Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987.
15
Afvopnunar-
viðræður
á leiksviði
Oröaskipti samningamanna stórveldanna eru orðin að uppistöðu í ieikriti.
Simamynd Reuter
Leikhússtjórar á Broadway
íhuga nú alvarlega að taka til
sýningar leikrit um takmörkun
vígbúnaðar.
Verkið nefnist Gönguferð í
skóginum og er byggt á heimild-
um af fundi sem formenn samn-
inganefnda stórveldanna í
afvopnunarviðræðum áttu í Genf
í júlí árið 1982.
Þetta sama verk var flutt hér á
sviði meðan leiðtogafundurinn
stóð síðastliðið haust.
Leikrit þetta var fyrst sett á
svið af stúdentum við Yalehá-
skólann og þá stjómað af Lloyd
Richards sem einnig er deildar-
forseti leiklistardeildar skólans.
Þá var verkið sýnt á nokkrum
sýningum. Meðal gesta á frum-
sýningunni var fyrsti ritari
sovésku sendinefndarinnar hjá
Sameinuðu þjóðunum. Eftir sýn-
inguna hitti hann að máli báða
leikarana sem koma fram.
Ódýrt
og
tímabært
Nú síðustu vikurnar hefur
mikið verið rætt um hugsanlegan
áfanga í afvopnunarviðræðunum
á næstu misserum og hefur það
síst orðið til að draga úr áhuga
leikhúsmanna á verkinu. Þá þyk-
ir það einnig kostur að leikritið
er einfalt í uppfærslu og leikar-
arnir aðeins tveir.
Mörg þekktustu leikhúsin á
Broadway hafa sýnt áhuga á að
fá leikritið til sýningar og sömu
sögu er að segja af leikhúsum
víðar í heiminum.
Lee Blessing er höfundur leik-
ritsins. Hann skrifaði það eftir
að hann fékk í hendur uppskriftir
af viðræðum Paul Nitze og Yuli
Kvitvinsky í Genf.
„Áður hafði ég ekkert skrifað
um heimspólitíkina," segir Bless-
ing sem annars er mikill áhuga-
maður um hornabolta og hefur
skrifað leikrit um jafnrétti og
stjómmál.
í Gönguferð í skóginum segir
frá óformlegu samkomulagi sem
samningamenn Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna náðu um tak-
mörkun á fjölda meðaldrægra
eldflauga þessa sumardaga í Genf
árið 1982. Samkomulaginu var
hafnað af stjórnum beggja ríkj-
anna tveim mánuðum síðar.
Leikritinu hefur verið lýst sem
gamansamri og jafnframt bjart-
sýnislegri lýsingu á samningavið-
ræðum um kjarnorkuvígbúnað.
Sameiginleg
uppfærsla?
Leikstjórinn, Des McAnuff,
hefur unnið að því undanfarna
mánuði að fá ráðamenn í menn-
ingarmálum í Bandaríkjunum og
Sovétríkjunum til að standa sam-
eiginlega að uppfærslu á verkinu.
Þetta er talið vel mögulegt eftir
að yfirvöld í Sovétríkjunum hafa
dregið úr eftirliti með menning-
armálum.
í vetur hafa einnig verið sýnd
á Vesturlöndum umdeild sovésk
leikrit. Þar á meðal er verk um
kjarnorkuslysið í Chernobyl sem
nú er sýnt í Lundúnum og verður
væntanlega sýnt í Bandaríkjun-
um áður en langt um líður.
Reuter/GK
NISSAN SUNNY
54ra manna dómnefnd bílagagnrýnenda
í Japan kaus einróma
NISSAN SUNNY
BÍL ÁRSINS 1987
BÍLASÝNING
laugardag og sunnudag kl. 14-17 báða dagana
Vinnuþjarkur sem kann sitt fag
Vorum að fá Nissan 1200 Pick-Up-Long Body
á frábæru verði.
• Fisléttur í snúningum.
• Sparneytin vél.
• Tvöfaldar hliðar á palli.
Verið velkomin - Alltaf heitt á könnunni