Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Side 2
2
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987.
Fréttir
Grfurleg skemmdarverk unnin í Menntaskóla Kópavogs:
Meðal þess sem brotið var voru
hurðir sem urðu á vegi skemmdar-
varganna, eins og þessi sem
sparkaö var af hjörunum.
tæki og hurðir
Þrátt fyrir þessi skemmdarverk mun
kenn.sla verða með eðlilegum hætti og
byrjaði skólastarfið á fullu í morgun.
-FRI
Gísli Olafur Pétursson aðstoðarskólameistari með eina af tölvunum sem eyðilagðar voru.
DV-myndir S
Brotist var inn í Menntaskóla Kópa-
vogs aðfaranótt sunnudagsins og
unnin þar gííurleg skemmdarverk, að
mestu á skrifstofuhluta skólans, hurð-
ir og rúður brotnar, mölvuð tæki og
tölvur og síðan var sprautað úr hand-
slökkvitækjum, bæði vatns-og duft-
tækjum, vfir allt saman.
Gisli Olafur Pétursson aðstoðar-
skólameistari sagði í samtali við DV
að honum þætti undarlegt að ein-
hverjir skyldu bijótast inn í skólann
því þar væru aldrei geymdir fjármun-
ir, hvorki nemenda eða kennara. Hann
sagði að aðkoman að skólanum eftir
innbrotið hefði verið ófögur og honum
þætti ótrúlegt ef ekki hefðu verið fleiri
en einn þama að verki.
Aðspurður hve tjónið væri mikið
sagðist hann giska á að það væri ekki
undir hálfri milljón króna, þó væri
erfitt að meta það alveg því þær tölv-
ur, sem ekki voru brotnar, var spraut-
að yfir úr slökkvitækjunum.
Staðgreiðsla skatta:
Fnimvarp að
verða tilbúið
Fjármálaráðherra fær frumvarp hagfræðingur, Skúli Eggert Þórðar-
um staðgreiðslukerfi skatta í hendur son lögfræðingur og Sveinn Jónsson,
í dag eða á morgun, að sögn Indriða löggiltur endurskoðandi.
H. Þorlakssonar, formanns nefndar Með nefndinni hafa starfað Garðar
sem unnið hefúr að gerð skattafrum- Valdimarsson ríkisskattstjóri, Jón
varPa- Guðmundsson viðskiptafræðingur,
Fjögur frumvörp verða lögð fram Lárus Ögmundsson deildarstjóri og
um hinar víðtæku skattkerfisbreyt- Bolli Héðinsson, efnahagsráðgjafi
ingar sem stefiit er að. Auk stað- ríkisstjómarinnar.
greiðshifrumvarps em það frumvarp Þær hugmyndir, sem þegar hafa
um tekju- og eignarskatt, sérstakt verið kynntar alþingismönnum, em
frumvarp um gildistöku stað- í stórum dráttum þær að tekjuskatt-
greiðslukerfisins og frumvarp um ur, útsvar og smáskattar eins og
tekjustofha sveitarfélaga. kirkjugarðsgjald verði sameinaðir í
Þrjú fyrmefhdu frumvörpin em eina álagningarprósentu, á bilinu
samin af nefnd fjármálaráðherra en 31-37%.
fjórða frumvarpið, um tekjustofiia Frádráttarliðum verði fækkað
sveitarfélaga, er samið í félagsmála- mjög en í staðinn komi einn fastur
ráðuneytinu. afeláttur fyrir alla, 7-10 þúsund
I nefnd fjármálaráðherra sitja, auk krónur á mánuði.
Indriða H. Þorlákssonar skrifetofu- -KMU
stjóra, Sigurður B. Stefánsson
Eyðilögðu tölvur,
Skákmötið í Wijk aan Zee:
Kortsnoj og Short deildu sigrinum
Viktor Kortsnoj komst að raun um
það á skákmótinu í Wijk aan Zee
að ekki borgar sig að semja um jafn-
tefli fyrr en í fulla hnefana. Skák
hans við Englendinginn Flear í
næstsíðustu umferð þótti orðin afar
jafnteflisleg en Kortsnoj vildi ekki
hætta því að með sigri gat hann
komist upp að hlið Shorts. Þess
vegna þæfði hann taflið mun lengur
en hann hefði annars gert. Og það
bar árangur. Á endanum lék Flear
af sér peði í hróksendatafli og meira
þurfti Kortsnoj ekki til þess að inn-
byrða vinninginn.
Fyrir síðustu umferð vom
Kortsnoj og Short því jafhir og efst-
ir og báðir fóm sér hægt í lokaská-
kinni. Kortsnoj gerði jafntefli við
Ulf Andersson og þeir landar Short
og Flear vom einnig friðsamir. Nið-
urstaðan varð því sú að Short og
Kortsnoj deildu efeta sætinu bróður-
lega. Lokastaðan varð þessi:
I. -2. Kortsnoj (Sviss) og Short (Eng-
landi) 9 ‘A v.
3. Andersson (Svíþjóð) 8 v.
4. Nogueiras (Kúbu) 7'A v.
5. -6. Miles (Englandi) og Zapata
(Kólumbíu) 7 v.
7.-9. Ljubojevic (Júgóslavíu), So-
sonko og Van der Sterren (báðir
Hollandi) 6'A v.
10. Helgi Ólafsson 6 v.
II. Van der Wiel 5!4 v.
12.-13. Hulak (Júgóslavíu) og Flear
(Englandi) 4 'A v.
