Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987. Fréttir_______________ Helgar- skák- mótin að hefjast aftur Hin mjög svo vinsœlu helgar- skákmót, sem tímaritið Skák og útgefandi þess, Jóhann Þórir, hafa staðið fyrir í samvinnu við hin ýmsu sveitarfélög í landinu, eru nú að fara af stað aftur og verður f>Tsta mótið haldið í Hveragerði 6. til 8. febrúar. Búist er við mik- illi þátttöku, enda njóta þessi opnu mót mikilla vinsælda meðal skák- manna og skákunnenda. Mótið er opið öllum, sem fyir segir, og verða teíldar 9 umferðir samkvæmt Monradkerfi. I fyrstu tveimur umferðunum, sem tefldar verða föstudaginn 6. febrúar, verð- ur umhugsunartíminn 30 mínútur á mann. En í 3. umferð, sem einnig verður tefld á föstudeginum, leng- ist tíminn upp í eina og hálfa klukkustund á niann og verður svo það sem eflir er mótsins. Teflt verð- ur í Hótel Örk. -S.dór Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbund. 8.5-10 Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 9-12 Úb.Vb 6 mán. uppsögn 10-17.5 Vb 12 mán. uppsögn 12-18,25 Sp.vél. 18 mán. uppsögn 16.5—18 Sp Avisanareikningar 9-9 Ab Hlaupareikningar 9-7 Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Lb. 6mán.uppsögn 2.5-4 Úb.Vb Úb Innlán með sérkjörum 9-19,25 Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 5-6 Ab Sterlingspund 9,5-10,5 Ab Vestur-þýsk mörk 9,5-4 Ab.lb Danskar krónur 8,5-9,5 Ab.Lb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(lorv.) 15-18 Sb Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/21 Almenn skuldabréf(2) 16,5-18,5 Ab.Sb Viðskiptaskuldabréf(l) kge Allir Hlaupareikningar(vfirdr.) 16,5-20 Ab Utlan verðtryggð Skuldabréf Að 2.5 árum 5,75-6,75 Lb Til lengri tima 6,25-6,75 Ab.Bb.Lb Útlán til framleiðslu isl. krónur 15-16,5 Sp S0R 5-8,25 Allir Bandarikjadalir 7,75-8,25 ncma Ib. Vb Lb.llb Sterlingspund 12,5-19 Lb.Úb.Vb Vestur-þýsk mörk 5-6,25 Lb.Úb Húsnæðislán 9.5 Lífeyrissjóðslán 5-6,5 Dráttarvextir 27 ViSITÚLUR Lánskjaravisitala jan. 1565 stig Byggingavisitala 299 stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 7.5% l.jan. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 119 kr. Eimskip 900 kr. Flugleiðir 910 kr. Hampiðjan 140 kr. Iðnaðarbankinn 195 kr. Verslunarbankinn 125 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21% ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Ú tvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp=Sparisj óðimir. Nánari upplýsingar um peninga- markaðinn birtast í DV á fímmtudög- um. Náðu 800 þúsundum í ráninu við Útvegsbankann í Kópavogi: Ránið átti sér stað skömmu fyrir kl. 22 á föstudagskvöldið. Verslun- arstjórinn, Guðmundur Ingimund- arson, kom að næturhólfi bankans á Smiðjuvegi 1 til að leggja þar inn afrakstur dagsins er þrír grímu- klæddir menn stukku á hann, náðu af honum töskunni með fjármun- unum og hlupu síðan út i nátt- myrkrið, í átt að Fossvoginum. Verslunarstjórinn ók síðan á lög- reglustöðina í Auðbrekku og tilkynnti ránið. Strax og lögreglunni í Kópavogi var tilkynnt um ránið hóf hún umfangsmikla leit að ræningjunum og naut við það aðstoðar frá lög- reglunni í Reykjavík. Leitað var um allt nágrennið, götum lokað og bílar sem leið áttu um þær stöðvað- ir en enginn árangur varð af leit- inni. Peningasendingar frá Stórmarkaöinum á föstudögum hafa verið með sama hætti og þegar ránið varð um langt skeið. Ræningjamir ófundnir - faar vísbendingar Verslunarstjórinn gat ekki gefið nákvæma lýsingu á ræningjunum, né heldur vitni sem sá ránið, en það var ungur maður á vélhjóli sem þárna átti leið um. Hörður Jóhannesson hjá Rann- sóknarlögreglu ríkisins vildi aðspurður ekki tjá sig um hvort Mikil leit var gerö að ræningjunum eftir ránið, hér sést lögreglan rannsaka eina þeirra bifreiða sem stöðvað- DV-myndir S ar voru. ekki væri líklegt að ræningjamir hefðu fylgst með ferðum verslunar- stjórans áður, sagði einungis að áfram væri unnið að rannsókn málsins og ekkert að frétta af henni. -FRI Ránið var framið við næturhólf Útvegsbankaútibúsins við Smiðjuveg Kópavogi. Hér sést lögreglubifreið þar á verði skömmu eftir ránið. innfelldu myndinni sést næturhólfið sem peningarnir áttu að fara i. Rannsókn á ráninu við Útvegs- bankann við Smiðjuveg í Kópavogi heldur áfram en ræningjarnir eru enn ófundnir og ekkert nýtt að frétta af rannsókninni. í tösku þeirri, sem rænt var af verslunar- stjóra Stórmarkaðarins, voru um 800.000 krónur, þar af um 400.000 krónur í reiðufé en afgangurinn í ávísunum. Lögreglan í Borgamesi: Endurskins- merki á útigangshross Lögreglan í Borgamesi hefur merkt um 120 útigangshross frá því fyrir síð- ustu jól en þetta er gert þar sem hrossin em mikið við og á vegum í Borgarfirði. Merki þessi em endur- skinsborðar sem settir em á fætur hrossanna og sjást þau mjög vel í myrki, eða „nánast eins vel og upplýst jólatré“, eins og einn lögreglumaður í Borgamesi sagði í samtali við DV. Hrossin vom merkt í tveimur hóp- um, annars vegar 80 hross sem vom undir Hafnarfjallinu og hins vegar 40 hross við Svignaskarð sem merkt vom nú um helgina Eitthvað hefúr verið um að öku- mönnum hafi bmgðið við að aka fram á hrossahópana svona upplýsta, en þó ekki þannig að þeir hafi ekki náð að stöðva ökutæki sín í tíma. -FRI Maigir kratar í Grímsey og á Raufarhöfn Jón G. Ifauksson, DV, Aloireyii: Alls kusu 29 úr Grímsey í prófkjöri Alþýðuflokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra á dögunum en íbúar eyjarinnar em rúmlega 100. Fylgi flokksins í Grímsey og á Norður- landi eystra hefur komið mönnum nokkuð á óvart. Á Raufarhöfn kusu 60 í prófkjöri Alþýðuflokksins og á Þórshöfh 44. Á báðum stöðum em íbúar um 400. Þetta er mun meira fylgi en á Ólafs- firði en þar kusu aðeins 42 í prófkjöri Alþýðuflokksins. Eftir sögulegt þing Framsóknar- manna á Húsavík í nóvember, þar sem Stefán Valgeirsson gekk af fundi, komu upp raddir um að Stefan ætti allt fylgið á norðausturhominu. Einn stuðningsmaður Stefáns sagði þá við DV að ekki virtist skipta neinu máli hvar í flokki menn hefðu staðið til þessa. Þeir ætluðu sér að kjósa Stefán.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.