Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Síða 3
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986.
3
Fréttir
Þorvarður Elíasson skólastjóri:
Spara má milljarð
í menntakerfinu
Þorvarður Elíasson, skólastjóri
Verslunarskólans, segir í ritinu „Rík-
isskólar eða einkaskólar?", sem
Stofnun Jóns Þorlákssonar hefur gefið
út, að spara megi milljarð í mennta-
kerfinu, miðað við verðlag ársins 1984,
ef menntamálaráðuneytið hætti að
reka skólana og þeir yrðu sjálfstæðar
stofhanir. Rekstur þeirra sem sjálf-
stæðra stofhana yrði svo fjármagnað-
ur þannig að ríkið greiddi fyrir hvem
nemanda ákveðna upphæð á ári, yrði
hún miðuð við framlög til grunnskóla
i Reykjavík hvað grunnskólana varð-
aði og framlög til tveggja hagkvæ-
mustu menntaskólanna hvað
frcimhaldsskóla varðaði.
Á hádegisverðarfundi sem Stofnun
Jóns Þorlákssonar hélt í tilefhi af út-
komu ritsins, en í það skrifar auk
Þorvarðar Guðmundur Heiðar Frí-
mannsson, kom fram hjá Þorvarði að
það sem hann hugsaði sér með sínum
hugmyndum væri að stofnaður yrði
hérlendis „námsmarkaður" þar sem
skólakerfið yrði rekið svipað og verk-
takastarfsemi.
Ef athugað er hvernig talan einn
milljarður er fengin má visa til tveggja
taflna í ritgerð Þorvarðar. Þar kemur
fram að ef menntamálaráðuneytið
hættir rekstri skólanna má spara þar
15 milljónir í mannahaldi. Ef allir
grunnskólar landsins væru reknir
þannig að ríkið greiddi sama framlag
til hvers nemanda og það greiðir í
Reykjavík má spara þar rúmlega 400
milljónir, ef allir framhaldsskólar
landsins væru reknir þannig að ríkið
greiddi með hverjum nemanda sömu
upphæð og til tveggja hagkvæmustu
menntaskólanna, MR og MS, mætti
spara þar um 200 milljónir og ef ríkið
greiddi með hveijum háskólanema
sem svarar til þess sem Háskóli ís-
lands fær mætti spara þar um 400
milljónir. Athuga skal að allar þessar
tölur eru miðaðar við 1984.
I fjörugum umræðum, sem urðu um
þetta mál á hádegisverðarfundinum,
kom fram hjá Þorvarði að núverandi
menntakerfi væri stirt í vöfum, staðn-
að og laun innan þess lág. Ríkisvaldið
ætti ekki fé til að standa undir þeim
kostnaði sem þyrfti í kerfið og oft á
tíðum hefði verið um rangar fjárfest-
ingar að ræða innan þess. Nefndi
Þorvarður sem dæmi auða skóla sem
enn væru á fjárlögum.
í hugmyndum hans um „námsmark-
að“ kom fram að þar ættu að gilda
sömu lögmál og gilda almennt í at-
vinnulífinu. Vöruþróun yrði á svipað-
an hátt og ef dæmið gengi ekki upp
hjá einstökum skólum yrðu þeir vænt-
anlega gjaldþrota. Ekkert skelfilegt
væri við það, nemendur flyttu sig ann-
að eða annar skóli yrði stofnaður á
rústum hins.
„Spumingin er hvað við eigum að
gera við það fé sem afgangs verður...
ég gæti ímyndað mér að það yrði fært
úr menntakerfinu og notað til dæmis
til að greiða niður erlendar skuldir eða
að það yrði notað af hálfú ríkisins til
að kaupa aukna menntunarþjónustu
ef ríkið vildi,“ sagði Þorvarður.
-FRI
Nú fer eitthvad að ske
í lífi mínu!
Mest seldi bíllinn
Ofangreint verð er með
ryðvörn og tilbúinn til
afhendingar strax!
Eigum mikið úrval af VERIÐ VELKOMIN
aukahlutum.
OPIÐ LAUGARDAGA KL. 10—16
4GÍRA
86
5GIRA
Bílverð:
Þér greiðið:
Við lánum: 122.000.-1111 Við lánum:
SAFÍR’87
Bílverð:
Þér greiðið:
247.000.-
125.000.-
249.000.-
125.000.-
Bílverð:
Þér greiðið:
185.000.-
90.000.-
124.000.- 11 Við lánum:
í 8 mán. 1111
95.000.-
í 8 mán.
BIFREIÐAR & LANDBÚ N AÐARVÉLAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
i T »