Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1986, Qupperneq 26
38 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986. Meiming dv Danshófundur er tengill Hlíf Svavarsdóttir í heimsókn Þegar ég hitti Hlíf Svavarsdóttur síðla dags í byrjun vikunnar var ekki á henni að sjá að hún hefði staðið við það allan daginn að temja kroppa ís- lenska dansflokksins til undirbúnings íhimsýningunni í gærkveldi, auk þess að sjá um komungan íslenák/hol- lenskan son sinn. Hún kom svífandi út úr Þjóðleik- húsinu eins frísk og rösk að sjá eins og fyrir tíu árum þegar ég hitti hana fyrst í Hollandi. Jákvæð afstaða henn: , ar til starfa síns, blönduð eldmóði og hæfilegum skammti af sjálfsgagntýni, heldur henni í góðu formi. Sem er líka eins gott því á þremur vikum hefúr hún þurft að semja nýjan ballett, Amalgam, og kenna dans- flokknum eldri ballett eftir sig er nefnist Duende. Jú, á endanum viður- kennir hún að þetta hafi verið strem- bið. „Annars hef ég áður þurft að vinna undir tímapressu þannig að ég er henni ekki óvön.“ Heitur dans og kaldur Á dagskrá íslenska dansflokksins em þrír ballettar, Ögurstund eftir Nönnu Ólafsdóttur og svo ballettamir tveir eftir Hlíf. í fréttatilkynningu er ‘ Amalgam lýst sem „köldu reiknings- dæmi“ en Duende fjallar um „ástina og dauðann" og er „allt annars eðl- is“. Hlíf segir síðara verkið vera eins konar danstilbrigði við ljóð Garcia Lorca. Em þetta tvær hliðar á sama danshöfundi? spyr ég Hlíf. „Jú, það má alveg segja það,“ svarar hún og er ekki vitund köld að sjá. „Annars var ég líka að hugsa um þetta sérstaka ballettprógramm þegar ég setti verkið saman. Ballettinn hennar Nönnu er kraftmikið, róm- antískt verk og Duende er í drama- tískum dúr þannig að mér fannst nauðsyn að semja ballett af allt öðrum meiði, ana-rómantískan, ef svo má segja." Er ekki erfitt fyrir danshöfund, sem og aðra listamenn, að skipta sér svona í tvennt? „Það er kannski erfiðleikum bundið fyrir listamann sem hefur fundið sér fastan farveg. En ég er svo nýbyrjuð að semja dansverk að ég get leyft mér að flakka á milli mismunandi stíl- brigða í dansinum. Um daginn samdi ég meira að segja næstum naíft verk fyrir danshóp í Rotterdam, meðal ann- ar við lúðrablástur, engisprettuhljóð og trommur. Hugsanlega hætti ég að gera svona tilraunir þegar ég er búin að finna sjálfa mig - sem líklega gerist ekki meðan ég tóri. Ýkjulaus en margbrotinn Við ræðum taktfastar endurtekning- amar í Amalgam, svo og allt að því vélræna tónlist Lárusar Halldórs Grímssonar. „Hollenski dansinn er dálítið í þess- um anda, hófstilltur, ýkjulaus, en þó margbrotinn," segir Hlíf. „Ég er mjög upptekin af verkum Jiri Kylian sem er meistari á sínu sviði. Hann er ekki að flíka tilfinningum eins og tíðum gerist í expressjónískum dansi. Svo er ungur belgískur danshöfundur, Anne Teresa de Keersmaeker sem ég er stór- hrifin af.“ Hvað með þýskan listdans sem sagð- ur er vera í miklum blóma eins og stendur? „Þú átt sennilega við danshöfunda eins og Pinu Bauseh og „dansleik- hús“ hennar. Þar ríkir allt önnur hefð í dansi, expressjónísk og afar kre- fjandi. Ég get alveg séð kostina við þess konar dans en er meira fyrir að hafa taumhald á því sem gerist, gefa hlutina í skyn fremur en að slengja þeim fram- an í áhorfendur. Það er raunar erfiðara en margur heldur að semja einföld dansverk. Til að fá fram rétta spennu í slík verk verður að nema burt alla tilfinninga- semi og tilburði til opinskárrar „tján- ingar“. Danshöfundurinn verður að temja sér harðstjóm." Við ræðum um kynni þeirra Ed Wubbe og Hlífar en það var fyrir hennar tilstilli að Wubbe kom hingað til lands fyrr á þessu ári og sló í gegn eins og sagt er. Meir fyrir stilluna „Ed var í sjöunda himni yfir