Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1987, Page 3
FÖSTUDAGUR 15. MAl 1987.
21
Þjóðsögur hafa gengið manna á
milli frá aldaöðli, ekki síst sögur
af huldufólki sem verður til um-
fjöllunar á rás eitt á laugardags-
kvöld. En hvernig það litur út er
önnur saga.
RÚV, rás 1, laugardag
kl. 20.30:
Úr heimi
þjóðsagn-
anna
- Margt býr í þokunni
Næstu tíu laugardagskvöld kl.
20.30 verður endurflutt á rás 1
þáttaröð sem Ríkisútvarpið lét
gera árið 1985 og nefnist „Úr heimi
þjóðsagnanna“.
Leikkonurnar Anna Einarsdóttir
og Sólveig Halldórsdóttir taka fyrir
tíu efnisþætti íslenskra þjóðsagna
og sækja efnið að mestu í safn Jóns
Árnasonar en einnig til Sigurðar
Nordals og Einars Ólafs Sveinsson-
ar, auk þess sem nokkrar af þulum
Theodóru Thoroddsen verða flutt-
ar. Lesari með þeim Önnu og
Sólveigu er Arnar Jónsson en
Knútur R. Magnússon og Sigurður
Einarsson völdu tónlistina. Fyrsti
þátturinn á laugardaginn kemur
nefnist „Margt býr í þokunni" og
fjallar um huldufólkssögur.
RÚV, rás 1, kl. 14.30:
Ungir
norrænir
einleikarar
Sigrún Eðvaldsdóttir lék á tónleik-
um sem fulltrúi íslands í þáttaröð-
inni Ungir norrænir einleikarar i
Helsinki 11. nóvember í fyrra. Hún
byrjaði að læra á fiðlu aðeins 5 ára
gömul og lauk einleikaraprófi 15
ára frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík eftir nám hjá Guðnýju
Guðmundsdóttur.
Sigrún hefur, þrátt fyrir ungan
aldur, tekið þátt í mörgum tónlist-
arhátíðum og haldið tónleika bæði
á Norðurlöndunum og í Bandaríkj-
unum.
Vorið 1985 lék hún fiðlukonsert
Dvoráks með Sinfóníuhljómsveit
sænska útvarpsins í Stokkhólmi.
Alls staðar hefur hún hlotið mikið
lof gagnrýnenda fyrir leik sinn. Hér
á landi hefur hún leikið tvívegis
með Sinfóniuhljómsveitinni, 1983
og 1986.
Verkin, sem Sigrún leikur, ásamt
Selmu Guðmundsdóttur, eru Svíta
op. 123 eftir Christian Sinding,
Teikn eftir Áskel Másson og Poeme
op. 25 eftir Ernest Chausson.
RÚV, rás 1, kl. 16.20:
Dickie Dick Dickens
- leikrit í 12 þáttum
Sjónvarpið sunnudag
kl. 20.50:
Vímulaus
æska
Vikulegur flutningur framhalds-
leikrita hefst á sunnudaginn á rás
1 kl. 16.20 eins og verið hefur verið
undafarin sumur.
Að þessu sinni verður byrjað að
flytja gamanleikritið Dickie Dick
Dickens eftir Rolf og Alexöndru
Becker í þýðingu Lilju Margeirs-
dóttur og leikstjórn Flosa ðlafs-
sonar.
Leikritið, sem er í 12 þáttum, var
áður á dagskrá útvarpsins 1970 og
naut þá mikilla vinsælda.
Sögusviðið er Chigagoborg á
þriðja áratug aldarinnar þegar
harðskeyttir bófaflokkar réðu þar
lögum og lofum. Einn góðan veður-
dag berst út sú frétt eins og eldur
um sinu að nýr maður sé tekinn til
starfa á eigin vegum á umráða-
svæði Jim Coopers, foringja
stærsta bófaflokks borgarinnar.
Jim sárnar að vonum þetta ský-
lausa brot á óskráðum lögum um
einkarétt og afnot á eigum ann-
arra. Hann gefur því mönnum
sínum ströng fyrirmæli um að hafa
hendur í hári afbrotamannsins.
Þetta er byrjunin á langri viður-
eign hins snjalla Dicke Dick
Dickens og bófaflokks Jim Coo-
pers.
Leikendur í fyrsta þætti eru: Erl-
ingur Gíslason, sem leikur Dickie,
og Helgi Skúlason, sem leikur Jim
Cooper, Kristbjörg Keld, Klemenz
Jónsson, Benedikt Árnason, Ævar
R. Kvaran, Bessi Bjarnason, Gunn-
ar Eyjólfsson og Flosi Ólafsson.
Flosi Ólafsson leikstýrir Dickie Dick Dickens sem gerist á bannárunum
i Chicagoborg.
