Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987. Lopi - Lopi 3ja þráða plötulopi, 10 sauðarlitir. Einnig bláir, rauðir og grænir litir, band í sömu litum. Magnafsláttur. Sendum í póstkröfu. Lopi, Súðarvogi 4, Reykjavík, sími 30581 Ölfushreppur auglýsir Tvær stöður við Sundlaug Þorlákshafnar eru lausar til umsóknar. Skilyrði til umsóknar eru: 1. Próf í skyndihjálp. 2. 5 sundstig. Umsóknarfrestur er til 10. maí nk. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf 15. maí nk. Upplýsingar hjá sundlaugarstjóra í síma 99-3807 og 99-3631. ÍBR KRR REYKJAVÍKURMÓT MEISTARAFLOKKUR Laugardag kl. 19.30. ARMANN - FRAM Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL Sóknarfélagar Aðalfundur starfsmannafélagsins Sóknar verður hald- inn í fundarsal félagsins, Skipholti 50 A, miðvikudag- inn 29. apríl kl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin. Skelltu hvorki skuld á hálku eða myrkur. Það ert ftcí sem situr við stýrið UMFEROAR RÁÐ Næturþjónusta Gæða Pizza á Kosninganótt Hringdu í síma 3 99 33 við sendum þér heim, girnilega PIZZU frá PIZZAHÚSINU SSS PIZZAHUSIÐ GRENSÁSVEGI 10 Fréttir_________________________dv Hæstlréttur: ísafold dæmdar 1;5 milljónir kr. Hæstiréttur hefur dæmt í málinu Sigríður Hallgrímsdóttir, Kjartan R. Gíslason og Teitur Benediktsson gegn ísafoldarprentsmiðju hf. og gagnsök. Dæmdi Hæstiréttur þremenningana til að greiða ísafold 1,5 milljónir króna sem skaðabætur vegna riftunar þeirra á samningi um útgáfu íslensk-þýskrar orðabókar auk greiðslu á málskostn- aði, bæði fyrir héraði og Hæstarétti, samtals 400.000 krónur. Fyrir Hæstarétti kröfðust höfúnd- amh' þess að prentsmiðjan greiddi þeim tæpar 5 milljónir króna auk vaxta frá 1. apríl 1984 en ísafold krafð- ist greiðslu að upphæð tæpar 7,5 milljónir króna auk vaxta frá 4. októb- er 1984. Þetta mál á sér talsvert langa sögu og má rekja upphaf þess allt aftur til ársins 1959. Er hún rakin ítarlega í dómi Hæstaréttar. Forsaga málsins Árið 1959 talaðist svo til með Ing- vari G. Brynjólfssyni menntaskóla- kennara og ísafoldarprentsmiðju að Ingvar semdi íslensk-þýska orðabók sem prentsmiðjan gæfi út. Var gert ráð fyrir að orðabókin yrði 20 arkir og kæmi út árið 1964. Skriflegur samn- ingur var ekki gerður. Ingvar hóf strax starfið og árið 1965 réð hann Teit til að vinna með sér og nokkru síðar Kjartan. Þá höfðu upphaflegar áætl- anir um stærð orðabókarinnar breyst og farið upp í 80 arkir 1964. Allir unnu þeir að þessu verki sem aukastarfi. Gerð handritsins lauk síðan á árinu 1978 og vélritun þess ári síðar. Ingvar andaðist 28. janúar 1979 og situr eiginkona hans, Sigríður, í óskiptu búi eftir hann en Kjartan hef- ur verið formælandi orðabókarmanna eftir lát Ingvars. Eigendaskipti urðu á ísafold um ára- mótin 1981-82 og í mars 1982 var efnt til hádegisverðarfundar með hinum nýja aðalhluthafa, Leo E. Löve, Kjart- ani og nokkrum íleirum. Á fundinum var rætt um orðabókarútgáfuna, þar á meðal yfirlestur og samræmingu handrits, fyrirætlrm Kjartans um að fá leyfi frá störfum þegar prentun hæfist, vilja ísafoldar til að gefa bók- ina út og fyrirætlun fyrirtækisins um að festa kaup á tölvubúnaði sem not- aður yrði. Aftur ræddust þeir við, Leó og Kjart- an, seinna það ár þar sem tölvukaupin bárust í tal en þá ekki fúllráðið hvar búnaðurinn yrði keyptur. í desember átti Kjartan svo íúnd ásamt lögfræð- ingi sínum með Leo þar sem hann tjáði honum þá ákvörðun að snúa sér annað með orðabókarútgáfuna. Voru samn- ingsslitin staðfest bréflega í mars 1983 og hefur verið samið við annan aðila um útgáfu bókarinnar. Dómkröfur I dómi sínum ræðir Hæstaréttur um dómkröfur aðila málsins og rökstuðn- ing fyrir þeim. Þar kemur m.a. fram að í upphaflegu samkomulagi hafi ekki verið kveðið á um einstök atriði er máli skipta, þar á meðal útgáíú- tíma. Verði því að líta svo á að ætlast hafi verið til að hann færi eftir aðstæð- um og því hvemig verkinu miðaði. Einnig verði að ætla að ísafold hæfist handa um útgáfuna innan sanngjams og eðlilegs tíma frá því að hafa fengið handrit í hendur. Höfúndamir halda því fram að slit þeirra á samningnum réttlætist af því að