sam- vinnunni við dansflokkinn en leiður yfir þeirri aðstöðu sem flokknum er boðið upp á. Ég held að íslenski dans- flokkurinn hafi einnig verið mjög heppinn að fá Wubbe til liðs við sig. Hann er mikill hæfileikamaður, einn af fáum slíkum." Ég spurði hvort samstarfið við Wubbe hefði verið góður undirbúning- ur fyrir dansverk hennar. „Að vissu leyti þótt við Ed séum afar ólík hvað dansstíl snertir. Hann semur verk sem hafa gott flæði, streyma áfram, ég er meir fyrir still- una, fyrir að fá sem mest úr minnstu." Ég herði upp hugann og spyr Hlíf hvort íslenski dansflokkurinn dansi of mörg nútímaverk, hvort hann sé með því að vanrækja klassíska dans- inn. „Þetta tvennt þarf auðvitað að hald- ast í hendur. Gleymum ekki að klass- íska danshefðin er undirstaða allra þessara nútímadansa, allar æfingar dansaranna eru klassískar. Ef vel á að vera ætti dansflokkurinn að fá að standa fyrir að minnsta kosti einni klassískri sýningu á ári.“ Ég spyr hvaðan henni berist helst innþlástur. Hlíf hlær dillandi hlátri, rétt eins og hún væri að heyra þessa spumingu fyrsta sinni. „Alls staðar að. Þó hafa ljóðlistin og tónlistin kannski gefið mér mest. Hlíf Svavarsdóttir balletthöfundur. Ég hef safhað að mér íslenskum ljóða- bókum gegnum árin, bæði til að halda við íslenskunni og veita mér innblást- ur. Svo má ég ekki gleyma myndlist- inni. Lengi vel var ég alæta á hana.“ í lausamennsku Hvemig er að vera danshöfundur? „Danshöfundur er einn allsherjar tengiliður. Hann tengir saman dans, tónlist, búninga, leiktjöld og lýsingu. Hann verður líka að vera fastur fyrir en þó tilbúinn að breyta hugmynd og hagræða ef eitthvað nýtt og skemmti- legt kemur fram á æfingum. Góður danshöfundur má heldur ekki ganga fram af dönsurum sínum. Hann verður að leitast við að nýta helstu kosti hvers dansara en reyna samt að víkka tjáningarsvið hans.“ Að lokum spyr ég danshöfundinn um framtíðaráformin. „Eins og stendur er ég í lausa- mennsku," svarar Hlíf, „og kann því ekki illa, nema hvað verkefhin mættu vera samfelldari. Næsta ár lítur vel út. Ég held bara áfram uns ég hef gert upp við mig hvort ég er góður eða slæmur danshöfúndur." -ai Bókabéus Bétveir Bétveir Bétveir. Höfundur: Sigrún Eldjárn. Útgefandi: Forlagið, 1986. Bétveir Bétveir er myndabók sem forlagið sendir nú frá sér og er höf- undur Sigrún Eldjám. Áki litli, ofurvenjulegur drengur, fær heimsókn utan úr geimnum. Þetta er Bétveir, fúrðuvera, sem komin er til jarðarinnar í bókmenn- taleiðangur. Hann langar til að kynnast fyrirbærum þeim sem jarð- arbúar sitja löngum og glugga í. I gegnum kíki hefúr hann séð að „ - Fólk situr langalengi og horfir á táknin og myndimar og því virðist þykja svo gaman.“ Áki tekur að sér að koma vemnni í kynni við bækur og auðvitað er afi gamli mesti bóka- ormur sem hann þekkir. Þeir heimsækja hann og ömmu sem er hins vegar með „sokkadellu". Það stendur heima þegar Bétveir hefur lært að lesa og lesið nokkurhundr- uðbækumar hans afa þá hefur amma prjónað sportsokka á alla fjóra fætur vemnnar. Bétveir heldur heim al- sæll með myndabók um sjálfan sig í nesti sem kona, sem skrifar bækur, afhendir honum. Sýnist mér Sigrún Eldjám þar lifandi komin með hug- verk sitt sem hér er til umfjöllunar en kona þessi hefur verið nálæg alla söguna. Bamabækur Hildur Hermóðsdóttir Heimsókn utan úr geimnum Löngum hefúr verið vinsælt að láta böm jarðarinnar fá heimsóknir kynjavera ofan úr loftinu eða utan úr geimnum nú á geimöld. Þessar verur skemmta gestgjöfúm sínum, færa þeim tilbreytingu og stundum nýja lífssýn (t.d. Litli prinsinn). Mér sýnist markmið Sigrúnar með þess- ari bók, auk skemmtunar, vera að minna á gildi og tilvist bóka sem bíða í löngum röðum í hillum eftir því að verða lesnar og