Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1987, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 13. APRÍL 1987.
35
Iþróttir dv
Evrópska knattspyrnan:
• Bretarnir tveir hjá Barcelona, Terry Venables og aöstoöarmaöur hans,
Allan Harris. Heldur er fariö að hitna undir sæti þeirra félaga hjá liðinu.
Verður Venables
rekinn frá
Barcelona?
- taugaveiklun ríkir nú í herbúðum ríkasta liðs Evrópu
FC Barcelona er án efa eitt af rík-
ustu félögum heims en eigi að síður á
liðið nú í miklum erfiðleikum sem
hafa skapað nánast glundroðakennt
ástand hjá því.
Þessir erfiðleikar byrjuðu í fyrravor
þegar liðið tapaði fyrir Steaua Bukar-
est í úrslitum Evrópukeppninnar. Við
það urðu ráðamenn hjá félaginu svo
reiðir að þeir hlupu upp til handa og
fóta og keyptu Gary Lineker og Mark
Hughes til liðsins. Þeir útlondingar
sem voru fyrir, Bemd Schúster og
Steve Archibald, voru settir út í kuld-
ann. AUt var leyfilegt til þess að koma
liðinu aftur í hóp þeirra bestu.
í upphafi keppnistímabilsins virtist
allt ætla að ganga að óskum hjá Barc-
elona. Liðið vann leik eftir leik og
Lineker skoraði eins mikið og búist
var við. Frammistaða Hughes var tal-
in viðunandi á meðan allt lék í lyndi.
En þá kom hmnið. Aðalkeppinautur-
inn, Real Madrid, náði forystusætinu
í deildarkeppninni og um svipað leyti
var Barcelona slegið út úr bikar-
keppninni, Copa del Rey, af fallliðinu
Osasuna. Þá urðu Barcelonabúar fyrir
geysilegu áfalli þegar lið þeirra tap-
aði, 0-4, fyrir Sporting Gijon á Nou
Camp 28. febrúar en þar er liðið ekki
vant að tapa - hvað þá svona stórt.
Dropinn sem fyllti síðan mælinn kom
í Evrópukeppninni.
Að horfa upp á lið sitt slegið út úr
Evrópukeppninni af skoska liðinu
Dundee United var meira en 100.000
stuðningsmenn gátu horft upp á. Mik-
il hróp vom gerð að eigin liðsmönnum
og fékk Mark Hughes verstu útreiðina
enda hafði hann farið illa með góð
marktækifæri í leiknum. Terry Vena-
bles, þjálfari liðsins, varð að gera
eitthvað og hann tók Hughes út úr
liðinu og náði í Archibald upp á háa-
loft þar sem hann hafði legið og
rykfallið í 11 mánuði. Þá vildu stuðn-
ingsmenn liðsins fá Schúster aftur í
liðið en hann á í mjög hörðu stríði við
ráðamenn liðsins og verðm- því líklega
seldur, jafnvel til Real Madrid.
En spumingin sem nú brennur á
vörum knattspymuspekúlanta er:
Tekst Terry Venables að sitja þessar
hræringar af sér? Talið er að farið sé
að hitna undir stóli hans en hann er
líklega í einni best launuðu þjálfara-
stöðu heims. Javier Clemente, sem nú
þjálfar Espanol með frábærum ár-
angri, hefúr verið nefndur sem eftir-
maður hans. Jose Luis Nunez,
formaður Barcelona, hefur reynt að
kveða niður þessar raddir með því að
bjóða Venables nýjan tveggja ára
samning. Venables hefur ekki enn
ákveðið hvort hann tekur því. Allar
þessar hræringar em tilkomnar vegna
þeirrar óstjómlegu hvatar sem ræður
ríkjum í Barcelona - liðið verður að
vera best.
-SMJ
Tilvaldar í ferðalagið.
Kæligeymsla óþörf.
ORA grænmeti
er ómissandi með steikinni,
hentar vel í salatið og
á kalda borðið.
I ORA vörunum
eru engin rotvarnarefni,
aðeins valin hráefni.
Fást í næstu
matvöruver slun,
hagstætt verð.
Þú opnar ORA dós -
og gæðin koma í ljós!
I
Vesturvör 12, Kópavogi.
30 ÁRA VAXANDI
VINSÆLDIR SANNA GÆÐIN
AUK hf. 95.9