Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1987, Síða 5
FOSTUDAGUR 15. MAl 1987.
aðallega úr járni, steinsteypu, pappa og lituð.
Gallerí Gangskör:
rsýning Þórdísar
þau verk í Gallerí Gangskör en
Þórdís er einn af stofnfélögum
Gangskarar.
Þórdís stundaði nám í Mynd-
lista-og handíðaskóla íslands á
árunum 1980 til ársins 1984 og út-
skrifaðist þaðan úr myndmótunar-
deild. Veturinn 1985 til 1986 nam
hún við Akademie der Bildeden
Kúnste í Múnchen.
Flest verk Þórdísar á sýningunni
eru unnin á þessu ári. Þau eru
aðallega úr járni, steinsteypu,
pappa og lituð.
Menningarstofnun Bandaríkjanna:
Anna Fugaro sýnir
litríkar myndir
Anna Fugaro opnaði í gær sýn-
ingu á collagemyndverkum sínum
í sýningarsal Menningarstofnunar
Bandaríkjanna að Neshaga 16.
Hún sýnir þar yfir 20 myndverk,
öll unnin á þessu ári og eru þau
öll til sölu. Anna hefur haldið
nokkrar sýningar hér á landi, þar
á meðal í Hlaðvarpanum fyrir ári.
Þar sýndi hún og mun sýna nú lit-
ríkar blómamyndir, erótískar
myndir og myndir úr daglega lífinu.
Sýningin er opin daglega frá kl.
9.00 til kl. 17.30 og um helgar er
opið frá kl. 14.00 til 22.00. Lista-
konan mun sjálf vera á staðnum frá
kl. 14.00. Sýningunni lýkur þriðju-
daginn 26. maí kl. 17.30.
Samkór Trésmiðafélags
Reykjavíkur
heldur sína árlegu vortónleika í Lang-
holtskirkju sunnudaginn 17. maí kl. 16. Á
efnisskránni eru bæði innlend og erlend
lög. Söngstjóri er Guðjón Böðvar Jónsson
og undirleikari Lára Rafnsdóttir. Kórinn
er nú að ljúka sinu 15. starfsári. Þann 26.
þ.m. heldur kórinn til Svíðþjóðar og tekur
þátt í 40 ára afmælissöngmóti Sambands
sænskra verkalýðskóra sem haldið verður
í Stokkhólmi um næstu mánaðamót.
„Við erum rétt að byrja“
Flokkur mannsins heldur baráttufund i
Tónabíói laugardaginn 16. maí kl. 14 með
öllum þeim sem eru fylgjandi stefnu
ílokksins til þess að leggja drög að framtíð-
arstarfi hans og hvernig við getum stuðlað
að því að flokkurinn fái fulltrúa á þing í
næstu kosningum. Fundurinn í Tónabíói
er upphaf fundarherferðar sem verður um
allt land í sumar og munu allir bera yfir-
skriftina „Við erum rétt að byrja“.
Hjálpræðisherinn.
Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30, helgun-
arsamkoma á sunnudag kl. 11 og norsk
þjóðhátíð um kvöldið kl. 20 með veiting-
um. Ofursti Gotfred Runar og frú Liv frá
Noregi syngja og tala. Allir velkomnir.
17. maí þjóðhátíðardagur
Norðmanna
17. maí verður að venju haldinn hátíðlegur
hér á íslandi. Byrjað verður á athöfn í
Fossvogskirkjugarði kl. 9.30 þar sem lagð-
ur verður blómsveigur að minnismerkinu
um fallna Norðmenn. Skemmtidagskrá
fyrir börn og fullorðna hefst svo í Norræna
húsinu kl. 10.30. Þar verður skrúðganga
og með í för verður Skólahljómsveit Kópa-
vogs undir stjórn Björns Guðjónssonar.
Allir eru velkomnir. Kl. 19 verður svo
ekið frá Norræna húsinu að veitingahús-
inu A. Hansen í Hafnarfirði en þar verður
kvölddagskrá á vegum Nordmannslaget.
Ungir norrænir einleikarar:
Timo Kohoren
Fjórðu og næstsíðustu tónleikar
í tónleikaröðinni Ungir norrænir
einleikarar verða sunnudagskvöld-
ið 17. maí kl. 20.30 í Norræna
húsinu.
