Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Page 24
24
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987.
fþróttir
DV
IVIarkvarsla Kristjáns
eini Ijósi punkturinn
- þegar ísland sigraði Sviss í Laugardalshöllinni, 20-16
„Þetta var enginn afburðaleikur af
okkar hálfu. Liðið small ekki saman
í þessum leik, eflaust situr einhver
þreyta í strákunum eftir Baltic keppn-
ina og erfið ferðalög því samfara. Ég
er þokkalega ánægður með frammi-
stöðu mína í markinu. Svisslending-
amir voru eins og ég átti von á en ég
er ekki frá því að þeir séu heldur slak-
ari en þeir voru í fyrra á heimsmeist-
arakeppninni,“ sagði Kristján
Sigmundsson lándsliðsmarkvörður í
samtali við DV þegar íslendingar voru
nýbúnir að leggja Sviss að velli með
20 mörkum gegn 16 á afmælishátíð ÍSÍ
í tilefni af 75 ára afmælinu í hand-
knattleik sem var í Laugardalshöll í
gær. Leikurinn í heild var mjög slakur
og virtist sem ieikmenn kæmust aldrei
á almennilegt skrið í leiknum. Það
eina sem gladdi virkilega augað var
markvarsla Kristjáns Sigmundssonar
en hann varði íslenska markið af
stakri snilld allan leikinn. Kristján
varði alls 19 skot og meðal annars eitt
vítaskot.
Islenska liðið skoraði fyrsta mark
leiksins og var Páll Ólafeson þar að
verki en Svisslendingar jöfhuðu að
vörmu spori. Síðan kom einn skásti
leikkafli íslenska liðsins í leiknum.
Þeir skoruðu næstu þrjú mörk og stað-
an var 4-1. Þessi munur hélst í milli
þjóðanna langt fram í fyrri hálfleik en
íslenska liðið gaf eftir undir lok hálf-
leiksins og Sviss náði að jafria leikinn,
9-9, en íslenska liðið hafði svo eins
marks foiystu í hálfleik, 11-10.
Svisslendingar urðu fyrir því óhappi
að þeirra besti maður og jafnframt sá
leikreyndasti, Peter Weber, meiddist
þegar um tólf mínútur voru liðnar af
fyrri hálfleik og varð að flytja hann á
sjúkrahús líklega með slitin kross-
bönd. Þetta er mikið áfall fyrir Sviss-
lendinga því þeir eru að undirbúa sig
fyrir B-keppnina sem hefst á Ítalíu
síðar í þessum mánuði.
íslendingar byrjuðu á því að skora
fyrstu þrjú mörkin í seinni hálfleik en
Sviss svaraði með marki strax og stað-
an því orðinn 14-11. Þá kom mjög
slæmur leikkafli hjá báðum liðum þar
sem hvorki gekk né rak. íslenska liðið
fann ekki nógu gott svar við vamar-
leik Svisslendinga því þeir spiluðu
syokallaða sex núll vöm og var ís-
lenska liðið í vandræðum með að finna
leið í gegnum hana.
Tvö til þrjú mörk skildu á milli lið-
anna mest allan seinni hálfleikinn en
annars skeði fátt markvert sem gladdi
áhorfendur nema markvarsla Krist-
jáns en hann lokaði íslenska markinu
á köflum. Einnig var átjánda mark
íslendinga sérlega glæsilegt þegar
Kristján Arason fékk boltann í hraða-
upphlaupi og skoraði með snúnings-
skoti inn úr hominu framhjá
svissneska markverðinum. Var sér-
staklega vel að þessu staðið hjá
Kristjáni. Alfreð Gíslason átti svo
lokaorðið í leiknum og fjögurra marka
sigur var staðreynd.
íslenska liðið þurfti ekki að hafa
mikið fyrir sigrinum í þessum leik, til
þess var mótstaðan allt of veik. Krist-
ján Sigmundsson stóð upp úr í liðinu
eins og fyrr greinir en einnig átti nafni
hans Arason þokkalegan leik en hefur
oft áður verið miklu betri. Aðrir leik-
menn náðu sér ekki á strik, til dæmis
Alferð Gíslason, sem var frekar óhepp-
inn með skot sín og er vonandi að
hann nái að sýna jafngóða leiki og
hann gerði í Baltic keppninni í næstu
leikjum í keppninni. Annars er erfitt
að dæma íslenska liðið af þessum leik
sem þróaðist í það að vera leiðinlegur
og má vera að það hafi dregið leik-
menn niður í meðalmennskuna.
Svissneska liðið er greinilega tölu-
vert á eftir okkur hvað getu snertir
en ef til vill situr þreyta í mannskapn-
um því þeir em á fullu í æfingaundir-
búingi fyrir B-keppnina. En mikið
mega þeir bæta sig ef þeir ætla að
standa sig í keppninni þar.
