Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1987, Blaðsíða 6
28
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1987.
Tinna Gunnlaugsdóttir í dramatísku hlutverki Yermu í samnefndu leik-
riti sem frumsýnt verdur i kvöld.
Síðasta frumsýning leikársins:
Yerma
eftir Federico García Lorca
Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld
leikritið Yerma eftir hinn ástsæla
spænska leikritahöfund Federico
García Lorca og er það í fyrsta sinn
sem þetta verk er leikið á íslensku
leiksviði en áður hafa íslenskir
leikhúsgestir kynnst leikritunum
Hús Bernhörðu Alba, Blóðbrul-
laupi, Skóarakonunni dæmalausu
og Astum Don Perlímppíns til Bel-
ísu í garðinum.
Karl Guðmundsson þýddi leik-
inn, leikstjóri er Þórhildur Þor-
leifsdóttir, tónlistina samdi
Hjálmar H. Ragnarsson, Sigurjón
Jóhannsson hannaði leikmynd og
búninga og lýsingin er í höndum
Páls Ragnarssonar.
Tinna Gunnlaugsdóttir leikur
Yermu, Signý Sæmundsdóttir
söngkona fer einnig með veigamik-
ið hlutverk sem aðalsöngvari
sýningarinnar, Arnar Jónsson
leikur Jóann, eiginmann Yermu,
Pálmi Gestsson er í hlutverki fjár-
hirðisins, Viktors, sem laðast að
Yermu, Guðný Ragnarsdóttir leik-
ur Maríu, vinkonu hennar, og er
þetta hlutverk frumraun Guðnýjar
á leiksviði. Guðrún Þ. Stephensen
leikur þá gömlu guðlausu, Krist-
björg Kjeld leikur Dolores grasa-
konu, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
og Anna Kristín Arngrímsdóttir
eru í hlutverkum mágkvenna
Yermu og Guðlaug María Bjarna-
dóttir og Vilborg Halldórsdóttir
leika ungu konurnar. Mikill fjöldi
annarra leikara, söngvara og dans-
ara kemur fram í sýningunni.
Lorca kallar þetta leikrit „harm-
hljóð“ og benti margoft á skyld-
leika þess við hina forngrísku
harmleiki þar sem örlög samfélags-
ins ráðast af örlögum einnar
söguhetju. Verkið var samið
skömmu áður en borgarastyrjöldin
á Spáni skall á og var í huga Lorca
annað verkið í svonefndum al-
þýðuþríleik.
Yerma er á yfirborðinu afar ein-
falt verk, saga þess er skýr og
söguþráðurinn óslitinn. Og þó er
Lorca þarna að fjalla um allflóknar
forsendur fyrir þeim harmi sem
aðalpersónan ber og sem vex í
verkinu eins og fóstur í móðurkviði
uns hann brýst út í mögnuðu loka-
atriði. Leikritið fjallar í stuttu
máli um óseðjandi þrá Yermu til
þess að eignast barn, lýsir þeim
ráðum sem hún grípur til og eins
þeim sem hún grípur ekki til svo
henni verði barns auðið.
Til fróðleiks má geta þess að nafn
leikritsins og aðalpersónunnar,
Yerma, er dregið af spænska nafn-
orðinu yermo og mun merkja
eyðiland, hrjóstur, ósáinn akur; um
ónýtta möguleika.
Sem fyrr segir verður frumsýn-
ingin í kvöld en önnur sýning
verður sunnudaginn 17. maí og
þriðja sýningin þann 19. maí.
Kvikmyndahús - Kvikmyndahús
Regnboginn
Nýjasta mynd John Landis nefn-
ist Þrír vinir (Three Amigos). Slær
hann þar á létta strengi enda með
fræga grínara í aðalhlutverkum.
Það þarf ekki að kynna Steve
Martin og Chevy Chase. Þeir eru
í dag meðal allra þekktustu og vin-
sælustu gamanleikara vestan hafs.
Þriðji vinurinn er aftur á móti
Martin Short, alveg óþekktur hér-
lendis en þekktur grínari vestan
hafs.
í öðrum sölum Regnbogans eru
sýndar myndir eins og gæðamyndin
Herbergi með útsýni, Trúboðsstöð-
in og Guð gaf mér eyra að
ógleymdri mynd Friðriks Þórs um
Skytturnar.
Bíóhúsið
Sýnir Koss könglulóarkonunnar
(Kiss of the Spider Woman), sem
beðið hefur verið eftir lengi hér-
lendis. Myndin hefur alls staðar
hlotið góðar viðtökur og er sér-
staklega rómaður leikur aðalleik-
aranna, Williams Hurt og Rauls
Julia, og fékk sá fyrrnefndi óskars-
verðlaunin fyrir leik sinn. Myndin
fjallar um tvo fanga sem lenda sam-
an í fangelsi í Suður-Ameríku.
