Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Side 25
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986.
37
Fréttir
Hækkunarbeiðnir Landsvirkjunar og Pósts og síma:
Hækkanir brot á fyrri yfir-
lýsingum ríkisstjómarinnar
segir Asmundur Stefánsson, forseti ASI
„Ég hef ekki trú á því að orðið
verði við beiðnum þessara fyrirtækja
um hækkanir á gjaldskrám og þau
fái þær enda væri það beint brot á
fyrri yfirlýsingum ríkisstjómarinn-
ar,“ sagði Ásmundur Stefansson,
forseti ASÍ, í samtali við DV þegar
hann var spurður álits á óskum
Pósts og síma og Landsvirkjunar um
hækkun á gjaldskrám fyrirtækj-
anna. Póstur og sími vill hækka
gjaldskrá sína um 30-40%, en
Landsvirkjun telur 10-16,4% hækk-
un á gjaldskrá nauðsynlega.
„Við vitum að þessi fyrirtæki hafa
þrýst á um verðhækkanir og Póstur
og sími hefur áhyggjur af stöðu
sinni. Við minnum á að það stendur
enn yfirlýsing frá ríkisstjóminni um
að opinber þjónusta hækki ekki á
árinu,“ sagði Ásmundur.
Ásmundur sagði að augljóst væri
að verðhækkanir síðustu mánaða
hefðu verið meiri en reiknað hafi
verið með, en þær hækkanir mætti
fyrst og fremst rekja til verðbreyt-
inga á erlendum gjaldmiðlum,
einkum hækkana Evrópumyntcir. Sú
staðreynd kallaði enn frekar á aukið
aðhald ríkisvaldsins gagnvart verð-
hækkunum. Sagði Ásmundur að í
gær hefði verið haldinn fundur for-
svarsmanna launþega og vinnuveit-
enda með forsætisráðherra og
fjármálaráðherra um verðlagsmál
almennt og á þeim fundi hefði ekk-
ert það komið fram sem benti til
þess að þessar hækkanir næðu fram
að ganga. Á fundinum hefðu tals-
menn launþega lýst áhyggjum sínum
vegna þróunar verðlagsmála undan-
farið og talið nauðsynlegt að allt
yrði gert til að halda aftur af verð-
hækkunum, vöruðu sérstaklega við
því að verðhækkunum opinberra
fyrirtækja yrði sleppt lausum í upp-
hafi næsta árs. „Áframhaldandi
aðhald er nauðsynlegt ef verðbólgan
á ekki að hlaupa upp aftur,“ sagði
Ásmundur. -ój
Ölvaður ók á
bíl og vita
Maður, sem grunaður er um ölvun
við akstur, ók utan í bíl og síðan á
ljósavita í Kópavoginum í nótt. Mað-
urinn mun hafa verið að koma frá
veitingastaðnum Broadway og á Ný-
býlaveginum ók hann utan í kyrrstæð-
an bíl og stakk af. Skömmu síðar ók
hann bíl sínum á ljósavitann í Þver-
brekkunni og aksturinn endaði svo í
Kjarrhólma.
Lögreglunni var tilkynnt um þetta
í nótt og gat hún rakið slóð mannsins
i Kjarrhólmann. Þá hafði maðurinn
tilkynnt að bíl sínum hefði verið stolið
en enginn vafi var á að hann hefði
ekið honum um nóttina þar sem hann
var með bíllyklana í vasanum.
-FRI
Ætla að taka
hroðalega á
-segir Jón Páll
„Ég ætla að taka hroðalega á i
dag,“ sagði Jón Páll Sigmarsson
kraftajötunn en í dag lýkur keppninni
um titilinn „Sterkasti maður heirns".
Að þessu sinni er keppt í Nice í Suður-
Frakklandi.
Jón Páll hefur forystu að loknum
tveimur keppnisdögum, með 36 stig.
Aðalkeppinauturinn, Geoff Capes, sem
náði titlinum af Jóni í fyrra, er með
33 stig. Eftir fyrsta dag voru þeir jafh-
ir með 15 stig.
Jón meiddi sig lítillega í gær er hon-
um skrikaði fótur við að velta bíl. Það
kom þó ekki að sök því Jón náði þriðja
sæti í bílveltukeppninni meðan Geoff
Capes varð að sætta sig við sjötta sæti.
