Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1987, Blaðsíða 8
30
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1987.
Þá er öndin Hávarður búin að
sigra á listanum og það aðeins í
tveim stökkum. Það er nú ansi
vel af sér vikið hjá þessari ferða-
önd sem virðist ætla að falla
videosjúklingum betur i geð en
kvikmyndasjúklingum. Ný mynd
skýst í 2. sæti en myndin A Breed
Apart með Rutger Hauer dettur
niður um átta sæti.
Manhattanþættirnir falla
greinilega vel í geð og eru nú
komnir í 1. sæti þáttalistans en
enn eiga eftir að koma út þrír
þættir úr röðinni. Þá eru þættirn-
ir um sterku lyfin komnir aftur
inn á listann - greinilega efni sem
er okkur íslendingum hugleikið.
-SMJ
DV-LISTINN
★★V2
_________MYNDIR_________
1. (4)Howard
2. ( -)Wanted Dead or Alive
3. ( 2)Armed and Dangero-
us
4. ( 6)Out of Bounds
5. ( 3)Extremities
6. ( 5)Enemy Mine
7. ( 8)Nightmare on Elm.
St.ll
8. ( 1)A Breed apart
9. (10)Pretty in Pink
ÞÆTTIR
1. ( 3)l’ll Take Manhattan
2. ( 2)The Great Bookie
Robbery
3. ( 2)Anna í Grænuhlíð
4. ( -JStrong Medicin
5. ( 5)Pirates
BANDARÍKIN
1. AIiens
2. Pretty in Pink
3. Wamp
4. Armed Responce
5. Poltergeist
6. That Was then, This
Is now
7. Nightmare on Elm. St.ll
8. Grandview USA
9. Fire with Fire
Af eggjakösturum
A BREED APART
Útgefandi: JB myndbönd.
Framleiðendur: John Daly og Derek Gibson. Handrit: Paul Wheeler.
Aðalhlutverk: Rutger Hauer, Powers Boothe, Kathleen Turner og Donald
Pleasence.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Jim Madens er ansi sérvitur á alla lund enda hefur hann
orðið að ganga í gegnum eitthvað á stuttri ævi. Hörmungar
Víetnamstríðsins og fjölskyldumissir hafa gert hann að miklum
einfara sem hefst aðallega við á eyju einni sem hann á. Á eyju
þessari verpir fágætt arnarpar og gætir Maiden þess eins og
sjáaldur auga síns. Auðmaður nokkur að nafni Wittier hefur
mikinn áhuga á eggjum þessum í safn sitt og fær frægan fjall-
göngumann til að ræna eggjunum. Síðan fléttast ást og
rómantík inn málin.
Rutger Hauer (Blade Runner, The Ostermann Weekend, Blo-
od and Flesh og The Hitcher) virðist vera orðin einn vinsælasti
leikari vestanhafs. Þegar þarf á leikurum að halda, er geta
brugðið sér líki þögla einfarans sem eirir engu, er hann kallað-
ur til. Þetta kostar miklar kvalir fyrir þá sem ekki þola Hauer
en þó verður að segjast eins og er að hann getur allt eins gert
þessum hlutverkum skil og menn sem bera nafnið Schwarzen-
egger og Stallone. Vissulega er ekki um fjölskrúðugan karakter
að ræða þar sem Jim Maden er en hann sleppur fyrir hom.
Kathleen Turner er ein athyglisverðasta leikona okkar tíma
og átti hiklaust að fá óskarinn fyrir Peggy Sue. Þessi mynd
verður að teljast hliðarspor hjá þeirri ágætu konu. Boothe er
hin þokkalegasti leikari þó hann hafí aldrei fengið mikið að
gera. Söguþráðurinn virðist fremur fráhrindandi í fyrstu en
eigi að síður hefur tekist að sjóða saman þokkalega spennufrá-
sögn er gengur sæmilega upp. Allt í þessari mynd er gert af
þolanlegri vandvirkni en þó virðist skorta eitthvað á að mynd
þessi lifi í minningunni.
-SMJ
Guikl Home Vklco
m |ii ill fi iM lVI >i I jíAlvTJ
Raudur
Ovimr
verða vinir
kverikostur
RED SONJA
Útgefandl: Háskólabió.
Framleióandi: Dino de Laurentiis og Christian
Ferry. Tónlist: Ennio Morricone. Leikstjóri: Richard
Fleischer. Aðalhlutverk: Birgitte Nielsen, Sandahl
Bergman, Paul Smith, Ronald Lacey og Arnold
Schwarzenegger.
Bönnuð yngri en 12 ára.
Á forsögulegum tímum var ýmislegt
skemmtilegt að gerast. Seiðkonur, sverða-
menn, skrímsli, forynjur, hetjur, kóngar og
drottningar voru í aðalhlutverkum þessarar
furðuveraldar sem aldrei var til. Hér segir
frá kvenkosti einum miklum, Rauðu-Sonju
sem á engan sinn líka í sverðfimi. Hún reyn-
ir með aðstoð nokkura félaga sinna að
bjarga heiminum frá tortímingu um leið og
hún hefnir systur sinnar.
