Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Page 6
6
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987.
Lrtið um kosningamar í dönskum fjölmiðlum
Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfn;
Ekki hefur verið fjallað mikið um
kosningarnar á íslandi í dönskum
fjölmiðlum eins og svo oft áður.
Sjónvarpið hefur enn ekki fjallað um
kosningarnar, útvarpið mjög stutt-
lega og þrjár, fjórar blaðagreinar
hafa birst.
Orsökina má kannski finna í grein
í dagblaðinu Aktuelt síðastliðinn
laugardag þar sem segir að kosn-
ingabaráttan einkennist fremur öðru
af því að flokkana vanti hreinlega
baráttumál til að vekja athygli kjós-
enda með.
Alþýðubandalagið setji ekki leng-
ur andstöðuna við Nató eða hina
borgaralegu kapítalista á oddinn en
reyni þess i stað að sannfæra kjós-
endur um að flokkurinn hafi ekkert
á móti borgaralegum lifnaðarháttum
og kapítalisma í litlum stíl. Meiri
velmegun, aukin kaupgeta og lækk-
un verðbólgunnar hafi tekið púðrið
úr slagorðum Alþýðubandalagsins
sem höfða eigi til baráttu launþega
fyrir betri kjörum.
Segir blaðið ennlremur að af ótta
við Borgaraflokkinn höfði Sjálfstæð-
isflokkurinn til siðferðiskenndar
kjósenda og Framsóknarflokkurinn
leggi áherslu á landsföðurímynd
Steingríms Hermannssonar. Borg-
araflokkurinn hafi ekkert sérstakt
fram að færa en lifi á persónulegum
vinsældum Alberts Guðmundssonar
sem ekki þekki eigin stefnuskrá al-
mennilega.
Undir fyrirsögninni uppreisn gegn
gömlu flokkunum fjallar Berlingske
Tidende í grein um möguleikana á
stjómarmyndun eftir kosningar og
segir ekki ólíklegt að Sjálfstæðis-
flokkur, Framsóknarflokkur ásamt
Alþýðuflokki myndi stjóm saman ef
marka má skoðanakannanir. Núver-
andi stjómarflokkar séu hreyknir
af afrekum sínum í efnahagsmálum
en þar sem Sjálfstæðisflokkurinn
tapi fjórða hverjum kjósanda sam-
kvæmt skoðanakönnunum sé
Alþýðuflokkur líklegur í stjóm eftir
kosningar með eða án Jóns Bald-
vins.
Segir blaðið að mikið sé í veði,
sérstaklega fyrir gömlu flokkana,
eftir fylgi Borgaraflokks og Kvenna-
lista að dæma og séu þetta með
mest spennandi kosningum í árarað-
ir. Þó lýkur greininni með þeim
orðum að 25 prósent atkvæðanna,
sem fari til Borgaraflokks og
Kvennalista samtals, séu fyrirfram
útilokuð frá áhrifum í stjóm landsins
næsta kjörtímabil vegna fyrmefndra
stj ómarmy ndunarmöguleika.
Óánægja í Austurríki
með samsteypustjórnina
ÚtLönd
Bildt
á móti
pillunni
Gannlaugur A. Jónsson, DV, Lundi:
Carl Bildt, hinn 37 ára gamh for-
maður sænska íhaldsflokksins, vill
að læknum verði bannað að skrifa
upp á getnaðarvarnarpillur fyrir
ungar stúlkur. „P-pillumar veita
vöm gegn því að líf kvikni en þær
em engin vöm gegn dauðanum,“
segir Bildt meðal annars. Hann er
nú staddur í Bandaríkjunum í þeim
tilgangi að kynna sér baráttu heil-
brigðisyfirvalda þar gegn eyðni.
Segir hann að stjómmálamenn
hafi verið alltof seinir á sér að
skynja alvöru málsins og nauðsyn-
legt sé að grípa til harðari aðgerða.
„Margt það sem áður var haft í
heiðri en sem hefúr verið á undan-
haldi síðastliðna áratugi þarf að
hljóta fyrri sess að nýju,“ segir
Bildt.
Hann heldur því fram að getnað-
arvamarpillumar hafi átt sinn
þátt í að ryðja braut nýjum lífestíl
þar sem skilið hafi verið á milli
fi-elsis og ábyrgðar. „Nú þurfum
við á hinni persónulegu ábyrgð
einstaklingsins að halda að nýju,“
segir Bildt.
Snorri Valsson, DV, Vín;
Þrátt fyrir að hafa aðeins starfað í
fjóra mánuði hefur ríkisstjóm sósíal-
ista og íhaldsmanna þegar bakað sér
geysilegar óvinsældir. Sumir myndu
kannski telja að of snemmt væri að
segja nokkuð um frammistöðuna en
Austurríkismenn em á öðm máli.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
fram fór nýverið, em 36 prósent Aust-
urríkismanna óánægð með nýju
samsteypustjómina en þess má geta
að flokkamir hlutu í síðustu kosning-
um samanlagt tæp 80 prósent at-
kvæða.
Þeir sem græða á þessu em auðvitað
stjómarandstöðuflokkamir. Frjáls-
lyndi flokkurinn, undir forystu Jörgs
Haider, hefur nú 14 prósent fylgi og
hefur bætt við sex prósentum. Græn-
ingjar hafa fylgi 6 prósent kjósenda
sem er meira en í kosningunum á síð-
asta ári.
Hvað þessum óvinsældum veldur
kemur berlega í ljós í könnuninni því
að 72 prósent aðspurðra hafa vemleg-
ar áhyggjur af stöðu efnahagsmála í
dag. Einnig kemur fram að hvorki
meira né minna en 84 prósent að-
spurðra em samþykk sölu ríkisfyrir-
tækja til einkaaðila.
