Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Page 21
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987. 21 „Mjögmikiar líkur á aðBayer Úerdingen komi til íslands‘ ‘ - segir AUi Eðvaldsson. Uerdingen hefur boðið Atla tveggja ára samning „Það er gríðarlega mikill áhugi hjá leikmönnum Bayer Uerdingen á að koma til íslands í sumar og það er ekki ofsögum sagt að það séu mjög miklar líkur á að af heimsókn- inni verði,“ sagði Atli Eðvaldsson, atvinnumaður í knattspymu hjá vestur-þýska félaginu Bayer Uerd- ingen, í samtali við DV í gærkvöldi en sem kunnugt er leikur Lárus Guðmundsson einnig með liðinu. „Mér sýnist í fljótu bragði að að- eins eitt atriði geti komið í veg fyrir að við komum til fslands. Við erum komnir í 8-iða úrslit í bikarkeppn- inni og ef við komumst í úrslit í bikarnum þá getum við ekki komið. Úrslitaleikur bikarkeppninnar fer fram 20. júní. Ef við komum til ís- lands þá yrði það að vera á þjóð- hátíðardaginn, 17. júní. Við fáum stutt sumarfrí, aðeins hálfan mánuð frá 16. júní til 1. júlí,“ sagði Atli og bætti því við að ef einhver lið hefðu áhuga á að leika gegn Uerdingen myndu leikmenn liðsins að sjálf- sögðu leika hér á landi. Uerdingen bauð Atla tveggja ára samning Nú rennur samningur þinn út hjá Uerdingen í júní, verður þú áfram hjá félaginu? „Það eru allar líkur á því að svo verði. Þeir hafa boðið mér tveggja ára samning þegar núgildandi samn- ingur rennur út í júní. Ég sagði þeim að ég ætlaði að bíða með að gefa þeim svar þar til um miðjan þennan mánuð. Ef eitthvað verulega spenn- andi kemur upp á yfirborðið mun ég að sjálfsögðu athuga málið. En mér hefur liðið mjög vel hjá félaginu og þetta er gott félag og því er vel stjómað." Óvíst með Lárus Samningur Lámsar Guðmunds- sonar hjá Uerdingen rennur einnig út í vor. Eins og kunnugt er hefúr Lárus átt við langvarandi meiðsli að stríða. Eins og staðan er i dag em litlar líkur á þvi að honum verði boðinn nýr samningur. En Láms hefúr gott tækifæri á að sýna hvað í honum býr og mtm mæta i síðari umferðina 21. febrúar af fullum krafti og ef hann stendur sig vel verður honum ömgglega boðinn nýr samningur. •Leikmenn Baver Uerdingen hafa æft mjög stíft undanfarið og undirbúningurinn fyrir síðari hluta deildarkeppninnar hefur verið mjög erfiður. „Við enmi að fara í æfinga- búðir í viku til Frakklands og þar verður æft þrisvar á dag,“ sagði Atli Eðvaldsson. -SK J Flemming þjálfar FH - og leikur með liðinu í sumar í knattspymunni „Þetta skýrist allt endanlega nú í vikunni en eins og staðan er í dag er mjög líklegt að ég gerist þjálfari hjá FH. Ég þarf þó að ganga frá nokkrum persónulegum málum heima fyrir áður en ég skrifa undir samning hjá FH en þessa stundina starfa ég hjá skoska knattspymusambandinu," sagði Skot- inn Ian Flemming í samtali við blaðamann DV eftir fund knatt- spymustjómar og leikmanna FH í gær. FH-ingar hafa rætt mikið við Flemming síðan hann kom til landsins á föstudag ásamt David Moyes, sem hefúr verið milligöngumaður FH-inga í leit þeirra að breskum þjálfara. FH- ingar hafa einnig áhuga á að Flemm- ing leiki með liðinu jaihframt sem hann þjálfar. Flemming er þekktur leikmaður í Skotlandi. Hann er 35 ára gamall og hóf feril sinn hjá Kilm- amock en var síðan keyptur til Aberdeen þar sem hann spilaði í fjögur ár við hliðina á Steve Árchibald og var þar undir stjóm Alex Ferguson. Síðan lá leiðin til Sheffield Wednesday og því næst til Dundee. Nú síðast var hann þjálfari og leikmaður hjá Brec- hin City og kom því upp í 1. deild í fyrra. „Ég hafði mikinn áhuga á stöðu framkvæmdastjóra hjá Hibemian eins og reyndar margir aðrir. Þegar ég missti af þeirri stöðu fékk ég tilboð frá FH og sló til og ákvað að líta á það og hér er ég kominn. Annars þekki ég lítið til íslenskrar knattspymu en kannast þó við nokkra leikmenn eins og t.d. Jóhannes Eðvaldsson, sem ég hef ósjaldan mætt á knattspymuvell- inum. Á mánudag (i dag) mun ég líklega fylgjast með æfingale;k FH og Vals og þá sé ég væntanlega leik- mennina í leik,“ sagði Flemming að lokum. -RR I - Þorgils Ottar enn veikur Þorgils Óttar Mathiesen, fyrirliði | íslenska landsliðsins í handknatt- I leik, lék ekki með íslenska landslið- inu i gær gegn Sviss sökum veikinda. Hann mun ekki leika með a-liði Is- I lands gegn Unglingaliðinu í Höllinni * í kvöld. •Svissneski landsliðsmaðurinn ■ Peter Weber, einn besti maður sviss- I neska liðsins, varð fyrir því óláni í I gær að slíta krossbönd. í hné og miss- ■ ir því að öllum líkindum af bkeppn-1 inni á Ítalíu. I -SK 1 • lan Flemming fyrir miðri mynd ásamt nokkrum leikmönnum FH i gær. FH-ingar funduðu um ráðningu Flemmings í gær og að þeirra sögn eru 99% líkur á því að hann þjálfi og leiki með liðinu i sumar. DV-mynd Brynjar Gauti Patrick Sjöberg , hástökkvarinn heimskunni frá Svíþjóð, setti í gærdag nýtt heimsmet í nájtökki karla innanhúss á móti í Aþenu. Sjöberg stökk 2,41 metra og sést hér fagna heimsmetinu eftir stökkið glæsilega. Símamynd Reuter PÁUi Hilmarsson með í kvöidi I Atli Hilmarsson leikur í kvöld með íslenska landsliðinu í handknattleik I Íí fyrsta skipti siðan á HM í Sviss er a-lið íslands mætir landsliði íslands I skipuðu leikmönnum undir 21 árs. Leikur liðanna hefst klukkan átta. Strax ■ Iað þeim leik loknum eigast Alsírbúar og Svisslendingar við og hefst sá leik- I m- um klukkan 21.15. -SK 1 •Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri islenska landsliðsins, ber Svisslending- ■ inn Peter Weber út af eftir að Weber hafði slitið krossbönd í hné. DV-mynd Brynjar Gaut^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.