Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987. Islensk tunga DV Um júðahörpur, heri og villandi heiti Sumir sigla undir fölsku flaggi. Þeir nota kannski rangt nafn og númer til að ekki beri á þeim. Til að þeir þekkist ekki. Ef þeir ein- hverra hluta vegna vilja vera óþekktir. Að ég tali ekki um þá sem flýja óréttlæti og vonda menn eða illa innrætt yfirvöld. Þeir sem í daglegu tali eru nefndir flóttamenn sakir samvisku sinnar. Mér hefur reynd- ar alltaf verið hlýtt til slíkra manna því þeir neyðast til að flýja land sitt og það sem þeir elska mest. En það eru ekki bara einstakling- ar sem kjósa að fara huldu höfði. Stundum eru heilu fyrirtækin dul- búin á viðlíka hátt, rétt eins og eigendur þeirra vilji ekki sýna sitt rétta andlit. Líklega flýja þeir ekk- ert nema sannleikann. Her, varnarlið eða bara lið Eitt svona fyrirbæri er það sem sumir kalla vamarlið en aðrir her- inn eða ameríska herinn í Keflavík. Orðið varnarlið hefur yfirleitt verið notað í fréttum, bæði í út- varpi og blöðum. Þess vegna hjó ég sérstaklega eftir því nýlega þeg- ar í fréttum í ríkisútvarpinu var talað um herinn í Keflavík. Ég hef síðan fengið nokkra skýr- ingu á þessum sinnaskiptum frétta- mannanna og gleðst auðvitað í hjarta minu. Þá datt mér i hug að líta í varnar- samning Islands og Bandaríkj- anna. Hvað skyldi fyrirbærið vera nefnt þar? Ekki her. Því síður varnarlið heldur einfaldlega „lið Bandaríkj- anna á íslandi“. Gyðingaharpa. Ekki verður annað séð en að nafn hljóðfærisins sé hreinn misskilningur. Það er alveg ljóst að orðið „varn- arlið“ er búið til af stuðningsmönn- um bandaríska hersins á íslandi. Ég hef því miður ekki haft tök á að athuga aldur orðsins en þetta er hlutdrægt orð sem dregur taum ákveðinnar pólitískrar skoðunar. Það eitt á að nægja til þess að hlut- laus fréttamiðill, eins og mér skilst þeir séu allir á íslandi að eigin sögn, verði að sniðganga heitið. Ég legg því eindregið til að notað verði orðið her eða lið Bandaríkj- anna á íslandi, ef menn vilja vitna beint í samninginn áðurnefnda. Suður í Straumsvík er fyrirtæki sem ber nafnið íslenska álfélagið. Þarna er einnig á ferðinni villandi heiti. Fyrirtækið er að fullu og öllu í eigu erlendra aðila en nafnið gef- ur hins vegar í skyn að um islenskt fyrirtæki sé að ræða. Þarna fer miklu betur á því að nota stytt heiti fyrirtækisins, ísal. Gyðingar, hörpur og kjálkar Sonur minn fékk gefins á dögun- um torkennilegt hljóðfæri. Gefand- inn hafði það með sér frá Spáni og kallaði júðahörpu. Síðan hef ég velt fyrir mér hvaða tengsl kynnu að vera milli gyðinga og þessa hljóðfæris. Og nýlega var þessu fargi af mér létt. Ég hitti mann sem er fæddur í Palestínu og er gyðingur. Og ég spurði auðvitað hver þessi dular- fullu tengsl væru. Svarið var stutt og laggott: Þau eru engin! En hver er þá skýring nafnsins? Jú, skýring hans er sú að hljóð- færið hafi heitið jaw’s harp á ensku (jaw = kjálki) en hafi síðan af- bakast yfir í jew’s harp og veríð þannig þýtt yfir á íslensku. Það verður því ekki annað séð en nafn hljóðfærisins sé hreinn misskilningur. En misskilningur stafar alltaf af einhverju en vex ekki á jörðinni. Hver er þá skýring- in á því að hljóðfæri er upphaflega kennt við kjálka en verður síðar kennt við gyðinga? Af gömlum vana fletti ég einnig upp í Webster orðabókinni minni ensku. Þar er gefið upp jew’s harp og innan sviga sú skýring að „sennilega stafi þetta af því að götusalar, sem voru