Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1987, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1987.
Stjómmál_________________________________pv
Alþýðuflokkurinn geymir
lykilinn að farsælli sljóm
- segir Jón Sigurðsson, efsti maður á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík, en hann sest nú á þing í fyrsta skipti
Jón Sigurðsson með konu sinni og tveim bömum á kosninganótt. Sigurður Þór laganemi er lengst til vinstri, þá Anna Kristín læknanemi og eiginkonan, Laufey
Þorbjamardóttir bókavörður, stendur við hlið manns síns.
DV-mynd BG
„Niðurstaða þessara kosninga er að
mörgu leyti athyglisverð. Alþýðu-
flokkurinn er einn fjórflokkanna
svokölluðu sem vinnur á. Þetta er
verulegur kosningasigur miðað við
úrslit kosninganna 1983,“ sagði Jón
Sigurðsson, er hann var inntur álits á
niðurstöðum kosninganna. '
Jón var staddur á kosningahátíð
A-listans í Sigtúni á sunnudagsmorg-
un og þar voru margir til að óska
honum til hamingju með kosningamar
en Jón var sem kunnugt er kosinn á
þing í íyrsta sinn um helgina.
„Fylgisaukning okkar er á svipuðu
róli og hjá Kvennalistanum en Sjálf-
stæðisflokkur, Framsókn og Alþýðu-
bandalag misstu verulegt fylgi, þó
einkum Sjálfstæðisflokkur.
Eg held að ástæðurnar fyrir sigri
okkar séu málefnalegs eðlis. Alþýðu-
flokkurinn hefur áttað sig betur á
nýjum straumum í stjómmálum; aukið
hlutdeild kvenna í flokksstarfinu, lagt
áherslu á aukið pólitískt siðgæði og á
valddreifingu og einstaklingsfrelsi."
- En áttuð þið ekki von á meira
fylgi, samanber rósirnar ykkar átján?
„Því er ekki að neita að við gerðum
okkur um tíma vonir um miklu stærri
sigur, ekki síst eftir skoðanakönnun
sem DV gerði í desember. En síðan
hefur mikið gerst í íslenskum stjórn-
málum eins og alþjóð veit en Alþýðu-
flokkurinn hefur þó komið mun betur
út úr þeim átökum en aðrir flokkar.
Annað vekur athygli. Það em fimm-
tíu ár síðan Alþýðuflokkurinn hefur
verið stærri en Alþýðubandalagið og
forverar þess, en nú hefúr það gerst.“
- Áttu þér óskastjóm?
- „Það virðist ljóst að tveggja flokka
stjórn kemur ekki til greina. Ég vil
ekki vera að gefa flokkunum einkunn-
ir, það er spurning um að finna
málefhalegan grundvöll sem þrír
flokkar eða fleiri geta starfað saman
á. En ég tel víst að Alþýðuflokkurinn
geymi lykilinn að næstu ríkisstjórn,
eigi hún að verða farsæl. Samstarf
Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og
Kvennalista finnst mér vel hugsanleg-
ur möguleiki.“
- Verður Jón Sigurðsson fjármála-
ráðherra þeirrar stjórnar?
„Ríkisstjórnir á að mynda um mál-
efni en ekki menn. En Alþýðuflokkur-
inn leggur mikla áherslu á fjármálin.
Heildarendurskoðun skattakerfisins
og endurskipulagning þjóðarbúskap-
arins eiga að verða forgangsverkefni
næstu ríkisstjómar,“ sagði Jón Sig-
urðsson. -ATA
Albert Guðmundsson:
Tilhlokkun-
arefni að
starfa með
ungu fólki
„Það er mér tilhlökkunarefni að
starfa með þessu unga fólki, þetta em
ferskir, vel menntaðir og hæfir menn,“
sagði Albert Guðmundsson, formaður
Borgaraflokksins, í viðtali við DV
aðfaranótt sunnudags þegar ljóst var
að flokkurinn fengi að minnsta kosti
sex menn kjöma á þing.
Þingmenn Borgaraflokksins, aðrir
en Albert, em reynslulitlir eða
reynslulausir í þingstörfúm. Aðspurð-
ur um hvort hann kviði reynsluleysi
þeirra svaraði Albert ákveðið neitandi
og bætti við: „Einhvers staðar verða
þingmenn að byrja störf sin og það er
í raun skylda eldri þingmanna, eins
og ég hlýt að teljast, að styðja inn á
þing þá sem taka eiga við, enda líst
mér vel á þetta fólk og held það eigi
eftir að vinna góð störf.“
Albert var á mikilli hraðferð enda í
mörg hom að líta þessa nótt. Hann
gat þó ekki stillt sig um að bæta við
að það væri eins með pólitíkina og
fótboltann, þar yrði ein kynslóð að
taka við af annarri ef áfram ætti að
ganga og mátti á honum skilja að
kynslóðaskipti væm tímabær á Al-
þingi nú. -HV
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, og Ámundi Ámundason bera saman bækur sinar eftir að
fyrstu tölurnar birtust úr Reykjavík. Það er ekki að sjá að formaður Alþýðuflokksins sé sérlega ánægður með þær
tölur þótt flokkurinn hafi bætt við sig verulegu fylgi frá siðustu þingkosningum.
DV-mynd BG
„Jón
Baldvin
verður
að fara
ii
Það var heldur fámennt og lítil
stemning á kosningahátíð Alþýðu-
flokksins í Sigtúni þegar fyrstu tölur
úr Reykjavík birtust á laugardags-
kvöldið. Fólk skráði niður tölurnar
og kinkaði hæglátlega kolli. Þetta
vom ósköp svipaðar tölur og skoðana-
kannanir höfðu gefið til kynna,
allavega hvað Alþýðuflokkinn snerti.
Samkvæmt fyrstu tölum fékk Al-
þýðuflokkurinn tvo þingmenn kjör-
dæmakjöma en formaður flokksins,
Jón Baldvin Hannibalsscn, líklegur
inn í jöfnunarsæti.
„Jón Baldvin verður að fara inn!“
sagði kona stundarhátt eftir að tölum-
ar höfðu verið lesnar og vom það
nánast einu viðbrögðin í salnum.
Sjálfúr var Jón Baldvin heldur dauf-
ur í dálkinn.
-ATA