Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Page 23
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987. EKKIST H- L1NNIHALD255M1 Skáfc r.KKIST KALT WHIH.MD Z'.Z5\ RÚM v DREKKIST KALT ILKCHÓLINNIHALD 2.25% RÚMMi famir að þekkja handbragðið! Hannes hefur margoft beitt þessu bragði á mótum hér heima, einkum í skákum af léttara taginu. Hvítur má stórlega gæta sín því að í skiptum fyrir peðið Skák Jón L. Árnason fær svartur frjálst tafl og skjóta liðs- skipan. 4. dxe6 Bxe6 5. Rfó Rc6 6. Be2 Bc5 7. 0-0 Dd7 8. d3 0-0 9. Rbd2 Had8 10. Rb3 Bb6 11. Bg5? Vegna veikleikans á d4 er svartreita- bisHupinn það mikilvægur að upp- skipti á honum borga sig ekki, jafnvel þótt svartur fái tvípeð á f-línunni. Eft- ir 11. d4 Rxd4 12. Rxd4 Bxd4 13. Rxd4 Dxd4 14. Dxd4 Hxd4 15. Be3 Hd7 hefur svartur alla burði til þess að halda jöfnu en 11. Be3!? kemur sterklega til greina. 11. - a5! 12. Dcl Hfe8 13. Hel a4 14. Rbd2 Bf5 Svartur hefiir nú náð þægilegri tafl- jöfnun. 15. BxfB gxffi 16. Dc3 Rd4 17. Bfl Dd6 18. Rh4 Dc5 19. Rxf5 Rxf5 Hvítur er nú nauðbeygður að gefa peðið til baka. Ekki gekk hins vegar 19. - Rf3+?? vegna 20. Rxf3 og valdar viðkvæma reiti. 20. d4 Dxd4 21. Dxd4 Bxd4 22. Hxe8+ Hxe8 23. Hbl Hd8 24. Rf3 Bb6 25. b4 axb3 fr.hl. 26. axb3 abcdefgh Staðan er vitaskuld ákaflega jafn- teflisleg og margir væru sjálfsagt löngu búnir að undirrita pappírana. Hannes yfirspilar andstæðinginn í framhaldinu, að visu með góðri hjálp. 26. - Rd4 27. Rel(?) Eftir 27. Rxd4 Hxd4 28. Hb2 getur hvítur ekki tapað en hann vinnur heldur ekki skákina. 27. - Re6 28. b4 c6 29. Rd3? Ónákvæmni. Betra er 29. c5 og hrekja biskupinn til c7. Nú fær Hann- es vott af frumkvæði. 29. Bd4! 30. g3 Ha8 31. b5 cxb5 32. Hxb5 b6 33. Hd5 Ha4 34. Rf4 Ha2 35. Re2 Eftir 35. Rxe6 Bxf2+ 36. Khl fxe6 37. Hd7 á hvitur peði minna en samt góða jafnteflismöguleika. Nú fær hann óvirka stöðu. 35. - Bc5 36. Hd3 Rg5 37. Khl?? Re4 38. Hd8+ Kg7 39. Rf4 Eftir slysalegan 37. leik sinn stóð hvítur frammi f'yrir óverjandi peðstapi og nú hefúr svartur vinningsstöðu. Ekki nægir 39. f3 vegna 39. Rd2. 39. - Rxf2+ 40. Kg2 Re4+ 41. Khl Rg5 42. Hdl Re4 43. Hd8 Be3 44. Rd3 Rd2 45. Be2 Rxc4 46. Rf4 b5 47. Rh5+ Kh6 48. Bxc4 bxc4 49. Rxffi Kg6 50. Hd6 Kf5 51. Hc6 Bd2 52. Re8 c3 53. Rd6+ Kg4 54. h3 Kxh3 - og hvítur gafst upp. Skólaskák á Dalvík Níunda landsmótið í skólaskák fór fram á Dalvík um síðustu helgi að til- stuðlan dr. Ingimars Jónssonar, fyrrum forseta Skáksambands íslands, sem býr þar og starfar. Þetta er jafnan eitt fjölmennasta skákmót landsins. Hátt í fjögur þúsund nemendur hvað- anæva af landinu hefja þátttöku í landsmótinu. Teflt er í tvcimur flokk- um, yngri flokki, sem er ætlaður nemendum í 1.-6. hekk grunnskóla, og eldri flokki nemenda í 7.-9. bekk. Á Dalvík var teflt til úrslita í báðum flokkum. í hvorum flokki eiga þátt- tökurétt efsti maður úr hverju kjör- dæmi, utan tveir úr Reykjavík og tveir úr því kjördæmi þar sem mótið er haldið - að þessu sinni Norðurlandi eystra. Það er jafnan hart barist á þessum mótum, enda keppnisgleðin í fyrirrúmi - þessir strákar eru enn ekki orðnir nógu gamlir til þess að gera stórmeist- arajafiitefli. Leikar fóru þannig í eldri flokki að Þröstur Ámason og Sigurður Daði Sigfússon, báðir úr Seljaskóla í Reykjavík, deildu sigrinum með 8 v. af 9 mögulegum. Þeir þurftu því að heyja einvígi um titilinn sem lauk með sigri Þrastar, 1 'A-'A. Hann er því skólaskákmeistari íslands í eldri flokki og hlýtur að launum utanlands- ferð á vegum Skáksambands Islands. Þröstur var varamaður á mótinu, hljóp í skarðið fyrir Reykjavíkurmeist- arann, Hannes Hlífar, sem er að berja á útlendingum þessa dagana, sbr. hér að framan. Lokastaðan í eldri flokki: 1. Þröstur Ámason, Seljaskóla, 8 v. 2. Sigurður Daði Sigfússon, Seljaskóla, 8 v. 3. Magnús Pálmi Ömólfsson, Bolung- arvík, 7 v. 4. Tómas Hermannsson, Gagnfrsk. Akureyrar, 6 v. 5. Sverrir Öm Bjömsson, Lækjar- skóla, Hf., 5 /i v. 6. Veturliði Stefánsson, Borgamesi, 4 v. 7. Ásgrímur Angantýsson, Raufarhöfn, 3 /i v. 8. Öm Haraldsson, Flúðaskóla, Suð- url., 2 v. 9. Þórarinn Ámason, Hallormsstaðar- skóla, 1 v. 10. Guðný Hmnd Karlsdóttir, Reykja- skóla, 0 v. I yngri flokki varð Héðinn Stein- grímsson langefstur með fullt hús vinninga, 9 af 9 mögulegum! Héðinn er aðeins 10 ára gamall og var yngsti keppandi landsmótsins. Sannarlega frábær frammistaða. Helgi Áss Grét- arsson, annar bráðefnilegur piltur, varð í 2. sæti. Lokastaðan: 1. Héðinn Steingrímsson, Hvassaleitis- skóla, 9v. 2. Helgi Áss Grétarsson, Breiðholts- skóla, 7 v. 3.-4. Páll Ámason, Kársnesskóla Kóp., og Þórleifur Karlsson, Lunda skóla, Akureyri, 6 'A v. 5. Guðmundur Daðason, Bolungarvík 5 v. 6. -7. Dagur Gunnarsson, Siglufirði, o Einar Sigmarsson, Seljalandsskóla, v. 8. Marteinn Hilmarsson, Neskaupstac 2 ■/, v. 9. Júlíus Bjömsson, Ólafsfirði, 1 'A \ 10. Ægir Amarsson, Búðardal, 1 v. Skákstjóri á mótinu var Albert Sig urðsson. Vel var að undirbúning staðið og mótið fór vel fram á alla hátt. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.