Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 12
36 MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987. íþróttabandalag Keflavíkur, handknattleiksráð Handknattleiksráð Keflavíkur óskar eftir að ráða þjálfara fyrir eftirtalda flokka næsta leik- tímabil: Meistara- og annar flokkur karla Meistara- og annar flokkur kvenna Umsóknir sendist í pósthólf 142 fyrir l.júní 1987, merkt: „Handknattleiksráð Keflavíkur, Pósthólf 142, 230 Keflavík". Nánari upplýsingar gefur Marel Sig- urðsson, í síma 92-2373, eftir kl. 18.30. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því að gjald- dagi söluskatts fyrir marsmánuð er 15. apríl. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið Tilkynning til launaskattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að ein- dagi launaskatts fyrir mánuðina janúar og febrúar er 15. apríl nk. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanna ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslur í þríriti. Fjármálaráðuneytið I GALTALÆ KJARSKOGI Verslunarmannahelgin 31. júlí til 3. ógúst 1987 Híjómsveitif skemmtikraftar Ein allra stœrsta fjölskyldu- og útihátíð sumarsins, Bindindismótið í Galtalœk 1987, óskar eftir tilboðum í dansleikjahald og dagskráratriði. -»raSum6.lnu i Gona.aaHo.stógi A. œllaftii Ollum aiaurshópum 1. oanslelkit ó palli. (ðstudogskuoia w. Íí m_04.00 Sdaag«a".22V30-02 00 Samahlidmsvellle.lelnnlgddainadanslel.um laugardag * 16'qo-17.30 sunnudag lou | 2 unglingodansleikli j oo tðstudagskvöld v “ qo-04.00 laugardagskvöld W. qq sunnudagskvold w. kl 16.00-16 00 kl 20.00-2100 kl 19.30-20.00 Dagskráratriðl á Blndindismátinu í Galtalœkjarskógi um Verslun- armannahelglna 31. júli til 3 ágúst 1987 1 Barnaefni: 2. Barnatimi: Laugardag kl 17.30—18.15 Sunnudag kl 15.00—1600 2. Gamanmál: Laugardagskvöld kl. 21 00-22 00 Kvöldvaka: Sunnudagskvöld kl. 20.00—21.30 3. Galtalaekjarkeppnin 1987. Gœti veriö fólgin i söngvakeppni. frjálsum dansi og ööru sem reyndi á þátttöku gesta mótsins. Vœntanlega á sunnudag kl. 17.30-18.30. Heimilt er aö gera tilboö i hluta dagskrár sem og alla. en þá veröur aö gera góöa grein fyrir þátttakendum og skiftingu þeirra milli atriöa Til greina kemur aö ráöa fleiri en eina unglingahljómsveit og yröi þá spilatima peirra skift niöur á sitt hverf kvöld helgarinnar Tilboö er innihaldi allan kostnaö, þar meö taliö vinnu, feröir, flutn- ings- og uppihaldskostnaö á staönum. 1 -- 1 —-.... ■— — - —r Tilboösgögn og upplýsingar fást í Templarahöllinni, | Ðríksgötu 5, 3ju hœö. | Guöni og Karl, símar 19944 og 10248 f Tilboö skal senda til: GALTALÆKJARMÓTID 1987 f b.t. Karl Helgason Templarahöllin, Eiríksgötu 5, 105 Reykjavík fyrir 27. apríl n.k. íþróttir dv • Markku Alen sést hér í fremstu röð á Lancia bifreiö sinni en hann vann öruggan sigur i portúgalska rallinu. Oruggt hjá Alen í portúgalska rallinu Þriðja rallið i heimsmeistara- keppninni var portúgalska rallið illræmda. Keppni þessi hefur verið þekkt fynr grófar leiðir, óvænta sig- urvegara, mikla slysatíðni og síðast en ekki síst brjálaða áhorfendur sem fara í engu eftir settum reglum. Æðsta takmark ralláhugamanna í Portúgal er að geta snert keppnisbíl er hann fer hjá á fullri ferð. Hafa þeir farið flatt á þvi nokkrir þvi í portúgalska rallinu hafa orðið bana- slys vegna brjálaðrar