Þá leikur finnski gítarleikarinn
Timo Korhonen verk eftir Bach,
Ginastera, Moreno Torroba, L.
Brouwer og fleiri.
Timo Korhonen er fæddur 1964.
Hann byrjaði að læra á gítar níu
ára gamall en 1980 hóf hann nám
við Síbeh'usarakademíuna og út-
skrifaðist þaðan með mjög góðum
vitnisburði 1986. Hann hefur einn-
ig sótt tíma hjá mörgum þekktum
gitarleikurum og má þar nefna O.
Ghiglia, K. Ragossnig, J. Tomás,
Hopkinson Smith, Leo Brouwer og
H. Schiff.
Korhonen hlaut verðlaun fyrir
gitarleik í alþjóðlegri tónlistar-
keppni í Múnchen 1982, yngstur
allra keppenda sem hafa tekið þátt
í slíkri keppni. Árið 1986 hlaut
hann þriðju verðlaun í alþjóðlegri
gítarkeppni í Havanna. Hann fékk
Timo Korhonen
auk þess sérstök verðlaun fyrir
túlkun sína á suðuramerískri tón-
list og formaður dómnefndar, Leo
Brouwer, verðlaunaði hann sérs-
taklega. Timo Korhonen hefur
haldið marga tónleika bæði í
Finnlandi, í Evrópu og Suður-
Ameríku.
Síðustu tónleikar í þessari tón-
leikaröð verða föstudaginn 22. maí
kl. 20.30 en þá leikur Sigrún Eð-
valdsdóttir á fiðlu við undirleik
Selmu Guðmundsdóttur á píanó.
Kvikmyndir eftir
skáldsögum Hamsuns
Kvikmyndasýningar verða á
vegum Norræna hússins í dag.
föstudag, og á morgun, laugardag.
Hér er um að ræða kvikmyndir,
gerðar eftir skáldsögum Knuts
Hamsun og verða þær sýndar í
Norræna húsinu og Regnboganum.
í dag kl. 17.00 verður sýnd kvik-_
myndin Sultur i Regnboganum. í
aðalhlutverkum er Per Oscarsson
og í öðrum hlutverkum eru meðal
annars Gunnel Lindblom. Birgitte
Federspiel og Oswald Helmuth.
Myndin er gerð árið 1965 í sam-
vinnu Dana, Norðmanna og Svía.
Leikstjóri er Henning Carlsen en
handritið er eftir Per Seeberg.
Pan nefnist myndin sem sýnd
verður á laugardag í Regnbogan-
um.
Mvndin er gerð árið 1962.1 aðal-
hlutverkum eru Jarl Kulle. Bibi
Andersson. Liv Ullman. Allan Ed-
vall og Claes Gill. Leikstjóri er
Bjarne Henning-Jensen.
Norræna félagið. Almenna bóka-
félagið og norski sendikennarinn
standa að þessum sýningum ásamt
Norræna húsinu.
Neskirkja -
félagsstarf aldraðra
Á morgun, laugardaginn 16. maí, verðu
farið i stutta ferð til Kefiavíkur. Brottfö
frá kirkjunni kl. 11.30. Upplýsingar o
skráning hjá kirkjuverði í síma 16783 mill
kl. 17 og 18 í dag.
Leikhúsið í kirkjunni
Aukasýningar á Kaj Munk sunnudagiiir
17. maí kl. 16 og mánudaginn 18. mai kl
20.30. Allra siðustu sýningar. Miðapant
anir allan sólarhringinn í síma 14455
Miðasala hjá Eymundsson, sími 18880, oj
í Hallgrímskirkju sunnudaga frá kl. 13 Oj
mánudaga frá kl. 16 og á laugardögum kl
14-17.
Alþýðuleikhúsið
„Eru tigrisdýr í Kongo?“. Sýning á laug
ardag kl. 16. Miðapantanir eru í síma 1134'
í Kvosinni og í síma 15185 tekur sjálf
virkur símsvari við pöntunum allai
sólarhringinn.
Leikfélag Akureyrar
Sýning á Kabarett föstudag og laugarda;
kl. 20.30. Sýningum fer fækkandi.
