Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Side 2
2
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987.
Stjómmál
Stjómarflokkamir
halda meirihluta
segir Sigríður Lillý Baldursdottir, Kvennalista
Kosningabaráttan
mjög einkennileg
- segir Bjami P. Magnússon, Alþýðuflokki
„Við erum með þrjár inni í Reykjavík. geri
ég ráð fyrir,“ sagði Sign'ður Lillý Baldurs-
dóttir, ein af kosningastýrum Kvennalistans
í Reykjavík.
„Við megum teljast mjög góðar ef við fáum
fimm þingkonur yfir landið. Og það vtöí
glæsilegt ef við fengjum átta eða níu.
Mér finnst ekki fráleitt að Sjálfstæðisflokk-
ur og Framsóknarflokkur haldi meirihluta.
Samkvæmt skoðanakönnunum virðist stefna
í það. Framsóknarflokkur virðist verá að
auka fylgi sitt og Sjálfstæðisflokkur virðist
ekki ætla að missa meira en orðið er.
Ég treysti mér ekki til að spá í hvemig
aðrir flokkar koma út og vil það heldur ekki.
Alþýðubandalagið virðist þó ekki höfða til
þeirra sem það ætlar sér. samkvæmt skoðana-
könnun Félagsvísindastofhunar. þar sem fram
kemur að aðeins örfá prósent verkafólks
styðja flokkinn. Hins vegar höfðum við sérs-
taiklega til kvenna. Um það bil 80% þeirra
sem kjósa Kvennalistann eru konur.
Oft er talað um að Kvennalistinn sé tíma-
skekkja. Samkvæmt þessu mætti frekar ætla
að Alþýðubandalagið væri tímaskekkja.
Kosningabaráttan hefur alls ekki verið
„Við megum teljast mjög góðar ef við fáum
fimm þingkonur," segir Sigríður Lillý Bald-
ursdóttir, Kvennalista.
nægjanlega málefhaleg. Ég hræðist þessa þró-
un sem við sjáum í þessari miklu auglýsinga-
mennsku." sagði Sigríður Lillý.
-KMU
„Auðvitað óska ég þess að vonir okkar um
18 þingmenn rætist. Það á kannski ekkert
skylt við raunsæi." sagði Bjami P. Magnús-
son. kosningastjóri Alþýðuflokksins.
„Allt okkar þema hefur byggst á tölunni
18. 18 ára kosningaaldur, 18 rauðai- rósir og
hvers vegna ekki 18 þingmenn? Það var alls
ekkert fjarstæðukennt samkvæmt skoðana-
könnunum DV þegar best lét. En ég veit að
það getur orðið langsótt. Eina raunsæið sem
ég get byggt á em skoðanakannanir sem spá
okkur 10 til 12 þingmönnum.
Eðlilegast þætti mér hins vegar að við yrð-
um ekki minni en í kosningunum 1978 þegar
við fengum 14 þingmenn. Við erum kannski
ekki með eins harða pólitík og þá. Við höfiun
ekki komið henni eins vel til skila,“ sagði
Bjami.
Hann spáir Sjálfstæðisflokki 19 þingmönn-
um. Framsóknarfiokki 10, Alþýðubandalagi
8, Kvennalista 6, Borgaraflokki 6 og Al-
þýðuflokki 14 þingmönnum.
„Kosningabaráttan hefur verið mjög ein-
kennileg. Hún hefur einkennst af ófynrsjáan-
legum atburðum eins og tilkomu Borgara-
flokksins. Að öðm leyti hefur hún því miður
„Átján rauðar rósir og hvers vegna ekki átján
þingmenn?“ spyr Bjarni P. Magnússon,
kosningastjóri Alþýðuflokks.
einkennst af auglýsingaflóði og er mér mikið
áhyggjuefhi hvert við stefnum ef þetta er þró-
unin því að auðvitað em þetta ekki ábyrg
stjómmál."
-KMU
Yfir 33% væri
varnarsigur
Ekki beint
drengileg
- segir Gunnlaugur S. Gunnlaugsson, Sjálfstæðisflokki
- segir Eiríkur Valsson, Framsóknarflokki
„Við verðum óánægðir ef við náum ekki
að auka fylgi okkar frá nýjustu skoðanakönn-
unum. Hins vegar gefa þær auðvitað vís-
bendingu um það hvemig landið liggur.“
sagði Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson.
kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins, þegar DV
spurði hann í gær hverju hann vildi spá um
úrslit kosninganna. I nýjustu skoðanakönnun
DV fékk Sjálfstæðisflokkurinn 31.4% og 21
þingmann.
„Það er ákveðinn vamarsigur ef við förum
1-2% hærra en þessar nýjustu kannanir sýna.
Það er hins vegar erfitt að ráða í þetta nú.“
sagði Gunnlaugur.
Aðspurður um kosningabaráttuna í heild
sagði hann að hér væri um gjörólíka baráttu
að ræða frá fyrri árum vegna nýju miðlanna
og svo tilkomu Borgaraflokksins. „Hiklaust
segi ég að þessi kosningabarátta hefur verið
óvægin og raunar ómálefnaleg lengi framan
af. Við höfum gert okkar besta til að spoma
gegn þeirri þróun og við höfum sótt mikið á.“
Aðspurður um fjármálin sagði hann ekki
hægt að sjá nákvæmlega hvemig þau kæmu
út á endanum. „Það er hins vegar ljóst að
þessi barátta verður mun fjárfrekari en áður
Skoðanakannanirnar gefa visbendingu um
hvernig landið liggur segir Gunnlaugur Sæv-
ar Gunnlaugsson.
hefur þekkst hjá okkur,“ sagði Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson að lokum.
