Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Qupperneq 38
38 MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987. SAUMANÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST Ásgerður Ósk Júlíusdóttir klæðskeri, sími 21719. STARF FORSTÖÐUMANNS HÁSKÓLAKENNSLU Á AKUREYRI Starf forstöðumanns háskólakennslu á Akureyri er laust til umsóknar. Hlutverk forstöðumanns er: 1. Að starfa að undirbúningi og skipulagningu kennslu á háskólastigi á Akureyri ásamt nefnd sem mennta- málaráðuneytið skipaði haustið 1985 til að fjalla um það mál. 2. Að hafa i samráði við forráðamenn hlutaðeigandi skóla umsjón með þeirri kennslu á háskólastigi sem ráðgert er að hefjist á Akureyri haustið 1987. 3. Að sjá um samstarfstengsl við Háskóla íslands og aðra skóla á háskólastigi vegna kennslunnar á Akureyri. Gert er ráð fyrir að forstöðumaður verði ráðinn til takmarkaðs tíma, þó ekki skemur en til eins árs. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. apríl nk. 27. janúar 1987. Menntamálaráðuneytið. RÍKIS SPÍ TAL AR LAUSARSTÖÐUR Hjúkrunardeildarstjóri og hjúkrunarfræðingur óskast á göngudeild Geðdeildar Landspítala að Kleppi. Hjúkrunarfræðingar óskast á Geðdeild Landspítalans 33 C. Hjúkrunarfræðingar óskast á hinar ýmsu deildir Geðdeildar Land- spítala að Kleppi. Húsnæði getur fylgt. Sjúkraliöar óskast við ýmsar deildir á Geðdeild Landspítala. Starfsfólk óskast til ræstinga við Geðdeild Landspítala á Landspít- alalóð og að Kleppi. Skrifstofumaður óskast á skrifstofu hjúkrunarstjórnar Geðdeildar Landspítalans að Kleppi. Upplýsingar um ofangreindar stöður veita hjúkrunarframkvæmdastjórar Geðdeildar Landspítalans í síma 38160. Hjúkrunarfræðingur óskast nú þegar til afleysinga á krabbameins- lækningadeild kvenna 21 A. Upplýsingar veitir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri Kvennadeildar í síma 29000-509. Hjúkrunarfræðingar óskast á gjörgæsludeild Landspítalans. Deildin skiptist i 11 rúma gjörgæslu og 8 rúma vökun. Unnið er þriðju hverja helgi og í boði er góður aðlögunartími. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri Handlækningadeildar í síma 29000-486 eða 487. Aöstoðardeildarstjórar (2) óskast á vökudeild Barnaspítala Hrings- ins. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliöar óskast til vaktavinnu á Barna- spítala Hringsins. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri Barnaspítala Hringsins í sima 29000-285. Sjúkraliöar og starfsmenn til ræstinga óskast á Vífilsstaðaspítala. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 42800. Starfsmaður óskast í fullt starf á skóladagheimili ríkisspítala að Kleppi. Einnig óskast starfsmaður í hálft starf fyrir hádegi á dag- heimili ríkisspítala að Kleppi. Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimilisins í síma 38160. Starfsmaður óskast í hálft starf til ræstinga í þvottahúsi ríkisspítala, Tunguhálsi 2. Upplýsingar veitir forstöðumaður þvottahússins í síma 671677. Deildarþroskaþjálfar óskast á ýmsar deildir Kópavogshælis. Upplýs- ingar veitir framkvæmdastjóri Kópavogshælis í síma 41500. Ritari óskast á skrifstofu forstjóra ríkisspítala. Stúdentspróf eða sambærileg mennun áskilin ásamt góðri vélritunar- og islénsku- kunnáttu. Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 29000. Sjúkraliöar óskast á lyflækningadeild 211 B og einnig á taugalækn- ingadeild 32 A. Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri lyflækningadeildar í síma 29000-485. Reykjavik, 2. febrúar 1987. laxveiðin: Dýrast efdr að údendingamir fara - dagurinn víða á 20-25 þúsund kronur Veiðileyfi eru til umræðu meðal veiðimanna þessa dagana og áfram höldum við að kíkja á verð á veiði- leyfum í sumar. Þeim fjölgar veið- iánum þar sem verðið næsta sumar hefitr verið ákveðið. í Laxá í Kjós (Bugðu) er dýrast 25 þúsund og ódýr- ast 8 þúsund. I Grímsá og Tunguá er 24 þúsund dýrast og 4 þúsund ódýrast en það er frá 2. til 4. septemb- er. Flókadalsá í Borgarfirði verður dýrust 12 þúsund eftir útlendingana, eins og reyndar er í flestum ánum, Veiðivon Gunnar Bender og ódýrust 3 þúsund. Þverá (Kjarrá) er ódýrust 4 þúsund og upp í 22 þús- und. Langá á Mýrum verður dýrust 18 þúsund og fer niður í 4 þúsund. Setbergsá kostar 7 þúsund í mestallt sumar. Haukadalsá verður dýrust 24 þúsund og ódýrust 12 þúsund. Laxá í Dölum 6.400 ódýrust og dýr- ust 26 þúsund. Hrútafjarðará og Síká eru dýrastar 19.500 og fara niður í 6 þúsund. Miðfjarðará er dýrust eftir útlendingana og kostar þá dagurinn 25 þúsund og ódýrust í lok septemb- er, 7 þúsund. Víðidalsá og Fitjá eru dýrastar 25 þúsund. Vatnsdalsá er Laxá í Kjós er ein af fengsælu veiðiánum og veiðimenn eiga örugglega eftir að fá laxinn þar í sumar. Dagurinn kostar mest þar 25 þúsund. DV-mynd G. Bender dýrust í laxinum 29 þúsund og fer niður í 6 þúsund. Silungasvæðið kostar mest 4.200 og minnst 600. Blanda kostar frá 2 þúsundum og upp í 10.500. Laxá í Refasveit er dýr- ust 6.500 og lækkar niður í 2.700 þegar ódýrast er. Mýrarkvísl verður dýrust 12 þúsund. Laxá í Aðaldal verður dýrust 15.500 og fer niður í 3 þúsund. Laxá í Þingeyjarsýslu, ur- riðinn, verður 1.800 dagurinn og komast víst færri að en vilja. Útlend- ingar ætla mikið í urriðann í sumar. Við Langholt í Hvítá verður dagur- inn á 8 þúsund. G. Bender Fréttir Björgunar- búningur í afmælis- gjöf Ómar Gaiðaiæan, DV, Vestmarniaeyjum; Eiginkona og böm Adolfs Magnús- sonar, sem rær einn síns liðs á trillu- bátnum Freyju frá Vestmannaeyjum, gáfú honum björgunarbúning. I viðtali við DV sagði hann að þetta benti til þess að þeim væri ekki alveg sama um hann og að þessir búningar væru mikilvægt björgunartæki, ekki síst þegar menn væru einir á sjó. Adolf hefúr reynt búninginn í sjó og sagði að hann hefði reynst vel. AdoH Magnússon í björgunarbúningnum sem eiginkona hans og böm gáfu honum í afmælisgjöf. DV-mynd Ómar Kokkur fer í flotbúning Jón G. Haukssan, DV, Akureyit „Þeir voru mjög ánægðir með æf- inguna sem þeir báðu sjálfir um. Það tók alla skipverjana innan við mín- útu að fara í flotbúningana í lok æfingarinnar," sagði Jón Steindórs- son, framkvæmdastjóri Kaupskips hf. á Akureyri, en félagið gerir út flutningaskipið Combi Alfa. Jón sagði að skipverjamir hefðu beðið um æfinguna eftir allar þær umræður sem urðu eftir að flutn- ingaskipið Suðurland sökk fyrr í vetur. „Við erum með ellefu búninga um borð en í áhöfninni eru sjö menn. Strákunum þótti auðvitað engin ástæða til að hafa búningana um borð nema að fá æfingu hjá kunn- áttumönnum um það hvemig ætti að nota þá,“ sagði Jón. Kokkurinn á Combi AHa, Steinþór Gunnar Guðmundsson, fer i flotbúning- inn. Honum til aðstoöar er Stefán Traustason, félagi í sjóslysadeild Slysa- vamafélagsins á Akureyri. DV-mynd JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.