Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Síða 22
22
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987.
fþróttir
Robson sá Lineker
fara á kostum á Spáni
- og skora öll þrjú mörk Barcelona geg Real Madrid
Stórleikur 1. deildarinnar á Spáni fór
fram í gær og áttust þar við efsta liðið
Barcelona og liðið í öðru sæti Real
Madrid og fór Barcelona með sigur
af hólmi, 3-2, í mjög spennandi leik
að viðstöddum 115 þúsund áhorfend-
•Gary Lineker sést hér fagna einu af þremur mörkum sínum gegn Real
Madrid um helgina. Stmamynd Reuter
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 57., 63. og 70. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Suðurbraut 10,1. haeð t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Sigurðar Haukssonar
og Guðrúnar S. Pálmarsdóttur, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka
islands og Skarphéðins Þórissonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. febrú-
ar 1987 kl. 15.00.
_________________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Kvíholti 10, efri hæð, Hafnarfirði, þingl. eign
Karels Karelssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. febrúar 1987
kl. 13.00.
________________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Brávöllum, spildu úr landi Laugabóls, Mosfells-
hreppi, þingl. eign Eiríks Karlssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn
5. febrúar 1987 kl. 16.30.
Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 57., 63. og 70. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Hjallabraut 7, 3. hæð t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Aðalheiðar Birgisdóttur,
fer fram eftir kröfu Útvegsbanka íslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5.
febrúar 1987 kl. 13.30.
_________________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eignini Laufvangi 3, 2 H M4, Hafnarfirði, þingl. eign
Böðvars Valgeirssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. febrúar
1987 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 1., 7. og 10., tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983. á eign-
inni Óseyrarbraut 3, Hafnarfirði, þingl' eign Péturs Auðunssonar, fer fram
eftir kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. og Póstgíróstofunnar á eign-
inni sjálfri fimmtudaginn 5. febrúar 1987 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 68., 72. og 74. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign-
inni Barrholti 33, Mosfellshreppi, þingl. eign ðlafar Antonsdóttur og Harðar
Kristjánssonar, fer fram eftir kröfu Guðríðar Guðmundsdóttur hdl. og Arnar
Höskuldssonar hdl., á eigninni sjálfri fimmtudaginn 5. febrúar 1987 kl. 16.30.
________________ Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
um á Nou Camp leikvanginum,
heimavelli Barcelona.
Englendingurinn Gary Lineker fór á
kostum í þessum leik og skoraði öll
þrjú mörk Barcelona liðsins. Eftir að-
eins fimm mínútna leik var Lineker
búinn að skora tvö mörk og það þriðja
skoraði kappinn á 49. mínútu og allt
varð vitlaust á vellinum. Leikmönnum
Real Madrid tókst að rétta úr kútnum
með tveimur mörkum fi"á þeim Jorge
Valdano og Hogo Sanchez úr víti.
Meðal áhorfenda var Bobby Robson,
landsliðseinvaldur enska landsliðsins,
og vonar hann örugglega að Lineker
verði í eins miklu formi í landsleik
Englands og Spánar sem verður síðar
í þessum mánuði á Spáni. Einng var
aðstoðarframkvæmdastjóri Dundee
United meðal áhorfenda en Barcelona
og Dundee United mætast í 8 liða úr-
slitum í UEFA keppninni.
Úrslit í öðrum leikjum urðu þessi:
Atletico Madrid-Sabadell....1-1
Cadiz-Sevilla.................2-0
Real Mallorca-Atheltic Bilbao.1-1
Racing-Real Valladolid.......0-0
Osasuna-Espanol..............1-0
Real Sociedad-Real Murcia.....1-1
Real Betis-Las Palmas.........3-1
Real Zaragoza-Sporting.......1-1
-JKS
r.r: “i
Heimsmet
hjá McKay
Bandaríkj amaðurinn Antonio
McKay setti í gær nýtt heimsmet
í 300 metra hlaupi á fijálsíþrótta-
móti innanhúss í Stuttgart í
Vestur-Þýskalandi. McKay fékk
tímann 32,51 sek. en eldra heims-
metið átti Erwin Skamrahl,
Vestur-Þýskalandi, og var það
32,72 sek. Skaamrahl hafhaði í
öðru sæti í 300 metra hlaupinu
í Stuttgart í gær og fékk tímann
32,87 sek. Bandaríkjamaðurinn
Michael Fi-anks varð þriðji á
32,95 sek.
•Sovétmaðurinn Vladimir
Krylov náði besta tíma ársins í
200 metra hlaupi og hljóp á 20,74
sek.
•Evelyn Ashford, Bandaríkj-
unum, sem á heimsmetið í 100
metra hlaupi kvenna náði aðeins
þriöja sætinu á mótinu í 60 metra
hlaupi. Sigurvegari varð Els
Vader Hollandi á 7,28 sek. og í
öðru sæti varð Ingrid Auerswald,
Austur-Þýskalandi á 7,29 sek.
Ashford fékk tímann 7,34 sek.
•Bretinn skemmtilegi, Daley
Thompson, vann fjórþraut og
hlaut 3.589 stig, 136 stigum meira
en næsti maður sem var Vestur-
Þjóðverjinn Michael Neugebau-
er. Þess má geta að Vestur-
Þjóðverjinn, Siggi Wentz, sem
oft hefur háð harða keppni við
Thompson, varð að hætta í
keppninni vegna meiðsla í nára.
-SK
Maradona
skoraði tvö
Napoli með Maradona í broddi
fylkingar vann góðan útisigur á
Udinese, 0-3, í ítölsku knattapyrn-
unni í gær og skoraði Maiadona tvö
af mörkum liðsins en Femando De
Napoli eitt. Með sigrinum er Napoli
í efsta sæti með 26 stig eftir 17 leiki,'
Intemazionale er í öðru sæti með
24 stig eftir jafnmarga leiki en liðið
sigraði Brescia, 0-1. .Juventus er í
þriðja sæti með 22 stig, liðið gerði
jafhtefli við Avellino, 1-1.
P ©t© f U11 © frá Sviss sést hér á fleygiferð í brun-
keppni heimsmeistaramótsins á skíðum sem fram fór í Crans Montana í
Sviss um helgina. Svisslendingar höfnuðu í fjórum efstu sætunum. Þess
má geta að myndin hér að ofan var tekin af Peter Múller á ofsahraða
og lenti kappinn 80 metrum neðar í brautinni. Símamynd Reuter
kclKostadinova frá Búlgaríu sést hér vippa sér léttilega yfir
2,04 metra og setja nýtt heimsmet í hástökki kvenna á Ítalíu í gær þar sem
ítalir, Búlgarir og Spánverjar háðu landskeppni. Símamynd Reuter
Ben Johnson
frá Kanada og Angella Issajenko-
Taylor, sem einnig er frá Kanada, fagna hér heimsmetum sem þau settu í gær
á frjálsíþróttamóti í Ottawa. Ben Johnson, sprettharðasti karlmaður heims-
ins, setti nýtt heimsmet í 50 metra hlaupi og fékk tímann 5,55 sek. sem er
frábær árangur. Angella setti einnig heimsmet í 50 metra hlaupi og hljóp á
6,06 sekúndum. Gærdagurinn var því stór dagur hjá þessum kanadísku hlaup-
urum sem eiga örugglega eftir að láta mikið að sér kveða á komandi frjáls-
íþróttamótum. Si mamynd "Reuter