Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Side 1
MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987.
25
Fimm nýir leik—
menn í landsliðið
„Valsmennimir sáust ekki á æfing-
um um helgina og ég hef valið 5 nýja
leikmenn í þeirra stað í landsliðs-
hópinnsagði Einar Bollason, lands-
liðsþjálfari í körfu, í gærkvöldi.
ValsmennimirTómas Holton, Leifur
Gústafsson og Sturla Örlygsson hafa
verið settir út úr landsliðshópnum sem
nú býr sig undir Norðurlandamótið. í
þeirra stað koma þeir ísak Tómasson,
UMFN, Gylfi Þorkelsson, ÍBK, Krist-
inn Einarsson, UMFN, Teitur Örlygs-
son, UMFN, og Guðjón Skúlason,
ÍBK. Þá má geta þess að Helgi Rafiis-
son, UMFN, hefiir ákveðið að gefa
ekki kost á sér.
-SK
Ivar aftur
í Hauka!
eftir eitt ár í Þór Ak.
Gyifi Kristjánssan, DV, Akureyri;
„Þetta er í bígerð og ég veit ekki
annað en Webster leiki með okk-
ur á næsta keppnistímabili. Það
eru allavega mjög miklar líkur á
því,“ sagði Skúli Valtýsson,
formaður körfuknattleiksdeildar
Hauka, i samtali við DV í gær-
kvöldi.
Samkvæmt mjög áreiðanlegum
heimildum DV er ákveðið mál
að ívar Webster, sem leikið hefúr
í vetur með og þjálfað Þór frá
Akureyri, gangi til liðs við
Hauka og ætlí að flytjast suður
á ný.
„Eg kem algerlega af íjölhun.
Ég hef ekkert heyrt um þetta.
Webster gerði á sínum tíma eins
árs samning við Þórsara um
þjálfiin meistaraflokks en hins
vegar tveggja ára samning um
þjálfun yngri flokka,“ sagði Ei-
ríkur Sigurðsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Þórs í
samtali við DV í gærkvöldi.
-SK
Siggi Grétars skor-
aði þrjú gegn Vevey
Sigurður Grétarsson var heldur bet-
ur á skotskónum um helgina er lið
KR fékk aukastig
KR-ingar nældu sér í aukastig í
gærkvöldi er þeir sigruðu Þróttara,
3-1, í Reykjavíkurmótinu í knatt-
spymu. Næsti leikur í mótinu er annað
kvöld og leika þá ÍR og Ármann.
cHlsigmundsson, markvörður íslandsmeistara Víkings, var í gær útnefndur handknattleiksmað-
ur ársins á lokaffofi handknattleiksmanna í Broadway. Kristján var einnig kosinn besti markvörðurinn á nýloknu
keppnistímabili. Kolbrún Jóhaniisdóttir, markvörður íslands- og bikarmeistara Framara, var kosin handknattleikskona
ársins og hún var einnig kosin besti markvörðurinn hjá konunum. Á myndinni sjást þau Kristján og Kolbrún með verð-
laun sín. Nánar er greint frá lokahófi handknattleiksmanna á bls. 40.
DV-mynd Brynjar Gauti
hans og Ómars Torfasonar sigraði
Vevey á útivelli, 1-4. Sigurður gerði
sér lítið fyrir og skoraði þrjú marka
Luzem
Ómar Torfason kom inn á sem vara-
maður í leiknum. Luzem er nú í sjötta
sæti 1. deildar með 23 stig en Neuchat-
el Xamax er efst með 34 stig.
