Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1987, Side 12
12
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1987.
Umbúða- og framleiðslu-
fyrirtæki
óskar eftir mönnum til sérhæfðra starfa nú þegar.
Leitað er að hraustum mönnum sem vilja ráða sig í
framtíðarstörf hjá góðu og traustu fyrirtæki. Gott
mötuneyti á staðnum.
Þeir sem áhuga hafa á störfum þessum vinsamlegast
hafi samband við auglýsingaþjónustu DV í síma
27022, „H-2211
Sólbaðsstofa
Nvia-/Astu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18,
sími 28705
Afturer komiðað
okkar vinsæla tilboði
sem allirþekkja, 24
tímaráaoeins1600
krónur.
VERIÐ VELKOMIN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI
NÝTT Á ÍSLAIMDI
MEGRUIMAR-CELLU LITE
Djúphitunar megrunarmeðferð sem hefur farið sigur-
för um Evrópu sl. 6 mánuði.
Langar þig til þess að grennast, losna við cellulites,
og líta betur út í baðfötum? Þá gæti þetta verið lausnin.
Einnig hefur náðst verulegur árangur gegn vöðva-
bólgu og bakverkjum.
Hafir þú áhuga þá hafðu samband við
SNYRTISTOFUNA EYGLÓ
Langholtsvegi 17.
Sími 3-61-91
Neytendur
ísfugl selur ferska kjúklinga á Keflavikurflugvelli en reglugerð bannar sölu á ferskum kjúklingum á íslandi.
Kjúklingarnir ferskir
á Vellinum
- en áffam frosnir utan girðingar
Ferskir kjúklingar hafa verið til
sölu í verslun Bandaríkjahers á Kefla-
víkurflugvelli frá mars síðastliðnum.
Kjúklingarnir eru íslensk framleiðsla
og koma frá ísfugli og Holtahúinu. Á
íslandi er bannað að selja ferska kjúkl-
inga úr hænsnabúum vegna smit-
hættu. Ekki stendur til að breyta því
banni.
Vegna þess hve fuglakjöti er hætt
við smiti af salmonellubakteríunni er
í gildi reglugerð sem bannar sölu á
fersku fuglakjöti. Skiptar skoðanir eru
um réttmæti bannsins. Bent er á að
kjötið sé bragðbetra og hollara ferskt
og að víða erlendis séu kjúklingar
seldir ófrystir án þess að til sýkingar
komi. Aðrir segja smithættuna svo
mikla að ekki eigi að slaka á kröfunum
sem gerðar eru til meðferðar á fugla-
kjöti. Kjúklingaframleiðendur telja
sig aftur geta búið þannig um ferska
kjúklinga að lítil smithætta stafi af
þeim.
Hannes Sigurðsson hjá Ísíugli sagði
að í samstarfi við Holtabúið hefði ís-
fugl selt ferska kjúklinga í verslun
Bandaríkjahers undanfama tvo mán-
uði.
- Við höfum fullan hug á að selja
óírysta kjúklinga til íslenskra versl-
ana. En með reglugerð er okkur
bannað það. Þó teljum við að eins og
kjúklingurinn er pakkaður hjá okkur
sé sáralítil hætta á smiti, segir Hannes.
Reglugerðar þörf
Þrátt fyrir að dregið sé úr smithættu
með betri pökkun getur salmonella-
bakterían verið svo skæð að menn
veigra sér við að slaka á þeim kröfum
sem gerðar eru. Ef sýktur ferskur
kjúklingur er í kjötborði verslunar
þarf lítið til að smitið berist í annað
kjötmeti. Svo dæmi sé tekið getur
Hreinlæti er öruggasta ráðið til að
hindra útbreiðslu salmonellubakter-
íunnar. Niðurgangur er algengasta
afleiðingin af salmonellusmiti.
salmonellan borist á milli kjöts með
hníf sem notaður hefur verið á sýkt
kjöt. Jafnvel þó að kjúklingurinn sé
pakkaður hjá framleiðanda getur smi-
tið legið utan á umhúðunum.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum
um það hve dýrkeypt það er fyrir kjöt-
kaupmenn sem fá salmonellusmit í
sínar vörur. Ekki aðeins væri allt kjöt
á lager ónýtt heldur myndu kúnnamir
snarlega snúa bakinu við verslun sem
smit fyndist í. Og það tekur langan
tíma að vinna um tapaðan orðstír.