Leikfélag Reykjavíkur
Dagur vonar sýnt í kvöld kl. 20.
Djöflaeyjan. Sýning í Leikskemmu LR
kvöld kl. 20.30 og sunnudag kl. 20.
Óánægjukórinn. Svning laugardag k
20.30.
Þjóðleikhúsið
Yerma eftir Felerico García Lorca verð
ur frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld.
sýning verður sunnudaginn 17. maí.
Rympa á ruslahaugnum. Næstsíðast
sýning á sunnudag kl. 14. Ath. breyttai
sýningartíma.
Eg dansa við þig. Sýning á laugardags
kvöld kl. 20 en þær sýningar sem eftir er
verða fimmtudag 21.. föstudag 22.. mið
vikudag 27. og fimmtudag 28. maí. Ekk
verður unnt að hafa fleiri sýningar vegrr
anna gestadansaranna erlendis.
Nemendaleikhúsið
„Rúnar og Kyllikki**. Síðasta sýnin
verður á sunnudag kl. 20. Miðapantani
eru í síma 21971 allan sólarhringinn. Sýn
ingin er ekki ætluð börnum.
íslenska óperan
Lokasýning fslensku óperunnar á þess
starfsári verður nk. laugardagskvöld 1(
maí. Þetta verður sérstök hátíðarsýning
óperunni Aidu eftir Verdi og mun sjór
varpið taka hana upp. Að lokinni sýning
verður haldið uppboð á málverkum þeit
sem íslenskir myndlistarmenn gáfu ís
lensku óperunni fyrr í vetur og prýtt haf
veggi óperuhússins síðan.
Fundur sóknarnefnda í
Reykjavíkurprófastsdæmis
til að ræða leikmannastarfið í kirkjunni
verður haldinn í Bústaðakirkju mánudag-
inn 18. maí kl. 20.30.
Safnaðarráð
Reykjavíkurprófastsdæmis
Aukafundur verður í safnaðarheimili Bú-
staðakirkju sunnudaginn 17. maí og hefst
hann Jcl. 18.
Kökubasar styrktarfélags
vangefinna
Hópur frá styrktarfélagi vangefmna. á leið
í sumarfrí til ftalíu, heldur kökubasar í
Glæsibæ í dag, 15. maí. frá kl. 14. Mikið
af tertum og öðru góðgæti fyrir helgina.
Stigamót í pílukasti
íslenska pílukastsfélagið efnir til stiga-
móts í pílukasti sunnudaginn 17. maí 1987
í félagsheimili lögreglumanna. Brautar-
hoíti 30, Reykjavík. Keppni hefst kl. 12.
Keppt í riðlum „501", átta manna úrslit.
útsláttarkeppni. Stigin verða metin til nið-
urröðunar á fslandsmóti IPF '87. Allir
velkomnir.
Kirkjukór Akraness flytur
tónverk í Neskirkju
Laugardaginn 16. maí 1987 kl. 16 mun
Kirkjukór Akraness flytja tónverkið
„Theresienmesse" eftir Joseph Havdn í
Neskirkju. Kórinn frumflutti verkið
sunnudaginn 3. maí sl. í safnaðarheimilinu
Vinaminni á Akranesi við húsfylli og mik-
inn fögnuð áheyrenda og mun endurflytja
verkið á sam,T stað í dag. 15. maí, kl. 21.
Flytjendur auk kirkjukórs Akraness eru
einsöngvararnir Guðrún EUertsdóttir
sópran, Unnur Jensdóttir sópran. Viktor
Guðlaugsson tenór og Kristján Elís Jóns-
son baríton. Undirleikari er Ann Toril
Lindstad og söngstjóri Jón Ólafur Sigurðs-
"D TT TT TB
DllJÍiIV
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú á fuUii ferð
Nú getur þú spáö í spilin og valið þér bíl í ró og næöi.
Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum-
boðum ásamt bílasmáauglýsingum DV býður þér ótrúlegt
úrval bíla.
Auglýsendur athugið
i
Auglýsingar í bílakálf þurfa aö berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar í helgarblað þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga.
Síminn er 27022.