Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Page 28
28
Knattspyma unglinga
Það var mikið líf í tuskunum á
gervigrasvellinum laugardaginn 3.
janúar sl., en þar var unglingalands-
liðið við æfingar og ekki veitir
strákunum af því þeir leika í mjög
erfiðum riðli í Evrópukeppninni í ár.
Andstæðingamir eru nefnilega ekki
af verri endanum, þ.e. Belgar, Danir
og Pólverjar.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
byrjað er svo snemma með æfingar
hjá unglingalandsliðinu hér á landi.
Ástæðu þess kveður Lárus Loftsson
landsliðsþjálfari vera að þegar
drengjalandsliðið (U-16 ára) komst í
úrslitakeppnina í Ungverjalandi
1985 kom í ljós að okkar strákar
voru verulega á eftir hvað allan kraft
og snerpu varðaði. Tæknilega stóðu
þeir fyllilega á sporði andstæðingun-
um en líkamlega voru þeir eftirbátar.
Hvað veldur því að okkar drengir
eru í lakara líkamlegu ástandi en
jafnaldrar þeirra í Evrópu? Bregðast
félögin eða er sökin grunnskólanna?
Nema hvort tveggja sé.
Breytinga þörf á
grunnskólalögum
Á ráðstefnu unglingaþjálfara 1985,
sem unglinganefnd KSI hélt, kom
Slök leikfimikennsla
í gmnnskólum
fram að leikfimikennsla í gnmnskól-
um þyrfti rækilegrar endurskoðunar
við. Talað var um að leikfimikennsla
færi að mestu í blak, handknattleik
og Vörfubolta svo eitthvað sé nefnt,
c ’nn hefðbundna norræna leik-
find, sem stælir menn og herðir,
væri ekki á dagskrá.
Það gefur augaleið að þau ung-
menni, sem ganga í gegnum stífa
leikfimikennslu í grunnskóla, eru
hæfari og skara yfirleitt fram úr í
allri íþróttaiðkun vegna góðrar
grunnþjálfunar.
Samtaka hópur
Þessir strákar, sem skipa ungl-
ingalandsliðið í ár, eru ákaflega
áhugasamir og eru ákveðnir í að
standa sig í hinni erfiðu riðlakeppni
í sumar.
Eftir tæpra tveggja tíma æfingu á
gervigrasinu undir stjóm Lárusar
Loftssonar fóm þeir í klukkutíma
þrekæfingu hjá Rósu Ólafsdóttur
íþróttakennara sem sýndi enga mis-
kunn og draup svitinn af mönnum í
lítratali, slíkt var álagið.
„Þetta er eina leiðin," sagði Rósa.
„Strákamir hafa tekið miklum fram-
förum síðustu vikumar og er þetta
góður undirbúningur fyrir slaginn í
sumar. Þetta er jákvæður og
skemmtilegur hópur sem er reglu-
lega gaman að vinna með.“ -HH
Lárus Loftsson, drengja- og unglingalandsliðsþjálfari:
„Ég hygli engum við
val á leikmönnum!“
Eftir hina erfiðu þrekæfingu strák-
anna undir handleiðslu Rósu Ólafs-
dóttur átti unglingasíða DV stutt
samtal við Láms Loftsson þjálfara og
við spyrjum hann fyrst hvort strák-
arnir hafi tekið miklum framfömm,
en kjaminn í þessum hópi unglinga-
landsliðsmanna hefur verið frá þvi
1985.
Já, ég sé miklar framfarir hjá þeim
piltum sem mynda kjamann í þessu
liði. Það hafa orðið breytingar á liðinu
frá því að við tókum þátt í Norður-
landamótinu 1985 og er ekkert óeðli-
legt að svo sé.
- Ert þú ánægður með hvernig KSÍ
stendur að málefnum unglingalands-
liðanna?