Þeir sem höfðu gaman af myndum
Schwarzeneggers um villimanninn Conan
ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í þess-
ari mynd enda er hún ótrúlega keimlík
Conan-myndunum. Það kemur þó líklega
ekki til af góðu heldur er varla hægt að
fjalla um þetta efni af nokkru viti. Hér er
um ævintýri að ræða og varla meira um það
að segja. Þó er ekki hægt að neita því að
margt hefði mátt gera betur í þessari mynd.
Efnið hlýtur að mestu að höfða til áhorf-
enda af yngri kynslóðinni og hefði átt að
taka tillit til þess með því að minnka of-
beldið. Frammistaða leikara er eins og við
var að búast. Þau Birgitte og Arnold verða
seint talin til skapgerðarleikara og gera
greinilega ekki kröfu til þess.
-SMJ
ENEMY MINE
Útgefandi: CBS/Steinar
Framleiðandi: Stephen Friedman
Leikstjóri: Wolfgang Petersen
Handrit: Edward Khmara
Aöalhlutverk: Dennis Quaid, Louis Gossett jr.
Bönnuð yngri en 16 ára
Þetta er myndin sem þyrlaði upp nokkru
moldviðri á Islandi. Eftir að tökur höfðu stað-
ið hér yfir í nokkum tíma hljóp allt í baklás.
Leikstjórinn var rekinn og Wolfgang Petersen
tók að sér að bjarga því sem bjargað varð í
stúdíói í Þýskalandi.
Wolfgang Petersen tókst ágætlega upp í
Never Ending Story, hliðarspori eftir hina
stórkostlegu mynd Das Boat. Enemy Mine
• rær á svipuð mið og Sagan endalausa. Ævin-
týri gerast enn, að minnsta kosti í vísinda-
skáldsögum. Jarðarbúar eiga í stríði við
sérstaka drekategund. Dennis Quaid leikur
liðsforingja sem nauðlendir á óþekktri plá-
netu eftir loftbardaga við drekana. Einn
drekanna verður líka strandaglópur á sömu
plánetu. Þar er Louis Gossett jr. á ferð undir
þykku lagi af andlitsfarða. Maðurinn og drek-
inn eru í fyrstu svamir óvinir. En smám
saman rennur upp fyrir þeim að þeir eru í
raun á sama báti. Óvinirnir verða vinir.
Vinátta er yfir höfuð nokkurs verð. Sagan
að Enemy Mine er aftur á móti af ódýrara
taginu og ber myndin þess verulega merki.
Dennis Quaid og Louis Gossett lita út eins
og strandaglópar í orðsins fyllstu merkinu.
★ !/2
Köld kvennaráð
CAMORRA
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Lina Wertmuller. Aóalhlutverk: Angele
Molina, Harvey Keitel og Francisco Rabal.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Camorra er eitt af þeim nöfnum sem maf-
ían gengur undir á Italíu. Mynd þessi hefst
á því að einn af aðalmönnum mafíunnar í
Napólí er myrtur í þann mund er hann ætl-
ar að nauðga Anzuette sem er ein af
aðalpersónum myndarinnar. Hér er greini-
lega um hefndarvíg að ræða og það getur
mafían auðvitað ekki liðið. Því er mafíunni
mjög í mun að upplýsa morðið en þegar
fleiri af æðstu mönnum hennar eru myrtir
vandast málin. Lögreglan er auðvitað alveg
jafnráðalaus.
Það hefur löngum verið sagt að mafian
sé nokkurs konar krabbamein í ítölsku þjóð-
lífi og þessi mynd styður það. Það er hins
vegar annmarki á myndinni hve illa gengur
að koma til skila alltumlykjandi yfirdrottn-
un mafíunnar. Þar er líklega um að kenna
heldur lélegu handriti með illa skrifuðum
hlutverkum. Á söguhetjur er klínt sterkum
einkennum sem allt of oft falla ekki saman.
Fléttan í sögunni er hins vegar átakanleg
og hefði vissulega átt að gefa tilefni til
sterkrar umfjöllunar. Hefnd kvennanna er
grimmileg en á að fullu samúð áhorfenda.
-SMJ
Leikrit
Iþróttir
Hryllingsmynd
0
Gamanmynd
Barnamynd
Eftir stendur þokkalega útlítandi stúdíósvið
ásamt heilum skipsfarmi af drekagervum. Og
svo auðvitað sagan af hamförunum við gerð
myndarinnar.
Aðstandendur myndarinnar létu hafa eftir
sér að allri fihnu frá tökum á íslandi hafi
verið hent. Engu að síður skal fullyrt að
Quaid sést nokkrum sinnum í myndinni labba
eftir okkar eftirsóttu óbyggðum. Islandsferðin
var þá ekki alveg til einskis. -ÞJV
0
Fullorðinsmynd
Hasarmynd
O
Ástarsaga
Visinda-
skáldsaga
Fjölskyldumynd
O
Annað