.
Karen óttaðist nú að verða drepin
og dró upp hnífinn sem hún rak svo
í síðu föður síns.
Taylor sleppti hins vegar ekki háls-
takinu. Þótt pillurnar sem Kathleen
hafði tekið væru farnar að hafa
nokkur áhrif á hana tókst henni þó
að draga særðan mann sinn ofan af
dótturinni en svo hatrammur var
George Taylor að þegar hann var
fluttur í burt í sjúkrabílnum þá barð-
ist hann um á hæl og hnakka. Þá
urðu læknar og hjúkrunarkonur að
berjast við hann síðustu tvo tímana
sem hann lifði.
Karen eignast barn
Karen eignaðist barnið sem hún
hafði gengið með er atburðurinn
gerðist á meðan hún beið eftir því
að málið yrði tekið fyrir en réttar-
höldunum hafði verið frestað af því
hún var með barni. Flestir bjuggust
við því að hún fengi skilorðsbundinn
dóm vegna þeirra þjáninga sem faðir
hennar hafði leitt yfir haná og móð-
urina. Allir sem þekktu til fjölskyld-
unanr voru á einu máli um að Karen
ætti skilið að málstað hennar yrði
sýndur skilningur. Kviðdómendur
sýknuðu hana af morði að yfirlögðu
ráði en sakfelldu hana fyrir mann-
dráp.
Dómarinn
J. McCowan, dæmdi þó Karen til
fjögurra ára vistar í Hollowayfang-
elsinu. Hann sagði við dómsupp-
kvaðninguna að Karen hefði að vísu
verið að verja hendur sínar en þó
hefði henni ekki verið mjög alvar-
lega ógnað. Þar að auki hefði faðir-
inn ekki meitt hana. Þá þótti ýmsum
of langt gengið.
Eftirleikurinn varð svo sá sem
fremst greinir. Niðurstaða er ekki
fengin í málinu en það hefur vakið
mikla athygli á Bretlandseyjum og
reyndar utan þeirra og er þess beðið
með eftirvæntingu í hópi þeirra
kvenna sem fara með stjóm ýmissa
samtaka kvenna hvort málstaður
Karen verður metinn á nýjan leik
henni í hag svo hún verði annað-
hvort flutt í annað og betra fangelsi
eða jafnvel leyft að fara heim svo hún
geti tekið höndum saman við mann-
inn sem bíður með barn þeirra.
fORÐSENDING FRÁ
HITAVEITU REYKJAVlKUR
Húsbyggjendur eru minntir á að hitaveituheimæðar í
hús eru ekki lagðar ef frost er í jörðu nema gegn
greiðslu þess aukakostnaðar sem af því leiðir.
Til þess að sleppa við þennan aukakostnað þurfa
húseigendur að uppfylla eftirfarandi skilyrði fyrir 1.
nóvember nk.:
1. Leggja inn beiðni um tengingu hjá Hitaveitunni.
2. Hafa hús sín tilbúin til tengingar.
Hús telst tilbúið til tengingar þegar því hefur verið
lokað, hitakerfi lagt og lóðjöfnuð u.þ.b. í rétta hæð.
FLUTT:
NÝTT HEIMILISFANG
NÝTT SÍMANÚMER
Höfum flutt starfsemi okkar að Borgartúni 26.
Höfum fengið nýtt símanúmer 622890-622891.
biisiál s.f.
Borgartúni 26,
105 Reykjavík.
Sími 622890-622891.
Til sölu
notuð
skrifstofuhúsgögn:
skrifborð - stólar - fundaborð -
afgreiðsluborð, laus skiirúm og margt fleira.
I EINSTAKT
| TÆKIFÆRI
Opið í dag kl. 14-18,
laugardag kl. 14-16.
Komið í Síðumúla 12, 2. hæð.
Dagblaðið-Vísir
SELJUM IMÝJA
OG NOTAÐA
BÍLA
Tegund
BMW 7281 Automatic......
BMW 5251 Automatic......
BMW520I.................
BMW520 .................
BMW518..................
BMW320I.................
BMW 320 Automatic.......
BMW316..................
BMW316..................
BMW318I.................
BMW318I.................
RenaultH Automatic......
Renault5TL............
Renault5TL............
.............1981
..............1984
..............1982
.............1981
..............1982
............ 1983
.............1981
..............1984
..............1982
..............1982
..............1981
..............1985
..............1982
..............1980
Opið laugardag 1 — 5.
KOMIÐ SKOÐIÐ OG REYNIÐ VIÐSKIPTIN
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 686633