Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Page 14
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987.
14
UTBOÐ
Vesturlandsvegur í Hvalfirði
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Fylling og burðarlag 10.000 m3,
klæðing 23.300 m2. Verki skal lokið 25. júlí
1987.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
I Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 19. maí
nk. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl.
14.00 þann 1. júni 1987.
Vegamálastjóri.
Tónlistarskóli Húsavíkur:
Starf skólastjóra
Starf skólastjóra við Tónlistarskóla Húsavíkur er laust
til umsóknar. Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun
og fyrri störf, berist til skólanefndar Húsavíkur fyrir
30. maí nk. Nánari upplýsingar veita skólastjóri í síma
96-41560 og formaður skólanefndar í síma
96-41245.
Skólanefnd Húsavíkur
Garðyrkjumaður
Vestmannaeyjabær óskar eftir að ráða garðyrkjumann
til starfa sem fyrst.
Verksvið: Yfirumsjón með garðyrkjustörfum á vegum
Vestmannaeyjabæjar.
Umsóknarfrestur er til 29. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir baéjartæknifræðingur í síma
98-1088.
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum,
Arnaldur Bjarnason
HUSEIGANDI GÓÐUR!
ERniHEfTTW
A VWHUMNU?
Eru eftirfarandi vandamál
að angra þig?
Alkalí-skemmdir • Vaneiriangrun
Frost-skemmdir • Sprunguviðgerðir
Lekirveggir • Síendurtekin mólningarvinna
Ef svo er, skaltu kynna þér kosti
gfo -utanhúss-klæðningarinnar:
Sfo -klæðningin er samskeytalaus.
gfrt -klæðningin er veðurþolin.
gfe -klæðningin er litekta og fæst í yfir 300
litum.
gfe -klæðningin er teygjanleg og viðnóm gegn
sprungumyndun er mjög gott.
sto -klæðningin leyfir öndun fró vegg.
-klæðningin gefur ótal möguleika í þykkt,
óferð og mynstri.
gto -klæðninguna er unnt að setja beint ó veqg,
íinulL
plasteinangrun eða steinul
gto -klæðninguna er hægt að setja ó nær hvaða
byggingu sem er, ón tillits til
aldurs eða lögur
rnar.
•klæðningin endist - Vestur-þýsk gæðavara
Opið laugardag og sunnudag
Bíldshöfða 18 — 112 Reykjavík
RYDIf
Sími 673320
30 -i
ALÞINGISKOSNINGAR 1931-1987
Kjörfylgl beggja flokkanna
■ Alþýðuflokkur
B Alþýðubandal.
n n n n 2 n s sí n
Þróun á kjörfylgi Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og forvera þess í alþingiskosningum. Hér er sleppt úr kosningun-
um 1933, fyrri kosningum 1942, kosningunum 1946 og fyrri kosningum 1959. Eins og fram kemur hafa Sósialista-
llokkurinn og Alþýðubandalagið ávallt haft meira fylgi en Alþýðuflokkurinn frá 1942 og fram til síðustu alþingiskosn-
inga. Það er einnig athyglisvert að línuritið gefur til kynna að fylgi flakkar ekki á milli A-flokkanna. Yfirleitt vinna
þeir báðir á eða tapa báðir fylgi.
Sundrungar-
saga
sósíalista
Ná kommar og kratar aldrei samam
?
„Að sigra heiminn er eins og að
spila á spil“- sagði Steinn Steinarr
og hefði þá allt eins getað verið að
yrkja um stjórnmálin.
Nýafstaðnar • alþingiskosningar
hafa hins vegar fyrst og fremst vakið
menn til umhugsunar um flokkakerf-
ið í heild. Ffestum þykir þá einsýnt
að nú riði til falls hið hefðbundna
íjórflokkakerfi sem hér hefur við-
gengist í meira en hálfa öld og sem
tekið hefur mið af hinum óljósu
grundvallarhugtökum hægri og
vinstri.
Þessar niðurstöður um flokkakerf-
ið byggja á tveimur staðreyndum
kosningaúrslitanna. Tveir nýir
flokkar eru óumdeilanlegir sigurveg-
arar kosninganna. Annar þeirra
styrkti mjög stöðu sína þegar hann
nú bauð fram í annað sinn en hinn
flokkurinn hefur sem nýtt stjórn-
málaafl átt meira fylgi að fagna en
dæmi eru til frá upphafi fjórflokka-
kerfisins.
Því má svo bæta hér við að þeir
flokkar sem lengst eru til vinstri og
hægri í íjórflokkakerfinu sleikja nú
sárin eftir mjög alvarlegan kosn-
ingaósigur. Sjálfstæðisflokkurinn er
nú minni en hann hefur áður verið
og Alþýðubandalagið er minna en
Alþýðuflokkurinn í fyrsta sinn frá
1942.
