Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987.
37
• ísak Tómasson, fyrirliói UMFN, með bikarinn, en hann átti mikinn þátt í
sigri Njarðvíkinga gegn Vai á föstudagskvöldið. DV-mynd GS
• Cora Barker, fyrirliði KR, hampar
hér bikarnum eftir sigur KR gegn
Keflavík á föstudagskvöld. Cora skor-
aði 11 stig í leiknum fyrir KR.
DV-mynd GS
• Linda Jónsdóttir, KR, varð stiga-
hæst leikmanna i meistaraflokki
kvenna í íslandsmótinu og einnig kos-
inn besti leikmaðurinn. Hér sést hún
taka við viðurkenningu úr hendi
Bjöms M. Björgvinssonar, formanns
KKÍ, á lokahófi körfuknattleiksmanna
sem fram fór á föstudagskvöld í Sig-
túni. DV-mynd GS
Tvöfalt hjá
KR-stúlkunum
KR-stúlkumar urðu bikarmeistarar
í meistaraflokki kverma í körfu. Þær
sigruðu Keflavík, 65-61, í úrslitaleik á
föstudagskvöld. KR-stúlkumar urðu
einnig íslandsmeistarar. Kristjana
Hrafnkelsdóttir og Linda Jónsdóttir
skomðu 19 stig fyrir KR en Anna
María Sveinsdóttir skoraði 22 stig fyr-
irÍBK.
• Pálmar Sigurðsson, Haukum, var hlaðinn verðlaunum á lokahófi KKÍ. Hann
skoraði flestar þriggja stiga körfur, varð stigahæstur i úrvalsdeildinni og að
auki kosinn besti leikmaður islandsmótsins. DV-mynd GS
• Guöni Guönason, KR, var valinn prúðasti leikmaöur Islandsmótsins.
DV-mynd GS
Sagt
efdr
leikinn:
„Þetta var skemmtilegur leikur
en munurinn hefði mátt vera minni
á liðunum. Ég bjóst við Valsmönn-
um sterkari en Njarðvíkingamir
sýndu Mbæran leik og unnu sann-
gjaman sigur. Þetta var góð
afþreying frá öllum kosningalát-
unum en því miður gefst mér ekki
nógu oft kostur til þess að skreppa
á völlinn," sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra eftir
bikarúrslitaleik Njarðvíkur og
Vals, en hann var heiðursgestur á
leiknum.
Valur Ingimundarson, þjálf-
ari UMFN:
„Þetta var frábær endir á stór-
kostlegum vetri. Við náðum upp
toppleik og þeir áttu aldrei neitt
svar. Við tókum þá mjög framar-
lega og pressuðum þá vel. Vömin
var geysilega sterk, eins og svo oft
í vetur. Það var virkilega gaman
að þessu og skemmtilegt að vinna
bikarkeppnina í fyrsta sinn.
Helgi Rafnsson, UMFN:
„Þetta var stórkostlegur leikur
og það var frábært að vinna bikar-
keppnina líka. Annars bjóst ég við
meiri keppni í vetur og mér finnst
þetta hafa verið ótrúlega auðvelt.
Þessum frábæra árangri vil ég
fyrst og fremst þakka þeirri góðu
breidd sem er í liðinu."
Sturla Sighvatsson, Val: „Við
náðum okkur aldrei á strik í leikn-
um og á köflum gerðum við okkur
seka um afdrifarík mistök. Þeir
hafa frábæra vöm og það stuðlaði
að sigri þeirra einna helst. Ég vil
óska Njarðvíkingum til hamingju,
þeir áttu skilið að vinna í kvöld.“
Björn Björgvinsson, form-
aður KKI:
„Það var frábær stemning í
leiknum en það var verst hve mikla
yfirburði Njarðvíkingar höfðu.
Þeir hafa sýnt frábæra leiki og
áttu skilið að sitrra." -RR.
íþróttir
• Helgi Rafnsson átti mjög góðan leik gegn Val á föstudagskvöld og hér
sést hann skora laglega körfu. DV-mynd Gunnar Sverrisson
Loksins
tókst það
hjá UMFN
- Njarðvíkingar bikarmeistarar
Njarðvíkingar bættu enn einum
bikarnum í verðlaunasafn sitt þegar
liðið várð bikarmeistari í körfubolta á
föstudagskvöldið. Njarðvíkingar sigr-
uðu Valsmenn í frábærum úrslitaleik
í Laugardalshöll með 91 stigi gegn 69
en staðan í hálfleik var 49-32, Njarð-
vík í vil. Þar með em Njarðvíkingar
tvöfaldir meistarar því að þeir unnu
Islandsmótið með glæsibrag á dögun-
mn. Þessi sigur markar að vísu
tímamót hjá liðinu þvi þetta er fyrsti
sigur þeirra i bikarkeppninni.
Njarðvíkingar höfðu mikla yfirburði
í leiknum ef frá em taldar fyrstu mín-
útumar en þá stóðu Valsmenn vel í
Suðumesjamönnum og höfðu yfir, 8-4
og 10-8. En þá tóku Njarðvíkingar við
sér og Jóhannes Kristbjömsson fór á
kostum og skoraði 14 stig í röð. Þar
með vom Njarðvíkingar komnir í
gang og Valsmenn áttu sér ekki við-
reisnar von gegn stórleik Njarðvík-
inga. Munurinn jókst jafrit og þétt og
17 stig skildu liðin að í hálfleik, 49-32.
Valsmenn komu ákveðnir til leiks í
síðari hálfleik og minnkuðu muninn í
11 stig en lengra komust þeir ekki.
Njarðvíkingar vom einfaldlega miklu
sterkari á lokakaflanum og fóm á
kostum. Undir lokin var leikurinn
orðinn hálfger leiksýning af beggja
hálfu enda úrslitin ráðin. Lokatölum-
ar 91-69 eins og áður sagði og
Suðumesjamenn fögnuðu ákaft i
leikslok. Erfitt er að gera upp á milli
leikmanna Njarðvíkurliðsins því jreir
áttu allir góðan leik. Þó verður ekki
hjá því komist að minnast á þá Jó-
hannes Kristbjömsson og ísak
Tómasson sem að öðrum ólöstuðum
vom bestu menn vallarins. Hjá Vals-
mönnum bar mest á Tómasi Holton
og Einari Kristjánssyni. Liðið vantaði
meiri einbeitingu og þá sérstaklega í
sóknarleiknum. Dómarar vom Sigurð-
ur Valur Halldórsson og Sigurður
Valgeirsson og dæmdu þeir mjög vel.
Stig Vals: Einar 18, Tómas 17, Torfi
13, Sturla 8, Leifur 6, Bjöm 4, Bárður
2 og Páll Amar 1. Stig UMFN: ísak
22, Jóhannes 21, Valur 17, Helgi 14,
Kristinn 8, Teitur 4 og Ámi 2. -RR
• Steingrimur Hermannsson og frú voru heiðursgestir á úrslitaleiknum. Hér
sjást þau hjónin ásamt Bimi M. Björgvinssyni, formanni KKÍ, og eiginkonu hans.
DV-mynd GS