Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Page 11
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987. 11 WáFW áám li 1 1 ItlgS i, lyi xÉ j Kjósandinn Hann hefur lengi verið sér meðvit- aður mn það óskoraða traust sem flokkurinn hefur borið til hans. Allt- af þegar kosningar eru í nánd hefur skrifstofan haft samband við hann, stundum hefur formaður fulltrúa- ráðsins hringt sjálfur og oftar en ekki hafa þeir kinkað til hans kolli, frambjóðendumir, þegar hann hefur komið til lokafundarins fyrir kosn- ingamar. Sumir þeirra hafa að vísu ekki munað hvað hann hét en þeir þekkja hann í sjón, enda hefur hann starfað meira og minna í flokknum sínum í hartnær þrjátíu ár. Ekki þar fyrir að hann hafi ætlast til einhvers í staðinn. Einu sinni hefur það kom- ið fyrir að hann hafi leitað uppi ráðamann í flokknum til að biðja um smágreiða í sambandi við sín eigin mál. En ekki oftar. Reyndar varð ekkert úr þeirri greiðasemi vegna þess að ráðamaðurinn var oft- ast nær upptekinn og bað hann um að koma aftur í næstu viku og gekk svo koll af kolli í nokkrar vikur þangað til að hann gafst upp á að ónáða svo önnum kafinn mann. Það kemur líka fyrir að þeir taka stundum í höndina á honum, frammámennimir, en þurfa sjaldnast að eiga við hann orðastað, enda óþarfi að eyða orðum í svo pott- þéttan kjósanda, þegar margt er um manninn á kosningafundum og flokkurinn stendur frammi fyrir ör- lögum sínum og allt er undir því komið að sigur vinnist. Hér á árum áður var hann gjaman beðinn um að merkja götuskrána og upplýsa flokkinn um hvað nágrann- amir ætluðu að kjósa. Þetta var allajafna létt verk, því yfirleitt voru þetta góðir og dyggir stuðningsmenn í hverfinu, sem höfðu séð hagsmun- um sínum borgið undir vemdarvæng flokksins. Seinna, þegar hann eign- aðist bíl, lánaði hann bílinn á kosningadaginn og einu sinni var meira að segja kosningaskrifstofa heima í stofunni þegar annað hús- pláss var ekki að fá. Allt flokknum að þakka Það má með sanni segja að hann hefúr lagt- hönd á plóginn til að styðja flokkinn sinn og nú þegár hann er kominn á eftirlaunaaldur- inn hefur honum nokkrum sinnum verið boðið í ökutúr um bæinn sinn og frambjóðendumir, ungir og vel- klæddir menn, upplýst hann og hin gamalmennin um hvemig byggðar- lagið hefur þróast fyrir tilverknað flokksins. Þama sá hann bryggjuna, sem hann hafði unnið við á unglings- ámnum, gamla lágreista heimilið sitt, sem nú á senn að rífa, og hér og þar sá hann fótspor sín í grennd- inni, þar sem kynslóðin hans og kynslóðimar á undan honum höfðu stungið mó, grafið gmnna og mokað í hjólbömr i sveita síns andlits. Mik- ið var það uppörvandi að heyra ungu frambjóðenduma segja frá þvi hvað flokkurinn hefði stuðlað að vexti og viðgangi bæjarfélagsins og hvað hann og önnur löggilt gamalmenni í þessari skemmtiferð máttu vera þakklát flokknum fyrir að hafa kom- ið þessu öllu til leiðar. Nú á hann böm og bamaböm sem öll em komin á kosningaldur en það verður að segjast eins og er að hon- um hefur ekki tekist sem skyldi i pólitísku uppeldi. Þau kjósa út og suður, sum em með íhaldinu, önnur með kommunum og svo em þau sem ætla jafnvel að kjósa kvennalistann. Guð veit hvað þau gera núna þegar allir þessir nýju flokkar em komnir með framboð og mgla sannkristið fólk í ríminu og þykjast vilja gera allt fyrir alla. Hann hefur gert sitt besta til að hafa