Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1987. Frjálst.óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjórl og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð I lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Kjallaralið gegn lýðræði Lýðræði á í vök að verjast í þriðja heiminum þessa dagana eins og oftast áður. Stundum gengur betur sums staðar, en oftast gengur þó verr víðast hvar. Síðustu daga höfum við fengið fréttir af margs konar vandræð- um, er steðja að þessu illskásta þjóðskipulagi jarðar. Svo virðist á yfirborðinu, að lýðræði hafi unnið sigur á Filippseyjum í síðustu viku, þegar Corazon Aquino vann yfirburðasigur í heiðarlegustu þingkosningum, sem þar hafa farið fram. Enrile og Marcosarmenn fengu þar hina háðulegu útreið, sem þeir áttu skilið. Undir niðri hafa vandamál Filippseyja hrannast upp. Aquino hefur tregðast við að framkvæma loforð um skiptingu lands milli fátækra bænda og þar með fært skæruliðum kommúnista vopn í hendur. Jafnframt hefur hún í vaxandi mæli hallað sér að Bandaríkjunum. Sendimenn bandarísku leyniþjónustunnar og varnar- málaráðuneytisins hafa verið að flykkjast til Filipps- eyja. Þar er nú verið að endurtaka í hundraðasta skipti hinn alþjóðlega sorgarleik um ljóta Ameríkanann, sem hvarvetna hefur óafvitandi komið þjóðum í klandur. Síðan Marcos var hrakinn frá völdum og gerður að óvirkum þjófi, hefur Suharto, forseti Indónesíu, verið stórtækasti virki þjófur heimsins. Hann hefur löngum getað nuddað sér utan í Bandaríkin, síðan hann lét í upphafi ferils síns myrða nokkur þúsund kommúnista. Um daginn hélt Suharto gervikosningar til þingsins í landi sínu. Allt var notað til að tryggja hans mönnum sigur, þar á meðal allt litróf siðleysisins. Nú má búast við, að hann noti kosningasigurinn til að slá sig til ridd- ara í augum hins fávísa Bandaríkjaforseta. Ekki er langt síðan vinstri menn unnu meirihluta af hægri mönnum í þingkosningum á Fidji-eyjum. Um daginn var her landsins notaður til að reyna að strika yfir niðurstöðu lýðræðisins. Síðustu fréttir herma, að þetta hafi ekki tekizt, en í nokkra daga var staðan tæp. Víðar í austurálfum jarðar stendur lýðræði höllum fæti. Suður-Kóreu er stjórnað með ofbeldi, þótt skammt sé til ólympíuleikanna þar í landi. í Singapore hefur prentfrelsi verið stórlega skert, auk þess sem stjórnar- störf einræðisherrans verða sífellt sérvizkulegri. Suður-Ameríku hefur ekki tekizt að feta áfram í átt til lýðræðis, þar sem Alfonsín Argentínuforseti er fremstur í flokki. Hann hefur átt í mestu erfiðleikum með herinn í landinu og varð að ganga til samninga til að hindra, að uppþot í hernum yrðu að uppreisn. Alfonsín hefur reynt að koma lögum yfir nokkur hundruð af verstu glæpamönnunum, sem léku lausum hala á valdatíma hersins. í því hefur hann sérstöðu meðal lýðræðislega kjörinna valdhafa í Rómönsku Ameríku, því að þeir hafa engum lögum komið yfir slíka. Þetta varnarleysi gegn hernum einkennir alla álf- una. Valinkunnir leiðtogar á borð við Duarte í E1 Salvador, Cerezo í Guatemala og Sanguinetti í Uruguay hafa neyðzt til að halda hlífiskildi yfir dauðasveitum hersins. Sömu sögu er að segja frá Brasilíu og Perú. Herinn í þessum löndum skákar óbeint í bandarísku skjóli, því að reynslan sýnir, að bandaríska leyniþjón- ustan og varnarmálaráðuneytið hafa tekið opnum örmum dólgum suður-amerískra herja, en litið af tor- tryggni á lýðræðislega kjörna valdhafa álfunnar. Sorglegt er, að Bandaríkin skuli leyfa leyniþjón- ustunni, varnarmálaráðuneytinu og kjallaramönnum í Hvíta húsinu að stjórna utanríkisstefnu ríkisins. Jónas Kristjánsson „Þaö opinbera er stór atvinnurekandi og hreinn dragbítur á laun og hvergi er kynjamisrétti í launum meira áberandi en þar.