gyðingar, út- veguðu þessi hljóðfæri”. Þegar þessar upplýsingar eru lagðar saman er skýringin loksins fullkomin. Og ég er að sjálfsögðu svo kurt- eis að láta lesendum það eftir að tengja upplýsingarnar saman. Svona í lokin... Ef minnið svíkur mig ekki þá á að kjósa til alþingis í dag, 25ta apríl þrátt fyrir að í dag sé 20. apríl! Það er vegna þess að ég skrifa greinina í dag, 20. apríl, en hún birtist á hinn bóginn í dag, 25. apríl! Svona geta dagar verið rugl- ingslegir. Mér skilst að óvenjumargir flokkar séu í boði og meiri íjöldi en nokkru sinni áður sem vilji komast á þing. Þetta fólk treður síðan skóinn hvað af öðru; eyðir óhemju fé að ekki sé minnst á tíma- eyðslu frambjóðenda og þeirra sem hlusta. Ég hef þess vegna mótað ákveða tillögu í huga mér um hvernig megi bæta úr og spara bæði fé og fyrir- Islensk tunga Eiríkur Brynjólfsson hotn og svo mnn ayrmæta tíma. Við skulum einfaldlega leyfa öll- um að taka sæti á alþingi sem á annað borð sækjast eftir því. Þetta yrði þá skráning frekar en fram- boð. Þingmenn mega mín vegna vera 2000 en verða það aldrei því seinni liður tillögu minnar er að afnema þingfararkaupið. Hvað haldið þið að þeir yrðu þá margir? Talandi um kosningar þá man ég eftir því að sumir stafsetja orðið kostningar. Er það ekki táknrænt fyrir kostnaðinn? Að svo mæltu óska ég öllum vin- um mínum og öðrum gleðilegrar helgar og vona innilega að þið drekkið mikið og lengi, helst alveg þangað til tími verður til að tygja Vísnaþáttur DV Blaoað í nærri aldargömlu tímaritshefti En eldri blína á auðmagnið, ei um hitt þeir skeyta. En á lund og list og mennt líta fæstir sveina. Annað þó en þetta þrennt ei þýðing hefur neina. Vísnaþáttur Nú skulum við reyna, með hjálp gamals tímaritsheftis, að hverfa marga áratugi aftur í tímann. Það sem minnir á unnin afrek liggur oft gleymt og grafið í fornum blöðum og bókum. Ég gríp úr bókasafnshillu einn af elstu árgöngum tímaritsins Eimreið- arinnar, sem dr. Valtýr Guðmunds- son 1860-1928, háskólakennari í Kaupmannahöfn, stofnaði og stýrði. Það var eitt af mörgum tímaritum sem þaðan voru send heim til ís- lands. Það hóf göngu sína árið 1896. Dr. Valtýr ætlaði sér mikinn hlut í íslenskri pólitík og um hann og stefnu hans var hart barist. Hann var kosinn alþingismaður og, ef ég man rétt, líka konungkjörinn. Marg- ir ætla að það hafi verið draumur hans að verða fyrsti íslenski ráð- herrann en stefna Hannesar Hafstein sigraði og hann hlaut hnossið. Ég tek mér af tilviljun í hönd ár- ganginn frá 1898. Og ég sé að þar eru nokkrar vísur eftir ritstjórann. Ætt- Um við ekki að endurprenta þrjár þeirra, úr því þær eru nú einmitt ortar undir þeim alþýðlega fer- skeytta hætti sem við sækjumst einkum eftir? Hann lætur pilt spyrja: Ef ég ætti gnægtir gulls, gætirðu þá unnað mér? og stúlka svarar: Ég ei því svarað fæ til fulls,- en fráleitt mundi ég neita þér. En ritstjórinn og háskólakennar- inn yrkir meir um þetta sama efni: Ungir líta á andlitið, er þeir svanna leita. I þessum árgangi Eimreiðar er rit- gerð um tóbaksnotkun íslendinga eftir Ólaf Davíðsson þjóðsagnasafn- ara og náttúrufræðing. Ég minnist á það vegna þess að hann tilfærir þar tóbaksvísu eftir Jón gamla frá Grunnavík, aðstoðarmann Árna Magnússonar handritasafnara, sem Laxness hefur gert frægan í íslands- klukkunni í gervi Grindvikenses. Hann var með réttu Árnason og kenndi sig við Grunnavík. Vísan er svona: Tóbakið, sem tíðkar þjóð, temprast má það vel með