Sósíalistar munu hins vegar aldrei
samþykkja sölu þeirra enda hefur upp-
bygging ríkisrekinnar stóriðju verið
kappsmál þeirra. Hallinn á ríkisfyrir-
tækjunum þetta árið nemur hins vegar
yfir hundrað og tuttugu milljörðum
íslenskra króna og það kann ekki
góðri lukku að stýra þegar leita skal
stuðnings meðal skattgreiðenda.
Um 600 atkvæði
frá Danmörku
Haukmr L. Hauksson, DV, Kaupmlöv
Samkvæmt upplýsingum ritara i
ísienska sendiráðinu í Kaup-
mannahöfh höf'ðu þrjú hundmð og
áttatíu kosið þar um miðjan dag í
gær, þar af hundrað og áttatíu
námsmenn og eru það rúmlega
fjömtíu prósent fleiri en 1983 en
þá kusu tvö hundmð soxtíu og þrír.
í Árósum höfðu hundrað þrjátíu
og níu kosið og í óðinsvéum fjöm-
tiu en ekki fengust tölur frá
kosningaþátttöku í Álaborg en þar
býr nokkur fjöldi íslenskra náms-
manna.
Austur-Þjóðverjar
treysta á kjarnorkuna
Ketnbjöm Tryggvasan, DV, V-Berlin;
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækur 10-11 Lb
óbund. Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 10-15 Sb
6 mán. uppsögn 11-19 Vb
12 mán. uppsögn 13-22 Sp.vél.
18mán. uppsögn 20.5-22 Sp
Ávísanareikningar 4-10 Ab
Hlaupareikningar 4-7 Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb. Lb.Ob. Vb
6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2,5-4 Ab.Úb
10-22
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalur 5-5,75 Ab
Sterlingspund 8,5-10,25 Ab
Vestur-þýsk mörk 3-4 Ab
Danskarkrónur 9-10,25 Úb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 19-21 Lb.Úb
Viöskiptavixlar(forv.)(1) 22 eða kge
Almenn skuldabréf(2) 20-22 Úb
Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir
. Hlaupareikningartyfirdr.) Utlán verðtryggð 20-22 Lb
Skuldabréf
Aö2.5árum 6-7 Lb
Til lengri tíma 6,5-7 Ab.Bb.
-- Lb.Sb, Úb.Vb
Útlán til framleiðslu
ísl. krónur 16,25-21 Ib
SDR 7,5-8,25 Lb
Bandaríkjadalir 7,5-8 Sb.Sp
Sterlingspund 11,25-13 Bb.Vb
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Bb.Úb, Vb
Húsnæðislán 3,5
Lifeyrissjóðslán 6-6,75
Dráttarvextir 30
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala apríl 1643 stig
Byggingavísitala 305 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaöi3%1.apríl •
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 121 kr.
Eimskip 200 kr.
Flugleiðir 166kr.
Hampiðjan 147 kr.
Iðnaöarbankinn 135 kr.
Verslunarbankinn 125kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og viö-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavíxla gegn 21 % ársvöxtum. (2)
Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil-
alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð-
tryggð lán, nema í Alþýðubanka og
Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Versl-
unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn
birtast f DV á flmmtudögum.
Orkuöflun hefur frá stofhun austur-
þýska alþýðulýðveldisins verið eitt
stærsta vandamál þjóðarinnar. Eini
hefðbundni orkugjafinn, sem landið
býr yfir, em brúnkol en þau em, mið-
að við ýmsar aðrar kola- og olíuteg-
undir, lélegur og þar með dýr orkugjafi
sem veldur mikilli umhverfismengun
við bmna.
Þar sem landið er fátækt að erlend-
um gjaldeyri, hefur verið notast við
þennan innlenda orkugjafa eins mikið
og hægt hefur verið og sú orka, sem
upp á vantar, verið fengin með að-
keyptum orkugjöfum og sífellt meir
með virkjun kjamorku.
Yfirvöld í Austur-Þýskalandi hafa
nú nýlega ákveðið að auka stórlega
orkuvinnslu í kjamorkuverum á
næstu árum og losa þar með þjóðina
við erfiða kolavinnslu og gera hana
óháða innfluttri orku.
Þrátt fyrir þá neikvæðu umræðu og
gagnrýni sem kjamorkuvinnsla hefur
fengið á seinustu mánuðum steína
þeir að því að ná að uppfylla helming
orkuþarfar landsins með kjamorku-
vinnslu fram til ársins 2020.
''"'"///////,
"'Sf////////,. ''"„iii,, .
•'///,/////h- •nn0t. .
milliii ■ '•un,y//// ' y//.^
iiniiiiiii "ii„/u,inin. „
uiililili1 ‘HUt,:''!///>
- ///Illllllli „Iilli „II X
„li/lllH1' •"/ H' 'UU
„•„/lll" -////'
Kosningahappdrættið
stendur straum af
kosningabaráttunni
Sjálfstæðismenn, greiðnm heimsenda gíróseðla.
Skrifstofa happdrættisins í Valhöll er opin alla daga
ki. 09.00-22.00. Sími 82900
Drætti frestað til 29. apríl nk.
StórglæsUegir virmingar að verðmæti kr. 3.998.160
3 fólksbifreiðir
34 glæsilegir ferðavinningar
20 húsbúnaðarvinningar
SJÁLFSTÆÐISMENN STÖNDUM SAMAN UM D-LISTANN