Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1987, Blaðsíða 24
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1987. Kynnir Völsung „Sigur fyrir okkur ef við höldum sæti okkar í 1. deild“ - segir Kristján Olgeirsson, leikmaður með Völsungi frá Húsavík „Okkur líst mjög vel á komandi keppnistímabil og erum mjög bjartsýn- ir á góðan árangur. Það verða ein- hverjir að vera bjartsýnir fyrir okkar hönd,“ sagði Kristján Olgeirsson, leik- maður með Völsungi, í samtali við DV er hann var spurður um horfumar hjá nýliðum Völsungs í 1. deildinni í knattspymu í sumar. „Takmarkið hjá okkur er auðvitað að halda okkur í deildinni. Við yrðum svo sannarlega ánægðir ef það tækist og það yrði meiri háttar sigur fyrir okkur." „Höfum eiginlega ekkert stopp- aðfrá því ífyrra“ - Hvemig hafa æfingar gengið það sem af er? „Það má segja að við höfum ekkert stoppað frá því að keppnistímabilinu lauk í fyrra. Við hvíldum okkur að vísu í einn mánuð eftir tímabilið en vorum svo einu sinni í viku í leikfimi og teygjuæfingum fram í janúar þegar við byrjuðum að æfa úti. Þetta hafa verið mjög skemmtilegar æfingar, lítið um leiðinlegar þrekæfingar og menn yfirleitt með boltann á tánum. Það er fyrir öllu að menn hafi gaman af þessu. Við æfðum álíka fyrir keppnistímabil- ið í fyrra og það skilaði okkur mjög góðum árangri, sigri í 2. deild.“ „Hef trú á Skagamönnum“ - Hvaða lið koma til með að blanda sér í toppbaráttuna? „Það verða auðvitað Valur og Fram og svo hef ég alltaf mikla trú á Skaga- mönnum. Þeir eru kannski ekki með sterkara lið nú en áður en ég hef allt- af trú á þeim. Annars á ég von á því að íslandsmótið í ár verði mjög skemmtilegt og sterkari lið í deildinni en oft áður. Það kæmi mér ekki á óvart þótt liðin skiptust nokkuð i þrjá hópa og ég á þá von á því að við munum lenda í neðsta hópnum. Engu að síður er ég mjög bjartsýnn á að við náum að halda sæti okkar í deildinni og við stefnum alfarið að því eins og ég sagði áðan.“ „Okkur hefur gengið þokkalega í vor“ - Hvemig hefur ykkur gengið í æf- ingaleikjum í vor? „Ég held að óhætt sé að segja að okkur hafi gengið alveg þokkalega. Mig minnir að við höfúm leikið tólf æfingaleiki og okkur tókst meðal ann- ars að sigra KA, 1-0. Þá varð jafhtefli í leik okkar gegn Val og einnig töpuð- um við fyrir Val og Fram. Þetta hefúr sem sagt gengið þokkalega." - Svona í lokin ætla ég að biðja þig um að spá um úrslit Islandsmótsins. 1. Valur 2. Akranes 3. Fram 4. Keflavík 5. KR 6. Þór 7. -10. FH, Víðir, KA og Völsungur. Völsungur í 1. skipti í 1. deild í sögu félagsins Völsungur frá Húsavík leikur nú í fyrsta skipti í sögunni í 1. deild íslandsmótsins í knattspymu. Því er ekki að neita að margir bíða spenntir eftir að fylgjast með frammistöðu þeirra í deildinni og engir eru eins spenntir og fjöl- margir og dyggir stuðningsmenn liðsins á Húsavík. Völsungur hefúr auðvitað aldrei sigrað í 1. deild en í fyrra tókst liðinu í fyrsta skipti að vinna sigur í 2. deild. • Síðasti titill hjá liðinu fyrir 2. deildar keppnina í fyrra vannst árið 1979 en þá vann Völsungur sigur í 3. deild. Þar áður hafði lið- ið tvívegis sigrað í 3. deild, árin 1968 og 1971. • Völsungur hefur ekki átt markakóng í deildakeppninni í knattspymu en hver veit nema einhverjum leikmanna liðsins tak- ist að ná í þá nafhbót í sumar. | Völsungur með mun sterk- { ara lið en í fýrra Völsungar mæta með mun sterk- ara lið á pappímum í sumar en í fyrra. Segja má að fímm sterkir leikmenn bætist í hópinn frá þvi í fyrra. Þar skal fyrstan nefna Aðal- stein Aðalsteinsson, sem áður var kominn í raðir ÍR-inga og var þar áður með Víkingi, Helga Helgason sem lítið sem ekkert lék með í fyrra vegna meiðsla og sömu sögu er að segja af bakverðinum, Ómari Rafnssyni. Þá má nefina þá Snævar Hreinsson sem lék áður með Val og Hörð Benónýsson sem hefur leikið undanfarið með HSÞ-b. • Wilhelm Frederiksen er eini leikmaðurinn sem lék með Völs- ungi í fyrra en leikur ekki með liðinu í sumar. Wilhelm mun leika ytra í sumar. Af framansögðu má ljóst vera að Völsungar mæta sterkir til leiks í sumar og enginn skytdi afskrifa þá fyrirfram. • Lið Völsungs sem sigraði í 2. deild íslandsmótsins í fyrra. Wilhelm Frederiksen leikur ekki með liðinu í sumar. Nýir menn í liðinu í sumar verða þeir Ómar Rafnsson, Helgi Helgason, Hörður Benónýsson, Snævar Hreinsson og Aðalsteinn Aðalsteinsson. • Kristján Olgeirsson og félagar hans í Völsungi stefna að því að halda sæti sínu í 1. deild í sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.