kurt. Það er að vísu gáfan góð, guði sé lof fyrir slíka jurt. Það var ekki fyrr en á okkar dögum að menn uppgötvuðu kurteisisleysi þessarar frægu plöntu og hættulegu eigindir. En þarna er líka ritdómur um Bibl- íuljóð séra Valdimars Briem, 1848-1930, en þau voru einmitt að koma út í tveimur bindum þessi árin. Séra Valdimar var og er eitt af höfuð- sálmaskáldum landsins. Og þetta rit átti að sjálfsögðu sinn þátt í að festa í sessi vinsældir hans meðal almenn- ings. Hann var prestur að Stóra-Núpi í Ámessýslu, prófastur og vígslu- biskup - og ef ég man rétt, manna IM Jón úr Vör lengst heiðraður með skáldalaunum, eins og þjóðskáldið Matthías. En hér er einmitt próféssor Harald- ur Níelsson að ritdæma síðara bindi Biblíuljóðanna. Lofar þau, en er þó ekki að öllu leyti ánægður með kenn- inguna. Haraldur, 1868-1928, er postuli nýguðfræðinnar. Fer þó vægt í sakirnar. Tilfærir vísu úr kvæði, sem heitir Kornelíus: I sömu villu veður þú, sem voru fyrst í kristnir menn. Þeir hugðu duga tóma trú, því trúa margir enn. Séra Haraldur er ekki orðinn prestaskólakennari, þegar þetta er. Hann spyr: „Hvað gerir Island fyrir þennan mann? Alþingi íslendinga hefur veitt Þorsteini Erlingssyni skáldastyrk. En mér er spurn: munu nú Þyrnar verða íslandi til meiri sóma, eða sá lærdómur, sem þeir hafa að flytja, affarasælli fyrir hina íslensku þjóð en Biblíuljóðin? Al- þingi íslendinga veitir Jóni Ólafssyni fjárstyrk til ritstarfa... Enn gæti ég nefnt þriðja manninn, sem ísland nú ætlar að fara að veita skáldastyrk af landsfé, sem sé Pál Ólafsson... Vér teljum séra Valdimar þeirra lang- verðugastan." Hér birt með úrfell- ingum. Þess er rétt að geta að þegar um- rætt Eimreiðarhefti kom út, rétt fyrir aldamótin, var aðeins lítill hluti þess, sem Þorst. Erl. auðnaðist að rita á ofskammri ævi útkomið. Miklar deil- ur voru um mörg ljóð hans. Hann hlaut tímabundin skáldalaun, missti þau og fékk þau aftur. Séra Valdimar mun hafa átt öruggara fylgi á Al- þingi. Til er vísa eftir Þorstein sem að þessu mun lúta. Hún ber fyrir- sögnina „Tvímenningarnir á fjárlög- unum“. Svona: Þau hafa tvímennt langa leið, laglega klofið strauminn: Biblía gamla að baki reið, Belíal hélt í tauminn. Aldamótaskáldin þurftu ekki að gera lesendum sínum grein fyrir því hvaða riddari það var þessi Belíal, höfuðóvinurinn í Neðra átti sér mörg biblíuheiti á þeim tímum í máli al- mennings. Nú höfum við þegar nefnt nokkur nöfn þeirra manna, sem settu svip á bókmenntalífið á fyrstu árum Eim- reiðarinnar, sem varð eitt af elstu og virtustu tímaritum þjóðarinnar frá því fimm árum fyrir aldamót, og allt til rithöfundarára þeirra, sem nú halda aldraðir á penna. Líklega tæp- lega tveir áratugir síðan síðast var talað um unga menntamenn og pólit- íkusa, sem ætluðu að blása lífi í gamla hróið. En einn höfundanna, úr árgangn- um 1898, sem ég tók mér í hönd við upphaf þessa greinarstúfs, er ónefnd- ur: Hér eru frumbirt kvæði eftir sjálft þjóðskáldið Steingrím Thorsteinsson 1851-1913. Þá var ekki ýkjalangt síð- an hann settist að í Reykjavík. Við höfum aðeins pláss fyrir tvær vísur: Sólskin þarna um svæðin hlíða sést i þýðri veðurhægð. Minnir þessi myndin blíða mig á lífsins gleðinægð. Ef að mér var þungt í þeli, þessa stund, það frá mér veik. Sól og ský á himinhveli, hættið ei þeim fagra leik. Hér er aðeins fátt nefnt af því sem þarna má sjá. Jón úr Vör Fannborg 7, 200 Kópavogi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.