Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1987, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1987.
21
íþróttir
Dómarar þinga
á laugardag
Landsþing KDSÍ, knattspymudóm-
arafélags Islands, verður haldið á
laugardaginn kemur og fer það fram
í húsi Þýsk/íslenska verslunarfélags-
ins. A laugardag munu svo dómarar
gangast undir þrekpróf í Laugardaln-
um.
Pétur Guðmundsson sést hér varpa kúl-
ii með tilþrifum. Hann siglir nú hraðbyri
oppinn i kúluvarpinu og kunnugir segja
innan skamms verði hann okkar besti
uvarpari fyrr og síðar. í gær varpaði Pétur
unni 18,64 metra sem er þriðji besti árang-
íslendings frá upphafi.
Brynjar Gauti
„Ég vissi að ég gæti bætt fyrri árang-
ur minn en ég átti alls ekki von á að
gera það á þessu móti. Þetta kom mér
því þægilega á óvart,“ sagði Pétur
Guðmundsson, kúluvarpari úr UMSK.
í samtali við DV í gærkvöldi en á inn-
anfélagsmóti Breiðabliks í gær bætti
Pétur árangur sinn i kúluvarpi stór-
lega og kom það fleirum en Pétri á
óvart að slíkt skyldi gerast á þessum
árstíma þegar kastarar eru nær und-
antekningarlaust í ströngum lyfting-
um og undirbúningur fyrir komandi
keppnistímabil er í hámarki.
Pétur varpaði kúlunni 18,64 metra í
Kópavoginum í gær og er það þriðji
besti árangur íslendings frá upphafi.
Aðeins Hreinn Halldórsson og ðskar
Jakobsson hafa kastað lengra. Pétur
bætti fyrri árangur sinn um 35 sentí-
metra og skaut þeim Guðmundi
Hermannssyni og Eggert Bogasyni
aftur fyrir sig á afrekalista Islendinga
í kúluvarpi.
„Hef ekkert getað kastað vegna
veðurs“
„Ég hef ekkert getað kastað síðustu
tvær vikumar vegna veðurs, Þá hef
ég einnig verið veikur í nokkum tíma,
lítið getað borðað og allt þetta gerir
það að verkum að ég er himinlifandi
með árangurinn en stefni enn hærra
að sjálfsögðu. Ég er í mjög erfíðum
lyftingaæfingum um þessar mundir og
reikna ekki með að fríska mig upp
fyrr en um mitt sumar. Ég ætla að
halda mér stífum og sterkum þangað
til en þá stefni ég að því að koma
kúlunni vfir 19 metrana. Árangurinn
á þessu innanfélagsnmóti er mjög
hvetjandi og þetta var mikil veisla hjá
mér." sagði Pétur Guðmundsson en
flestir spá þ\d að hann verði orðinn
besti kúluvarpaii sem við höfum eign-
ast eftir stuttan tíma.
• Helgi Þór Helgason varð annar á
mótinu í kúluvarpi. varpaði 15.10
metra. Helgi sigraði hins vegar í
kringlukasti mótsins með 50.20 metra
kasti. Þar varð Andrés Guðmundsson.
HSK. bróðir Pétrn's. annai’ með 43.10
metra og stórbætti hann fyrri árangur
sinn. -SK
Handbottadeild Vals
skuldar um 2,5 millj.
Sem stendur er útlitið dökkt hjá
handknattleiksdeild Vals. Deildin
skuldar nú 2.5 milljónir króna.
Haraldur Sverrisson. n\Táðinn
framkvæmdastjóri Vals. staðfesti
þetta í samtali við DV i gærkvöldi.
Undanfarin ár hefur gengið mjög
erfiðlega að fá menn til að starfa
í stjóm handknattleiksdeildar fé-
lagsins og á síðustu sjö ánun hefúr
aldrei tekist að fullmanna stjórn-
ina fyrr en nú nýverið að kosin
var ný stjóm á aðalfúndi hand-
knattleiksdeildaiinnar.
Magnús Blöndal var þar kosinn
formaður og í gærkvöldi var hann
inntiu' álits á stöðu mála hjá Vals-
mönnum: ..Vissulega er staðan
frekar erfið sem stendur eh það er
mikill hugur í mönnimi. Það er
mikið starf framundan en menn
eru gevsilega bjai’tsýnir. Þess má
geta að á síðasta aðalfundi hand-
knattleiksdeildarinnar tókst í
fyrsta skipti í sjö ár að kjósa full-
mannaða stjóm."
Nú standið þið í \iðræðunr \ið
pólskan þiálfara sem þið þm-fið
væntanlega að giæiða um 100 þús-
und krónur i mánaðarlaun. Er
fjárhagslegur grundvöllur fyrir
ráðningu hans?
