Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Side 5
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987. 5 Fréttir Héraðsdómi hnekkt: Hæstiréttur sýknar Kristján Inga Hæstiréttur hefur dæmt í máli ákæruvaldsins gegn Kristjáni Inga Einarssyni ljósmyndara. I dómi Hæstaréttar segir að Kristján Ingi skuli vera sýkn af kröfum ákæruvalds- ins en héraðsdómur dæmdi Kristján í 12.000 króna sekt. I ákæruskjali, sem gefið var út 5. nóvember 1985, var Kristjáni Inga gef- ið að sök að hafa rekið ljósmyndaiðn- að og ljósmyndaþjónustu frá árinu 1983, bæði undir eigin naíni og nafninu Skíma sf., án iðnréttinda í ljósmynda- iðn og fyrir að hafa selt þeim sem eftir leituðu slíka þjónustu, þar á meðal myndir af alþingismönnum fyrir Handbók Alþingis 1984. I kæru Landssambands iðnaðar- manna þann 10. janúar 1985, sem var tilefni ákæru, var tekið fram að at- vinnurekstur Kristjáns Inga hefði verið umtalsverður og nafngreindir eru sex aðilar sem notið hefðu þjón- ustu hans. Rannsókn málsins snerist hins vegar nær eingöngu um þátt Kristjáns í gerð Handbókar Alþingis 1984 og var því lýst yfir við flutning málsins fyrir Hæstarétti að brot Kristjáns væri fyrst og fremst fólgið i töku andlitsmyndanna af alþingis- mönnunum en ákæruvaldið horfði framhjá hinum ákæruatriðunum. I forsendum dóms Hæstaréttar segir að þótt sannað sé að Kristján hafi tek- ið myndir í Handbók Alþingis 1984 gegn greiðslu þyki það afmarkaða til- vik út af fyrir sig ekki nægja til að telja hann hafa rekið ljósmyndaiðnað í atvinnuskyni í merkingu laga nr. 42/1978 sem fjalla um rekstur hvers- konar iðnaðar í atvinnuskyni. Beri því að sýkna hann af kröfum ákæruvalds- ins í máli þessu. Dómsorð Hæstaréttar eru því á þá leið að Kristján skuli sýkn og að allur málsvamarkostnaður greiðist úr ríkis- sjóði. Sératkvæði Einn dómara Hæstaréttar, Þór Vil- hjálmsson, skilaði sératkvæði í dómi þessum en hann telur að sakfella beri Kristján fyrir brot á framangreindum lögum. Rökstyður hann mál sitt með því að Hæstarétti hafi borist ný gögn í málinu, þar á meðal reikningamir fyrir ljósmyndirjiar í Handbók Al- þingis. Þeir séu á prentuðum eyðu- blöðum frá Skímu hf. sem sögð er reka „bóka- og ljósmyndaþjónustu“. Þá nefnir Þór til sögunnar þijár bamabækur sem Kristján hefur tekið myndimar í og að Skíma sf. sé skráð í símaskrá 1986. Þór segir úrslit þessa máls ráðást af því hvort sannað sé að Kristján hafi rekið handiðnað og hvort hann hafi stundað störf sem falla undir lögg- iltar iðngreinar. Telur Þór að svo sé samkvæmt gögnum málsins og þvi beri að sakfella hann fyrir það eins og héraðsdómur hafi komist að niður- stöðu um. Mál þettá dæmdu hæstaréttardóm- aramir Þór Vilhjálmsson, Guðmundur Skaftason og Guðrún Erlendsdóttir. -FRI Kristján Ingi Einarsson: „Réttlætið náði fram að ganga“ „Mér líst vel á þennan dóm. Ég var orðinn bjartsýnn á að þetta yrðu úr- slit málsins enda vart stætt á öðm og dómurinn sýnir að réttlætið náði ffam að ganga,“ sagði Kristján Ingi Einars- son ljósmyndari í samtali við DV er' Hæstiréttur hafði kveðið upp úrskurð sinn í máfinu. „Þetta var prófmál en kæmr svipað- ar þeirri sem ég fékk hafa lengi legið á baki blaðaljósmyndara og ófaglærðs fólks í þessari atvinnugrein og ég held að Ljósmyndarafélagið ætti að hugsa sinn gang í ffamhaldi af dómi þessum og bjóða okkur aukaaðild að félag- inu.“ Kristján sagði að víða um lönd væm til áhugamannafélög í ljósmyndun sem störfuðu við hlið og með samþykki fagfélaganna og slíku þyrfti að koma á hérlendis. -FRI □JÖ Opið föstudag kl. 8-18, laugardag 9-16. sunnudag 13-16. Má benda þér á góðan kost. Vinnupallasýning 10% sýningarafsláttur Pallarhf. Vesturvör 7 200 Kópavogi Símar 42322 og 641020. Vísitalan upp um 1,22% Kauplagsnefnd hefur reiknað út vísitölu ffamfærslukostnaðar í maíbyrjun og reyndist hún vera 195,56 stig eða 1,22% hærri en i byrjun apríl. Síðustu 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 15,7%. Hækkun vísitölunnar nú um 1,22% á einum mánuði svarar til 15,7% miðað við eitt ár. Undan- fama 3 mánuði hefur visitalan hækkað um 4,1% og jafngildir sú hækkun 17,7% verðbólgu á einu ári. Vísitala ffamfærslukostnaðar er í maíbyrjun 1,33‘X, hærri en miðað var við i kjarasamningi Alþýðu- sambandsins og Vinnuveitenda- sambandsins í dcsembersamning- unum. -S.dór Lottóstefnir í 15 mil|jónir Lottóvinningur vikunnar stofnir í 15 milljónir króna og sala lottómiða hefur aldrei verið meiri. Potturinn or að þessu sinni þrefaldur og ef hann gengur ekki út á laugardaginn má fastlega gera r.ið fyrir að vinningur næstu viku verði hátt í 30 milljónir króna. íslendingar hafa slegið heimsmet í kaupum á lottómiðum. Hvert manns- bam eyðir að meðaltali 50 krónum í lottómiða vikulcga. Vinningur laugar- dagsins er stærsti happavinningur á fslandi fyrr og síðar. -EIR r v n Jeep í Jeep Cherokee fara saman gæði, glæsilegt útlit, þæg- indi og kraftur, á þann hátt að hann á engan sinn líka. Kynntu þér bílinn og þú sannfærist. OPIÐ í DAG FRÁ KL. 1-5 rt Jeep EGILL VILHJALMSSON HF. UMBOÐIÐ Smiójuvegi 4, Kópavogi, simar 77200 - 77202.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.