Dómarar leiksins komu frá Dan-
mörku og vom heldur mistækir í
dómum sínum þó það hafi bitnað jafnt
á báðum liðum.
Mörk íslands: Kristján 9/3, Páll 5,
Alfreð 2, Geir 2, Guðmundur 1, Karl 1.
Mörk Sviss: Scháfer 3, Mayer 3,
Borth 2, Keller 2, Weber 2, Rubin 2,
Schumacher 2. -JKS
„Þessi leikur var ekki
mikið fyrir augað
I
S
I
I
I - sagði Kristján Arason sem skoraði 9 mörk gegn Sviss I
.............'I
I
| „Þessi leikur var ekki mikið fyrir
Iaugað. Svisslendingar spila þennan
göngubolta sem dregur svo mótheij-
Iann á sama plan. Þetta var ekki
heldur leikur fyrir áhorfendur en
I Kristjánmarkvörðurvarþóeiniljósi
■ punkturinn í þessu. Persónulega er
I ég ekki með frammistöðu mína í
- leiknum, ég vildi fá að spila minna
| en ráun varð á. Einnig vantar Alfreð
Iog Sigurð meiri samæfingu, þeir
hafa lítið spilað saman í landsliðinu.
I Ég vona að við náum að sýna betri
■ leik gegn Sviss næsta miðvikudag,“
| sagði Kristján Arason.
| „Vantaði alla stemmningu“
■ „Þetta var mjög lélegt einu orði
sagt. Það vantaði alla stemmningu
í liðið og hraðinn í leiknum var eng-
inn. Þetta skrifast að sjálfeögðu á
leikmennina sjálfa. Svisslendingar
spila alltaf þennan göngubolta og
passa sig á því að gera lítið af villum
og svæfa svo andstæðinginn um leið.
Hvað sjálfán mig varðar vona ég að
leika ekki aftur svona eins og ég
gerði í þessum leik. Ég vonast tfl
þess að bæta mig í næsta leiksagði
Alfreð Gíslason í viðtali við DV eftir
leikinn.
„Kristján stóð upp úr“
„Þetta var slakkt hjá strákunum
að þessu sinni. Kristján Sigmunds-
son stóð upp úr. Strákamir virkuðu
þreyttir, að manni sýndist. Baltic
keppnin og erfiðar æfingar að und-
anförnu sitja í mönnum. Það tekur I
einnig tíma fyrir Alfreð og Sigurð ■
að aðlagast hvor öðrum en það hlýt- I
ur að koma með tímanum. *
„Þokkalegt inn á milli“ .
„ÞaðererfittaðspilaámótiSviss- |
lendingunum því þeir spila svo ■
hægan bolta. Þetta var þokkalegt I
inn á milli en langt frá því að vera I
gott. Við bætum okkur í næstu leikj- ■
um. Kristján Sigmundsson var I
langbestur í þessum leik,“ sagði Júl-
íus Jónásson. |
-JKS .
•Alfreð Gislason sést hér reyna markskot að svissneska markinu og skömmu síðar lá knötturinn í markinu. Alfreð skoraði tvö mörk i gær en náði sér ekki vel á
strik frekar en flestir landsliðsmanna okkar. í kvöld leika Alfreð og félágar gegn unglingalandsliðinu íslenska og vonandi gengur betur þá. DV-mynd Brynjar Gauti.
Stars and Str
í Ameríkubikamum í kappsiglingum en
fyrstu kappsiglingarnar gegn áströlsku s
útu mun en í gær munaði 1,10 mínútum.
sem fram fer í heiminum.
„Við e
Alsírbúf
- sagði Viggó Sigurðssor
„Þetta var ekki gott, við eigum að
geta gert mikið betur og ég vona strák-
amir verði betri í næstu leikjum. Þeir
vom ekki nógu hreyfanlegir gegn þess-
ari vöm þeirra en það var gaman að
fást við þetta lið því það spilar svo öðm-
vísi. Ég vil meina að við eigum að sigra
Alsírbúana á góðum degi,“ sagði Viggó
Sigurðsson, þjálfari íslenska liðsins
skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri, í
samtali við DV en íslenska liðið tapaði
fyrir Alsírbúum í leik í tilefhi af 75 ára
afmæli ÍSl í gær með eins marks mun,
21-22, í Laugardalshöll eftir að staðan
í hálfleik hafði verið jöfn, 12-12.
Alsírmenn skomðu fyrsta markið í
leiknum en íslenska liðið jafhaði fljót-
lega og eftir það höfðu íslensku strák-
amir ávallt frumkvæðið í fyrri hálfleik
þar til undir lok hálfleiksins að Alsír-
mönnum tókst að jafha.