.Já, mjög svo. Allt unglingastarf KSÍ
hefur verið fyrirmynd annarra sérsam-
banda hvað þetta snertir. En það má
„Sigurður Jónsson var yfirlýst
„úrfirak" hjá Sheff. Wed!“
„Þessar þrekæfingar em ákaflega mikilvægar
fyrir knattspymumenn, ef þeir ætla að vera
færir um að takast á við vandann. Það em fjöl-
mörg dæmi því til sönnunar. Við skulum t.d.
taka Sigurð Jónsson frá Akranesi, leikmann
með Sheffield Wed. Þegar hann kom til þeirra
var hann yfirlýst „úrhrak". En með ströngum
líkamsæfingum hefur hann náð sér verulega á
strik og er nú raeð betri mönnum liðsins.
Allt hlýtur þetta að miðast við það að leik-
maður geti spilað af fullri getu í 90 mín.
Strákamir í unglingalandsliðinu vom frekar
kraftlitlir í byrjun en hafa tekið miklum fnun-
förum, svo ég er bjartsýn. Þessar æfingar
byggjast upp á þrek-, úthalds- og teygjuæfing-
um,“ sagði Rósa Ólafedóttir íþróttakennari.
-HH
„Hvao er þetta
með þig, drengur,
varst þú ekki í
leikfiml í barna-
skóla. Láttu ennið
snerta hné,“
kveður við í Rósu
Ólafsdóttur
iþróttakennara en
hún sér um þrek-
og kraftæfingar
strákanna í ungl-
ingalandsliðinu.
Sá sem hún er að
„pína“ er enginn
annar en Valdi-
mar Kristófersson
úr Stjömunni,
sem var af ungl-
ingasiðu DV
valinn lelkmaður
úrslitaleiksins i 3.
fl. á siðasta ís-
landsmóti.
DV-mynd HH
alltaf gera betur og alls ekki undir
neinum kringumstæðum sofha á verð-
inum. Ég vil að það komi fram að
þáttur félaganna er mjög stór í þessu
máli og er í raun undir þeim komið
hvemig til tekst. Ég hef alltaf haldið
því fram að því meir sem sinnt er
landsliðsmálum þeirra yngri er það
plús fyrir íslenska knattspymu.
Þróttmikið unglingastarf og næg
verkefhi fyrir ungu landsliðin okkar
gera knattspyrnuna betri, vegna þess
að þá fá þeir bestu að æfa og leika
saman og geta því þróað stíl sinn og
getu.
- Það kom í ljós þegar þrekæfingar
hófust sl. haust að drengimir voru í
frekar slæmu ástandi líkamlega, telst
það eðlilegt?
Núna eru strákamir að ganga í
gegnum æfingar sem þeir eru greini-
lega óvanir, því miður. Nútímaknatt-
spyma byggist mikið á hraða og krafti
samfara tækni og auk þess verða
ávallt að vera einhverjir sem taka af
skarið því einstaklingurinn verður að
njóta sín. Það sem við erum því að
byggja upp héma er styrkur, snerpa
og úthald. I æfingalegu tilliti hafa fé-
lögin brugðist í að byggja upp þessa
þætti.
- Hvað um unglingalandsliðsmenn-
ina úti á landi?
. Þeir sem eru tilkallaðir í þetta lið
háfa fengið fyrirmæli um vissar æfing-
ar og koma hingað suður með vissu
millibili og em því í snertingu við
okkur. En það væri æskilegt að ungl-
inganefnd KSÍ hefði aðgang að þjálf-
urum úti á landi sem gætu sinnt
þessum strákum við æfingar og annað.
- Þegar þú þjálfaðir 3. fl. KR 1985
vom 4 KR-ingar í drengjalandsliðinu
hjá þér og einnig þegar þú þjálfaðir 3.
fl. Stjörnunnar 1986 valdir þú 4
Stjörnumenn i landsliðið. Ert þú að
hygla mönnum?
Nei, alls ekki. Ég hef óvallt reynt
að velja leikmenn í unglingalandsliðin
af samviskusemi og hvergi látið neinar
tilfinningar ráð ferðinni. í öllum til-
vikum hef ég horft fram á veginn og
spurt sjálfan mig hvort viðkomandi
piltur sé framtíðarleikmaður. Ég skal
geta þess svona til gamans að þegar
A-landsliðið lék gegn Wales (úti) 1986
vom 14 leikmenn úr 16 manna hópn-
um sem höfðu verið hjá mér í drengja-
og unglingalandsliðunum.
