Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987. Utlönd Jafhaðarmenn sjá eftir að hafnað græningjunum hafa Sósíaldemókratar í Vestur-Þýska- landi voru vel meðvitaðir um að þeir mundu tapa kosningunum um hina helgina, en í kjölfar úrslitanna komu foiystumenn flokksins saman til við- ræðna um hvaða lærdóm mætti af tapinu draga og hverjar baráttuað- ferðir skyldi taka upp í fylkisþing- kosningum í náinni framtíð. Innan hægriflokkanna á stjómar- heimilinu hafði gengið á með gagn- kvæmum ásökunum þar sem forystumenn bandalagsins í Bæjara- landi kenndu kristilegum demókrötum um fylgistapið, en hinir síðamefiidu kenndu Strauss og félögum hans úr Bæjaralandi um hið sama, vegna erja þeirra við litla bróður í ríkisstjóm- inni, frjálslynda, sem juku við sig fylgi og þingmönnum. En með því að tap jafhaðarmanna hafði verið minna en skoðanakannan- ir síðustu vikur fyrir kosningamar höfðu gefið til kynna var því ekki tek- ið eins sárlega og minna lagt upp úr leit að sökudólgum. Þótt Johannes Rau, kanslaraefni þeirra, tæki á sig ósigurinn og segðist afsala nafnbót- inni kanslaraefhi, vom framan af engar raddir til þess að taka upp gagn- lýni á hann. Flestum að óvörum sté þó loks fram forsætisráðherra Saarlands, Oskar Lafontaine, og gagmýndi harðlega Rau fyrir afstöðuna til græningja fyrir kosningamar. Rau hafði alfarið hafh- að möguleika á stjómarsamstarfi með græningjum. Lafontaine taldi að það hefðu verið reginmistök. Það kom engum á óvart að hinn róttæki La- fontaine tæki þann pól í hæðina. Heldur hitt að hann skyldi svo fljótur til að taka á aðaldeilumálinu innan flokksins. Þegar forysturáð flokksins (120 fulltrúar) kom saman á þriðjudag eftir kosningamar varð sá skilningur ofan á að tengsl við græningja skyldi ekki lengur vera bannorð. Síðan var það Rau sem kom á óvart með að lýsa því yfir að hann gæfi ekki kost á sér í embætti flokksform- anns eftir Willy Brandt sem hefur boðað að hann muni á flokksþinginu næsta ár ekki gefa kost á sér til endur- kjörs. - Rau sagðist í framtíðinni ætla að einbeita sér að forsætisráðherra- störfunum í Norður-Rín-Westfalen. Ástæðan að baki þessari ákvörðun Raus em kosningaúrslitin. Sósíal demókratar fengu 37% aktæða sem er 4% minna en í kosningunum fyrir fjórum árum. Þar með hafa möguleikar Lafontai- nes til þess að verða næsti formaður jafnaðarmanna mjög aukist. Um nokkra hríð hafa flestir þó gengið út frá því sem vísu að Lafontaine væri sá sem Brandt sjálfur vildi helst að tæki við formannsembættinu af sér. Þó getur orðið styr um Lafontaine sem of augljóslegt formannsefni vinstri vængsins í flokknum. Hins veg- ar getur afstaða hans til hugsanlegs samstarfe með græningjum orðið ofan á í flokknum. Annars á mikið vatn eftir að renna til sjávar, áður en til landsþingsins og formannskjörs kemur. Stuðningsmenn Lafontaines munu kappkosta að bera hann upp sem hófeaman miðlínumann sem verður þeim ekki of auðvelt. Það liggja eftir hann í ræðu og riti of marg- ar yfirlýsingar gegn hagvaxtarhag- fræði, gegn NATO og gegn kjamorku. Hann fór aldrei dult með andstöðu sína við stefnu Helmuts Schmidts kanslara í utanríkis- og öiyggismálum. Sem forsætisráðherra Saarlands hefur Lafontaine sýnt sig að því vera lipur hrossaprangari í pólitíkinni og ætti ekki að verða skotaskuld úr því að slá ögn af fyrri afetöðu sinni til þess að kaupa formannssætið. Rau virðist með yfirlýsingu sinni hafa auðveldað flokknum að leysa ágreiningsmálin, en eitt er hvað sýnist og kannski annað hvað reynist. Oskar Lafontaine, forsætisráðherra Saarlands, hefur hug á formanns- sæti jafnaðarmanna eftir að Brandt hættir. Johannes Rau, kanslaraefni jafnaðarmanna í síðustu kosningum, sætir nú