Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Page 23
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987. 23 Arnór með glæsimark - og er enn markahæstur í Belgíu Kristján Bemburg, DV, Belgiir Amór Guðjohnsen skoraði stórglæsilegt mark fyrir Anderlecht um helgina er lið hans gerði jafntefli, 1-1, gegn Kortrijk á heimavelli síðar- nefnda liðsins. Arnór skoraði jöfhun- armark Anderlecht á 17. mínútu leiksins. Hann fékk þá góða sendingu inn í vítateig og skoraði með viðstöðu- lausu skoti og tók hann knöttinn á lofti. Kortrijk, sem ekki hafði hlotið stig í síðustu átta leikjum sínum í 1. deild- inni í Belgíu, átti í vök að verjast strax í upphafi leiksins. Hver sóknin af ann- arri buldi á marki liðsins en engu að síður varð heimaliðið fyrr til að skora. í síðari hálfleiknum datt leikur And- erlecht niður á lágt plan og þegar upp var staðið í leikslok máttu bæði liðin •Akkúrat ekkert lát er á velgengni Arnórs Guðjohnsen hjá Anderlecht. Stórglæsilegt mark um helgina og Arnór er enn markahæstur I Belgiu. vel við úrslitin una. íþróttafréttamað- ur belgíska sjónvarpsins sagði í gærkvöldi: „Amór Guðjohnsen skor- aði algert sýningarmark og heldur ennþá efsta sætinu yfir markahæstu leikmenn í 1. deild. Það er hreint frá- bær frammistaða hjá miðvallarleik- manni. Ragnar misnotaði dauðafæri Ekki gekk Ragnari Margeirssyni jafnvel í leik Waterschei og Aalst í 2. deildinni. Ragnar fékk algert dauða- færi í fyrri hálfleiknum, komst þá einn inn fyrir vöm Aalst en markvörður liðsins varði skot Ragnars með tánni. Þrátt fyrir þessi mistök Ragnars náði Waterschei að sigra í leiknum með marki sem Van den Muskin skoraði. Ragnar sagði eftir leikinn: „Það er ekki mjög gaman að leika í 9 sti'ga frosti. Mikil hætta er á meiðslum og boltinn skoppar oft öðmvisi en maður á að venjast. Ég var mjög ósáttur við það að dómarinn skyldi ekki dæma vítaspymu þegar mér var skellt í víta- teig Áalst.“ Guðmundur lék í fimm mínútur Guðmundi Torfasyni hefur ekki enn tekist að vinna sér fast sæti í 1. deild- ar liði Beveren. Guðmundur lék siðustu fimm mínútumar þegar Sera- ing og Beveren léku á heimavelli Searing. Beveren sigraði og Maes skoraði eina mark leiksins með skalla eftir homspymu. Guðmundur sagði eftir leikinn: „Það er mjög erfitt að komast inn í lið þegar gengur svona vel. Liðið hefúr ekki tapað í 18 leikjum í röð og það gefur auga leið að maður gengur ekki beint þar inn. Ég er mjög rólegur og bíð eftir mínu tækifæri." -SK Valur og Teitur skoruðu 70 stig í 10. sigri UMFN - Njaróvík sigraði Keflavík, 95-84 Sigurganga Njarðvíkinga í úrvals- deildinni í körfuknattleik hélt áfram um helgina. Keflvíkingar voru þeim engin hindmn. Þeir vom í byrjun leiks eins og böm í höndum Njarðvíkinga sem léku þá sundur og saman með léttu og hröðu spili og mikilli hittni, eins og tölur í hléi bera vott um, 54-35. En þrátt fyrir þennan mun létu Kefl- víkingar ekki bugast. Með ákveðni og þrautseigju í seinni hálfleik tókst þeim að minnka muninn í sjö stig, 79-72, en heimamenn tóku sig þá á að nýju og með góðum leik í lokin tryggðu þeir sér sigurinn, 95-84. Með þessum 10. sigri