Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1987, Page 4
22
Messur
Guðsþjónustur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sunnudaginn 17.
maí1987
Arbæjarprestakall
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju kl. 11.00
árdegis. Organleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
Áskirkja
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ámi Bergur
Sigurbjömsson.
Breiðholtsprestakali
Guðsþjónusta í Breiðholtsskóla kl. 14.
Organisti Daníel Jónasson. Sr. Gísli
Jónasson.
Bústaðakii'kja
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Guðni
Þ. Guðmundsson. Æskulýðsfélagsfund-
ur þriðjudagskvöld. Félagsstarf aldr-
aðra miðvikudagseftirmiðdag. Sr.
Ólafiir Skúlason.
Digranesprestakall
Messa kl. 14.00 í Kópavogskirkju. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan
Messa kl. 11. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Dómorganistinn leikur á orgel kirkj-
unnar í 20 mín. fyrir messuna.
Elliheimilið Gi-und
Guðsþjónusta kl. 14. Ástráður Sigur-
steindórsson guðfræðingur prédikar.
Sr. Jón Isfeld þjónar fyrir altari. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
Fella- og Hólakirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Sr. Hreinn
Hjartarson.
Fríkirkjan i Reykjavík
Bamaguðsþjónusta kl. 11. Skfrn. Guð-
spjallið í myndum. Smábamasöngvar
og bamasálmar. Afmælisböm boðin
sérstaklega velkomin. Framhaldssaga.
Við píanóið Pavel Smid. Guðsþjónusta
kl. 14. Fermd verður Aníta Rut Ás-
mundsdóttir, Lækjarási 4, Reykjavík.
Altarisganga. Fríkirkjukórinn svngur
undir stjóm organistans. Kvenfélags-
kaffi í Oddfellow-húsinu að lokinni
messu.
Mánudagur 18. maí: Tónleikar í Frí-
kirkjunni kl. 20.30. Félagar í Alouette-
tríóinu frá New York leika tónlist eftir
Telemann, Hovaness, de Boismortier,
Persichetti og Gordon Jacob. Stella
Amar leikur á óbó og enskt hom og
Andrew Cordle á fagott. Leikið verður
á celló í einu verkanna. Sr. Gunnar
Bjömsson.
Grensáskirkja
Messa kl. 11.00. Organisti Ámi Arin-
bjamarson. Aðalfundur Grensássóknar
verður mánudaginn 18. maí í safnaðar-
heimilinu kl. 18. Sr. Halldór S. Gröndal.
Hallgrímskirkja
Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárus-
son. Þriðjudagur: Fyrirbænamessa kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Landspítalinn
Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman.
Háteigskirkja
Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson.
Kaffisala kvenfélagsins verður í Domus
Medica kl. 15.
Borgarspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Sigfinnur Þor-
leifsson.
Kársnesprestakall
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.
Sr. Ami Pálsson.
Langholtskirkja
Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. (Vinsamlegast athugið
breyttan messutíma.) Prestur sr. Sig.
Haukur Guðjónsson. Organisti Jón
Stefánsson. Sóknamefndin.
Laugameskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Altarisganga (Ath.
sumartími.) Þriðjudagur: Bænaguðs-
þjónusta kl. 18. Sóknarprestur.
Neskirkja
Laugardagur: Félagsstarf aldraðra.
Lagt af stað í Keflavíkurferðina kl.
11.30, frá kirkjunni. Sunnudagur:
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Þriðjudagur og
fimmtudagur: Opið hús fyrir aldraða
kl. 13-17. Miðvikudagur: Fyrirbæna-
messa kl. 18.20. Sr. Guðmundur Óskar
Ólafsson.
Seljasókn
Guðsþjónusta í Ölduselsskóla kl. 11
(ath. breyttan messutíma). Prestur sr.
Gylfi Jónsson. Organisti Ólafur Finns-
son.
Seltjarnameskh-kja
Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. (Ath.
breyttan messutíma). Organisti Sig-
hvatur Jónasson. Prestur Solveig Lára
Guðmundsdóttir.
