Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986.
9
Utlönd
Sætir Sea Shepherd
ákæru í Kanada fyrir
spellvirkin á íslandi?
Kanadísk yfirvöld létu að því liggja
í gær að þau kynnu að sækja Sea
Shepherd umhverfisvemdarsamtökin,
sem eiga sér aðalstöðvar í Vancouver,
til saka fyrir spellvirkin á hvalveiði-
skipunum í Reykjavík.
Joe Clark utanríkisráðherra sagði
að Ottawa-stjómin fordæmdi öll lög-
brot af hvaða tagi sem væri. Greindi
hann frá því að kanadíska lögreglan
ynni að rannsókn á því hvort kana-
dísk lög hefðu verið brotin í leiðinni
þegar spellvirkin vom unnin á íslandi.
Paul Watson, forvígismaður Sea
Shepherd-samtakanna, hefur opin-
berlega.lýst því yfir að samtökin bæm
ábyrgð á skemmdarverkunum og hef-
ur í fjölmiðlum kynnt annan skemmd-
arverkamanninn, Rodney Coronado.
Spellvirkin á hvalbátunum í Reykjavikurhöfn hefur vakið athygli víða um
heim og mikið umtal. í Kanada hefur verknaðurinn mælst illa fyrir, og þyk-
ir spellvirkjunum illa farast að hælast um af grandaleysi íslendinga, sem
hafi jafnvel sýnt þeim gestrisni.
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
MAZDA 929 HT sjsk., vökvast,
árg. '83, ekinn 57 þús.
Verð 440 þús.
LANCIA „SKUTLA" árg. ’87,
ekinn 2 þús. Verð 270 þús.
MAZDA 929 GLX, 4 dyra, HT,
með öllu, árg. '84, ekinn 40 þús.
Verð 585 þús.
MAZDA 323 station árg. ’86,
eklnn 17 þús. Verð 420 þús.
MAZDA 626 GLX, 5 dyra, sjsk.,
vökvast., árg. ’84, ekinn 45 þús.
Verð 440 þús.
MAZDA 323 station disll, árg.
'87, ekinn 11 þús. Verð 510 þús.
MAZDA 626 GLX, 2 dyra, coupe,
árg. ’84, ekinn 30 þús.
Verð 440 þús.
MAZDA 626 GLX, 4 dyra, salo-
on, árg. ’85, ekinn 22 þús.
Verð 460 þús.
Opið laugardaga
frá kl. 1-5.
Fjöldi annarra bíla
staðnum.
BILABORG HF
Smiðshöfða 23, sími 681299.
Tekur Laxalt Karmal víkur úr fbrsæti
Guimlaugur A. Jónsson, DV, Lundi;
„Við fögnum þessari ákvörðun sové-
skra yfirvalda og munum halda áfram
að leggja áherslu á nauðsyn þess að
mál sem þetta leysist,” sagði Ingvar
Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar,
í gær er skýrt hafði verið frá því að
hin þriggja ára gamla Kaisa Randpere
hafi fengið leyfi sovéskra yfirvalda til
að flytjast frá borginni Tallin á Eistl-
andi til foreldra sinna sem fyrir þrem
árum flúðu til Svíþjóðar og búa nú í
Stokkhólmi.
Allt frá þeim tíma hefúr málið haft
áhrif á samskipti Svíþjóðar og Sovét-
ríkjanna og meðal annars gerði Ingvar
Carlsson mál þetta að umræðuefni í
heimsókn sinni til Moskvu síðastliðið
vor.
Alls voru það átta hliðstæð mál er
sænski forsætisráðherrann ræddi þá
um við leiðtoga Sovétríkjanna og
sagðist þá hafa fengið loforð fyrir því
að öll málin myndu leysast farsællega.
Mál Kaisu litlu er hið þriðja í röð
þessara átta mála sem leysist og það
vekur sérstaka athygli að Tass frétta-
stofan sovéska skyldi skýra frá lausn
málsins, en slíkt hefur ekki áður gerst
í hliðstæðum málum.