Annar þeirra er kynvillingur, hinn
pólitískur fangi. Þeir eyða tíma
sínum í að rifja upp gamla nasista-
kvikmynd sem annar þeirra sá og
flétta efnisþráðinn inn í þann raun-
veruleika sem þeir lifa.
Háskólabíó
Gullni drengurinn (The Golden
Child) er fyrsta mynd Eddie Murp-
hy eftir stórsigurinn í The Beverly
Hills Cop. Þetta er ævintýramynd
þar sem slegið er á létta strengi
eins og búast má við þegar Eddie
Murphy á í hlut. Meðleikari Murp-
hys er Charles Dance og leikur
hann barnaræningja sem rænir
barni með töframátt. Samkvæmt
spásögn getur aðeins einn maður
fundið barnið og að sjálfsögðu er
það persónan sem Eddie Murphy
leikur.
Tónabíó
Tónabíó sýnir spennumyndina
Fyrsta apríl (April Fool’s Day) sem
fjallar um átta háskólanema sem
dvelja eina helgi hjá einum þeirra.
Fljótt byrja óvæntir atburðir að
gerast og fljótt hverfur einn af átt-
menningunum og um leið byrjar
sú sem bauð að haga sér heldur
betur undarlega...
Bíóhöllin/Vitnið
í anda Alfreds Hitchcock
Þessi mynd í Bíóhöllinni (The
Bedroom Window) er að sögn í
anda gamla meistarans Alfreds
Hitchcock og er spennumynd er
segir frá arkitektinum Terry (Steve
Guttenberg) sem heldur framhjá
konu sinni með yngismær einni,
Sylvíu, er leikin er af þeirri fögru
frönsku blómarós, Isabelle Hubb-
ert. Til að bæta gráu ofan á svart
er Sylvía eiginkona yfirmanns
Terry.
í miðjum ástarleik parsins kvöld
eitt verður Sylvía vitni að morði
fyrir utan svefnherbergisgluggann.
En til að ekki komist allt upp
ákveður Terry að bera vitni í stað
Sylvíu. Það leiðir að lokum til þess
að hann er sjálfur grunaður um
morðið. Sem sagt gamalkunnug
misskilningsflétta sem kemur þó
nokkru sinnum á óvart.
Það er reynsluríkt lið sem stend-
ur að gerð myndarinnar. Aðal-
hlutverkið er í höndum Steve
Guttenberg sem hingað til hefur
aðallega reynt fyrir sér í gaman-
myndum og er þar líklegast fræg-
astur fyrir myndirnar um
Lögregluskólann. Isabelle Hubbert
er fyrir löngu orðin heimsfræg í
Frakklandi en hér reynur hún fyrir
sér í sinni annarri mynd í Banda-
ríkjunum, lék áður í Hevens Gate.
Leikstjóri og annar handritshöf-
undur er Curtis Hanson sem gerði
meðal annars handrit að Silent
Partner.
Kvikmyndahús
Stjörnubió
Blóðug hefnd (Armed Response)
er nýkomin til sýningar í A-sal
Störnubíós. Gerist hún í Kína-
hverfi Los Angeles og lýsir þeim
heimi ofbeldis og glæpa er þar ríkir.
Richard Gere og Kim Bassinger
leika aðalhlutverkið í páskamynd
Stjörnubíós, No Mercy. Myndin
fjallar um Eddie Jullette (Gere),
sem er lögregluþjónn sem hyggur
á hefndir þegar félagi hans er myrt-
ur.
Laugarásbíó
Aðalhlutverkið í Litaður laga-
nemi (Soul Man) leikur C. Thomas
Howell. Leikur hann Mark Wakon
sem hefur fengið skólavist í laga-
deild Harward. Þegar faðir hans
neitar að borga skólagjöld er fátt
góðra ráða. Tekur hann á það ráð
að lita sig svartan vegna þess að
eini skólastyrkurinn sem í boði er
er fyrir litaðan, fátækan skóla-
nema.
-SMJ
Sýningar
Árbæjarsafn
Opið samkvæmt samkomulagi.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
Skólasýning Ásgrímssafns hefur verið
opnuð. Sýningin er opin almenningi á
opnunartíma safnsins: sunnudaga, þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 13.30-16. Aðgang-
ur er ókeypis.
Ásmundarsafn
við Sigtún
Opnunartími safnsins er á þriðjudögum,
fimmtudögum, laugardögum og sunnudög-
um frá kl. 14-17.