Safnaðarráð Reykjavíkurprófasts-
dæmis.
Aukafundur verður í safnaðarheimili
Bústaðakirkju sunnudag 17. maí kl.
18.00. Dómprófastur.
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1987.
Verk Þórdísar A. Sigurðardóttur eru
Skúlptú:
Þórdís A. Sigurðardóttir opnar
sýningu á verkum sínum í Gallerí
Gangskör á morgun, laugardag, kl.
14.00 þar sem hún heldur fyrstu
einkasýningu sína en hún hefur
tekið þátt í nokkrum einkasýning-
um hér á landi áður. Síðastliðið ár
hefur hún unnið mikið í vír og sýnt
Árlegir vortónleikar
Samkórs Kópavogs
Hinir árlegu tónleikar Samkórs
Kópavogs verða haldnir í Kópa-
vogskirkju laugardaginn 16. maí
kl. 17.00.
Fjölbreytt efnisskrá verður að
mestu bundin íslenskum lögum.
gömlum og nýjum, auk erlends létt-
metis. Kórinn hefur á að skipa 35
syngjandi mönnum og hefur hann
starfað nær óslitið í 20 ár.
Stjórnandi kórsins er Sigurður
Pétur Bragason og einsöngvarar
eru Guðjón Grétar óskarsson og
Stefán Arngrímsson. Undirleikari
er Þóra Fríða Sæmundsdóttir.
Samkór Kopavogs syngur að mestu islensk log en með fær að fljota erlent léttmeti.
Gunnsteinn Gíslason á Kjarvalsstöðum
Gunnsteinn Gíslason mynd-
höggvari opnar sýningu á morgun,
laugardag, að Kjarvalsstöðum.
Myndirnar eru múrristur sem er
þekkt veggmyndatækni er notuð
hefur verið líkt og alfresco-mvnda-
gerð allt frá miðöldum.
Uppistaðan í múrristum er fin-
mulinn hvítur marmari, kalk og
sérstakir steinlitir sem notaðir eru
í steypuhræruna. Þannig eru mis-
munandi lituð múrlög lögð hvert
yfir annað og endað á ljósum lit.
Myndin er síðan skorin fram með
beittum hnif og litir og form skorin
fram.
Að loknu fjögurra ára námi við
Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands á árunum 1963-1967 lagði
Gunnsteinn stund á nám f vegg-
skreytingum og glerhönnun við
Edinburgh College of Art og lauk
náminu með BA gráðu 1969. 1972
til 1975 stundaði Gunnsteinn fram-
haldsnám við Konstfackskolan í
Stokkhólmi.
Fyrstu einkasýningu sína á múr-
ristum hélt Gunnsteinn á Kjarvals-
stöðum 1982 en hann hefur
jafnframt tekið þátt í fjölda sam-
sýninga heima og erlendis, nú
síðastliðið haust í Edinborg.
Eftir Gunnar eru veggskreyting-
ar í opinberri eigu meðal annars
lijá Reykavíkurborg, Ólafsvíkur-
kaupstað, Listasafni Kópavogs, svo
og í sérkennaraháskólanum í Bær-
um í Noregi.
Gunnsteinn hefur gegnt ýmsum
störfum í samtökum myndlistar-
manna og var formaður Sambands
íslenskra myndlistarmanna 1984 til Sýningu Gunnsteins lýkur svo
1986. sunnudaginn 31. maí.
Uppistaðan í múrristum
litir.
kalk og sérstakir stein-
Kirkja Óháða safnaðarins
Guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Sr.
Þórsteinn Ragnarsson.
Fríkirkjan í Hafnarfhði
Guðsþjónusta kl. 14. Þeir sem á þessu
vori minnast 50 ára fermingarafrnælis
mæta til guðsþjónustu. Sr. Einar Eyj-
ólfsson.
Akraneskirkja
Messa kl. 10.30. Organisti Jón Ólafur
Sigurðsson. Sr. Guðmundur Öm Ragn-
arsson.
