Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Side 27
MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987.
27
DV
ÍR-ingar öruggir
í úrvalsdeildina
- unnu Grindvíkinga 89-88 í framlengdum leik
ÍR-ingar, undir stjóm Einars Bolla-
sonar landsliðsþjálfara, virðast vera
búnir að tryggja sér úrvalsdeildarsæti
í körfunni að ári. Um helgina léku
þeir gegn Grindavík í Seljaskóla og
sigruðu í æsispennandi leik eftir fram-
lengingu með 89 stigum gegn 88.
Staðan í leikhléi var 41-37 ÍR í vil.
Lokamínútur venjulegs leiktíma
vom mjög spennandi. Grindvíkingar
höfðu mest náð átta stiga forskoti í
íyrri hálfleik en þegar 20 sekúndur
vom til leiksloka var staðan 78-80
•Jóhannes Sveinsson tryggöi ÍR-
ingum sigur gegn UMFG um helgina.
Hann jafnaði leikinn með tveimur vita-
skotum þegar tvær sekúndur voru til
leiksloka. ÍR vann síðan í framleng-
ingu.
Grindavík í vil. Þegar aðeins tvær
sekúndur vom til leiksloka fékk Jó-
hannes Sveinsson tvö vítaskot sem
hann skoraði úr og jalnaði leikinn. í
framlengingunni höfðu ÍR-ingar alltaf
foiystuna en munurinn var þó ekki
nema eitt stig í lokin.
Þrátt fyrir sigurinn lék iR-liðið ekki
vel og hefur það oft leikið betur. Jó-
hannes Sveinsson var besti maður
liðsins og skoraði 28 stig og reyndist
liðinu betri en enginn í lokin.
Hjá Grindavík var Rúnar bestur en
einnig átti Guðmundur Bragason góð-
an leik.
Stig ÍR: Jóhannes 28, Karl 22, Jón Öm
17, Ragnar 13, Bragi 6 og Kristinn 3.
Stig UMFG: Rúnar 21, Guðmundur
19, Hjálmar 15, Eyjólfur 10, Steinþór
10, Sveinbjöm 7, Dagbjartur 4 og
Gunnlaugur 2. -SK/Gsv.
Daníel og
EinaráHM
Skíðamennimir Einar Ólafsson frá
ísafirði og Dam'el Hilmarsson frá Dal-
vík munu taka þátt í heimsmeistara-
móti á skíðum í næsta mánuði.
Einar keppir í 15, 30 og 50 km skíða-
göngu á HM í norrænum greinum í
Obertsdorf í Þýskalandi 10.-22. febrú-
ar. Daníel keppir hins vegar á HM í
alpagreinum í Crans-Montana í Sviss.
Daníel keppir þar í stórsvigi 4. febrúar
og svigi 8. febrúar. -SK.
H I 113sukova, Tékkóslóvakíu, til vinstri á myndinni, og Clau-
dia Kohde-Kilsch, Vestur Þýskalandi, urðu sjö milljón krónum ríkari um
helgina er þær báru sigur úr býtum í tvíliðaleik á tennismóti í Japan. Þær
sigruðu Pam Shriver og Elise Burgin, Bandaríkjunum, 6-1 og 7-6 í úrslitum.
Á myndinni hér að ofan sjást þær með verðlaun sín eftir mótið í gær. Síma-
mynd Reuter.
Gilberto Roman frá Mexíkó, til hægri, varði um helgina
heimsmeistaratitil sinn í fluguvigt í hnefaleikum. Hann barðist við Frakkann
Antoine Montero í Frakklandi en hafði engu að síður betur. Þetta var sjötti
sigur Romans á tiu mánuðum. Á myndinni er Frakkinn í þann veginn að
gefa heimsmeistaranum einn á lúðurinn en ekki dugði það til sigurs. Síma-
mynd Reuter.
íþróttir
r---------------
j FJórtán j
j heimasigrar j'
- í NBA-deildinni í körfu
Það virðist heyra til undan- |
tekningar ef lið tapar leik á ■
heimavelli í NBA-atvinnu- I
mannadeildinni handarísku í I
körfuknattleik. Um helgina voru ■
fjórtán leikir á dagskrá og öllum I
þeirra lauk með sigri heimaliða. 1
Framlengja varð i þremur leikj- I
anna til að ná fram úrslitum. Það _
var þegar Los Angeles Clippers |
sigraði Utah Jazz 114-113, Se- •
attle Supersonics vann Fönix *
Suns 118-112 og þegar San An- |
tonio Spurs vann Los Angeles _
Clippers 124-120. Úrslit í öðrum ■
leikjum urðu þessi:
Detroit-NY Knicks.....114-113 |
Washington-76ers......106-105 |
Cleveland Tndiana...„.102 100 I
Denver-Sacramento.....142-113 |
Atlanta-NY Knicks......106-98 ■
Boston Indiana.........100-94 |
76ers-Chicago.........121-112 |
Dallas-Milwaukee......133-117 .
LA Lakers-Fönix.......114-102 |
Golden State-Seattle..127-119 ■
Portland-NJ Nets......125-107 I
-SK. I
Olympiakos efst
Olympiakos er nú langefst í
grísku knattspymunni. Liðið er
með 27 stig eftir 16 leiki, PAOK
er í öðru sæti með 23 stig eins
og OFI sem er í þriðja sæti. Pan-
athinaikos er með 20 stig og
gamla félagið hans Sigurðar
Grétarssonar er í fimmta sæti
raeð 16 stig.
MARKAÐSMAL!
Á ÞÍN FRAMLEIÐSLA
ERINDI Á ERLENDAN
MARKAÐ?
ARGUS/SÍA
KYNNING OG KÖNNUN ERLENDIS.
VÖRUÞRÓUNAR- OG MARKAÐSDEILD
AÐSTOÐAR ÞIG!
Það er aldrei nema hálfur sigur að framleiða
góða vöru, markaðssetningin er engu minna
vandaverk. Þannig eru markaðsaðgerðir og
öflun nýrra markaða forsendur fyrir vexti og
viðgangi hvers fyrirtækis.
Til markaðsaðgerða teljast m.a. markaðs-
iðnlAnasjöður
IÐNAÐARBANKINN
Lækjargötu 12, 5. hæð Reykjavík, sími 20580.
könnun, gerð kynningarefnis, þátttaka í
sýningum, heimsóknir erlendra viðskipta-
manna og stofnun sölufélaga erlendis.
Fjárfesting í markaðsaðgerðum er jafn-
nauðsynleg og fjárfesting í vélum, tækjum
eða byggingum undir framleiðsluna.
Iðnlánasjóður veitir lán og styrki til sérstakra markaðsaðgerða.
Hlutverk vöruþróunar- og markaðsdeildar sjóðsins er að styrkja
íslenskan iðnað fjárhagslega til slíkra aðgerða.
Gjörðu svo vel að hafa samband við okkur ef þú vilt fá frekari
upplýsingar um starfsemi vöruþróunar- og markaðsdeildar.