..Ég tel að fjái-mál handknatt-
leiksdeildarinnar verði að ræða á
stjómarfundum en ekki í fjölmiðl-
um.“ sagði Magnús Blöndal.
-SK
þeir einnig reynt mikið að ná í Hall-
dór Áskelsson hjá Þór, Akureyri.
Þess má geta að samningur Ragn-
ars við Waterschei er ekki útmnn-
inn en Framarar keyptu samninginn
af félaginu og greiða Ragnari því
sömu laun og hann hafði hjá Wat-
erschei þar til samningurinn rennur
út.
ekki
á
[Siggi Jóns handarbrotnaðlj
| Sigurður Jónsson, landsliðsmaðm- handarbrotnað. Sigurður hélt til I
Ii knattspymu, meiddist illa í lands- Englands eftir leikinn með höndina J
leiknum gegn Frökkum á dögunum í gifsi og verður frá æfingum um |
■ á hendi og var talið að hann hafi tíma. -SK ■ • Ragnar Margeirsson i baráttu við Platini i landsleiknum á dögunum.
„Atti
von á þessu en
þetta kom þægilega á óvart“
- Pétur Guðmundsson bætti sig stórlega í kúluvarpi og náði 3. besta kasti íslendings, 18,64 m
„Það er rétt að Ragnar
Margeirsson hefur sent inn
félagaskipti til KSÍ yfir í
Fram,“ sagði heimildamað-
ur DV í gærkvöldi sem ekki
k
vildi láta nafhs síns getið.
Ragnar hefur sem kunnugt
er leikið með 2. deildar lið-
inu Waterschei í Belgíu.
Lið Fram hefur því fengið gífurleg-
an liðsauka en Ragnar mun verða
löglegur með Fram í 2. umferð Is-
landsmótsins 30. maí er Fram leikur
gegn ÍA á Akranesi.
Ekki var útlitið björgulegt hjá lið-
inu og greinilegt að aðalvandamálið
hjá Fram í sumar yrði að skora
mörk eftir að Guðmundamir hurfú
á braut en þeir skoruðu 30 mörk
fyrir Fram á síðasta keppnistímabili.
Framarar reyndu að ná í ýmsa leik-
menn nú í vor, erlendis og hér heima.
Þar má meðal annars nefna Jón
Erling Ragnarsson FH-ing. Þá hafa
IRaggi í Fram
■ - sendi í gær inn félagaskipti til KSÍ
Klempel varð
markakóngur
Ath Hilinarssan, DV, Þýskalandi:
Jerzy Klempel var markahæst-
ur í Bundeslígunni, skoraði 239
mörk. Erhard Wunderlich gerði
220 mörk og þriðji var Sigurður
Sveinsson, skoraói 175 mörk. -
Rúdiger Neitzel hjá Gummers-
bach skoraði 158 mörk í fjórða ■
sæti. Alfreð Gíslason hjá Essen I
skoraði 114 mörk. -JKS^Jj
["Norman er~|
■ langefstur i
I Ástralski golfleikarinn Greg |
■ Norman er langefstur á listanum ■
* yfir bestu kylfingana á þessu ■
I keppnistímabili. Norman er með I
1 1630 stig en Ballesteros frá Spáni *
| er næstur með 1276 stig. Bem- |
_ hardLanger, Vestur-Þýskalandi, _
I er þriðji á listanum með 1198 stig. |
■ í fjórða sæti er svo Payne Stew- ■
I art, Bandaríkjunum, með 902 I
|” FIFÁ-menn-1,
■ áferðalagi i
| Fjórir af æðstu mönnum FIFA. |
Ialþjóða knattspvmusambands- ■
ins. fara á næstu dögum í erfitt I
I fimm daga ferðalag til Ítalíu til I
* að skoða tólf knattspymuvelti *
| fyrir HM sem fram fer á Ítalíu I
1990. Vellimir eru í Verona,
| Udine, Toríno, Róm, Palermo, |
INapolí, Milan, Genf. Flórenz. .
Cagliaari, Bologna og Bari. I
J Kevin j
I McHale i
J brautbein J
Útlitið er ekki gott hjá banda- |
Iríska körfuknattleiksliðinú ■
Boston Celtics nú þegar úrslita- ■
I keppnin er nýhafin í NBA-deild- I
1 inni. Einn besti maður liðsins, ®
| Kevin McHale, braut nýlega |
, bein í fæti og verður tæpast _
| meira með.
í tennis
IPétur Guðmimdsson. körfú-
knattleiksmaður hjá San An-
tonio Spurs. er að ná sér að fúllu
af meiðslunum sem hann hlaut í
baki á síðasta ári. Hann hefur
æft mjög stíft undanfarið og ekki
| bara körfuna því nú er hann far-
inn að æfa tennis af miklum
krafti.