Fermingar
Stokkseyrarkirkja
Fermingarbörn sunnudaginn 17. maí kl. 11.
Arnheiður Helga Ingibergsdóttir, Lyngheiði
Hulda Ósk Guðmundsdóttir, Eyrarbraut 7
Ingibjörg Jónsdóttir, Holti III
RagnheiðurJónsdóttir, Iragerði 15
Arnór Alexandersson, Austurbrún
Hákon Jens Pétursson, Keldnakoti
Hlynur Gylfason, Sæbakka
Vernharður Reynir Sigurðsson, Holti II
Fríkirkjan
Sunnudaginn 17. maí kl. 14.00 verður ferming i Fri-
kirttjunni í Reykjavík.
Fermd verður Aníta Rut Asmundsdóttir, Lækjarási
4, Reykjavík.
Ferðalög
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístundahóps-
ins Hana nú í Kópavogi verður á morgun,
laugardaginn 16. maí. Lagt verður af stað
frá Digranesvegi 12 kl. 10. Takmark
göngunnar er samvera, súrefni, hreyfing.
Einfalt frístundagaman fyrir unga og
aldna. Góður félagsskapur. Nýlagað mola-
kaffi.
Ferðafélag Islands
Dagsferðir sunnudaginn 17. maí:
1. kl. 9 Skarðsheiði - Heiðarhorn (1051
m). Ekið sem leið liggur í Svínadal og
lagt upp á fjallið frá Hlíðartúni eða Eyri.
Verð 800 kr.
2. kl. 13 Selfjall - Háafell - Botnsdalur.
Gengið frá Litla Botni í Hvalfirði upp með
Selá. Verð kr. 600. Brottför frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Helgarferð 22.-24. maí: Þórsmörk - Eyja-
íjallajökull. Gist i Skagfjörðsskála/
Langadal. Gengið yfir Eyjaíjallajökul og
komið niður hjá Seljavallalaug. Upplýs-
ingar á skrifstofu Ferðafélagsins.
Útivistarferðir
Sunnudagur 17. maí.
Kl. 10.30 Brennisteinsfjöll - Kistufell.
Gengið frá Grindaskörðum að brenni-
steinsnámunum og gígnum Kistufelli og
þaðan suður fyrir Kleifarvatn. Fjölbreytt
gönguleið á miklu eldsumbrotasvæði.
Verð 600 kr.
Kl. 13 þjóðleið mánaðarins: Lækjarvellir
- Ketilstígur - Krísuvík. Gamla þjóðleið-
in frá Djúpavatni yfir Ketilstíg í Sveiflu-
hálsi að hverasvæðinu Krísuvík. Létt
ganga. Verð 600 kr. Frítt fyrir börn með
fullorðnum. Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
Helgarferðir 22.-24. maí: Þórsmörk og
Eyjafjallajökull-Seljavallalaug. Sumar-
leyfí í Utivistarskálunum Básum, Þórs-
mörk. Pantið tímanlega fyrir sumarið.
Kvöldferð miðvikudag 20. maí kl. 20. Ótt-
arsstaðir-Lónakot. Létt ganga vestan
Straumsvíkur. Sjáumst.
Tilkynningar
Söngfélag Skaftfellinga
heldur sína árlegu vortónleika í Lang-
holtskirkju laugardaginn 16. maí og
hefjast þeir kl. 17. Á efnisskrá verður fjöl-
breytt lagaval bæði eftir innlenda og
erlenda höfunda. Stjórnandi kórsins er
Wioleta Smidova og undirleikari er Pavel
Smid.
Húnvetningafélagið
í Reykjavík
heldur aðalfund sinn mánudaginn 18. maí
’87 kl. 20 í heimili félagsins, Skeifunni 17.
Venjuleg aðalfundarstörf. Nýir félagar
velkomnir.
Blásarakonsert í Fríkirkjunni
Mánudagskvöldið 18. maí kl. 20.30 verður
blásarakonsert í P>íkirkjunni í Reykjavík.