Bylgjan föstudag og laugardag:
Vímulaus æska
Bylgjuvaka fyrir vímulausa
æsku nefnist dagskrá sem hófst á
Bylgjunni kl. 10 í morgun og stend-
ur til miðnættis á laugardagskvöld-
ið. Þar verða þeir Hörður Arnarson
og Haraldur Gíslason á vakt og
ætla sér að standa hana í 38
klukkustundir.
Dagskráin verður á þá leið að
hlustendur. sem vilja styrkja sam-
tökin Vímulaus æska, velja sér lag
til spilunar og fyrir það borga þeir
300 krónur. Einnig geta þeir kevpt
sér lag. sem spilað verður á klukku-
stundar fresti. á 2000 krónur en
hægt verður að kaupa út lagið með
því að borga hærri fjárhæð fvrir
það. Peningarnir verða notaðir til
að gefa út bók. foreldrahandbók.
með upplýsingum og fræðslu um
vímuefni. Greiðslur má inna af
hendi á gíróreikninga. kreditkorta-
þjónustu má einnig nota og svo er
fólki frjálst að koma á Snorra-
brautina og staðgreiða.
Starfshópurinn tónlistarmenn
fyrir vímulausa æsku gefur einnig
út mjög áhugaverða plötu í dag til
styrktar starfi samtakanna. Margir
islenskir tónlistarmenn koma við
sögu á plötunni en þeir sem starfað
hafa einna mest eru þeir Jón Gú-
stafsson og Herbert Guðmundsson.
í dag kl. 15 mætir í útvarpssal
Bylgjunnar Arnar Jensson lög-
regluvarðstjóri sem hefur mikið
látið sig þessi mál varða og svarar
fyrirspurnum hlustenda um ein-
kenni vímuefnaneyslu og fleiri mál.
einnig 1
sjónvarp-
inu
Sjónvarpið tekur einnig í taumana
varðandi vímulausa æsku með
þætti sem Jón Gústafsson tekur að
sér að stjórna á sunnudagskvöld. I
þættinum, sem er klukkustundar
langur, verður fjallað um starfsemi
samtakanna og hverju þau hafa
fengið áorkað til þessa, svo og um
bæklinginn sem gefinn verður út
sem foreldrahandbók. Einnig verð-
ur rætt við fólk sem fengist hefur
á einn eða annan hátt við þessi
brýnu mál.
Stöð 2 sunnudag kl. 21.00:
íslendingar
erlendis
- Systa og Óli
Flestir íslenskir ferðamenn, sem
hafa lagt leið sína til New York.
kannast við Svstu og Óla. Þau hafa
búið i Bandaríkjunum síðastliðin
25 ár og rekið þar gistiheimili fvrir
íslendinga um árabil. Mörg hundr-
uð íslendinga hafa notið gestrisni
Svstu og Óla. sem heita fullu nafni
Gerður Thorberg og Ólafur Jóns-
son. á heimili þeirra hjóna nálægt
Kennedvflugvelli.
Hans Kristján Árnason heimsótti
þau hjónin í apríl síðastliðnum og
spjallaði við þau um líf þeirra og
störf.
Eldri sonur Systu. Steinar - kall-
aður Þór- rekur þjónustufyrirtæki
á Manhattan og skipuleggur meðal
annars skemmtiferðir á helsu di-
skótek og næturklúbba borgarinn-
ar. Hann er um þessar mundir að
undirbúa hópferðir um New York
í samvinnu við sölustjóra Flug-
leiða. Einar Gústavsson. Yngri
sonurinn. Jóhannes. starfar hjá
Flugleiðum á Kennedvflugvelli.
Hans Kristján röltir með þeim
bræðrum að næturlagi um New
York og líta þeir inn á diskótek
og næturklúbba.
RÚV, rás 2, kl. 15.00:
Tónlistarkrossgátan
Jón Gröndal leggur tónlistarkrossgátuna, sem að þessu sinni er sú
sjötugasta og áttunda i röðinni, fyrir hlustendur rásarinnar á sunnudag-
inn.
Lausnir sendist til Rikisútvarpsins, rásar 2, Efstaleiti 1, 108 Reykjavík,
merkt Tónlistarkrossgátan.
Þær Hedda Hooper og Louella Parsons settu svip á Hollywood hér á
árum áður með góðum slúðurfréttum af fræga fólkinu.
Sjónvarpiö laugardag kl. 21.10:
Óhræsi
í Undralandi
- um slúðurdálkahöfunda
Bandaríska sjónvarpsmyndin
með Elísabetu Tavlor, Jane Alex-
ander og Richard Dysart, sem
nefnist Óhræsi í Undralandi, verð-
ur á sjónvarpsskjánum á laugar-
dagskvöldið.
Myndin er um slúðurdálkahöf-
undana Louellu Parsons og Heddu
Hooper sem settu svip á Hollywood
hér á árum áður. Þessar æskuvin-
konur, sem áttu oft í erjum um
ævina, mæla sér mót og rifja upp
liðin ár en það verður aðeins til
að ýfa upp sárin.