Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Page 13
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986. 13 Fréttir Islenska óperan skuldar tíu milljónir Skuldir íslensku óperunnar eru nú orðnar tíu milljónir. Heíúr verið tap á rekstrinum frá upphafi og að sögn Garðars Cortes söngvara verður áframhaldandi starfsemi ekki tryggð nema fjárhag óperunnar verði komið í betra horf. Skuldasöfhunin hófst þegar byrjað var að greiða breytingar á Gamla bíói af fé því er ætlað var til starfeeminn- ar. Var það gert áður en veitt var fé úr húsakaupasjóði. Rekstrarfé fæst annars af tekjum af aðgöngumiðasölu og að litlu leyti af framlagi styrktarfélaga. Ríkisframlag er fjórar milljónir króna. - Þessi skuldasöfhun dregur úr þrótti okkar en við látum ekki bugast i bili, segir Garðar Cortes. - Við höfum alltaf fengið eitthvað en aldrei nóg. Hann tekur það þó fram að framlag ríkisins hafi hækkað um 8,7 prósent frá því í fyrra. IBS Selfoss: Eldri borgarar í uppreisnarham Regina Thorarensen, DV, SeBossi: Eldri borgarar á Selfossi fjölmenntu á Uppreisnina á ísafirði eftir Ragnar Arnalds nú á dögunum. Fólkið var heillað bæði af uppsetningu og leik flytjenda. Farið var á tveim stórum rútubílum frá sérleyfishöfum Selfoss sem buðu eldri borgurunum. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem eigendur sérleyfisins á Selfossi fara með eldri borgarana á skemmtanir hvert sem er og taka aldr- ei neitt fyrir. Eiga þeir miklar þakkir skildar fyrir þetta. Tannlæknadeilan Viðræður hefjast á ný Samningaviðræður milli Tann- læknafélags íslands og Trygginga- stofnunar ríkisins hófust á ný í gær. Tannlæknar settu sér einhliða nýja gjaldskrá frá og með 1. ágúst síðast- liðnum eftir að slitnaði upp úr viðræð- um þeirra við Tryggingastofnun ríkisins. Eftir það var sett sérstök gjaldskrá á vegum ráðuneytisins. Engin samningatilboð eru komin en könnuð verða þau gögn sem safhað hefur verið. Fulltrúar Tannlæknafé- lagsins og Tryggingastofnunarinnar hafa farið til Norðurlanda til að kynna sér tannlæknaþjónustu og gjaldskrá þar. Ennfremur hefur sérstök nefhd kannað hvaða áhrif lækkun tolla mundi hafa á gjaldskrá og hefur það verið lagt fram fyrir fjármálaráðuney- tið hvort möguleikar séu á tollalækk- un. -IBS Þeir voru að keppast við að gera við loðnunót ms. Esktirðings SU-9. Eskífjörður: Annríki við fiskverkun Emil Thoraiensen, DV, Eskffiiðt Mikið annríki er á Eskifirði þessa dagana vegna síldarsöltunar og loðnu- veiða. Leggja allir sem vettlingi geta valdið hönd á plóginn til að vinna sem mest af þeim verðmætum sem berast á land þessar vikumar. Þegar frétta- ritari DV lagði leið sína niður á höfn á dögunum rakst hann á nokkra vaska náunga sem unnu af kappi við að gera við loðnunót Eskfirðings SU-9. Þar á meðal vom tveir kennarar við gmnn- skólann sem höfðu bmgðið sér í annað starf eftir að kennslu lauk. Mikið hefur verið fiutt út af freðfiski frá Vestmannaeyjum að undanförnu. Hér er verið að skipa 20.000 kössum um borð i Hofsjökul, sem flytja mun farminn á Bandaríkjamarkað. Á sama tima var skipað um borð í Goðafoss 9000 kössum af fiski. DV-mynd Ragnar S. Setfoss: Afar léleg innheimta Regina Thorarenæn, DV, Selfassi: Að sögn Ingva Ebenhardssonar, skrifstofustjóra hjá sýslumannsem- bætti Ámessýslu, var búið að mkka inn 50% af gjöldum um mánaðamótin október/nóvember sl. Skrifstofustjór- inn sagði að svo léleg hefði innheimtan aldrei verið í sinni tíð áður og mætti leita langt aftur til að finna annað eins. Skrifetofustjórinn sagði jafriframt að venjan hefði verið sú að mest kæmi inn af peningum í nóvember og des- ember. Væri óskandi að svo yrði nú en þá mætti fólk líka taka sig á svo mikið væri útistandandi. Hólmanesið seldi vel Emfl Thorarenaen, DV, Eskifirði: Skuttogarinn Hólmanes SU-1 frá Eskifirði seldi ísaðan fisk í Hull ný- lega, alls 94,3 tonn fyrir 6 milljónir 836 þúsund krónur. Meðalverð reyndist 72,51 sem jaðrar við metsölu. Uppi- staða aflans var þorskur, eða 69 tonn, en grálúða var 23 tonn. Þetta er annað besta verð á Bret- landsmarkaði frá upphafi. 2 1 FTJLLKOMIH VI A FRABÆRU VERÐI Vörumarkaöurinn hf. bára er íullkomin þvottavéi sérhönnuð íyrir íslenskar aðstœður bám tekur inn á sig bœði heitt og kalt vatn b&m vindur allt að 800 snún/mín og er með spamaðarrofa Sérhver b&ra. er tölvuprófuð, íyrir afhendingu. . heíur 18 fúUkomin þvottakeríi og íslenskar merkingar. lánað til allt að 11 mánaða með FURC samninfl' KREDIT Til handhafa 25S92- V/SA Eiöistorgi 11 - sími 622200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.