“ Rangar fjárféstingar og flottréefilsháttur Nú að kosningum loknum er eðli- legt að menn setjist niður og íhugi hvaða boðskap kjósendur eru að senda ráðamönnum þjóðarinnar. Það ætti að liggja í augum uppi að fólk yfirgefur ekki flokka sem það hefur fylgt um áraraðir, kannski alla tíð, nema það sé alvar- lega óánægt. Frambjóðendur fóru meira en nokkru sinni fyrr á vinnu- staðafundi. Ef þeir hafa hlustað á eitthvað annað en eigin orð, hljóta þeir að hafa heyrt að mikil óán- ægja er í hugum fólksins. Viðbrögð sumra þeirra, þegar kosninga- úrslitin lágu fyrir, sýndu allt annað. Þeir voru steinhissa og hneykslaðir, svo innmúraðir eru þeir í sínum fílabeinsturni, svo upp- teknir við að hlusta hver á annan að ekkert berst að eyrum þeirra nema það sem þeir vilja heyra. Þeir virðast ekki vita að það eru hópar í þjóðfélaginu sem hafa óheyrilega lág laun og sjá aldrei þau meðallaun sem hagspekingar reikna út. Það eru hópar af fólki í þjóðfélaginu sem verða að lifa á elli- og örorkulaunum sem ekki ná lægstu lágmarkslaunum og eru þá allir í orði kveðnu sammála um að þau séu ekki lífvænleg. Þeir virð- ast ekki vita hvað erfitt margir eiga í húsnæðismálum bæði þeir sem hrekjast um á leigumarkaði og hin- ir sem stynja undir óbatnandi skuldum. Nýfrjálshyggjan ómennsk og grimm Fólk er orðið þreytt á yfirlæti, hroka og valdaníðslu þeirra ráða- manna sem vilja innleiða nýfrjáls- hyggjuna, það hafnar henni, finnst hún ómennsk og grimm, hún á ekk- ert erindi í íslenskt samfélag. Góðærið okkar margfræga hefur ekki skilað sér til launþega al- mennt, þó þarf ekki annað en líta í kringum sig til að sjá að hér er auður í landi. Það ætti þess vegna að vera hægt að lagfæra það sem aflaga fer með góðu móti. Ég hef reyndar aldrei trúað því að laun innan ASÍ og BSRB eigi sök á verðbólgu og annarri óáran í íslensku þjóðfélagi. Þau eru ein- faldlega mikið lægri en í öllum nálægum löndum. Við höfum ekki fylgt eðlilegri launaþróun. Við KjaHaiinn Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir alþingismaður fyrir Borgaraflokkinn höfum í raun og veru aldrei samið um 40 st. vinnuviku. Til að komast sæmilega af þarf endalausa vinnu og duga ekki einar hendur til. Sú niðurlæging, sem fylgir því að geta ekki lifað á launum sínum, er and- lega og líkamlega niðurdrepandi. Sú kenning að ríkisvaldið eigi ekki að skipta sér af kjarasamningum, þeir eigi að vera frjálsir, stenst ekki, ríkisvaldið er alltaf að grípa inn í kjarasamninga, hver sem við völd situr, og alltaf bitna aðgerðir þess verst á þeim sem síst mega við því. Við þetta hefur launþegahreyf- ingin verið of hrædd, auk þess sem hún er sundruð og nýfrjálshyggjan ræður þar of miklu. Þ.e. að réttur hinna sterku skuli ríkja. Ranglæti og misrétti í launa- málum Alltaf skeður það sama, þeir lægst launuðu eru afgreiddir fyrst, hinir koma á eftir, hirða meira og semja um með góðu samþykki rík- isvaldsins að fá þær uppbætur auðvitað margfaldar sem koma á lágu launin. Ég er ekki að segja þetta til að telja eftir launahækk- anir þeirra sem fengu sæmilega leiðréttingu heldur enn einu sinni að vekja athygli á því ranglæti og misrétti sem ríkir i launamálum. Það opinbera er stór atvinnurek- andi og hreinn dragbítur á laun og hvergi er kynjamisrétti í launum meira áberandi en þar. Mig langar að nefna eitt dæmi sem mér finnst sláandi um það. Iðnaðarmenn sömdu í desembersamningum um 35 þúsund króna lágmarkslaun og þótti flestum þeirra of lítið, sjúkra- liðar fóru fram á nákvæmlega það sama. Það gekk ekki fyrr en allt var komið í óefni, af hverju? Jú, sjúkraliðar eru dæmigerð kvenna- stétt. íslendingar vilja ekki að fólki líði illa Meinið í þjóðfélaginu í dag er ekki almenn laun, meinið er rangar fjárfestingar og flottræfilsháttur á ýmsum sviðum. Þeir sem mynda næstu ríkisstjórn eiga margvísleg- an vanda fyrir höndum. Þeir flokkar, sem eiga eftir að útkljá sín innri deilumál, standa ekki vel að vígi til að stjóma öðrum. Þeir flokkar sem ekki setja á oddinn réttlætismál eins og jöfnun launa og betri aðbúð aldraða og öryrkja eru ekki á réttri leið. Við íslendingar viljum ekki að fólki í kringum okkur líði illa ef hægt er að bæta úr því. Við þurfum að efla sjálfsforræði landsbyggðar- innar. Kvótakerfið gengur ekki í þeirri mynd sem það er. Við þurfum að skipta um efnahagsráðunauta, við erum búin að fá nóg af útreikn- ingi sem aldrei stenst. Sem sagt meira af almennri skynsemi en minna af reikningskúnstum. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir „Meinið í þjóðfélaginu í dag er ekki al- menn laun, meinið er rangar fj árfest- ingar og flottræfilsháttur á ýmsum sviðum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.