óhæfilegur dráttur hafi orðið af hendi útgefanda allt frá árinu 1975 að hann hæfist handa um setningu og annað til að hrinda útgáfunni í fram- kvæmd. Hins vegar verður ekki af gögnum málsins ráðið að höíúndamir hafi gefið útgefanda skýra og afdrátt- arlausa grein fyrir því að handrit þeirra væri svo langt komið að þeir gætu afhent það til útgáfu í hlutum sem mætti vinna án tafa er máli skiptu. En jafnvel þótt svo hafi verið er á það að líta að hvorki á fundinum 1982 né í samtalinu síðar það ár hreyfði Kjart- an því að þeir teldu sig lausa mála af samningum sínum vegna dráttar út- gefanda á því að hefja útgáfústarfið. Var þó til þess sérstök ástæða þar sem hinn nýi eigandi ísafoldar hafði hug á ekki aðeins að hrinda útgáfunni í framkvæmd heldur einnig afla til þess nýs setningarbúnaðar. Verður því að telja að skilyrði hafi brostið til að höfundar mættu slíta samningnum vegna dráttar á útgáfu af þeim ástæð- um sem þeir gerðu. I dómnum segir svo: „Samkvæmt framansögðu ber að fallast á það að með gagnáfiýjanda (Isafold, innskot blm.) að aðaláfrýjendur (höfundar, innskot blm.) hafi bakað sér skaða- bótaskyldu gagnvart honum með samningsroíúm sínum. Verður tjón gagnáfrýjanda áætlað að álitum 1.500.000 krónur. Verða aðaláfiýjend- ur dæmdir til að greiða honum þá íjárhæð óskipta ásamt dómvöxtum frá 4. október 1984.“ Mál þetta dæmdu hæstaréttardóm- aramir Magnús Thoroddsen, Guð- mundur Jónsson, Magnús Þ. Torfason og Þór Vilhjálmsson og prófessor Am- ljótur Bjömsson. Sératkvæði Einn dómaranna, Þór Vilhjálmsson, skilaði sératkvæði í dómnum og telur hann að umrædd riftun á dómnum hafi verið réttmæt. Hann líti svo á að 36. gr. 2. mgr. höfundarlaga gildi um samskipti aðila og beri því að sýkna höfunda af kröfum prentsmiðjunnar. Ekki séu efni til að taka skaðabótakr- öfuna til greina þar sem ekkert tjón sé sannað. -FRI Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga. DV-mynd Jón Karl Snorrason íslenska jámblendrfélagið: Rjúkandi tap Rekstrarerfiðleikar hafa frá upphafi sett svip sinn á rekstur Jámblendi- verksmiðjunnar að Grundartanga. Svo var einnig á siðasta ári því Is- lenska jámblendifélagið hf. tapaði 212 milljónum íslenskra króna árið 1986. Þrátt fyrir að verksmiðjan hafi tapað þetta miklu telja stjómendur félagsins að tæknilega sé verksmiðjan nú rekin nálægt því eins og best verður á ko- sið. Segir í ársreikningi félagsins að reksturinn árið 1986 hafi einkennst af mikilli og tæknilega vel heppnaðri framleiðslu, mikilli sölu en lélegri af- komu. Ástæða þess að verksmiðjan tapar þrátt fyrir þennan fína rekstur er sögð lágt útflutningsverð. „Allir framleiðendur, sem við berum okkur saman við hafa haft slæma af- komu á rekstri af þessu tagi sl. ár. Fyrir okkur er ekkert annað að gera en bíða þess að birti til,“ sagði Barði Friðriksson, stjómarformaður ís- lenska jámblendifélagsins hf„ m.a. í ávarpi á aðalfundi félagsins 31. mars síðastliðinn. Á fundinum kom einnig fram að raunverð kísiljáms hafi ekki í annan tíma verið lakara. Þó má nú greina fyrstu teikn þess að betri tíð kunni að vera framundan. Aðalfúndinn sátu fulltrúar hluthaf- anna þriggja, iðnaðarráðherra f.h. íslenska ríkisins, Elkem a/s í Oslo og Sumitomo Corporation í Tokýo. -ES Jcti G. Haukason, DV, Akureyit Kjörseðillinn í Norðurlandskjör- dæmi eystra verður 40 sentímetra langui' en níu flokliar eru nú í fram- boði. Aldrei hafa verið jafnmargir flokkíU' í framboði þar. Ef allt geng- iu’ eftir áætlun og engin veruleg vafaatriði koma upp á kosninganótt- ina er reiknað með að búið verði að telja upp úr kjörkössunutn kl. 4-4.30 um nóttina, að sögn Ragnars Stein- bergssonar, formanns yfirkjörstjórn- ar, er DV ræddi við hann í gær. Ragnar sagðist reikna meö að öll kjörgögn yrðu komin til Akureyrar kl. hálfeitt um nóttina. Á kjörskrá eru 18.300 manns eða 2000 fleiri en í kosningunum 1983. Kjörkassamir á minnstu stöðun- um í kjördæminu em aðeins 20 sentímetra breiðh', þannig að ýmsir á þessum stöðum hafa haft áhyggjur af stærð kjörseðilsins, miðað við stærð kassanna. Ragnai' sagðist halda að þotta myndi allt bjargast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.