Félagar úr Alouette-tríóinu frá New York
leika verk eftir Telemann, Hovaness, de
Boismortier, Percichetti og Gordon Jacob.
Flytjendur eru þau Stella Amar, sem leik-
ur á óbó og enskt horn, og Andrew Cordle,
sem leikur á fagott. í einu verkanna leikur
sr. Gunnar Björnsson með á selló. Stella
Amar og Andrew Cordle leika í Sinfóníu-
hljómsveitinni í Springfield, Massachu-
setts. Tónleikarnir eru á vegum banda-
ríska sendiráðsins og listamannanna
sjálfra.
Ályktun
Bæjarstjórn Ólafsvíkur lýsir yfir miklum
áhyggjum með.ástand vega frá Fróðár-
heiði til Reykjavíkur. Vegir á þessari leið
eru nú stórskemmdir vegna of mikils öxul-
þunga og sívaxandi fiskflutninga frá
höfnum á utanverðu Snæfellsnesi. Bæjar-
stjórn vill benda á að Fróðárheiði tengir
saman heilsugæslusvæði Ólafsvíkurlækn-
ishéraðs. Með sama ástandi vega á þessu
svæði er stórhætta á byggðaröskun á ut-
anverðu Snæfellsnesi. Bæjarstjórn Ólafs-
víkur skorar á samgönguráðherra og
ríkisstjórn íslands að útvega nægjanlegt
fjármagn svo lagfæring og uppbygging
þjóðvegarins um Fróðárheiði geti hafist
nú þegar og eðlilegt vegasamband komist
á á milli byggða á utanverðu Snæfelfsnesi
og til Reykjavíkur.
Þurrblómaskreytingar í
bókasafni Kópavogs
í Listakrubbu bókasafns Kópavogs stend-
ur yfír sýning á þurrskreytingum eftir
Öldu Guðmundsdóttur. Á sýningunni, sem
stendur til 23. maí, eru 32 myndir sem
unnar eru með íslenskum og erlendum
blómum og stráum sem Alda hefur ýmist
ræktað sjálf eða tínt úti í náttúrunni. Sýn-
ingin er opin á sama tíma og bókasafnið
mánudaga til föstudaga kl. 9^-21.
Kaffisala Kvenfélags
Háteigssóknar
Á sunnudag kl. 15 hefst kaffisala Kvenfé-
lags Háteigssóknar í Domus Medica við
Egilsgötu. Auk frábærra, aðlaðandi og
girnilegra veitinga mun Hrönn Hafliða-
dóttir óperusöngvari syngja við undirleik
föður síns, Hafliða Þ. Jónssonar píanóleik-
ara.
Sýning í Menningarstofnun
Bandaríkjanna
Anna Fugora sýnir collage myndverk í
sýningarsal Menningarstofnunar Banda-
ríkjanna að Neshaga 16. Myndirnar eru
allar nýjar, um 20 talsins og eru til sölu.
Sýningin er opin daglega frá kl. 9 17.30. Á
fimmtudögum er opið til kl. 20. Um helgar
kl. 14-22. Sýningin stendur til 26. maí.
Kvenfélagskaffi Fríkirkjunnar í
Oddfellowhúsinu
Sunnudaginn 17. maí, verður barnaguðs-
þjónusta í Fríkirkjunni í Reykjavík og
hefst hún að vanda kl. 11. Kl. 14 sama dag
verður guðsþjónusta í kirkjunni. Safnað-
arprestur predikar og þjónar fyrir altari
en Fríkirkjukórinn syngur undir stjórn
organistans, Pavel Smid. Fermd verður
Aníta llut Ásmundsdóttir, Lækjarási 4,
Reykjavík. Að lokinni messu bjóða kven-
félagskonur eldri kirkjugestum til kaffi-
drykkju í Oddfellowhúsinu. Velunnarar
Fríkirkjunnar eru hvattir til að mæta.
Kaffidrykkjan hefst klukkan rúmlega
þrjú.