Ásmundarsalur
Freyjugötu 9
Sýningin „Frakkland og Bandaríkin -
nýir straumar í módemisma" stendur yfir
í Ásmundarsal við Freyjugötu og stehdur
hún til 24. maí. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 14-18.
Gallerí Borg
v/Austurvöll
Þar stendur yfir sýning á teikningum
Gylfa Gíslasonar. Teikningarnar eru unn-
ar á árínu og sækir Gylfi myndefnið í
umhverfi nútímans og þjóðsögurnar. Sýn-
ingin er opin daglega kl. 10-18, nema
mánudaga frá kl. 12-18, laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Sýningin stendur til
19. maí.
Gallerí Gangskör
v/Lækjargötu
1. maí sl. var opnuð sýning á klippimynd-
um, silkiþrykki og gvassmyndum eftir
Guðrúnu Sigurðardóttur Urup listmálara.
Guðrún, sem er búsett í Danmörku, hefur
tekið þátt í sýningum þar en ekki sýnt
hérlendis fyrr en nú. Sýningin er opin kl.
12-18 virka daga en kl. 14-18 um helgar.
Gallerí Svart á hvítu
við Óðinstorg
Þar stendur yfir sýning á veggmyndum
Huldu Hákon. Verkin eru öll unnin í gips
og spýtu á sl. vetri. Sýningin stendur til
17. maí og er opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14-18.
Gallerí 119
v/JL húsið
Þar eru til sýnis plaköt og verk eftir
þekkta listamenn. Opnunartími er mánu-
daga til föstudaga kl. 12-19, laugardaga
kl. 12-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Gallerí Langbrók, textíl
Bókhlöðustíg 2
Eina textílgalleríið á landinu. Vefnaður,
tauþrykk, myndverk, fatnaður og ýmiss
konar listmunir. Opið þriðjudaga til föstu-
daga kl. 14-18 og laugardaga kl. 11-14.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Á morgun kl. 14 opna fimm listamenn sýn-
ingu á Kjarvalsstöðum. Það eru þeir ívar
Valgarðsson og Níels Hafstein sem sýna
skúlptúra í Kjarvalssal. I austurforsal sýn-
ir Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir 10
veggteppi en hún hefur sjálf litað ullina í
teppunum. Þá verður Gunnsteinn Gísla-
son myndhöggvari með sýningu á múrrist-
um. í vestursal verður svo Einar
Hákonarson með sýningu á 77 olíumál-
verkum.
Opið er daglega kl. 14-22.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10-17.
Myntsafn Seðlabanka og
Þjóðminjasafns
Einholti 4
Opið á sunnudögum kl. 14-16.
Listasafn ASÍ
Grensásvegi 16
Nú stendur yfir fréttaljósmyndasýningin
World Press Photo ’87 í Listasafni ASÍ. Á
sýningunni eru liðlega 200 ljósmyndir sem
hlutu verðlaun í 9 efnisflokkum í alþjóð-
legri samkeppni blaðaljósmyndara. Auk
þess er á sýningunni mynd eftir Ragnar
Axelsson, ijósmyndara Morgunblaðsins.
Sýningin er opin virka daga kl. 16-20 og
um helgar kl. 14-22.
Listasafn Háskóla íslands
í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opið
daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90
verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri
listamenn þjóðarinnar. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Norræna húsið
v/Hringbraut
Hannes Lárusson og Ólafur Lárusson sýna
um 300 verk í Norræna húsinu. Eru það
málverk, teikningar, skúlptúr og útskurð-
ur í tré. Sýningin er opin alla daga kl.
14-22 til 17. maí. I anddyri og á bókasafni
stendur yfir sýning á myndum eftir norska
listamanninn Karl Erik Harr.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning opin á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14-
16.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
I dag opnar hollenski iistamaðurinn Peter
Holstein sýningu á verkum sínum í Ný-
listasafninu. Sýningin verður opin virka
daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20 og
stendur hún til 17. maí.
Þjóðminjasafnið
Opið laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 13.30-16.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði
Lokað vegna breytinga fram í júlí.
Sædýrasafnið
Opið alla daga kl. 10-17.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Lindargata 49
Reynir Sigurðsson opnaði málverkasýn-
ingu 26. apríl í húsi Samtakanna ’78 að
Lindargötu 49 og stendur hún til 24. maí.
Reynir hefur haldið einkasýningar og tek-
ið þátt í samsýningum heima og erlendis.
Sýningin er opin fimmtud., íostud., laug-
ard. og sunnud. frá kl. 17-23.