Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Side 22
-32
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987.
Hvaða kostur
er bestur?
margnota rakvélar eru ódýrari en venju-
leg rakvélarblöð! Og hver ^,(BJC) rakvél dugar jafii-
lengi og eitt rakvélarblað.
Skák
Heimsmeistaramót unglinga í Innsbruck:
Hannes Hlrfar snýr
á þá í endatöflum
- hafði fullt hús vinninga efUr fjórar umferðir
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og
Hannés Hlífar Stefánsson standa í
ströngu þessa dagana í Innsbruck í
Austurríki þar sem fram fer heims-
meistaramót unglinga, 16 ára og yngri.
Guðfríður Lilja teflir í stúlknaflokki
ásamt 27 öðrum þátttakendum en í
sveinaflokki, þar sem Hannes Hlifar
er í eldlínunni, tefla 45 strákar. Guð-
mundur Sigurjónsson stórmeistari er
þeim til aðstoðar og hann hefur einnig
séð um að þjálfa þau sérstaklega fyrir
mótið.
Guðmundur má vera ánægður með
frammistöðu skjólstæðinga sinna að
íjórum umferðum loknum. Hannes
Hlifar var þá búinn að máta alla and-
stæðinga sina, þar á meðal enska
„undrabamið" Adams í 4. umferð, og
með fullt hús vinninga var hann einn
í efsta sæti. Guðíríður Lilja hafði 1 'A
v. og gat ekki átt minna miðað við
gang skákanna. í 1. umferð átti hún
gjörunnið tafl gegn heimsmeistaran-
Hannes Hlífar mátar alla andstæðinga
sína þessa dagana á heimsmeistara-
móti sveina í Innsbruck í Austurríki.
Fullt hús eftir fjórar umferðir.
DV-mynd KAE
BÍLALEIGA ER
OKKAR FAG
Viö útvegum yöur
interRent bílaleigubíl
hvar sem er erlendis,
jafnvel ódýrara en nokkur
annar getur boðið:
Dæmi: í íslenskum
krónum m/söluskatti.
Ótakmarkaður akstur
Danmörk:
3 dagar = 4.281.-
7 dagar = 8.560.-
Aukadagur 1.220.-
Þýskaland:
3 dagar = 4.000.-
7 dagar = 7.041,-
Aukadagur 996.-
Luxemburg:
3 dagar = 3.975,-
7 dagar = 6.651.-
Aukadagur 930,-
Einnig bjóðum við úrval
húsbíla og campingbíla í
Þýskalandi.
interRent er stærsta
bílaleiga Evrópu.
Við veitum fúslega allar
upplýsingar og pöntum
bílinn fyrir yður.
interRent
interRent á Islandi/
Bílaleiga Akureyrar
Reykjavík - Skeifan 9 - Símar
91-686915, 91-31615
Akureyri - Tryggvabr. 14 -
Símar 96-21715, 96-23515.
Telex: 2337 IR ICE IS.
um í þessum aldursflokki, búlgörsku
stúlkunni Aladjovu. I endatafli hafði
hún hrók á 7. línu og riddara skammt
frá og í tvígang missti hún af rakinni
vinningsleið; gat drepið riddara heims-
meistarans með hróknum og gafflað
síðan hrók og kóng með riddaranum.
Þetta var gullið tækifæri en það fór
forgörðum og á endanum tapaði hún
skákinni.
'Hannes Hlífar hóf sigurferil sinn
ekki sérlega glæsilega því að í 1. um-
ferð, er hann áttd í höggi við Belgann
Kocur, „fauk kall í sjóinn", eins og
Guðmundur orðaði það í samtali við
DV. Hannes var þá of fljótfær. En
hann fékk eitthvert spil í staðinn og
tókst svo að leika á mótheijann þann-
ig að hann átti drottningu gegn hróki
að miklu tímahraki loknu. Þar hafði
hann heppnina með sér. „Þetta var
ekki birtingarhæf skák,“ sagði Guð-
mundur.
Svo virðist sem Hannes hafi ákveðið
að fara að öllu með gát eftir þessa
fyrstu skák því að síðan hefur hann
sett stefnuna á endataflið. Þannig
tókst honum að vinna Vazquez frá
Mexíkó í 2. umferð og Ástralíubúinn
Hill fékk sömu meðferð í 3. umferð.
Þá átti Hannes örlítið betra tafl í enda-
tafli með hrókum og biskupum og
tókst að færa sér það í nyt og sigra.
Guðmundur, aðstoðarmaður hans,
hafði á orði að Hannes hefði unnið
vel úr yfirburðunum. „Hann hefur
töluverða reynslu, strákurinn,“ sagði
hann.
' í 4. umferð átti Hannes svo í höggi
við Adams frá Englandi sem talinn er
sérlega efhilegur - einhver efhilegasti
skákmaður Englendinga síðan Short
sleit bamsskónum. Skák þeirra var á
rólegu nótunum lengst af, þó svo
Hannes hefði reynt að hleypa taflinu
upp með eftirlætispeðsfóm sinni í byij-
un. Andstæðingur hans var vandanum
vaxinn en hann komst heldur ekkert
áleiðis. Það er hætt við að hann hafi
vanmetið Hannes í framhaldi skákar-
innar því að í stað þess að stýra
skákinni í jafnteflishöfh tók hann
áhættu. Hannes náði á hann höggi og
eftir að hafa vélað af honum peð tókst
honum að knýja fram sigur. Vel gert
og þar með var Hannes orðinn einn
efstur.
Stigahæstur í sveinaflokki er Banda-
ríkjamaðurinn Ilja Gurevich, næstur
kemur Adams og Hannes Hlífar er
þriðji. Það hefur annars vakið athygli
hvað sovéski keppandinn virðist eiga
erfitt með að finna rétta taktinn. Gata
Kamski heitir hann og hefur þegar
getið sér gott orð í heimalandi sinu
sem em töluverð meðmæli. Kamski
tapaði fyrir Hill fyrr í mótinu og í 4.
umferð átti hann tapað tafl gegn
finnska keppandanum, með tveim peð-
um minna, en tókst að vísu að bjarga
sér í jafhtefli.
Að sögn Guðmundar em aðstæður
á mótinu furðugóðar. Teflt er í stórum
sal í Sparkassen-bankanum og fæði
er þokkalegt. Þó hafði Guðmundur á
orði að Hannesi fyndist allur matur
vondur. „Ég hef hótað að senda hann
í sveit þegar hann kemur heim,“ sagði
Guðmundur.
Lítum á skák Hannesar við Adams
í 4. umferð. Hannes var sjálfúr ekki
sérlega hrifinn af þessari skák en hún
sýnir vel hve lítið má út af bera, jaíh-
vel í einföldustu stöðum.
Hvítt: J. Adams (Englandi)
Svat: Hannes Hlífar Stefánsson
Skandinaviski leikurinn:
1. e4 d5 2. exd5 Rf6 3. c4 e6(!)
Islenskir skákmenn ættu að vera