- Ert þú bjartsýnn með úrslit í vænt-
anlegum landsleikjum?
Ég hef þá trú að strákamir standi
sig í þeim leikjum sem framundan em.
Allavega gefa þeir tilefhi til bjartsýni
með þeim mikla áhuga sem þeir hafa
sýnt.'
- Unglingasíðan óskar Lámsi og
strákunum góðs gengis og að þeir noti
timann vel og æfi grimmt.
-HH
Umsjón:
Halldór Halldórsson
MÁNUÐAGUR 2. FEBRÚAR 1987.
DV
ÍVeirgóðir ~\
Árni Þór Amason úr Þór frá I
Akureyri er einn þriggja Þórsara |
sem æfa með unglingalandsliðinu. ■
Hann tjáði unglingasíðu DV eftir- I
farandi: ,-,Mér finnst allt stefha upp I
á við í sambandi við unglingaþjólf- ■
un hjá KSÍ. Það er alltaf eitthvað I
nýtt sem maður lærir. Mataræði *
haföi maður aldrei hugsað neitt I
út í. Góðar æfingar og öll önnur !
frasðsla, sem hér hefhr verið í |
gangi, virkar jákvætt á mann. ■
Alls æfe með unglingalandslið- I
inu 13 strókar frá Reykjavíkurfé- I
lögunum og 7 frá félögum úti á I
landi. I
Frá Akureyrarfélögunum em.
það þeir Páll Gíslason, Þór. Árni |
Þór Ámason, Þór, Kjartan Guð- ■
mundsson, Þór, og Bjöm Pálma- I
son, KA. - Frá Þiótti, Neskaup- I
stað, er ólafur Viggósson, Leifur *
Hafsteinsson frá ÍBV og Þorsteinn I
Jónsson, Magna, Grenivík. I
DV-mynd HH |
Ólafur Viggósson, Þrótti, Nes- I
kaupstað, er með leikreyndari og *
efnilegustu leikmönnum okkar í I
dag og verður fróðlegt að fylgjast *
með honum á komandi leiktima- |
bili. DV-mynd HHj
SKOT! $
Geta félögin gert betur?
Ég varpaði þeirri spumingu til
strókanna á æfingu unglingalands-
liðsins á dögunum hvort málefnum
þeirra innan félaganna væri nógu vel
sinnt, hvað æfingar varðar, með það
að markmiði að bæta getu þeirra í
knattspymu.
Svör drengjanna vom yfirleitt á einn
veg. Einar Daníelsson, Gunnlaugur
Einarsson og Steinar Adolfsson, allir
úr Val, kvóðust tiltölulega ánægðir.
KR-ingamir, Rúnar Kristinsson og
Þormóður Egilsson, vom það einnig.
Sömu sögu höföu Stjömumenn að
segja, þeir Bjami Benediktsson, Vald-
imar Kristófersson og Sigurður
Guðmundsson. Að vísu fannst þeim
nokkuð dauft tímabil um áramótin.
Helgi Björgvinsson, Fram, og Karl
Jónsson, Þrótti R„ vom einnig á sama
máli.
Haraldur Ingólfeson frá Akranesi
tók ekki í sama streng og sagði ekki
nógu vel að málum staðið á Akranesi.
Æfingar allt of fáar og þessu engan
veginn nógu vel sinnt.
Þessi yfirlýsing Haralds kemur heim
og saman við það sem Akumesingur-
inn Tryggvi Tryggvason sagði mið-
sumars 1985, þegar hann æfði með
drengjalandsliðinu fyrir Norðurlanda-
mótið: „Þetta hefur ekki verið nógu
gott hjá okkur uppi á Skaga, við höf-
um bara æft einu sinni í viku langt
fram á vor.“
Það læðist að manni sá gmnur að
fá félög, ef þá nokkurt, leggi sig nægi-
lega fram við yngri flokkana og þá
sérstaklega eftir að 4. fl. lýkur.
Alla vega er ljóst að mat Rósu Ólafe-
dóttur er ó þá lund að líkamlegt ástand
strákanna hafi ekki verið nógu gott
þegar þeir mættu til æfinga sl. haust.
-HH