Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1987, Qupperneq 22
22
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987.
Undirbúningur kosningasjónvarps var í fullum gangi þegar Ijósmyndari DV leit þar inn í vikunni, verið að koma fyrir sviðsmynd og tölvubúnaði
Stöð 2:
Landsliðið í gríni og fullkomnustu tölvur
Það er ekki lágt risið á forráða-
mönnum Stöðvar 2 varðandi
samkeppnina um hylli áhorfenda
við ríkissjónvarpið. Að þeirra sögn
verður brvddað upp á ýmsum nýj-
ungum. sérstakur tækjabúnaður
hufur verið keyptur og fluttur til
landsins í tilefni Kosningasjón-
varps Stöðvar 2.
Úrslitin gerð kunn klukkan
hálfátta í kvöld!
Stöð 2 bryddar upp á nýjung í
kosningabaráttunni í dag. Stöðin
kannar hvað fólk kaus eftir að það
er búið að kjósa. Á tíu kjörstöðum
í Reykjavík og á Reykjanesi verða
starfsmenn með kjörseðla sem það
biður fólk, sem þegar er búið að
kjósa, að fylla út. Þessi eftirkjör-
fundaratkvæðagreiðsla, sem í
Bandaríkjunum hefur verið nefnd
Exit poll, stendur yfir frá því kjör-
staðir voru opnaðir í morgun og til
klukkan 17. Búast forráðamenn
Stöðvar 2 við því að ná til nokkur
þúsund kjósenda með þessum hætti
og geti því birt marktækar niður-
stöður könnunarinnar í hálfátta
fréttunum.
Kosningasjónvarpið í kvöld verð-
ur langstærsta verkefnið sem stöðin
hefur lagt í til þessa. Allir starfs-
mennirnir vinna að dagskrárgerð-
inni og hefur verið lagður dagur við
nótt til að þessi útsending verði að
veruleika. Ætlunin er að öll útsend-
ingin verði bein, að undanskildum
auglýsingum, Spéspegli og líklega
einhverju myndrokki. sem notað
verður til uppfyllingar.
Það verða um áttatíu manns sem
vinna að kosningasjónvarpinu sem
gert er ráð fyrir að standi í 10-12
klukkutíma. Ætlunin er að hefja
Kosningasjónvarpið klukkan tíu í
kvöld og stendur það þar til endan-
leg úrslit liggja fyrir, þegar síðasta
atkvæðið í síðasta kjördæminu hef-
ur verið talið og eiga stöðvarmenn
jafnvel von á að það geti dregist til
klukkan hálfníu í fyrramálið.
Umræður, gys og stuð
Beinar sjónvarpsútsendingar
verða frá Reykjavík, Reykjanesi og
Suðurlandi, þeim svæðum sem út-
sendingar stöðvarinnar ná til.
Beint símasamband verður svo haft
við hina kjörstaðina og nýjustu
tölum sjónvarpað um leið og þær
berast. I sjónvarpssal verða svo
gestir, bæði þeir sem tengst hafa
stjórnmálum beint eða óbeint, og
svo aðrir sem aldrei hafa tengst
stjórnmálum. Rætt verður við for-
menn flokkanna og ýmsa þá aðra
sem skoðanir hafa á málunum.
Rætt verður við þá sem virðast
vera að skríða inn á þing eða detta
út af þingi.
Hvað skemmtiatriði varðar verð-
ur þarna það sem forráðamenn
stöðvarinnar kalla bestu hljóm-
sveit landsins, Stuðmenn, og
landsliðið í gríni, Gysbræðurnir
Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Karl
Ágúst Úlfsson, Örn Árnason, Sig-
urður Sigurjónsson og Randver
Þorláksson.
Morgunverðarstemmning
Eftir klukkan sex breytir dag-
skráin um svip, djammið og stuðið
hættir og morgunverðarstemmning
tekur við.
Stöð 2 verður með sérstaka get-
raun sem allir geta tekið þátt í. I
boði eru tíu utanlandsferðir og ein
glæsibifreið. Menn þurfa aðeins að
skrifa nafnið sitt og símanúmer á
auglýsingaseðla stöðvarinnar sem
birst hafa í dagblöðum. Síðan verð-
ur dregið úr nöfnunum í beinni
útsendingu, hringt í þá heppnu og
þeir spurðir léttrar spurningar um
efni eða auglýsingar í kosninga-
sjónvarpinu. Geti þeir svarað
spurningunni geta þeir komið sam-
stundis á Stöð 2 og sótt farseðl-
ana eða bílinn sem býður hinna
heppnu.
Þá má nefna það að öll dagskrá
kosningasjónvarpsins verður sýnd
órugluð. Helgi Pétursson og Ólafur
E. Friðriksson taka á móti gestum
og rabba við þá en umsjónarmenn
kosningasjónvarpsins verða Páll
Magnússon og Sigurveig Jónsdóttir.
Um tölvumál kosningasjónvarps
Stöðvar 2 sér fyrirtækið Tölvumynd-
ir með aðstoð IBM. Tveir færir
tölvusérfræðingar hafa legið yfir því
erfiða verkefni í tvo mánuði að búa
til rétt forrit fyrir þessa erfiðu kosn-
inganótt.
Að sögn stöðvarmanna er tölvu-
kerfið, sem notað verður, fullkomn-
ara, hraðvirkara og sýnir betri
grafík en hingað til hefur þekkst.
Frá því tölur berast þangað til tölvu-
spá fyrir kjördæmið, landsspá,
nöfn þingmanna og flakkarans
liggja fyrir líða ekki nema tvær
sekúndur. -ATA
Það eru fleiri en stjómmálamennimir
Sjónvarps!
berjast um á
á kosni
Það verður í nógu að snúast hjá sjónvarpsáhorfendum á suðvestur-
homi landsins í kvöld og fram á morgun. í dag fara fram fyrstu
kosningamar á landsvísu eftir að hljóðvarps- og sjónvarpsrekstur var
gefinn frjáls og því stendur mikið til í tengslum við kosningarnar á
öldvun ljósvakans.
Páll Magnússon: „Við erum hvergi hræddir.
Páll Magnússon, frettastjori Stöðvar 2:
Fömm út í
samkeppnina með
breitt bros á vör
„Við erum ekkert hrædd við sam-
keppnina. Við gerum okkar besta,
þetta er í senn skemmtilegt og
spennandi verkefni. Svo er bara að
sjá hvor vinnur sprettinn," sagði
Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar
2.
„Við erum með það besta sem
býðst í tölulegri vinnslu, tölvum og
spám. Við teflum fram bestu hljóm-
sveit landsins og landsliðinu í gríni.
Ef Ingvi Hrafn ætlar að slá þessu
við veit ég ekki upp á hverju hann
hefur fundið.
Það er gífiirlegur metnaður hjá okk-
ur hér á stöðinni að vinna þetta
verk vel og við fórum út í samkeppn-
ina með breitt bros á vör.“
-ATA