Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987. —rætt við Gunnar Bj arnason hrossaræktarráðunaut Það hefur aldrei ríkt kyrrstaða í kringum Gunnar Bjarnason hrossaræktarráðunaut. Skoðanir hans og kenningar á öllum sviðum landbúnaðarmála eru með þeim hætti að þær falla ekki að skoðun- um þeirra sem þar ráða ferðinni og að auki er Gunnar einstakur málafylgjumaður og gefst aldrei upp. Hannerorðinn sjötuguren er samt léttari á fæti en margir yngri menn og hugurinn og mælsk- an eru enn til staðar. Gunnar hefur oft orðið að gjalda skoðana sinna, allt frá því að hann hóf störf á Hvanneyri 1947 sem kennari og hrossaræktarráðunautur. Nú síð- ast missti hann starf og starfsað- stöðu sem ráðunautur Búnaðarfé- lags íslands í hrossaútflutningi fyrir gagnrýni á landbúnaðarstefn- una í útvarpsviðtali í haust. Sögðu að mín væri ekki óskað „Ég hafði það sem aukastarf að vera ráðunautur Búnaðarfélagsins við hrossaútflutning og hafði ráðn- ingu til síðustu áramóta. Síðan gerðist það í desember í fyrra að ég var boðaður upp í landbúnaðar- ráðuneyti og þar skýrði Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri mér frá því að það væri eindreginn vilji fyrir því að ég héldi þessu starfi áfram þetta árið og yrði tíminn notaður til að kenna nýjum manni sem ætti að taka við þessu starfi. Ég hef í gegnum árin afiað mér sambanda á þessu sviði út um allan heim og var meiningin sú að ég miðlaði nýjum manni af minni reynslu og þekkingu. Mér var boð- in skrifstofuaðstaða í Bændahöll- inni og allt virtist klappað og klárt. Ég þurfti að fara á spítala skömmu síðar og meðan ég lá þar fréttu starfsmenn Búnaðarfélags- ins af útvarpsviðtali við mig þar sem ég gagnrýndi landbúnaðar- stefnuna harðlega. Þeir urðu sér úti um útskrift af viðtalinu og eftir að hafa lesið það var haldinn fund- ur þar sem starfsmenn Búnaðarfé- Starfsmennirnir samþykktu að nærveru minnar i hinu merkilega húsi, Bændahöllinni, væri ekki óskað. lagsins og Stéttarsambandsins samþykktu að ég væri óalandi og óferjandi og nærveru minnar í hinu merkilega húsi, Bændahöllinni, væri ekki óskað. Þeir klöguðu einnig í landbúnaðarráðuneytið. Ég þurfti að fara utan eftir að ég var útskrifaður af sjúkrahúsinu. Þegar ég svo kom heim í apríl flutti búnaðarmálastjóri mér þessi tíð- indi. Hann sagði mér meira að segja að starfsmennirnir væru að velta því fyrir sér að fara í mál við mig fyrir atvinnuróg sem ég átti að hafa haft uppi í útvarpsviðtal- inu. Hann sagði mér líka að það væri krafa starfsmanna að ég fengi ekki ráðunautsstarfið áfram og að ég kæmi ekki inn í Bændahöllina. Og við þetta situr.“ Þola ekki að heyra sannleikann - Hvað var það sem þú sagðir sem fór svona fyrir brjóstið á mönnum? „1 sjálfu sér var það ekkert nýtt. Ég hef haldið uppi gagnrýni á land- búnaðarstefnuna hér á landi í yfir 30 ár. Hún hefur allan þann tíma verið röng og hún er kolvitlaus núna. Ég byrjaði fyrir meira en 30 árum að skrifa greinar í blöð og tímarit um þessi mál, auk þess sem ég hélt erindi á mannfundum um landbúnaðarstefnuna. Ég tel mig allan þennan tíma hafa verið að reyna að koma vitinu fyrir bænda- stéttina eins og góðum Þingeyingi sæmir en talað fyrir daufum eyrum. Nú eru menn aftur á móti að súpa seyðið af því að hafa ekki hlustað á mínar kenningar. Það er ekkert nýtt fyrirbæri að hér sé offram- leiðsla á landbúnaðarafurðum. Landbúnaðarafurðir voru byrjaðar að hrúgast hér upp fyrir 1960. En ætli þeim hjá Búnaðarfélaginu og Stéttarsambandinu hafi ekki sárn- að einna mest að ég sagði í við- talinu að mikill hluti þeirra manna, sem verið hafa stjórnendur, til dæmis í Stéttarsambandinu, hafi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.