í röð í deildinni hafa Njarðvík- ingar fjögurra stiga foiystu í úrvals- deildinni. Keflvíkingar koma næstir og margt bendir til þess að nágrann- amir muni bítast um Islandsmeistara- titilinn í ár. Valur Ingimundarson, þjálfari UMFN, átti afburðaleik. Skoraði 44 stig og virtist ekki hafa mikið fyrir því. Skipti stigunum jafiit, 22 í hvorum hálfleik, þó svo að einn eða fleiri Kefl- víkingar væm settir til höfuðs honum í seinni hálfleik. Maður gat haldið að Valur gæti skorað blindandi, svo ör- uggur var hann. Teitur Örlygsson vex með hverjum leik, harður af sér, slung- inn og hittinn. Hann skoraði 30 stig, sem er mjög gott, en Teitur fellur dálít- ið í skuggann vegna stigafjölda Vals en það vom þeir tveir sem áttu drýgsta þáttinn í að ná yfirburðastöðu UMFN í fyrri hálfleik, 44-18. Og þó svo að þeir léku aðalhlutverkin áttu meðspil- aramir allir góðan leik, enda er Njarðvíkurliðið mjög samstillt. Byrjunarliði fBK gekk illa og er það umhugsunarefni út af fyrir sig. Þeir voru staðir og vissu ekkert hvaðan á þá stóð veðrið jiegar UMFN blátt áfram raðaði körfunum á þá. Hins vegar geta þeir hugg- að sig við það hvað jreim tókst með festu og hörku að rífa sig upp og vinna síðari hálfleikinn, þótt ekki blési byrlega, og það hleypti svo sannarlega spennu í leikinn, sem fullt hús áhorfenda kunni vel að meta, eða svo að desibelin komust vel á annað hundraðið. Jón Kr. Gíslason og Guðjón Skúlason héldu iBK-liðinu saman ásamt Hreini Þorkelssyni. Skoruðu drjúgum og vom harðir í vöminni. Gylfi Þorkelsson barðist vel að vanda, en yngri piltamir í liðinu nutu sín ekki sem skyldi, fengu varla tíma til að hitna. Stig UMFN: Valur 44, Teitur 30, Kristinn 10, Hreiðar 4, Helgi 4, Ámi 2 og ísak 1. Stig fBK: Jón Kr. 22, Guðjón 20, Hreinn 13, Gylfi 10, Sigurður 8, Ingólfur 6, Falur 2, Matti Ósvald 2 og Ólafur 1. Dómarar vom Jón Otti Ólafsson og Sig- urður Valur Halldórsson. -emm. íþróttir j~Rangers slegið úr bikamum] Glasgow Rangers mátti bíta í það súra epli um helgina að vera slegið út úr skosku bikarkeppninni í knatt- spymu. Liðið tapaði á heimavelli fýrir Hamilton, 0-1. I gær gerðu Aberdeen og Celtic jafntefli, 2-2. Af öðrum helstu úrslit- um í þriðju umferð keppninnar má neína jafiitefli Dundee United og Airdrieonians, 1-1, Hearts-Kilm- amock, 0-0, og sigur Hibemian gegn Dunfermline, 2-0. •Celtic hefur enn forystu í 1. deild ■ í Skotlandi, er með 47 stig eftir 31 ■ leik. Glasgow Rangers er með 45 stig I og á leik til góða. -SK | GERMAX minnkar streitu örvar hugsun orvar nugsi eykur orku Við notum þekkingu okkar í þágu heilsu þinnar. -Við mælum með GERIMAX. Vítamín með málmsöltum og Panax gingsen þykkni. Kondu við í apótekinu! I veislunni verða bomar á borð ÚRVALSBÆKUR Á ÓTRÚLEQA LÁQU VERÐI. Það uerður engirm fyrir uonbrigðum, huorki með uerð né uörugæði. Lítið útlitsgallaðar bækur uerða einnig á boðstólum. Sumar þeirra eru nánast nýjar en seldar með ótrúlegum afslætti uegna smáuægilegra útlitsgalla. hnkaueislu ársins H^nÞrdur margur gómsætu_---- •ÍT • BOKAUTGAFAN ORN fif ORLYGUR Síðumúla 11, sími 84866

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.