Nokkuð hefur verið um meiðsli
keppenda enda mikið tekið á. Hollend-
ingur, sem kallaður er „Slátrarinn",
tognaði illilega á lærvöðva. Finni, sem
var í þriðja sæti, sleit upphandleggs-
vöðva í gær.
I dag verður keppt reiptogi, rétt-
stöðulyftu og því að hlaða upp á pall
þungum hlutum sem ekki er vitað fyr-
irfram hverjir verða, hugsanlega
kampavínstunnur. -KMU
Jón Páll Sigmarsson.
Þeir tefldu eina skák að gamni sínu, Þröstur Þórhallsson, unglingameistari íslands i skák 1986, og nýliðinn, Arnar Gunnarsson, 7 ára, sem vakti
athygli fyrir frammistöðu sína á mótinu. DV-mynd BG
Þröstur Þórhallsson unglingameistari í skák
Unglingameistaramóti Islands í
skák 1986 lauk á miðnætti á mánu-
daginn. Sigurvegari varð Þröstur
Þórhallsson frá Taflfélagi Reykja-
víkur. Hlaut hann sex og hálfan
vinning. Annar varð Tómas Bjöms-
son með fimm og hálfan vinning og
í þriðja sæti varð Davíð Ólafsson,
einnig með fimm og hálfan vinning.
Þátttakendur í mótinu voru 56 tals-
ins og komu þeir víðsvegar af
landinu.
Er þetta í þriðja sinn sem Þröstur
Þórhallsson verður unglingameist-
ari í skák. Hann vann titilinn í fyrra
og einnig 1983, þá aðeins 14 ára gam-
all. Verðlaunin eru ferð á skákmót
erlendis en þegar hafði verið ákveðið
að Þröstur tæki þátt í Evrópumeist-
aramóti unglinga í skák sem fram
fer í Hollandi um áramótin. -IBS
Oafgreiddir myndlyklar:
Ekki gert ráð fyrir
mikilli eftirspum
Um 3.500 pantanir á myndlyklum
að Stöð tvö eru enn óafgreiddar. Bið-
tíminn hefúr verið einn mánuður en
fer nú að styttast, að því er Jón Óttar
Ragnarsson sjónvarpsstjóri fullyrðir.
Samkvæmt upplýsingum starfs-
manns Heimilistækja, sem sér um sölu
myndlyklanna hér á landi, var pantað
með því hugarfari að stykkið kostaði
32.000 krónur. Var því ekki gert ráð
fyrir eins mikilli eftirspum og raunin
varð er tollar og önnur gjöld höfðu
verið felld niður en verðið varð þá
11.800 krónur.
Fjármálastjóri Stöðvar tvö, Hans
Kristján Ámason, heldur því hins veg-
ar fram að pantað hafi verið eftir að
vitneskja fékkst um niðurfellingu tolla
og aðflutnings- og afgreiðslugjalda.
Segir hann að fyrirtækinu, er fram-
leiðir myndlyklana, hafi verið tilkynnt
um pöntun í júní en það anni ekki
eftirspum á heimamarkaði og hafi
Stöð tvö verið úthlutaður ákveðinn
kvóti. Hjá Heimilistækjum er fyrsta
pöntun bókfærð í ágúst. Hjá tolladeild
fjármálaráðuneytisins er bréf til toll-
stjóra um niðurfellingu tolla á
myndlyklum dagsett þann 18. sept-
ember 1986. Virðist því sem pöntun
hafi verið gerð með tilliti til uppruna-
legs verðs, það er að segja 32.000
króna.
Að sögn Hans Kristjáns Ámasonar
höfðu starfsmenn stöðvarinnar kann-
að markaðinn í eitt og hálft ár og var
um tvo lykla að raeða. Aðrir vom fyrst
og fremst fyrir kapla. Sá er framleidd-
ur er af dótturfyrirtæki Philips í
Frakklandi varð fyrir valinu og von-
ast nú allir hlutaðeigandi aðilar að
myndruglarinn verði kominn á lager
hér eftir áramót. Samkvæmt þeim upp-
lýsingum er fiármálastjóri Stöðvar tvö
gaf DV hefur sjónvarpsstöðin Kanal
plus í Paris verið í gangi í tvö ár og
heftir hún ekki enn getað annað eftir-
spum á myndlyklum. Hér ríkir því
kannski bjartsýni. -IBS