jafhvel minnir hún á að ekki er ástæða til að ótt- ast þá sem em öðmvísi en við. Umhverfi Áka er íslensk náttúra, stór garður með flugum og fuglum, grænu grasi, blómum, steinum, trjám og hólum. Inn í þessa veröld kemur skepnan á bleika fúrðufarinu, Bét- veir, sem Áki tekur á móti án ótta og gagnrýni. Þegar hann kveður vemna hugsar hann með sér: „Það er alveg frábært að eiga vini - hvort sem þeir em niðri á jörðinni - uppi í tré - eða úti í geimnum!" Einfaldleiki, glettni Myndir Sigrúnar bera með sér stíl- einkenni hennar: einfaldleika, glettni, litagleði og tilfinningu fyrir veröld bamsins. Það gerir textinn vissulega líka. Þó að ég hafi aldrei náð tilfinningalegú sambandi við geimverur sem söguhetjur þá er vís- ast að sá aldurshópur, sem sagan er ætluð, geri það. HH Unglingsár í horfn- um heimi Emii Bjömsson - Á misjöfnu þrífast bömin best 178 bls. Öm og Örlygur, 1986. „Það mætti segja mér, að sumur hafi verið hlýrri og sólríkari á þriðja tug aldarinnar, þegar ég var að vaxa upp á Austurlandi en síðar hefur ve- rið.“ Slíkt viðhorf er vist nokkuð algengt, þegar menn rifja upp minn- ingar, horfa til æskuáranna. Þannig hefet líka einn kaflinn í ný- útkominni minningabók, sem nefnist Á misjöfriu þrífast bömin bezt. - Eigið líf og aldarfar I. Höfiindur bókarinnar er Emil Bjömsson, fyrsti fréttastjóri sjónvarps, sem nú hefur látið af störf- um fyrir skömmu. Það er hálfkyndug tilfinning að upp- götva, að þessi frumherji nútíma fjölmiðlunar á íslandi, getur af eigin raun greint frá algem miðaldaþjóð- félagi, sem hann tilheyrði fram á unglingsár. Maður hefur svo sem lesið sitthvað af svipuðum lýsingum á sam- félagi liðinna alda, en óneitanlega kemur manni á óvart, að höfundur geti með töluverðum rétti sagt um sjálfan sig, að hann hafi „verið uppi á öllum öldum Islandssögunnar". Hann segir á einum stað svo frá: „Mín kynslóð ólst upp við fákunnáttu og fátækt til sjós og lands: Aflvéla- leysi, peningaleysi, atvinnuleysi, húsnæðisskort, heilsuleysi, heyleysi, mannréttindaleysi, kulda og klæð- leysi, orkuskort, eldiviðarleysi, örygg- isleysi, óþrifnað og óvæm, matarskort, menntunarskort og verkfæraleysi." Alhæfingar em alltaf hæpnar, og ég efast um, að kynslóðin, sem leit ljós heimsins á stríðsámnum fyrri og er nú um sjötugt, hafi upp til hópa alizt upp við svo gífurlegan skort, en lífið hefur þó áreiðanlega reynzt mörgum erfitt, ekki sízt framan af. Reistur upp frá dauðum Allt fram á síðustu ár var Breiðdalur eystra fjarri alfaraleiðum og þar virð- ist lengur hafa eimt eftir af fomum lifsháttum og lífeviðhorfum en víða annars staðar. Flest virðist hafa verið þar með fomlegu sniði fram á fjórða áratuginn - Kannski lengur - , t.d. húsakostur, klæðaburður, búskapar- hættir, vinnubrögð og mataræði þar var heimilisguðrækni í góðu gengi á æskuárum höfundar og meðal afþrey- ingarefnis er nefhdur rímnakveðskaj> Bókmenntir Páll Líndal ur. Þá spmttu fram þeir dýrðarmenn Bemódus Bomeyjarkappi, Líkafrón og kappar hans og fleiri slíkir. Emil rifjar upp meðal annars vísu úr Göngu-Hrólferímum; er ekki fúrða þótt mönnum hafi þótt bragð að slíku í grámósku daglegs lífe. „Fárleg vóm fjörbrot hans, fold og sjórinn léku dans; gæfusljór með slæpafans Grímur fór til andskotans." Svo vom lesnar fomaldarsögur og einnig komust menn í kynni við Gretti og þau nafntoguðu sómahjón Helgu Jarlsdóttur og Hörð Hólmverjakappa, svo að dæmi séu nefnd. I Breiðdalnum vom menn alls ekki lausir við galdratrú, afturgöngur vom þar á sveimi og sambandið við annan heim var svo gott, að Friðrik huldu- læknir nánast reisti Guðmund afa Emils upp frá dauðum. Annars er Guðmundur ein eftirtekt- arverðasta persónan í bókinni,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.