áhrif á þau og reynt að sýna þeim fram á að fjölskvldan þurfi að standa saman um flokkinn. enda þjóðarhag fyrir bestu að réttir menn hljóti kosningu. Það er heldur ekki ónýtt að vera málkunnugiu vel metnum alþingismönnimi sem koma oft fram í sjónvarpinu og þurfa að axla alla ábyrgðina af því að stjóma mikilvægum flokki. Einn þeirra kom meira að segja í sjötugsafmælið hans og heilsaði öllum gestunum með handabandi og krökkunum líka, sem er gleggsti votturinn um hvei’su flokkurinn kann vel að meta stuðn- ing hans. Auðvitað ættu afkomend- umir að vera stoltir af því trausti sem hann hefur notið hjá flokknum í gegnum árin og þess vegna hefur hann ekki minnst á það við nokkum mann þó svo illa hafi tekist til að krakkarnir kjósi án ábyrgðar eins og þeim sjálfum sýnist. Öruggu atkvæðin Hann hefur alltaf fylgst af athygli með kosningabaráttunni hverju sinni. Ekki þar fyrir að áróðurinn hafi haft áhrif á hann. Hann veit sem er að flokkurinn hefur rétt fyrir sér. En baráttan hefur snúist um alla hina, sem þurfa á leiðsögn að halda og eiga að taka mark á ræðunum og auglýsingunum og bæklingunum. Það er raunar alveg makalaust hvað hinir flokkarnir geta látið frá sér fara af misskilningi og vitlevsum og endalausum upptalningum á hreinni og beinni marklevsu. Vonandi hefur Ellert B. Schram fólk skynsemi til að bera til að greina kjamann frá hisminu. þannig að það sjái í gegnum þennan vaðal og kosn- ingabaráttan hafi rétt áhrif. Hann þarf sjálfur ekki á þessum kosn- ingaáróðri að halda og hlustar reyndar bara á sína menn. En hinir kjósendumir, þessir óákveðnu, þess- ir ungu og óreyndu, svo ekki sé talað um lausafylgið. hópinn, sem kýs eins og vindui-inn blæs hverju sinni og gerir ekki upp hug sinn fyrr en á síðustu stundu. þeir þurfa á þessu að halda. Nú er það að vísu þannigað kosn- ingatölur hafa ekki mikið breyst á þeim þijátíu áiiun sem kjósandinn hefur stutt flokkinn og haft afskipti af kosningiun. í hans bvggðarlagi hefur skeikað nokknun tugvun at- kvæða frá einum kosningum til annarra og er þá alveg sama hve áróðurinn hefur verið mikill. Sigur- inn hefur meira að segja verið stærstur þegar minnst hefrir verið bramboltið. En stundum hefur nýtt fólk flutt í bæinn og aðrir hafa horf- ið á braut eða dáið og þá hafa hlutfóilin raskast, án þess að rekja megi það beint til kosningabarátt- unnar. En samt hlýtur þetta allt að vera nauðsynlegt: að merkja upp götumar, að smala fólki á kjörstað og stappa stálinu í flokksbræðuma, til að kosningamar vinnist. r Stundum fyrir mikilvægar kosn- ingar hafa foringjarnir komið á fundi og flutt kröftugar ræðm' yfir flokks- liðinu og það hefur mátt sjá eldglær- ingar gneista og heyra gnístran tanna af baráttuþreki óbreyttra liðs- manna og menn hafa rokið í símana af þeim fítonskrafti sem allar kosn- ingar bvggjast á. Og svo hafa menn talið kjósendurna á kjörski-ánni og komist yfir hundrað prósent í smöl- uninni og kosningastarfið hefur skilað sér eins og ætlast er til hjá flokkshollu fólki. Smáflokkakraðakið í kosningunum í -dag em veðm- öll váhmd. Fram em komin ólíklegustu og óskiljanlegustu framboð frá fólki sem skilur greinilega ekki að stjóm- mál grundvallast á góðum og gegnum kjósendum sem styðja flokka sína í gegnum þykkt og þunnt. Hvað mundi eiginlega gerast ef meirihluti þjóðarinnar tæki allt í einu upp á því að greiða þessiun nýflokkimi