gagnrýni fyrir að hafa ekki viijað heyra minnst á möguleika á sam- starfi með græningjum. Bemska Gorbatsjovs Á uppvaxtarárum Mikhail Gor- batsjovs fórust milljónir manna úr hungri þegar samyrkjubúunum var komið á. Þessi lífereynsla hlýtur að hafa markað skoðanir mannsins sem nú leiðir Sovétríkin styrkri hendi, full- yrðir rússneski rithöfundurinn Sjores Medvedev sem lifir í útlegð. Medvedev hefúr skráð ævisögu Gor- batsjovs og þar segir hann Gorbatsjov vera af bændaættum. Afi hans var meðlimur flokksins og formaður fyrsta samyrkjubúsins sem stofnað var í Pri- volnoje þar sem Gorbatsjov fæddist árið 1931. Faðir Gorbatsjovs, Sergej Andreje- vitsj, vann á samyrkjubúinu við akstur dráttarvéla. Hann tók þátt í stríðinu og sneri heim 1945 með orður í far- angrinum. Eftir stríðið tók hann aftur til starfa á samyrkjubúinu og vann einnig að ýmsum trúnaðarstörfum fyr- ir flokkinn. Hlaut hann Leninorðuna fyrir störf sín og var einnig útnefndur heiðursmeðlimur samyrkjubúsins. Sergej lést árið 1976. Móðir Gor- batsjovs, Maria Pantelejevna, er nú 74 ára gömul og býr enn í Privolnoje. Byltingin Októberbyltingin hafði ekki miklar breytingar í för með sér í bæjum eins og Privolnoje, skrifar Medvedev. Sumarið 1918 gerðu hvítliðar frá her keisarans og kósakkar, sem voru á öndverðum meiði við nýju stjómina, uppreisn. Var hún upphafið að borg- arastyrjöld sem varaði í þrjú ár. Á árunum 1921 til 1922 létust fimm millj- ónir manna úr hungri vegna mikilla þurrka og afleiðinga borgarastyrjald- arinnar. Þúsundir barna dóu hungurdauða í Rússlandi á fjórða áratugnum. Mikhail Gorbatsjov lifði en hörmungar þessar hafa sett svip sinn á afstöðu hans til ýmissa mála. Bændur voru ánægðir með land- búnaðarstefiiuna sem komið var á 1921. Miðaði hún að því að bændur væm sínir eigin herrar og árangurinn lét ekki á sér standa. Sú stefha Stalíns að leggja meiri áherslu á þungan iðnað en léttan leiddi til þess að ekki var hægt að sinna eftirspum landsbyggðarinnar eftir neysluvörum. Bændur vom tregir til að selja afurðir sínar þar sem skort- ur var á öðrum vörum. Neyddir til samyrkjubúskapar Lausn Stalíns var einföld. Hann gerði upptækar jarðir bænda og bú- stofn og neyddi þá til samyrkjubú- skapar. Neyddust þeir þá til þess að selja afúrðir sínar. Hungursneyð varð á þessum árum í meðal annars Úkraínu og á öðrum svæðum þar sem kom var ræktað. Medvedev skrifar í bók sinni að hún hafi verið afleiðing samyrkjubússtefn- unnar. Of mikið hafi verið tekið af korni og öðrum landbúnaðarafurðum frá samyrkjubúunum. Medvedev skrifar ennfremur að þó að Gorbatsjov hafi verið of ungur til þess að verða fyrir beinum áhrifúm af efnahags- og stjómmálum á fjórða áratugnum þá hljóti samt þessi mál að hafa haft mikil áhrif á fjölskyldu hans, eins og allar aðrar á þessu svæði. Næstum allar fjölskyldur misstu vini, ættingja eða nágranna á þessum tímum og íbúar Privolnoje vom engin undantekning. Laganám í Moskvu Gorbatsjov hlýtur að hafa heyrt margar frásagnir af þessum atburðum og leiðir bókarhöfundur getum að því að þær hafi beinlínis haft þau áhrif að Gorbatsjov lagði stund á laganám við háskólann í Moskvu. 1 byrjun íjórða áratugarins var nefiiilega lítið farið eftir lögum í heimabyggð hans. Vitneskjan um slíkt gerir það að verkum að sveitastrákar, sem komast áfram í lífinu, slíta ekki þau sterku fjölskyldubönd sem einkenna rúss- neskar fjölskyldur. Þeir halda áfram að heimsækja heimabyggð sína og reyna að hjálpa henni, skrifar Medvedev. Hvað er það sem mótað hefur skoö- anir leiðtoga Sovétríkjanna? Rúss- neski rithöfundurinn Sjores Medvedev hefur ritað ævisögu Mik- hails Gorbatsjovs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.