Mál Kaisu hefur vakið mikla at-
hygli í fjölmiðlum í Svíþjóð og meðal
annars hefur móðir hennar daglega í
meira en hundrað daga staðið mót-
mælastöðu fyrir utan sovéska sendi-
ráðið í Moskvu og upp á síðkastið
hefur þeim farið sífellt fjölgandi er
tekið hafa þátt í mótmælum með henni
er vakið hafa mikla athygli í fjölmil-
um.
Afi og amma eftir i Eistlandi
Afi og amma Kaisu hafa einnig fengið
leyfi til að flytjast úr landi, en þau
hafa afþakkað það. Málið hefúr valdið
þeim miklum erfiðleikum, meðal ann-
ars hafa þau bæði misst vinnu sína
vegna þess.
„Það var ólýsanleg tilftnning að fá
þessar fréttir. Þetta hefur verið erfiður
tími fyrir okkur en ennþá erfiðari fyr-
ir foreldra mína i Eistlandi. Þau eru
nú orðin svo gömul að ég skil vel að
þau vilji ekki flytja úr landi þrátt fyr-
ir erfiðleikana er hafa mætt þeim,“
sagði Leila Miller, móðir Kaisu, í sam-
tali við fréttamenn í gær.
að mannúðarástæður réðu þessu því
að heilsu Karmals færi hrakandi
með degi hverjum.
En frávikning Karmals ber að sjö
mánuðum eftir að hann var leystur
af hólmi sem aðalritari kommúnista-
flokksins í Afghanistan en við tók
fyrrum yfirmaður leynilögreglunnar.
Jafnframt hafa þessa dagana til-
raunir verið auknar til þess að þoka
áfram samningaviðræðum Kabúl og
Islamabad um tímaáætlun fyrir
brottflutning sovéska hemámsliðs-
ins úr Afghanistan í viðleitni til þess
að semja um pólitíska lausn Afg-
hanistanstríðsins.
Flóttamenn frá Afghanistan og
vestrænir diplómatar í nágrannarík-
inu Pakistan telja sig hafa orðið
vara við að Najibullah, eftirmaður
Karmals, hafi að undanfömu haft
uppi tilburði til þess að tryggja sig
í valdasessi og draga úr áhrifúm
Karmals.
við af Shultz?
Ólaíur Amarscm, DV, New York:
Þótt bæði Reagan Bandaríkjaforseti
og Shultz utanríkisráðherra neiti því
að Shultz hafi í hyggju að segja af sér
embætti er enn magnaður orðrómur
þess efnis í Bandaríkjunum.
Er sagt að utanríkisráðherrann hafi
sett Reagan það skilyrði fyrir áfram-
haldandi setu í embætti að öll vopna-
sala til Iran verði stöðvuð þegar í stað
og að utanríkisráðuneytið verði haft
með í ráðum í öllum samskiptum við
íran í framtíðinni.
Sagt er að forsetinn hafi tekið þess-
um skilmálum utanríkisráðherrans
fálega. Hermir orðrómurinn ennfrem-
ur að utanríkisráðherrann hafí sagt
af sér en sökum sérstakrar bónar for-
setans fengist til þess að sitja áfram
þar til í janúar næstkomandi.
Einnig er talað um að forsetinn hafi
þegar ákveðið eftirmann Shultz og er
þar tilnefndur öldungadeildarþing-
maðurinn Paul Laxalt frá Nevada,
góður persónulegur vinur og ötull
stuðningsmaður forsetans.
Embættismenn i bæði Hvíta húsinu
og utanríkisráðuneytinu hafa neitað
því að nokkur fótur sé fyrir þessum,
fregnum en fjölmiðlar hér vestra hafa
það eftir áreiðanlegum heimildum inn-
an Hvíta hússins að búast megi við
mannaskiptum í embætti utanríkis-
ráðherra á næstunni.