atkvæði sín? Hvað mundi verða mn gamla góða flokk- inn sem hefur borið þjóðarhag á öxluniun svo lengi sem elstu menn muna án þess að abbast upp á nokk- um mann á milli kosninga. Nema það. jú. að fá atkvæði í kosningmn. Hann. þessi gamalreyndi maðm. sem hefur notið trausts flokksins mn ára- tugaskeið. skilur ekki þann glund- roða sem skvndilega er skollinn á. öllum má ljóst vera að það er lýð- ræðinu til tjóns að fólk sé að bjóða fram nýja flokka gegn þeim gömlu og það er óðs manns æði að verja atkvæði sínu öðmvísi en síðast. Hvers eiga þeir að gjalda. leiðtogar flokksins. sem hafa komið vel fram við hann sem aðra kjósendur og heilsað honum fyrir kosningar og reiða sig á að fylgið skili sér þótt þeir hafi ekki mátt vera að þvi að tala við það? Á maður að trúa því að laun heimsins séu vanþakklæti. Kjósandinn hugleiddi þetta í morgun þegar hann var að taka til sparifötin sín svo að allt væri til reiðu þegar hann færi á kjörstað. Allt er á hverfanda hveli. Formaðm'- inn kominn í fallhættu í höfuðborg- inni, gamla trausta fylgið úr verkalýðshrevfingunni skilar sér ekki í skoðanakönnunum, flokkm’- inn klofinn í herðar niður af því að efsti maður listans er ekki með nógu hreint sakavottorð fyrir ríkisstjóm- ina og nú em þeir famir að auglýsa flokkinn eins og Johnson’s Babv í sjónvarpinu! Og svo koma þessi flokksbrot. smáflokkakraðakið, sem útilokað er að kjósa af því að enginn veit hvort þau eru til hægri eða vinstri. Það er ekki lengur í tísku að tala um hægri eða vinstri en í staðinn em búnar til tannkremsaug- lýsingar. send blóm í öll hús og tekið niður fyrir sig með því að heimsækja kjósendur á vinnustaði! ' Flokkurinn fær atkvæöið Kjósandinn veit ekki lengm' hvað snýr upp og hvað niður. Hann veit raunar ekki af hveiju hann kýs sinn flokk og hefur aldrei þurft að hug- leiða það sérstaklega. Þetta hefiu' bara komið af sjálfu sér. Nú þarf hann allt í einu áð fara að velta jafnfáránlegum hlut fyrir sér og því hvort flokkurinn hafi stefnu og sé öðmvísi en aðrir flokk- ar. Hann veit ekki betur en að stjómmálin hafi alla tíð verið hrein og bein. A. B. D og G og valið hefur verið auðvelt og fr'rirhafhai'laust. Hvers vegna eru menn að flækja þessa vitneskju. þessi einföldu lög- mál. og gera þá kröfu til venjulegra kjósenda að þeir geri upp hug sinn? Þeir eru jafnvel famir að hringja í hann að fyrra bragði og ávarpa hann með fornafni og spyrja hvorfr ekki megi ömgglega trevsta hans gamla góða atkvæði! Og svo er varla þor- andi að taka vini sína tali lengur því að kjósandinn hefm frétt að ólík- legustu menn séu komnir i framboð fyrir aðra flokka og komi óorði á hann ef þeir sjáist saman á götu. Það er meira að segja ekki þorandi lengur að merkja upp götuskrána af gömlum vana því að gamalgróið flokksfólk er farið að svíkja lit. Kjósandanum okkar er ekki rótt. Hann svaf illa í nótt. Jafnvel konan var að tuða um það í rúminu í gær- kvöldi að hún vissi ekki hvað hún mundi kjósa. Allt þetta lýðræði hefúr ruglað hana. Svei mér þá ef hún skilai’ sér? Eitt er víst að hann ætlar að kjósa snemma. Kjósa strax, svo enginn geti hrært í honum á síðustu stundu. Flokkurinn fær atkvæðið hans. Þeir í flokknum hafa alltaf verið svo almennilegir við hann. Em meira að segja famir að þekkja hann með nafni ef marka má síðustu síma- hringingu! Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.