Bjöm Bachmann í Kjötmiðstöðinni
telur núverandi reglugerð þarfa. Hann
nefnir slæma reynslu Bandaríkja-
manna og Norðmanna máli sínu til
stuðnings.
- Þó ég sé ekki ýkja hrifinn af stefnu
stjómvalda í landbúnaðarmálum get
ég tekið undir það sjónarmið að alltof
mikil hætta fylgir því að selja kjúkl-
inga og alifugla ófrysta. Ég er
ánægður með núverandi reglugerð,
slær Bjöm föstu.
Hreiniæti aðaiatriði
Reglugerðin sem bannar sölu á
fersku alifuglakjöti hefur verið í gildi
allan þennan áratug. Heilbrigðisyfir-
völd virðast almennt ásátt um gildi
reglugerðarinnar. Engu að síður em
ólíkar skoðanir um hversu strangt
beri að fylgja henni eftir. Oddur Rúnar
Hjartarson, framkvæmdastjóri Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur, segir að í
reynd sé reglugerðin túlkuð nokkuð
rýmt. Oddur segir smithættuna sem
fylgi verslun með ferska kjúklinga
ekki mikla, sé hreinlætis gætt.
- Salmonellan er algeng plága í
kjúklingum, segir Oddur, en það er
langur tími síðan nokkur sýktist af
sahnbnellu. Aðalatriðið er að þeir sem
meðhöndla kjúklinginn gæti hreinlæt-
is. Þetta gildir hvortteggja um ffarn-
leiðendur og neytendur. Þá á til dæmis
að þurrka blóðvatnið vel upp sem
kemur úr kjúklingnum þegar hann er
þíddur og láta það ekki koma nálægt
annarri matvöru.
Ekki slakað á kröfunum
Páll Agnar Pálsson, yfirdýralæknir,
telur það ekki koma til greina að slaka
á kröfum um meðferð og sölu á fersku
alifuglakjöti. Smithættan er ávallt fyr-
ir hendi og ein öruggasta leiðin til að
hindra útbreiðslu salmonellubakter-
íunnar sé að selja alifuglakjöt fryst.
Þegar yfirdýralæknir var spurður
hvers vegna sala á ófrosnum kjúkling-
um væri leyfð á Keflavíkurflugvelli
sagði hann að ekkert slíkt leyfi hefði
verið veitt og hann kannaðist ekki við
þessa kjúklingasölu.
- Við munum athuga þetta mál og
gæta þess að reglugerðinni verði fram-
fylgt, segir Páll Agnar Pálsson, yfir-
dýralæknir.
Hefllaráð
Leitað að linsu
með vasaljósi
Ef einhver tapar augnlinsu á gólf-
teppið er gott að slökkva öll ljós í
herberginu og draga gluggatjöldin fyr-
ir. Lýsið síðan upp gólfteppið með
vasaljósi. Það glampar á linsuna þegar
ljósið fellur á hana.
Edik fjariægir bletti
Edik fjarlægir hvíta saltbletti sem
koma á skó og stígvél. Vætið eld-
húsrúllublað með ediki og þerrið yfir
saltblettina. Berið síðan á skóáburð
eins og vanalega.
Skartgripir í skóna
Þegar pakkað er niður í ferðatösk-
una fyrir sumarferðalagið er tilvalið
að láta skartgripina innan í gamlan
sokk og láta sokkinn síðan ofan í skó.
Þá eru þeir óhultir og verða ekki fyrir
neinu hnjaski.