framkomu áhorfenda. í fyira lögðu allir at- vinnuökumennirnir frá sér stýrið og neituðu að halda áfram keppni eftir að einn þeirra hafði orðið áhorfanda að bana. Fóru þeir fram á að örygg- iskröfur yrðu hertar en ekki var orðið við þeirri ósk þeirra þannig að sigurvegari síðasta árs var með öllu óþekktur ökumaður, sjálfum sér og öðrum til mikillar furðu. Keppnin í ár reyndist ekki vera nein undantekning á íurðulegum fyrirbærum. Enginn skildi upp né niður í neinu er framhjóladrifinn Renault 11 turbo tók forystu strax í upphafi undir stjóm Frakkans Rag- notti, en hann ók frábærlega vel og var með toppsérleiðatíma á 23 af 27 sérleiðum keppninnar. En hann gerði ein afdrifarík mistök er hann valdi röng dekk undir bílinn fyrir eina af lengstu sérleiðunum og tai> aði við það svo miklum tíma til keppinautanna að annað sætið varð staðreynd. Þetta er í fyrsta sinn síð- an 1980 að framhjóladrifinn bíll nær svo langt í heimsmeistarakeppni eða síðan að Saab var að gera það gott í sportinu. Sigurvegarar sænska vetrarralls- ins, Mazda með fyrrum heimsmeist- ara Timo Salonen undir stýri, mættu með vonarglampa í augum sem breyttist fljótt í sorgarsvip því báðfr keppnisbílar þeirra urðu að hætta keppni vegna bilana. Það eina sem þeir gátu glaðst yfir var að Ford- liðinu gekk enn verr því að eftir aðeins sjö sérleiðar voru bílar þess fallnir úr keppni og þá pakkaði Ford-liðið saman öllu sínu hafur- taski og fór heim til Englands að sleikja sár sín. Sigurvegarar urðu því Lancia, með gamla refínn Markku Alen við stýrið, en ekki var sigurinn átakalaus því dempara- vandamál hrjáðu þá alla keppnina. Skipt var um þá hvenær sem færi gafst og að lokum var tekið það ráð að senda flugvél frá Ítalíu með meiri birgðir. Það var svo Volkswagen Golf Gti sem tókst að merja þriðja sætið eitir bilanir hjá stóru liðunum. Sannarlega óvenjuleg úrslit. Af þremur fyrstu voru tveir með fram- hjóladrif eingöngu. Af 94 bílum sem hófu keppnina tókst aðeins 36 að komast á leiðarenda. Það voru því margir garpamir sem sátu í veg- kantinum með súran svip og horfðu á minni spámenn þeysa hjá. • Hér koma úrslitin: 1. Markku Allen/Iikka Kivimaki, Finnlandi, Lancia 4wd..7:09.39 klst. 2. Jean Ragnotti/Pierre Thimonier, Frakklandi, Renault 11 turbo 7:12.32 klst. 3. Kenneth Erikson/Peter Diek- mann, Svíþjóð, D.VW golfGti 16v .......................7:14.37 klst. • Staða stigahæstu manna í heims- meistarakeppninni eftir þrjár keppnir er þannig hjá ökumönnum: 1. Kankunen, Finnlandi.....37 stig 2. Markku Alen, Finnlandi..28- 3. Massimo Bioson, Ítalíu..23- 4. Kenneth Erikson, Svíþjóð ...21 - 5. Timo Salonen, Finnlandi.20- • Staðan hjá framleiðendum er þannig: 1. Lancia..................57 stig 2. Mazda...................34- 3. Audi.....................28- 4. Volkswagen...............26 - 5. Renault..................23- • Næstarallíheimsmeistarakeppn- inni verður hið illræmda Safarírall í Afríku og verður greint frá úrslit- um keppninnar að henni lokinni. • Ford-verksmiðjumar hafa nú auglýst eftir ökumönnum til að aka tyrir sig Ford Sierra Cosworth í R.A.C.- rallinu i nóvember í ár. Þeir sem hafa áhuga snúi sér til næsta umboðsmanns og næli sér i betri upplýsingar. Verður næsti atvinnuökumaður Ford e( til vill fslenskur?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.