Babrak Karmal, forseti Afghanist-
an, sem kom til valda við innrás
Sovétmanna í Afghanistan fyrir sjö
árum, hefúr verið leystur undan öll-
um skyldustörfúm, jafnt opinberum
sem á vegum flokksins. Tilgreind
ástæða er heilsubrestur.
Þessi ákvörðun miðstjómar
flokksins og byltingarráðsins, sem
fer með völdin í landinu, var tekin
á fundum þeirra í höfuðborginni
Kabúl í gær og kunngerð í Kabúl-
útvarpinu í gærkvöldi. Þar var sagt
Mikil ófærð
í Kasmír
Á sjötta hundrað manna sátu fastir
í kafsnjó og ófærð á fjallvegum í
Kasmír-héraði á Indlandi og þurfti að
kveðja út herflokka og þyrlur til þess
að bjarga fólkinu til byggða. Rúmlega
hundrað slasaðir sátu fastir í áætlun-
arvögnum og einkabílum.
Það hefur snjóað óvenju snemma í
Kasmír þetta árið. Snjóskriður hafa
fallið á Srinagar-Leh-þjóðveginn, sem
liggur um Ladakh-fjallgarðmn vestan
til í Himalayafjöllum. Vitað er um að
minnsta kosti fimmtíu manns sem hafa
látið lífið í umferðaróhöppum.
Skiðasveitir úr hemum leita enn á
svæðinu fólks sem hefur neyðst til
þess að yfirgefa fimmtán ökutæki sem
komið hefur verið að á hvolfi utan
vegar. Um hundrað þyrlur hafa dag-
lega tekið þátt í leitinni og björgun
strandaðra vegfarenda.
Flestum var bjargað í Zojila-skarði,
sem er í 4300 metra hæð og fjarri
mannabyggðum, en þar er ekkert
sæluhús í nánd eða björgunarskýli.
Næsta þéttbýli er bærinn Dras sem er
sagður kaldasta byggða ból á jörðu
hér fyrir utan Síberíu.
Dallas-leikari fær sam-
úðarkveðjur víða að
Einn af stjömunum úr Dallas-
framhaldsþáttunum, Patrick
Duffy, lét frá sér fara í gær þakkar-
kveðjur til aðdáenda sinna um
heim allan fyrir veittan stuðning
þeirra og samúð eftir að foreldrar
hans vom skotnir til bana með
haglabyssu.
„Til þessa hafði ég aldrei gert
mér fulla grein fyrir hve djúpt
skilningur og umhyggja aðdáenda
minna í rauninni ristir gagnvart
mér og þeirri persónu sem ég túlka
í Dallas-þáttunum,“ sagði hann.
Kvaðst hann meta mikils skilning
þeirra og væntumþykju og ekki
síst tillitssemi aðdáendanna vegna
þarfar fjölskyldu sinnar á þessari
erfiðu stundu þegar hún þyrfti að
vera laus við áreitni í einkalífinu.
Terrance og Marie Duffy, sem
bæði voru á sjötugsaldri, vom
drepin á þriðjudag í vínstofu þeirri
sem þau áttu og hafa rekið í Bould-
er í Montana síðustu tuttugu árin.
Virðist ætlunin hafa verið að ræna
dagssölu vínstofunnar.
Tveir táningar, Sean Anthony
Wentz og Kenneth Albert Miller
(báðir 19 ára), vom handteknir í
nágrannabænum Helena og hafa
verið ákærðir fyrir morðin.
Vínstofa gömlu hjónanna var
kunn í héraðinu og tengsl þeirra
við soninn, sem leikur Bobby Ew-
ing í sjónvarpsþáttunum vinsælu,
þvi að þau höfðu hangandi uppi á
veggjum í bamum myndir af hon-
Kaisa Randpere kemst
til foreldra sinna