14. Gutman (ísrael) 2 A v.
Helgi gerði stutt jafntefli í tveimur
síðustu skákunum, við Andersson í
aðeins 13 leikjum og við Sosonko í
síðustu umferð í 22 leikjum. Að sögn
blaðafulltrúa mótsins tefldi Sosonko,
sem hafði hvítt, stíft til jafhteflis og
Helgi átti enga undankomuleið.
Varla er Helgi ánægður með
frammistöðuna. Hann fór vel af stað
en það var eins og hann næði sér
aldrei almennilega á strik eftir að
hann tapaði fyrir Short um miðbik
mótsins.
Auk Helga tefla sigurvegarar
mótsins og Ljubojevic á IBM-stór-
mótinu í Reykjavík í næsta mánuði.
Ljubojevic er ugglaust reiður yfir
taflmennsku sinni í Hollandi - hann
fær aðeins 50% vinningshlutfall, sem
er annars til marks um styrkleika
mótsins. En EBM-mótið verður enn
sterkara og þá er hætt við því að
Ljubojevic bíti á jaxlinn. Short og
Kortsnoj voru í algjörum sérflokki
í Wijk aan Zee og þeir verða áreiðan-
lega ekki heldur léttvægir fundnir i
Reykjavík. Short bætir sig með
hverju móti og Kortsnoj virðist nú
loks hafa fúndið rétta tóntegund eft-
ir fremur misjafiia taflmennsku
undanfarið. Sannkölluð skákveisla
framundan hjá menningarsinnuðum
íslendingum.
En kannski kom frammistaða Ulfe
Anderssons mest á óvart. Hann var
meðal keppenda á skákmóti í Reggio
Emilia á Italíu um áramótin og vann
ekki skák. Ekki tókst honum heldur
að vinna eftir 8 tilraunir í Hollandi
en þá féll skriðan. Þrír sigrar í röð
og 3. sæti í höfh. Skoðum skák hans
við Zapata úr 11. umferð:
Skák
Jón L Ámason
Hvítt: Ulf Andersson
Svart: Alonso Zapata
Pirc-vöm.
1. Rf3 g6 2. d4 Bg7 3. e4 c5 4. d5 d6
5. Be2 RfB 6. Rc3 0-0 7. 0-0 a6 8. a4
Bg4 9. Rd2 Bxe2 10. Dxe2 Rbd7 11.
Rc4 Rb6 12. Re3 He8 13. Hdl Dc7 14.
f3 Had815. a5 Rc816. Rc4 Rd717. Bf4
Úlfur hefur stillt mönnum sínum
fallega upp og markvisst - staðsetn-
ing þeirra miðar að því að hindra
að svartur nái að losa um sig með
því að leika kóngspeðinu fram.
17. - Ra718. Ra4 Rb519. Rab6 Rffi 20.
c3 Rh5 21.Be3 e5
Hann hefði heldur viljað leika 21.
e6 en nú er það ógerlegt, þvi að
hvítur hefur allt of sterka stöðu á
miðborðinu. Eftir textaleikinn situr
svartur uppi með slæman biskup en
hann leggur traust sitt á gagnatlögu
kóngsmegin. Úlftrr reynir á hinn
bóginn að opna taflið drottningar-
megin og ráðast inn eftir c-línunni.
22. Ra3 Rxa3 23. Hxa3 f5 24. b4 Rf4
25. Dd2 cxb4 26. cxb4 Hfö 27. Ha2
Auðvitað ekki 27. Hc3?? vegna 27.
- Dxc3 28. Dxc3 Re2+ og vinnur.
Hvítur býr sig undir að hertaka c-
línuna en svartur hefði nú mátt
hugleiða slíkt hið sama á f-línunni
og leika 27. - fxe4 28. fxe4 De7.
27. - De7?! 28. exf5! Hxf5 29. Hc2 Hdfö
30. Hc4 Dh4 31.DÍ2 Dg5 32. Khl Bh6??
Hvíta staðan fór batnandi en eftir
þennan leik er hún hreinlega unnin.
abcdefgh
33. Dfl!
Hæglátur drottningarleikur en
kynngimagnaður! Svartur á ekki
vöm við hótuninni g2-g3, sem ekki
gekk strax vegna 33. - Rh3. Drottn-
ing og biskup svarts em bæði í
skotlínunni og drottningin getur
ekki vikið sér undan og valdað bisk-
upinn um leið. Ef 33. - Dh4, þá 34.
g3 og ef 33. - Dh5, þá 34. g4 og vinn-
ur lið með peðsgaffli.
33. - De7 34. g3 Rd3 35. Bxh6 Hx£3
36. Bxfö Dxfö
Eða 36. - Hxfl+ 37.Hxfl Dg5 38.
Hc8 og vinnur.
37. Hc8!
- Og svartur gafet upp.
Jafnt á Skákþingi Reykjavíkur
Er einni umferð er ólokið á Skák-
þingi Reykjavíkur em Þröstur
Þórhallsson og Dan Hansson efetir
og jafnir með 8 v. Snorri G. Bergsson
hefur 7 'A v., Tómas Bjömsson og
Hannes Hlífar Stefansson hafa 7 v.
en með 6 'A v. og biðskák em Jón
G. Viðarsson, Benedikt Jónasson,
Bjöm Þorsteinsson, Jón Þ. Jónsson,
Sigurður Daði Sigfússon og Amald-
ur Loftsson.
í 10. umferð, sem tefld var í gær,
gerðu Þröstur og Snorri jafntefli og
sömuleiðis Dan og Hannes Hlífar.
Síðasta umferð verður tefld á mið-
vikudagskvöld í félagsheimili TR við
Grensásveg.
-JLÁ