Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Page 21
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987.
21
Verkfall vonr
yfir Hollywood
Nú eftir mánaðamótin á að hefja
framleiðslu tveggja nýrra kvik-
mynda í Hollywood. Vel má vera að
þessar verði þær síðustu sem gerðar
verða þar í borg á næstunni.
Samningur framleiðenda við sam-
tök leikstjóra rennur út í lok júní.
Þótt verkfallið sé ekki að skella á
er óttinn við það þegar farinn að
segja til sín. Ef til verkfalls kemur
verður það hið fyrsta í sögu samtaka
leikstjóra í Hollywood.
Síðústu tvo mánuði hefur tökum á
myndum verið flýtt mjög og þegar
hefur tökum mynda, sem ekki voru
líkur á að tækist að ljúka fyrir verk-
fall, verið frestað. Leikarar og aðrir,
sem vinna að gerð mynda, taka nú
nánast öllum tilboðum því á næstu
mánuðum gætu þeir staðið frammi
fyrir atvinnuleysi sem er fátíð uppá-
koma í greininni.
Myndbandabyltingin
Þetta verkfall, ef af verður, snýst
ekki um laun heldur hver hlutur
leikstjóranna á að vera af tekjum af
myndböndum. Nú er svo komið að
aðeins 1 mynd af hverjum 20 skilar
gróða eftir sýningar í bíóhúsum. Eigi
að vera von um gróða af hinum 19
þá verður hann að fást af leigu mynd-
banda.
Sú hefur verið raunin um allar
aðrar myndir en þær sem mestum
tíðindum hafa sætt í kvikmynda-
heiminum. Það er einnig svo að þær
myndir sem best ganga í bíóhúsunum
skila einnig mestum gróða þegar þær
eru komnar á myndbönd.
Þegar leikstjórar endurnýjuðu síð-
ast samning sinn við framleiðendur
árið 1984 var hlutur myndbandanna
mun minni. Nú telja þeir hins vegar
að myndböndin hafi að mestu tekið
við af bíóhúsunum og því verði að
breyta samningnum.
Deila leikstjóranna við framleið-
endur er einnig talin merkja að
kvikmyndaverin gæti nú stöðugt
meira aðhalds. Framleiðendur segja
að þeir verði að draga úr kostnaði
og því sé útilokað að auka hlut leik-
stjóranna.
Framleiðendur hafa oft átt í deilum
við samtök leikara og annarra hópa
sem vinna að kvikmyndum. Til þessa
hafa leikstjórar verið sæmilega frið-
samir en nú segja framleiðendur að
allt geti gerst. „Loftið er lævi bland-
ið,“ er haft eftir einum þeirra.
Krókur á móti bragði
Allir helstu framleiðendurnir hafa
samtök með sér og semja sameigin-
lega við launþega sína. Leikstjórar
hafa nú séð sér þann leik á borði að
semja sérstaklega við óháða fram-
leiðendur þannig að þeir geta haldið
áfram að gera myndir þótt starfsemi
þeirra stóru lamist í verkfalli.
Nú þegar hafa um 20 framleiðendur
gengið að þessum kostum enda tilboð
leikstjóranna talið mjög hagstætt.
Ein þeirra mynda sem nú á að
hraða tökum á er Wall Street sem
Oliver Stone leikstýrir. Hann hlaut
nú fyrir skömmu sjö óskarsverðlaun
fyrir Platoon. Gerð hefur verið áætl-
un um að taka myndina upp á 12
vikum og þó er talið hæpið að það
takist. Oliver segist treysta því að
verfallinu verði frestað um nokkra
daga þannig að örugglega ætti að
takast að ljúka við myndina. Að öðr-
um kosti verður að setja verkið
hálfklárað í geymslu og bíða þess að
verkfalli ljúki. Reuter/GK
Kjör-
I dags
I kaffi
I í Valhöll
í dag, laugardag, verður opið hús í kjallara Val-
hallar, Háaleitisbraut 1, frá kl. 13.00-18.00. Sjálf-
stæðismenn eru hvattir til að líta inn.
KAFFIVEITINGAR
- FJÖLMENNUM
x-d
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
er enn í fullum gangí.
Krakkar, flýtið ykkur
að senda inn myndir,
því nú fer hver
að verða síðastur.
Þrjár bestu myndirnar
fá vegleg verðlaun.
Einnig verða veitt
tíu aukaverðlaun.
Þetta er sýnishorn af
Paddington sparibangsanum,
sparibauk sem gaman er að eignast,