Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1987, Page 16
16
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1987.
Spumingin
Hverjir verða sigurveg-
arar í íslandsmótinu í
knattspyrnu sem hefst í
dag hjá körlum?
Eggert Bjarni Richard nemi: Ég býst
við að Framarar vinni, þeir hafa á
að skipa sterkasta liðinu núna. Ég
er sjólfur Framari og vona bara að
mínu liði gangi sem best.
ekki klár á því en ég vona bara að
Framarar vinni því ég held með þeim.
Ég gæti trúað að það yrði hörð bar-
ótta hjá KR-ingum og Frömurum um
fyrsta sætið.
Hilmar Jónsson nemi: Ætli það verði
ekki KR-ingar, þeir eru langbestir
og hafa því mikinn möguleika á að
sigra á þessu móti. Framarar hafa
líka góðu liði ó að skipa og verða
örugglega líka ofarlega.
maður: Enginn vafi að Akurnesingar
eiga eftir að vinna á mótinu. Um
annað sætið á eftir að verða hörð
keppni á milli KR-inga og Framara.
Ég er sjólfur dyggur stuðningsmaður
Akurnesinga og hef því mikla trú á
þeim.
Hrafnhildur Hrafnkelsdóttir: Ég hef
bara ekki hugmynd um það því ég
fylgist nánast ekkert með þessum
boltaleik.
Elín B. Hilmarsdóttir hjúkrunar-
fræðingur: Ég hef nú ekkert voða
mikið vit á' fótbolta enda fylgist ég
lítið sem ekkert með þessari íþrótt
en ætli ég skjóti ekki á Framara.
Lesendur_________________________________________dv
Vímuefnin:
Soigleg umfjóllun og áróður
„Vimuefnafaraldur sá er nú gengur yfir þjóðina i formi neyslu og notkunar
á hvers kyns efnum og eiturlyfjum, ásamt gamla góða brennivíninu, er
með eindæmum og er sennilega hvergi meira áberandi en hér á landi.“
æsku“, eða hvað það nú heitir, sem
Þórhallur skrifar:
Vímuefnafaraldur sá er nú gengur
yfir þjóðina, í formi neyslu og notk-
unar ungmenna og reyndar fullorð-
ina á hvers kyns efnum og eiturlyfj-
um, ásamt gamla góða brennivíninu,
er með eindæmum og er sennilega
hvergi meira áberandi en hér á landi.
Þetta er íyrst og fremst áberandi
hjá fullorðnu fólki sem kann ekkert
með áfengi að fara og hefur aldrei
viljað taka sér tak í þeim efnum.
Eitt er bó einkar furðulegt og það
er að folk umgengst vín og aðra
sterkari drykki mun betur eða hóf-
legar erlendis en þegar það er hér
heima. Ég á hér við almenna ferða-
menn íslenska sem eru fljótir að
tileinka sér almenna mannasiði þeg-
ar þeir eru t.d. í fríi erlendis. Þegar
heim kemur sækir svo í gamla farið,
fólk drekkur sig ölvað við minnsta
tilefni og eins og einhvem veginn
samlagast þessu „verstöðvar" - and-
rúmslofti sem hér ríkir allt árið.
En nóg um þann þátt í bili. Ég
vildi koma hér að hversu ósmekk-
lega er staðið að hvers konar áróðri
og kynningu sem hér er farið af stað
með. Tökum umfjöllunina og áróð-
urinn fyrir þessari „vímulausu
dunið hefur yfir nú síðustu daga.
Einn liðurinn var tveggja eða
þriggja daga samfellt prógram á
einni útvarpsstöðinni. Fólk keypti
lag eða keypti það út aftur. Upphæð-
imar vom frá 300 hundmð kr. og
allt upp í tugi eða hundruð þúsunda!
Einn þuluiinn hældi þessu í gríð
og erg vegna þess að þeir hjá kanan-
um, eins og hann sagði, væm með
svipaða dagskrá þennan sama dag
um eitthvert mál og þar væm menn
að væflast með 4-5 dollara fyrir
lagið!
Það er þetta sem er gagnrýnisvert,
að ekki skuli mega fara af stað með
almenna söfnun eða áróður fyrir
góðu málefhi án þess að æði grípi
um sig hjá þjóðinni og upphæðir
skipti þúsundum, milljónum eða tug-
um milljóna. Er ekki betra minna
og jafhara? Hjá siðmenntuðum þjóð-
um þekkist ekki viðlíka æðibunu-
háttur og það er þess vegna sem
þeir hjá kananum í Keflarvíkurút-
varpinu þekkja ekki að henda hærri
upphæðum en svona 4-5 dollurum
frá einstaklingi. En við þekkjum
ekki annað en sóun og mikil-
mennskubrjálæði þegar fjármál em
annars vegar.
Annað sem mér finnst sorgleg stað-
reynd í umljöllun um vímu- og
eiturefni em sjónvarpsþættimir þar
sem verið er að sýna eiturefhi og
áhöld þau sem notuð em til að fá
vald á vímuefnum. Þetta er gert
undir því yfirskyni að verið sé að
auðvelda foreldrum að þekkja þessa
hluti! Hvílík heimska og bamaskap-
ur. Fræðsla i skólum er eina hald-
góða vömin fyrir þá sem á annað
borð em móttækilegir.
