Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Qupperneq 44

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1987, Qupperneq 44
44 MÁNUDAGUR 2. FEBRÚAR 1987. Sviðsljós Þeir stóðu saman, félagarnir - maður og svanur - á Tjarnarbakkanum og horfðu þöglir á endurnar líða hjá eftir vatnsborðinu. Svanurinn örlítið þreytulegur enda löngu búinn að fá yfir sig nóg af öllum þessum öndum. Annars er Tjörnin núna íslaus með öllu enda veðurfar með eindæmum milt miðað viö þaö sem menn eiga að venjast á þessum árstíma. Horft á endurnar Jerry Lee Lewis: Hélt út í tvo daga „ Ég er hvorki eldabuska né þvottakona,“ sagði Jerry Lee Lewis - sár- hneykslaður á aðbúnaðinum á Betty Ford stofnuninni. Það tók Jerry Lee Lewis ekki langan tima að vinna i sínum málum á Betty Ford stofnuninni. Tveir dagar nægðu þeim gamla þverhaus fullkom- lega og hann kvaddi hvorki kóng né prest á staðnum. „ Keyrðu eins og druslan kemsti" sagði kappinn við leigubilsfjórann á leiö frá meðferðarstöðinni. Svo var haldið beint áfram flugleiðis - heim til Memphis. „ Ég geri þetta bara sjálfur," segir rokkarinn gamli kokhraustur. „ Klósettþvottur og eldabuskustörf ætla ég mér ekki aö stunda - þau verkefni hef ég aöra til að sjá um. Ég er skolli góður á pianóinu og verð við þaö nú sem áður. Þeir geta átt sína sfofnun fyrir mér þarna á Betty Ford hælinu og ef menn fá eitthvað út úr því að litillækka sig svona þá er það þeirra mál. Hingað til hef ég ekki þurft að búa um rúmið mitt sjálfur og get ekki séð hvernig það hjálpar mér að hætta vimuefnaneyslu að snúast í heimilisstörfum alla daga. Það hefur enginn kúgaö mig tit þessa og ég ætla að nota viljann til þess að hætta á eigin spýtur." Hvort kappanum tekst ætlunarverkiö kemur eflaust í Ijós síðar þvi annað- hvort er að hætta eða horfast í augu við dauðann. Þetta eru elgin orð Jerry Lee Lewis svo kannski karl verði kominn aftur á tröppur meðferðarhælisins ógurlega innan skamms - fastákveðinn i því að þvo klósett og búa um rúm eins og óður maður vikum saman. Enginn veit sína ævina... Til ham ingju með heiður- inn! Kvikmyndaframleiðandinn aust- um'ski - Maximilian Schell - óskar hér Sissy Spacek til ham- ingju með árangurinn. Bæði fengu menningarverðlaun kvik- myndagagnrýnenda í New York - hún var valin besta leikkonan fyrir leik sinn í myndinni Crimes of the Heart en hann átti besta handritið og var það að myndinni Marlene. Þetta er í fimmtugasta og annað skipti sem þessi verð- laun eru veitt vestra. Ólyginn sagði... Walther Som- merlath vakti athygli í samkvæmi hjá Volvórisanum Peter Eckin- ger sem býr í París. Peter tók eftir því að þessi hrokkin- hærði náungi lyfti ekki glasi heldur stóð til hliðar og horfði á gestina. Þegar í Ijós kom að Walther var fljúg- andi mæltur á sænska tungu vildi gestgjafinn fá að vita hvernig á því stæði. Hann fékk þau svör að systir krulla væri gift Svía sem kenndi málið við öll heimsins tæki- færi og þá lá beinast við að grennslast fyrir um nöfn hjónanna og í hvaða at- vinnugrein máginn væri að finna. „Hann er kóngur, heitir Gústaf og systir mín Silvia," var hið stuttaralega svar Walthers Sommerlath. ingum og heitir sá lukkulegi Jean-Louis Schlesser. Hann er ítalskur kappakstursmað- ur og eru turtildúfurnar nú á skíðum í Gstaad í Svissl- andi. Marianna neitar stöðugt en Jean-Louis hefur verið eins og köttur í kring- um heitan graut alls staðar þar sem fyrrum frú Björn Borg lætur sjá sig - bæði leynt og Ijóst. Fróðir telja ekki nema örfáa mánuði þar til klukknahljómur og hvít klæði fara að flögra um hug- arfylgsni væntanlegra hjónakorna. Jackie Onassis varð banhungruð einn morguninn og nennti alls ekki á fætur. Hún dreif sig í símann og hringdi á næsta veitingahús. Þaðan fékk hún þjón sem hafði meðferðis ri- stað brauð og kavíar fyrir dollaraekkjuna. Reikningur- inn lagði sig svo á eitt hundrað og tuttugu þúsund krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.