Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1987, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1987.
37
Sviðsljóðs
Að
—hljóta
—koss
-—er hnoss
---þótt gefandinn sé hross.
Það er þjálfarinn Bill Million sem undirbýr uppáhaldið sitt, Demons Begone, undir sitt eitt hundraðasta og þrettánda
kapphlaup á veðhlaupabrautinni Kentucky Derby í byrjun maí. Símamynd Reuter
Hjásvæfa Harts?
Allt virðist ætla upp i loft hjá vin-
um vörum vestra vegna þess að einn
forsetaframbjóðandinn þeirra hefur
ekki allt í röð og reglu i rúminu sinu.
Hvað karl gerir við rúmfatnaðinn er
ekki ennþá komið á forsíður þar-
lendra blaða en síðasti kvenmanns-
búkur sem þar er sagður hafa haft
viðdvöl þekur flesta dálka prentaðra
fjölmiðla - útvarp og sjónvarp láta
núna ekki sitt eftir liggja heldur.
Að sögn stórblaðsins Miami Herald
heimsótti ljóskan Donna Rice for-
setaefnið Gary Hart í aðsetur þess í
Washington DC og hafa nú demó-
kratar miklar áhyggjur af meintu
ástarsambandi þeirra tveggja. Bæði
þræta hressilega fvrir að standa í
nokkru slíku en sögusagnirnar hafa
vakið upp gamlar gróur sem fjalla
um fjöllyndi karlsins. Eiginkona
Harts hefur ekki gefið frá sér neina
yfirlýsingu um málið og Donna Rice
fer ekki fetið án lögfræðingsins
Thomas W. McAliev. Vont mál fyrir
Hart því kjósendur vestra sýna
stjórnmálamönnum sáralítið um-
burðarlyndi á þessu sviði.
Svíakóngur á fimmtugsaldri
Af svölum konungshallarinnar veifuðu Svíakóngsi og fjölskylda til þegn-
anna síðastliðinn fimmtudag - Karl Gústaf hafði þá einn um fertugt.
Hjónin Silvia og Karl Gústaf eru með barnungana þrjá á meðfylgjandi
Reutersmynd - fyrst er fjörkálfurinn Madeleine, þá Viktoria krónprins-
essa og Karl - Philip prins veifar glaðbeittur lengst til hægri.
Síðustu daga fer kvenmaðurinn ekki fetið án lögfræðingsins síns - Thomas
W. McAliey. Sá góði maður segir samband hennar við Hart „lauslegt og
ákaflega sérstakt“. Simamyndir Reuter
Fyrirsætan og leikkonan - Donna Rice - sést hér á veggspjaldi sem selst
nú grimmt vestra.
Ölyginn
sagði...
Superman
er mættur til leiks á ný á
breiötjaldinu í væntanlegri
kvikmynd um Superman IV.
Christopher Reeve varð
frægur um ómunatíð í hlut-
verki Supermans, hins
ráðagóða ofurmennis. Að
þessu sinni gengur baráttan
út á það að bægja hættunni
á kjarnorkustyrjöld frá. Su-
perman mætir þar erkifjanda
sínum, Lex Luthor, á ný. I
kvikmyndinni kemur fram
frómt föruneyti leikara á
borð við Gene Hackman,
Margot Kidder og Mariel
Hemingway.
Mick Jagger
Enn á ný hefur Mick Jagger
gefið út þá yfirlýsingu að
hljómsveitin hans, Rolling
Stones, sé að leggja upp
laupana. „Ég er orðinn
þreyttur á að reyna að halda
mannskapnum saman,"
segir Jagger sem hefur leitt
hljómsveitina síðastliðin
tuttugu og fjögur ár. Fyrst
og fremst snýst deilan um
Keith Richards sem Mick
segir að vilji stjórna öllu eftir
sínu höfði. Hermt hefur verið
að Mick sé þegar búinn að
stofna nýja hljómsveit.
Mick Jagger áformar nú
aðra sólóplötu sína og segist
vel geta hugsað sér að halda
áfram í þessum bransa, alla-
vega fram til fimmtugs en
hann er sjálfur fjörutíu og
þriggja ára og þer aldurinn
aðdáunarlega vel.
v-
Brigitte Niels-
en
hafnaði alfarið boði um að
leika í næstu mynd Stallo-
nes, Rocky III. Henni var
boðið hlutverk sjálfstæðrar
konu sem hefði áhuga á
villtum dýrum í frumskógi
Afríku, Eiginmaðurinn, Stall-
one, var ólmur í að hún tæki
hlutverkið að sér og fannst
ekkert við það að athuga að
þau skötuhjúin léku saman
í kvikmynd. En það var ann-
að upp á teningnum hjá
Brigitte því hún stóð á því
fastar en fótunum að hefja
sinn eigin leikferil fjarri
frægðarglampa eiginmanns-
ins. Málin standa því svo í
dag að enn er óráðið í hlut-
verkið.