-SK
I_jOlí.9.1flO£cörfúknattleiksmanna var haldið á föstudagskvöld í Sig-
túni. Þar voru fjölmörg einstaklingsverðlaun afhent. Á myndinni eru frá vinstri: Kristinn
Albertsson, framkvæmdastjóri KKÍ, Ómar Schewing, KR, (mestu framfarir hjá dóm-
ara), Linda Jónsdóttir, KR, stigahæst og best í kvennaflokki, Jóhannes Kristbjömsson,
UMFN, besti leikmaður úrslitaleiks bikarkeppninnar og hann tók einnig við bikar sem
faðir hans, Kristbjöm Albertsson, hlaut sem besti'dómarinn, Pálmar Sigurðsson, Hauk-
um, flestar 3ja stiga körfur, besti leikmaður fslandsmótsins og stigahæstur, Anna María
Sveinsdóttir, ÍBK, best í vítum í kvennaflokki, Falur Harðarson, ÍBK, besti nýliðinn,
Guðni Guðnason, KR, prúðasti leikmaðurinn, og Bjöm Björgvinsson, formaður KKÍ.
DV-mynd Gunnar Sverrisson
■ ^
- sja opnu
ísland sækir um HM árið 1994!
- Svíar hafa einnig áhuga á að halda keppnina. Leitað eftir stuðningi víðs vegar að
Stjórn Handknattleikssambands
Islands hefúr ákveðið að fara þess á
leit við stjóm Alþjóða handknatt-
leikssambandsins að A-heimsmeist-
arakeppni karla árið 1994 verði
haldin hér á landi, á 50 ára afmæli
íslenska lýðveldisins.
Hefúr sérstök heiðursneftid verið
skipuð til að vinna að þessum málum
með stjóm HSÍ. Kom þessi nefiid
saman í fyrsta skipti í gær.
Á blaðamannafiíndi, sem haldinn
var í gær af þessu tilefni, kom fram
í máli Jóns Hjaltalín Magnússonar,
formanns HSÍ, að eins og málin
stæðu í dag væm enn tvær þjóðir
inni í myndinni. Auk okkar væm
Svíar mjög spenntir fyrir að halda
keppnina.
Endanleg ákvörðun um hvar
keppnin verður haldin verður tekin
á þingi Alþjóða handknattleikssam-
bandsins sem verður í Seoul nokkr-
um dögum áður en sjálfir leikamir
hefjast.
HSl er að vinna að því að fá stuðn-
ing Austur-Evrópuríkja, Afríku-
þjóða og smáríkja innan Alþjóða
handknattleikssambandsins. Einnig
hafa heyrst raddir um að fá stuðning
annarra Norðurlandaþjóða en Svía.
Heimsmeistarakeppni í 'handknatt-
leik hefur einu sinni áður farið fram
í Svíþjóð og er mikill hugur í þeim
að fá keppnina aftur til sín. Um þess-
ar mundir em Svíar að byggja
margar nýjar hallir í Stokkhólmi og
Gautaborg, ömgglega með það í
huga að halda keppnina.
Ef ísland fengi að halda keppnina
em uppi hugmyndir um að leika í
tveimur riðlum. Annars vegar hér á
Reykjavíkursvæðinu og hins vegar
á Norðmdandi. Tillaga liggur á borð-
inu hjá Alþjóða handknattleikssam-
bandinu um að fjölga liðum úr 16 í
24 í úrslitum heimsmeistarakeppn-
innar en ákvörðun um það efrii
verður tekin á þinginu á næsta ári.
Að sögn forráðamanna HSÍ eiga
húsnæðismál ekki að standa í vegi
fyrir að halda keppnina hér á landi
því á imdanfomum árum hafa
íþróttahús í öllum stærðum risið víðs
vegar um landið. I Laugardalshöll-
inni er í bígerð að færa völlinn til
svo hægt verði að koma fyrir áhorf-
endapöllum beggja megin leikvangs-
ins.
Nú er bara að bíða og sjá hvort
þessi umsókn HSÍ fær brautargengi
innan Alþjóða handknattleikssam-
bandsins. Ekki er að efa að þetta
yrði mikil lyftistöng fyrir íþróttir
almennt í landinu og um leið stærsti
íþróttaviðburður hér á landi fram
að þessu.
-JKS