Framtíðin á eftir að leiða það í ljós
hvort forsendur fjögurra blaða smár-
ans í íslenskum stjórnmálum séu
endanlega brostnar. En því verður
ekki neitað að nú sitja ekki lengur
fjórir við spilaborðið heldur sex. Og
þjóðin býður í ofvæni eftir því hverj-
ir spili saman.
í umræðum um stjórnarmyndun
koma ýmsir möguleikar til álita. Nú
síðustu daga hefur nýsköpunarstjórn
æ oftar borið á góma.
í kjölfar þeirrar umræðu hefur svo
hugmyndin um sameiningu A-flok-
kanna fengið byr undir báða vængi.
Það yrði saga til næsta bæjar ef þess-
ir fornu féndur létu nú loks verða
af því, eftir langvarandi og oft hat-
rammar illdeilur, að sameinast í
einum stjórnmálaflokki sem beitti
sér fyrir verkalýðsbaráttu og velferð
þeirra sem verst eru á vegi staddir.
Þessi sameiningarhugmynd er eng-
in nýlunda. Hún hefur oft skotið upp
kollinum frá því að hreyfing jafnað-
armanna klofnaði fyrst hér á landi
árið 1922. En hugmyndin hefur alltaf
átt langt í land með að verða að veru-
leika.
Nú þykjast hins vegar ýmsir sjá
þær blikur á lofti sem gætu loksins
fengið þessa fornu féndur til að taka
saman höndum.
Til skamms tíma hefur íslenska
fjórflokkakerfið einkennst af sterk-
um hægriflokki og sundrungu á
vinstri væng stjómmálanna. En eru
það óumflýjanleg örlög íslenskra
vinstrimanna að geta ekki sameinað
krafta sína? Var þeim ekki skapað
nema að skilja? þeirri spumingu
verður ekki svarað hér en kannski
getum við skýrt línurnar með því að
líta um öxl og rifja upp stormasöm
samskiptikrata og komma eins og
þeir hafa stundum uppnefnt hvorir
aðra.
,Við þessar aðstæður hóf íslenskur
verkalýður baráttu sína fyrir bættum
kjörum. Iðnvæðing krafðist verka-
manna og þeir mynduðu með sér
félög. I upphafi voru félög þeirra fyrst
og fremst hagsmunasamtök en fljót-
lega kynntust verkalýðssinnar
jafnaðarstefnunni og stofnuðu jafn-
aðarmannaflokka.
Fullveldi og ný flokkaskipat
Á sama tíma og verkamönni
fjölgaði og samheldni þeirra efldis
stærstu bæjum landsins var garr
flokkakerfið að ganga sér til húðar
Flokkakerfið gamla átti rætur
rekja til sjálfstæðisbaráttu íslen
inga gegn dönskum yfirráðum.
I stað sjálfstæðismálsins tóku i
stjórnmálin mið af stéttaátökum
ágreiningi um hlutverk og valdsv
ríkisins.
Ný áhugamál vöktu nýjan ágrei
ing og nýr ágreiningur mótaði nj
flokkakerfi sem í grófum dráttr
hefur staðist tímans tönn fram
þennan dag, - hvað sem verður.
Þetta nýja flokkakerfi varð til
árunum 1913-1930.
Iðnvæðing og upphaf verka-
lýðshreyfingar
Fyrsti fjórðungur þessarar aldar
er áreiðanlega mesti umbrotatími í
sögu þjóðarinnar. Þá hófu Islending-
ar iðnvæðingu með því að vélvæða
bátaflotann og kaupa togara og þá
hófu þeir síldveiðar fyrir alvöru.
Atvinnubyltingin kallaði á vinn-
andi hendur og fólk tók að streyma
úr sveitum landsins til þeirra sjávar-
plássa sem mest höfðu umleikis í
útgerðinni. Mikil verðmæti urðu til
í landinu en þeim var misskipt. Ann-
ars vegar voru það þeir sem rökuðu
saman fé en hins vegar vinnandi fólk
sem lifði vesældarlífi við kröpp kjör
og vinnuþrælkun.
Alþýðuflokkur og Alþýðusam-
band
Ólafur Friðriksson og Jónas frá
Hriflu áttu hvað mestan þátt í stofn-
un og skipulagningu Alþýðusam-
bandsins árið 1916. Aðildarfélögin
urðu að skrifa undir stjórnmála-
stefnuskrá ASÍ og stjórnarmeðlimir
þess máttu ekki vera í öðrum stjórn-
málaflokkum. Þessar skipulagsregl-
ur áttu eftir að hafa afdrifaríkar
afleiðingar í för með sér.
Alþýðusambandið og Alþýðuflokk-
urinn voru í upphafi róttækt vinstri-
sinnað stjórnmálaafl. Alþýðuflokk-
urinn var að vísu aldrei
hreinræktaður marxiskur stjórn-
málaflokkur og jafnaðarmenn höfðu
þar alltaf töglin og hagldirnar.