Sýnið ballskák eða pílukast
Sjónvarpsunnandi skrifar:
Nú er kominn tími til að Ríkissjón-
varpið eða Stöð 2 sýni annaðhvort
ballskák eða pílukast. Ekkert hefur
sést í íþróttaþáttunum hjá þessum
stöðvum, sérstaklega sjónvarpinu, af
þessum greinum.
Nú er nýafstaðin heimsmeistara-
keppni í ballskák eða snóker og ekki
seinna vænna að fara að sýna eitthvað
af viti. Þessar íþróttagreinar em í sókn
og hafa átt miklum vinsældum að
fagna hér á landi undanfarin ár.
Nú er kominn timi til að Ríkissjónvarplð eða Stöð 2 sýni annaðhvort ballskák
eða pílukast.
„Hundleiðinleg söngvakeppni“
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Hin hundleiðinlega söngvakeppni
sjónvarpsstöðva er afetaðin eina ferð-
ina enn. íslenska framlagið Hægt og
hljótt hlaut ekki náð fyrir eyrum dóm-
nefhdanna. Hafhaði í 16. sæti sem
alkunna er. Margir hafa velt fyrir sér
auglýsingagildi slíkrar keppni fyrir
þjóðimar er þátt taka í henni. Sumir
telja hana mjög góða auglýsingu, aðr-
ir ekki mikla og svo enn aðrir enga,
sem ég hallast á að sé rétt.
Hver man til að mynda eftir lagi því
sem vann 1981, svo dæmi sé tekið?
Ekki ég í það minnsta. Hins vegar
muna allir eftir þeim sænskættuðu
Abba-meðlimum. Hvers vegna? Jú,
Abba hélt áfram að sigra heiminn í
ein átta ár eftir söngvakeppnina, ef
ég man rétt. Að öðrum kosti hefði hún
mátt falla fljótlega í gleymskunnar dá
eins og svo margir hafa mátt þola.
Annars er ég síður en svo andstæð-
ingur áðumefhdrar söngvakeppni.
Finnst alveg sjálfeagt að landinn taki
þar þátt. Söngvakeppnin sem slík er
eins og hver annar afþreyingarþáttur
sem fólk horfir á. Osköp meinlaus
froða sem lítið skilur eftir.
Um flytjendur Hægt og hljótt hef ég
það að segja að þau Halla Margrét
og Valgeir stóðu sig með prýði og
vom landi sínu og þjóð svo sannarlega
til sóma. Mér finnst Hægt og hljótt
ein af bestu smíðum Valgeirs og það
var ákaflega fallegt í einfaldleika sín-
um. Fólk er eflaust farið að spá í
kostnaðinn og milljónir hafa verið
nefhdar í því sambandi. En hvað er
ekki dýrt, það er t.d. rándýrt að vera
til.
Halla Margrét og Valgeir stóðu sig með prýði og voru landi sinu og þjóð svo
sannarlega til sóma.
Til hamingu,
Sólveig og
Marel
Margrét Erla Einarsdóttir,
6351-4365, hringdi:
Ég hringi út af því að ég sendi
inn afmæliskveðju í þáttinn hjá
Páli Þorsteinssyni á Bylgjunni 13.
þessa mánaðar. Hann lofaði að
koma kveðjunni áleiðis en hún
kom aldrei.
Ég hringdi í hann aftur og spurði
hvort hann gæti ekki sent af-
mæliskveðjuna til tvíburanna
minna, sem urðu 35 ára 14. maí,
og aftur lofaði hann því en stóð
síðan ekki við það.
Svona kveðjur em kannski ekki
svo merkilegar að það taki því að
vera að gera mál út af þeim en í
mínu tilfelli var þetta það eina sem
ég gat gefið bömunum mínum. Og
fyrst hann var búinn að lofa að
gera þetta fyrir mig þá hefði ég
talið að ég gæti treyst því og hann
myndi standa við það.
Ég vona að DV sjái sér fært að
koma afmæliskveðju minni á fram-
færi til bamanna minna, Sólveigar
Þórðardóttur og Marels Þórðar-
sonar, sem urðu 35 ára hinn 14.
maí.
Fótböitaskóii
á höfuðborg-
arsvæðinu!
Rúna Gunnarsdóttir hringdi:
Mig langar að komast að því
hvort haldin séu einhver knatt-
spymunámskeið fyrir unga pilta í
Reykjavík.
Ég bý úti á landi og veit því
ekki alveg hvemig ég á að snúa
mér í þessum efhum og því vildi
ég biðja lesendasíðuna að koma
þessu á framfæri fyrir mig.
Ef það er starfræktur einhver
fótboltaskóli á höfuðborgarsvæð-
inu þá endilega látið lesendasíð-
una vita og hún mun koma því
áleiðis.
HRINGIÐ í SÍMA
27022
MILLI KL. 13 og 15
EÐA SKRIFIÐ