-ES
„Við náum Finni inn í Reykjavík, það er
raunhæft," sagði Eiríkur Valsson, kosninga-
stjóri Framsóknarflokksins í Reykjavík.
„Við erum frægir fyrir að bæta við okkur
miðað við síðustu skoðanakannanir og mun-
um gera það núna. Við fáum 12 til 13
þingmenn.
Ég er ekki frá því að þegar sjálfstæðismenn
koma inn í kjörklefann fyllist þeir ábyrgðar-
tilfinningu og kjósi flokkinn sinn en ekki
Borgaraflokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn fái
því 20 menn. Borgaraflokkurinn verður með
fjóra.
Ég sé ekki að Jón Baldvin fari inn í Reykja-
vík. Alþýðuflokkurinn dalar niður í níu.
Ég held að Alþýðubandalagið tapi í mesta
lagi einum manni.
Ég væri ekki frá því að Kvennalistinn yrði
sigurvegari kosninganna. Þær fara upp í fimm
eða sex.
Kosningabaráttan hefur ekki beint verið
drengileg, að minnsta kosti ekki málefnaleg
í öllum tilvikum. Upplausn hefur einkennt
kosningabaráttuna, annars vegar Borgara-
flokkurinn og hins vegar kom það fólki á
„Við náum Finni inn,“ segir Eiríkur Valsson
á kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins.
DV-mynd GVA
óvart að Alþýðuflokkurinn skyldi fara að
tapa,“ sagði Eiríkur.
-KMU
12% væru sigur
Þurfum að taka vel á
- segir Helena Aibertsdóttir, Borgaraflokki
- segir Þórunn Sigurðardóttir, Aiþýðubandalagi
„Þrennt finnst mér hafa einkennt þessa
kosningabaráttu," sagði Helena Albertsdótt-
ir, kosningastjóri Borgaraflokksins, þegar
hún var spurð álits á þeirri baráttu sem nú
er að ljúka.
„í fyrsta lagi hafa hinir flokkamir eytt mikl-
um tíma í að atast út í Albert Guðmundsson,
tíma sem maður hefði haldið að þeir gætu
eytt í að kynna sín stefhumál. I öðru lagi
hafa þær heiftúðugu árásir sem Borgaraflokk-
urinn hefur orðið fyrir verið áberandi. Og í
þriðja lagi finnst mér sérkennileg þessi um-
ræða um borgarstjóm nú í alþingiskosning-
um. Það er eins og sjálfstæðismenn haldi að
fólk viti ekki að nú er verið að heyja kosning-
ar til Alþingis en ekki til borgarstjómar.
Þetta er líka hreinn dónaskapur við borgar-
stjórann því það er eins og Sjálfstæðisflokkur-
inn vantreysti honum, manni sem hefur þegar
unnið borgina í kosningum," sagði Helena.
Um úrslit kosninganna sagði Helena að ef
Borgaraflokkurinn fengi það sem honum
væri spáð í skoðanakönnunum nú þá væri
það gífurlegur sigur fyrir flokk sem væri
mánaðargamall. Hins vegar sagðist hún eiga
von á aukningu hjá Borgaraflokknum um-
fram þessi 12% sem honum væm spáð nú.
„Og þessum árangri náum við með langó-
„Sumar af þessum skoðanakönnunum hafa
nú ekki verið uppörvandi, það verðum við
að viðurkenna, en það er sóknarhugur samt
í mínu fólki,“ sagði Þórunn Sigurðardóttir,
kosningastjóri Alþýðubandalagsins, þegar
DV spurði hana um kosningabaráttuna í gær.
Þórunn sagði breytinguna á fjölmiðlaum-
fjölluninni helsta sérkenni þessarar baráttu.
„Eftir að málflutningur okkar fór að ná í
gegn höfum við séð árangur enda sýna síð-
ustu kannanir okkur i sókn. Við sættum
okkur að sjálfsögðu ekki við að fara niður
fyrir það sem við fengum í síðustu kosning-
um. Hins vegar verðum við að taka tillit til
aðstæðna þannig að við gætum orðið eitthvað
lægri þó ég geri alls ekki ráð fyrir að við
verðum eins lág og í síðustu skoðanakönnun-
um. Við þurfum að taka vel á,“ sagði Þórunn.
Þórunn sagði að kosningabaráttan yrði
nokkuð dýrari en gert hafði verið ráð fyrir.
„Ég held að flokkamir hafi ekki verið þvi
viðbúnir að fjölmiðlaslagurinn yrði þetta mik-
ill. Við gerðum ráð fyrir kostnaði upp á 2-3
milljónir hér í Reykjavík en líklega verður
hann nokkru meiri,“ sagði Þórunn að lokum.
-ES
„Þao er sóknarhugur í minu fólki,“ segir
Þórunn Sigurðardóttir.
Náum árangrinum með ódýrustu kosninga-
baráttunni segir Helena Albertsdóttir.
dýrustu kosningabaráttunni," sagði Helena
Albertsdóttir að lokum. -ES